Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Page 5
22
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1987.
FÖSTUDAGUR 29. MAl' 1987.
27
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sunnudaginn
31. maí 1987
Árbæjarprestakall.Guðsþjónusta í
Árbæjarkirkju kl. 11 árdegis. Organ-
leikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Breiðholtsprestakall.Guðsþjónusta
kl. 11.00 í Bústaðakirkju. (Ath.
breyttan messutíma.) Organisti
Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja.Guðsþjónusta kl. 11.
(Ath. breyttan messutíma.) Organisti
Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jónasson
messar. Sóknarnefndin.
Digranesprestakall. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
Dómkirkjan. Messa kl. 11. Að beiðni
verður endurflutt predikun frá í vet-
ur um trúartáknin í Dómkirkjunni.
Orgelleikarinn leikur á orgel kirkj-
unnar í 20 mín. fvrir messuna. Sr.
Þórir Stephensen.
Elliheimilið Grund. Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Árelíus Níelsson.
Fella- og Hclakirkja. Guðsþjónusta
kl. 11. Sóknarnefnd Hólabrekku-
sóknar boðin velkomin til starfa.
Meðlimir sóknarnefndanna í Fella-
sókn og Hólabrekkusókn flytja
ritningarlestur og bæn. Organisti
Guðný Margrét Magnúsdóttir.
Ragnheiður Sverrisdóttir djákni.
Frikirkjan í Reykjavik. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðspjallið í
mvndum. Barnasálmar og smábarna-
söngvar. Afmælisbörn boðin sérstak-
lega velkomin. Framhaldssaga. Við
píanóið Pavel Smid. Sr. Gunnar
Björnsson.
Grensáskirkja. Safnaðarferð í Borg-
arfjörð. Lagt af stað frá Grensás-
kirkju kl. 09.30 árdegis. Tekið þátt í
rnessu í Reykholtskirkju kl. 14.00.
Skoðunarferð um héraðið með leið-
sögumönnum. Komið til Revkjavík-
ur kl. 18.00. Allir velkomnir með.
Sóknarnefndin.
Hallgrímskirkja. Messa kl. 11. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðjudag-
ur: Fyrirbænamessa kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum.
Landspítalinn. Messa kl. 10. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Háteigskirkja. Messa kl. 11. Organ-
leikari Orthulf Prunner. Sr. Arn-
grímur Jónsson.
Kársnesprestakall. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Árni Páls-
son.
Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
Sig. Haukur Guðjónsson. Organisti
Violetta Smidova. Sóknarnefndin.
Laugarneskirkja. Engin messa
sunnudag. Sóknarprestur.
Neskirkja. Sameiginleg guðsþjón-
usta Nes- og Seltjarnarnessafnaða í
Neskirkju kl. 11. Kór Seltjarnarnes-
safnaðar syngur. Organisti Sighvat-
ur Jónasson. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir.
Seljasókn. Guðsþjónusta í Öldusels-.
skólanum kl. 11 árdegis. Altaris-
ganga. Aðalsafnaðarfundur
Seljasóknar verður í Tindaseli 3
mánudaginn 1. júní kl. 20.30. Sóknar-
prestur.
Seltjarnarnesprestakall. Sameigin-
leg guðsþjónusta Nes- og Seltjarnar-
nessafnaðar i Neskirkju kl. 11. (Ath.
breyttan messustað.) Kór Seltjarnar-
nessafnaðar syngur. Organisti
Sighvatur Jónasson. Prestur Solveig
Lára Guðmundsdóttir.
Stokkseyrarkirkja. Messa kl. 14.00.
Sóknarprestur.
Kirkja Oháða safnaðarins Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Sr. Þórsteinn Ragnars-
son.
Tónleikar
Passíukórinn í
Akureyrarkirkju
Passíukórinn verður með tónleika í Akur-
eyrarkirkju mánudaginn 1. júní kl. 20.30.
Kórinn syngur messu eftir Cesar Frank
og verk eftir Hándel. Þessir tónleikar eru
aðrir í röðinni hjá Passíukómum á þessu
starfsári. Einsöngvarar eru Margrét Bóas-
dóttir, Michael Clark og Halldór Vil-
helmsson.
Tónleikar í Kópavogskirkju
Tónleikar skólakóranna á Kársnesi í
Kópavogi verða í Kópavogskirkju sunnu-
daginn 31. maí og heQast kl. 17.1 kórnum
eru á annað hundrað krakkar, 8-16 ára,
en stjómandi þeirra er Þómnn Björns-
dóttir.
Tristan og ísold nefnist þetta verk Ásmundar Sveinssonar frá 1965.
Abstraktlist
Ásmundar
Sveinssonar
Um þessar mundir stendur yfir í Ásmundarsafni sýningin Abstraktlist Ásmundar
Sveinssonar. Þar gefur að líta 26 höggmyndir og 10 vatnslitamyndir og teikingar.
Sýningin spannar 30 ára tímabil af ferli Ásmundar, þann tíma sem listamaðurinn
vann að óhlutlægri myndgerð. í Ásmundarsafni er ennfremur til sýnis videómynd
sem íjallar um konuna í list Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu bækur. kort,
litskyggnur, videómyndir og afsteypur af verkum listamannsins. Safnið er opið
daglega yfir sumarið, frá kl. 10.00 til 16.00.
Lokasýning á Hallæristenór
Allra síðasta tækifæri til að sjá
hinn bráðskemmtilega gamanleik.
Hallæristenór eftir Kenn Ludwig.
í þýðingu Flosa Ólafssonar og leik-
stjórn Benedikts Arnasonar.
verður á laugardagskvöldið.
Sem kunnugt er, er hér á ferðinni
óperugrín þar sem þeir Örn Árna-
son og Aðalsteinn Bergdal fara á
kostum sem óperusöngvarar. annar
í hlutverki hetjutenórs og hinn í
hlutverki hallæristenórs. Spurin-
ingin er bara hvor er hvor? Með
önnur stór hlutverk fara Erlingur
Gíslason, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Lilja Þórisdóttir, Helga E. Jóns-
dóttir. Herdís Þorvaldsdóttir og
Árni Tryggvason.
Það sérstæða við sýninguna Frímex’87 er að í fyrsta
sinn eru sýnd söfn úr svokölluðum nálarflokki en í
þeim flokki eru söfn byrjenda sem fæst hafa verið
sýnd áður.
Frímex ’87 á
Loftleiðum
Félag frímerkjasafnara verður 30 ára hinn 11. júní
næstkomandi og mun það vera elsta félag frímerkja-
safnara sem starfar hér á landi. I tilefni afmælisins
efnir félagið til allsérstæðrar sýningar, Frímex ’87, í
Kristalsal Hótel Loftleiða á morgun, laugardag.
Sýningunni er skipt í fjórar deildir, heiðursdeild sem
inniheldur íslensk frímerkjabréf í eigu Þjóðskjalasafns
Islands og hefur ekki verið sýnt hér á landi áður, sam-
keppnisdeild en þar verður sýnt margvíslegt efni,
sérstaða þess felst í því að í fyrsta sinn eru sýnd söfn
í svokölluðum nálarflokki en í þeim flokki eru söfn
byrjenda sem fæst hafa verið sýnd áður, kynningar-
deild bar sem sýnd verða öll íslensk frímerki sem komið
hafa út til þessa dags og bókmenntadeild sem verður
undirlögð ritum um frímerki.
Sýningin er opin á laugardag frá kl. 14.00 til 20.00,
á sunnudag frá kl. 14.00 til 22.00 og á mánudag frá
14.00 til 20.00.
Áskirkja, Norræna húsið og Hótel Borg:
Tónleikar á vegum
Musica Nova
Tolli
r
i
Eyjum
Þorlákur Kristinsson. betur þekkt-
ur sem Tolli. opnaði á dögunum
sýningu í Akogeshúsinu í Vest-
mannaevjum þar sem hann sýnir
olíumálverk, máluð á árunum
1984-1987, 30 verk.
Tolli hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga og er þetta fimmta einka-
sýning hans.
Síðast sýndi hann með s-kóreska
myndlistarmanninum Bono Kyou-
Im í kóresku menningarmiðstöð-
inni í París í byrjun apríl á þessu
ári.
Sýning Tolla í Akógeshúsinu
stendur til sunnudags, 31. maí. og
er opin frá kl. 14.00 til 22.00.
Þorlákur Kristinsson, Tolli, sýnir 30 olíumálverk í
Vestmannaeyjum fram á sunnudag.
Óperugrinið Hallæristenór verður sýnt í síðasta sinn á laugardagskvöldið.
Pólskur myndlistarmaður
í Gallerí Hallgerði
Gítartónleikar Páls Eyjólfssonar
verða í Áskirkju sunnudaginn 31.
mai kl 20.30, á vegum Musica Nova.
Verða þar flutt sjö verk eftir sex
höfunda.
Flutt verða Dans eftir Mist Þor-
kelsdóttur, Preludio nr. 2, Tonada
De Contrapunto frá 1984 og Impro-
visacion númer 2 eftir Eyþór
Þorláksson, Hommage a Béla Bart-
ók frá 1972, eftir tékkneska tón-
skáldið Jana Obroskva og
Sarbande eftir Francis Poulenc,
franskt tónskáld. Þá verður gert
hlé á tónleikunum en eftir hlé
verða spiluð tvö verk eftir John
Spieght sem skrifaði meðal annars
Bagatellurnar fyrir Símon Ivarsson
fyrir ári. Verkin sem flutt verða
eftir hann eru Fjórar Bagatellur
og Bergmál Orfeusar.
Fleira verður á dagskrá Musica
Nova. Á þriðjudagskvöld verða þau
Ástmar Ólafsson og Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir í Norræna húsinu
kl. 20.30 með píanódúó. Á miðviku-
dagskvöldið verður Súld á Hótel
Borg kl. 21.00. Súldin er skipuð
þeim Szymon Kuran, Steingrími
Guðmundssyni, Stefáni Ingólfssyni
og Þorsteini Magnússyni.
Páll Eyjólfsson lærði hjá Eyþóri Þorlákssyni í Gitarskólanum og lauk
þaðan burtfararprófi 1982. Hann hefur síðan dvalið á Spáni um þriggja
ára skeið og stundað framhaldsnám hjá Jose Luis Gonzales.
Jacek Sroka. pólskur mvndlistarmaður. sýnir í Gallerí
Hallgerði um þessar mundir.
Stroka stundaði nám við listaakademíuna í Krakow.
Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga víða um
heim og hlotið mörg verðlaun. meðal annars á 6. Bi-
ennale of Graphic Art. Mulhouse í Frakklandi árið
1984. á sýningunni Ung grafík í Gallerv Plastyka í
Krakow í Póllandi 1986 og á fyrstu alþjóðlegu smá-
myndasýningunni í de! Bello Gallery í Toronto í
Kanada árið 1986.
Sroka leggur meðal annars út af galdraofsóknum
miðalda í mvndum sínum. Um leið hafa þær afar sterka
skírskotun til Póllands nútímans.
I fréttatilkvnningu frá Langbrækum, _sem segjast
kvnna Jacek Sroka meó stolti, segir: „Áhorfandinn
finnur óhugnanlega nálægð heimsks kúgunarvalds og
skipulegra lyga. En þrátt fvrir ótvíræðan boðskap og
magnað táknmál eru myndir Sroka aldrei einfeldn-
ingslegar. Verkin eru þrungin spennu, litanotkun
öguð. teikningin markvís.”
Sýningin stendur til 10. júní næstkomandi.
Meginviðfangsefni Pólverjans Sroka eru galdraof-
sóknir miðalda.
Tilkyimingar
Útivistardagur aldraðra
Sunnudaginn 31. maí kl. 13.30 efnir Félag
áhugafólks um íþróttir aldraðra til útivist-
ar í trjágarðinum í Laugardal. Farið
verður í „ratleik”, skemmtilegan leik sem
allir geta tekið þátt í. Stjórnandi er Anton
Bjarnason íþróttakennari. Klæðist hlýjum
fbtum og verið ! þægilegum skóm. Takið
lesgleraugun með. ATH., ekið frá Suður-
landsbraut niður Holtaveg eða Múlaveg.
Allir velkomnir.
Guðsþjónusta og kaffisala
i Vindáshlíð
Sumarstarf KFUK í Vindáshlíð hefst
sunnudaginn 31. maí með guðsþjónustu í
Hallgrímskirkju í Vindáshlíð í Kjós. Guðs-
þjónustan hefst kl. 14.30 og mun sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir annast hana. Að
guðsþjónustu lokinni verður kaffisala.
Sumarstarf KFUK hefur rekið sumarbúðir
í Vindáshlíð frá árinu 1948. A.hverju sumri
dvelja um 550 stúlkurí Vindáshlíð. Auk
barna- og unglingaflokka er sérstakur fjöl-
skylduflokkur og kvennaflokkur. Fyrsti
flokkur sumarsins fer upp í Vindáshlíð
|)riðjudaginn 2. júní. Á sunnudaginn eru
allir velkomnir í Vindáshlíð.
eru af ýmsum toga: félagsleg og sálarleg.
Rangæingafélagið í Reykjavík
Laugardaginn 30. maí nk. fagnar Rangæ-
ingafélagið í Ileykjavík nýju og glæsilegu
orlofshúsi að Hamragörðum. Vestur-Eyja-
fjallahreppi, með formlegri opnun. Vígslu-
hátíðin hefst kl. 17 með stuttri athöfn við
orlofshúsið með ávörpum og samsöng. Kl.
21 heldur hátíðin áfram í Félagsheimili
Vestur-Eyfellinga að Heimalandi og lýkur
með dansi kl. 03. Kaffihlaðhorð verður á
Heimalandi frá kl. 18 til kl. 21. Kaffiveit-
ingarnar annast Kvenfélagið Evgló í
Vestur-Eyjafjallahreppi. Rútuferðir verða
frá Umferðarmiðstöðinni á vegum Austur-
leiðar kl. 14.30. Rangæingafélagið væntir
þess að sem flestir Rangæingar, bæði burt-
fluttir og heimamenn, og aðrir velunnarar
félagsins mæti á vígsluhátíðina og noti
þetta einstaka tækifæri til að hittast og
fagna þessum merku tímamótum í sögu
Rangæingafélagsins.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður
laugardaginn 30. mai. Lagt verður
af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.
Markmið göngunnar er samvera,
súrefni, hreyfing. Ungir og aldnir
velkomnir. Skemmtilegur félags-
skapur. Nýlagað molakaffi.
Flóamarkaður
Uppeldis og meðferðarheimilið Sólheim-
um 7 heldur hinn árlegá fióamarkað sinn
sunnudaginn 31. maí kl. 15 19 í safnaðar-
heimili Langholtskirkju. Flóamarkaður-
inn er liður í fjáröfiun ferðasjóðs
heimilisins og er stefnt að ferð til Eng-
lands í sumar. Heimilið er ætlað sjö
unglingum á aldrinum 12 16 ára og hefur
nú verið starfrækt í tvö ár. Heimilið rekur
langtímameðferð fyrir unglinga sem þurfa
á aðstoð að halda. Vandamál unglinganna
vimugjafar og erfiðar heimilisaðstæður.
svo eitthvað sé nefnt. Auk flóamarkaðár-
ins verður tombóluborð og uppboð á
gömlum munum.
Fundir
Ráðsfundur málfreyja
Ríiðsfundur II. ráðs málfreyja verður hald-
inn að Hlégarði í Mosfellssveit laugardag-
inn 30. maí. Fundurinn hefst kl. 13. A
fundinum flvtur Ingveldur Ingólfsdóttir.
forseti landssamtakanna. fræðsluerindi
urn dagskrárgerð og einnig verður emb-
ættismannaþjálfun. Fundarhlé veröur kl.
17 og kvöldverður kl. 19 og innsetning
nýrrar stjórnar.
Aðalfundur
Þjóðfræðafélagsins
verður haldinn laugardaginn 30. maí í
stofu 20 í Odda og hefst hann kl. 17. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa mun Frosti
Jóhannsson flvtja erindi um nýjan bóka-
flokk. íslensk þjóðmenning. markmið
og uppbygging.
Leiklist
Leikfélag Akureyrar
Allra síðustu sýningar á Kabarett verða á
föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.30.
Þjóðleikhúsið
Hallæristenór. Á laugardagskvöldið gefst
allra síðasta tækifæri til að sjá gamanleik-
inn Hallæristenór.
Yerma. Á sunnudagskvöldið verður 6.
sýning á spánska snilldarverkinu Yermu
eftir Federico Garcia Lorca.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Göngudagur Ferðafélagsins sunnudag-
inn 31. maí.
Helgarferð til Þórsmerkur 29.-31. maí.
í Þórsmörk verða famar gönguferðir eftir
því sem tími og aðstæður leyfa. Gist í
Skagfjörðsskála/Langadal. Upplýsingar
og farmiðasala á skrifstofu FÍ.
Útivistarferðir
Helgarferðir 29.-31. maí.
1. Breiðafjarðareyjar-Purkey. Náttúru-
paradís á Breiðafirði. Tjaldað í eyjunni.
Sigling m.a. að Klakkeyjum.
2. Tindfjöll. Gist í Tindfjallaseli. Gengið
á Tindfjallajökul. Góð jöklaferð.
3. Þórsmörk. Gist í Útivistarskálunum í
Básum. Uppl. og farm. á skrifst., Grófinni
1. Símar 14606 og 23732. Sjáumst.
Vorferðalag Gerplu
Laugardaginn 30. maí verður vorferðalag
Gerplu og er ferðinni heitið í Þrastaskóg
þar sem grillaðar verða pyslur og farið í
leiki. Á heimleiðinni verður komið við í
sundlaug. Brottför verður frá íþróttahúsi
Gerplu við Skemmuveg um kl. 10 f.h. og
áætlað að koma í bæinn aftur um kl. 17.
í júnímánuði verður boðið upp á bvrjenda-
námskeið í fimleikum hjá íþróttafélaginu
Gerplu. Verður kennslu þannig háttað að
hvert námskeið stendur í tvær vikur og
verður kennt 4 daga vikunnar. eipa
klukkustund í senn. Fyrri námskeiðin
standa frá 1. júní til 12. júní og þau seinni
frá 15. júní til 25. júní. kl. 14-15 og 15-16.
Sýningar
Sýning á Selfossi
Laugardaginn 30. maí kl. 14 opnar Elfar
Guöni sýningu í Listasafni Árnessýslu á
Selfossi. A sýningunni verða 40 oliumái-
verk. Þetta er 15. einkasýning Elfars.
Sýningin er opin um helgar kl. 14-22 og
lýkur henni annan í hvítasunnu. 8. júní.
Nýja galleríið
Yikulás Sigfússon heldur sýningu á vatns-
lita- og akrýlmyndum í Nýja galleríinu.
Laugavegi 12. II. hæð. Sýningin verður
opnuð laugardaginn 30. maí kl. 14 og verð-
ur opin kl. 14-22 um helgar en 15-22 virka
daga til 14. iúní. A sýningunni eru um 30
rnyndir. flestar málaðar á þessu og sl. ári.
Xikulás hefur áður haldið nokkrar einka-
sýningar og tekið þátt í samsýningum.
Árbæjarsafn
Opið samkvæmt samkomulagi.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
Skólasýning Asgrímssafns hefur verið
opnuð. Sýningin er opin almenningi á
opnunartíma safnsins: sunnudaga. þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Aðgang-
ur er ókeypis.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Um þessar mundir stendur yfir sýningin
abstraktlist Ásmundar Sveinssonar. Þar
gefur að líta 26 höggmyndir og 10 vatns-
litamvndir og teikningar. Þá er einnig til
sýnis videomynd sem fjallar um konuna í
list Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu
bækur. kort. litskyggnur, videomyndir og
afsteypur af verkum listamannsins. Safntð
er opið daglega yfir sumarið kl. 10-16.
FÍM-salurinn
Garöastræti 6
Guðrún Svava Svavarsdóttir sýnir teikn-
ingar unnar með ýmsum aðferðum.
Sýningin ber yfirskriftina Land og fólk.
Sýningin er opin daglega kl. 14-18 til 8.
júní.