Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Side 6
28 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1987. Bíóhöllin Með tvær í takinu Með tvær í takinu (Outrageus Fortune) er meðal vinsælustu mynda vestanhafs. Aðalhlutverkin leika hressar leikkonur, Shelley Long og Bette Midler. Þær kynn- ast ó leiklistarskóla og er ekkert vel hvorri við aðra í byrjun. Önnur tekur námið alvarlega en hin er kæruleysið uppmálað. Á yfirborð- inu virðist skólinn vera ósköp venjulegur en ekki er allt sem sýn- ist. Menn frá KGB hafa komið sér fyrir í skólanum og á meðal þeirra er einn sem þær báðar falla fyrir. Hann hverfur af sjónarsviðinu. Þær trúa ekki að hann sé dauður og taka sér ferð á hendur til að hafa uppi á honum. Þó má geta þess að í Bíóhöllinni er sýnd úr- valsmyndin Koss köngulóarkon- unnar. (Kiss Of The Spider Woman). Mynd sem hefur áhrif ó áhorfandann. William Hurt og Raul Julia fara ó kostum í aðal- hlutverkunum og fékk sá fyrr- nefndi óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í myndinni. Koss köngulóar- konunnar er mynd sem enginn kvikmyndaunnandi á að láta fram hjá sér fara. skáldskapnum, sýnir baráttu hjón- anna Ódyssseifs og Penelópu við umhverfið, gjörninga og galdra og önnur vélabrögð náttúru og manna. Ódysseifur myndskreyttur hefur hvarvetna hlotið hástemmt lof gagnrýnenda sem og frábærar við- tökur almennings. Og raunar ekki við öðru að búast því vel var til verksins vandað og ýmsum brögð- um beitt. Ásamt Mariu Lexu er Berhard Colin höfundur Ódysseifssýningar- innar. Hann ferðaðist og dvaldi lengi í Norður-Afríku og fyrir botni Miðjarðarhafs og kynnti sér forna frásagnalist þessara svæða. Seinna gekk hann í kvikmyndaskóla í Par- ís og vann árum saman við kvikmyndir í Frakklandi. Síðan sneri hann sér að leikhúsi og hefur starfað við The living theatre og Theatre du Soleil og svo við Odin- leikhúsið danska. Nú er Berhard Colin listrænn stjórnandi Théatre de Folle í St. Brieuc. Maria Lexa er ekki alls kostar ókunnug íslendingum því árið 1983 hélt hún athyglisverða sýningu í Félagsstofunun stúdenta og árið eftir hélt hún tvö námskeið í Kram- húsinu. Hún lýkur ferð sinni með námskeiði vikuna 1. til 7. júní en þá mun hún halda námskeið í lát- bragði og spuna í Kramhúsinu. Kvikmyndahús - Kvikmyndahús Bíóborgin Nýjasta kvikmynd Sidneys Lumet, Morguninn eftir (The Morning Aft- er) íjallar um drykkfellda leikkonu á niðurleið sem morgun einn vaknar í i ókunnri íbúð og við hliðina á henni er maður sem hefur verið myrtur. Hún veit ekki hvort hún hefur myrt hann eða ekki. I örvæntir.gu flýr hún húsið en rekst á fyrrverandi lög- regluþjón. Fer hún aftur á morðstað- inn, reynir að hreinsa allt sem hún kom nálægt, finnur að einhver annar er í íbúðinni, flýr aftur út, rekst aftur á fyrrverandi lögreglumanninn, býð- ur honum heim til sín, drekkur sig fulla, vaknar timbruð morguninn eft- ir og þegar hún opnar klæðaskápinn dettur líkið út úr honum... Það er sannarlega nóg um að vera í byrjun góðs þrillers frá Lumet. Jane Fonda leikur leikkonuna og fer á kostum. Jeff Bridges leikur lögreglumanninn átakalaust að vanda. Regnboginn Nýjasta mynd Johns Landis nefnist Þrír vinir (Three Amigos). Slær hann þar á létta strengi, enda með fræga grínara í aðalhlutverkum. Það þarf ekki að kynna Steve Martin og Chevy Chase. Þeir eru í dag meðal allra þekktustu og vinsælustu garn- anleikara vestanhafs. Þriðji vinur- inn er aftur á móti Martin Short, alveg óþekktur hérlendis en þekktur grínari vestan hafs. Þessir þrír heið- ursmenn leika þrjár hetjur þöglu kvikmyndanna en eru í raun hinir mestu hrakfallabálkar. Þegar þeir heimta launahækkun eru þeir um- svifalaust reknir... Þá hefur Regn- boginn hafið sýningar á gamansamri mynd Milli vina (Just Between Fri- ends) sem fjallar umframhjáhald. Urvalsleikarar eru í aðalhlutverk- um. Bíóhúsið Bíóhúsið hefur hafið sýningar á mynd með Tom Cruise Á réttri leið (All the Right Moves). Tom Cruise er sjólfsagt í dag meðal dáðustu leik- ara af yngri kynslóðinni. All the Right Moves er unglingamynd í gam- ansömum tón. Cruise leikur ungan mann sem langar i háskóla en hefur ekki efni á því. Þess vegna verður hann að treysta á skólastyrk og þar eru margir um hituna ... Háskólabíó Gullni drengurinn (The Golden Child) er fyrsta mynd Eddies Murphy eftir stórsigurinn í The Beverly Hills Cop. Þetta er ævintýramynd þar sem slegið er á létta strengi eins og búast má við þegar Eddie Murphy ó í hlut. Meðleikari Murphys er Charles Dance og leikur hann barnaræningja sem rænir barni með töframátt. Sam- kvæmt spósögn getur aðeins einn maður fundið barnið og að sjálfsögðu er það persónan sem Eddie Murphy leikur. Tónabíó Tónabíó sýnir spennumyndina Fyrsti apríl (April Fool’s Day) sem fjallar um átta háskólanema sem dvelja eina helgi hjó einum þeirra. Fljótt byrja óvæntir atburðir að ger- ast, einn af áttmenningunum hverfur og um leið byrjar sú sem bauð að haga sér heldur betur undarlega ... Stjörnubíó Hinn þekkti leikstjóri Blake Ed- wards er kominn með enn eina mynd og nefnist hún einfaldlega Svona er lífið (That’s Life). Fjallar myndin um Harvey sem er að verða sextugur en Jack Lemmon leikur hann. Þegar afmælið nálgast rennur það upp fyrir honum að hann vill ekki verða gam- all og tekur upp á ýmsum uppátækj- um sem ekki allir geta sætt sig við. Þá hefur Stjörnubíó hafið sýningar á Ógnarnótt (Night Of The Creeps) sem fjallar um skólanemendur er ætla sér að ræna líki. Það sem átti að verða gaman breytist í hrylling. Laugarásbíó Laugarásbíó sýnir þessa dagana kanadísk-franska verðlaunamynd, Hrun ameríska heimsveldisins. Hef- ur þessi mynd víðast hvað hlotið mikla athygli og var meðal annars tilnefnd til óskarsverðlauna. Þá eru hafnar sýningar á gamanmyndinni Æskuþrautir sem gerð er eftir leik- riti eftir hinn þekkta Broadway leikritahöfund Neil Simon. Fjallar myndin um ungling sem á bágt með að hugsa um annað en kvenlíkama. -HK Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús „Ódysseifur myndskreyttur“ - Maria Lexa leikur 25 hlutverk í sömu sýningurmi Maria Lexa er bandarískur lát- bragðsleikari, leikstjóri og kennari sem verður á fjölum Kramhússins við Bergstaðastræti með verkið „Ódysseifur myndskreyttur" á laugardags- og sunnudagskvöld kl. 21. Undanfarin ár hefur Maria Lexa buið í Árósum í Danmörku. Þar hefur hún kennt við leiklistaraka- demíuna auk þess að reka leikhús sitt, Drekaleikhúsið. Ódysseifur Mariu hefur farið sig- urför um Evrópu síðastliðið ór. Þar segir frá för kappans Ódysseifs frá Tróju til íþöku - eins og við þekkj- um úr söguljóði Hómers. María leikur öll hlutverkin - er ein á svið- inu í einn og hálfan tíma og beitir ýmsum brögðum: notar brúður, grímur. látbragð, rödd og tjöld. Ódysseifskviða er sígild - og Maria Lexa notfærir sér þá al- mennu höfðun og útleggingu á „Ódysseifur" Mariu Lexu hefurfarið sigurför um Evrópu síðastliðið ár. Sýningar GalleriBorg Pósthússtræti 9 I Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, stendur nú yfir sýning Vignis Jóhannssonar á olíu- myndum og kolateikningum. I nýja sal Galierí Borgar, Austurstræti 10, II. hæð, sýnir Edda Jónsdóttir vatnslitaþrykk og ætingar. Báðir salirnir eru opnir um helg- ar kl. 14-18 og virka daga kl. 10-18 nema mánudaga kl. 12-18. Gallerí Gangskör v/Lækjargötu Þar stendur yfir sýning á klippimyndum, silkiþrykki og gvassmyndum eftir Guð- rúnu Sigurðardóttur Urup listmálara. , Guðrún, sem er búsett í Danmörku, hefur tekið þátt í sýningum í Danmörku en ekki sýnt hérlendis fyrr en nú. Sýningin er opin kl. 12-18 virka daga en kl. 14-18 um helgar. Gallerí Svart á hvítu viö Óðinstorg Þar stendur yfir sýning á keramikskúlp- túrum Borghildar Óskarsdóttur. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og lýkur henni 8. júní. Gallerí 119 v/JL húsið Þar eru til sýnis plaköt og verk eftir þekkta listamenn. Opnunartími er mánu- daga til föstudaga kl. 12-19, laugardaga kl. 12-18 og sunnudaga kl. 14-18. Gallerí Hallgerðar Pólski myndlistarmaðurinn Jacek Sroka sýnir verk sín í Gallerí Hallgerði. Mynd- imar eru til sölu. Gallerí Langbrók, textíl Bókhlöðustig 2 Eina textílgalleríið á landinu. Vefnaður, tauþrykk, myndverk, fatnaður og ýmiss konar listmunir. Opið þriðjudaga til föstu- daga kl. 14-18 og laugardaga kl. 11-14. Kjarvalsstaðir við Miklatún Fimm listamenn sýna nú á Kjarvalsstöð- um. Það eru þeir ívar Valgarðsson og Níels Hafstein sem sýna skúlptúra í Kjar- valssal. í austurforsal sýnir Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir 10 veggteppi, en hún hefur sjálf litað ullina í teppunum. Þá er Gunnsteinn Gíslason myndhöggvari með sýningu á múrristum. 1 vestursal sýn- ir svo Einar Hákonarson 77 olíumálverk. Opið er daglega kl. 14-22 til 10. júní Listasafn ASÍ Grensásvegi 16 Nú stendur yfir í Listasafni ASÍ norræn heimilisiðnaðarsýning, sem hefur yfir- skriftina Vöruþróun í heimilisiðnaði - frá hugmynd til fullmótaðs hlutar. Sýningin er mjög fjölbreytt að efni, allt frá textíl- vinnu af ýmsum toga til málm- og bein- smíði. Sýningin er opin virka daga kl. 14-20 og um helgar kl. 14-22. Sýningunni lýkur sunnudaginn 31. maí. Listasafn Einars Jónssonar við Njarðargötu er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega frá kl. 10-17. Listasafn Háskóla íslands í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn- inu er ókeypis. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns Einholti 4 Opið á sunnudögum kl. 14-16. Mokka kaffi v/Skólavörðustíg Sænski listamaðurinn Magnus Svartvall sýnir verk sín á Mokkakaffi. Norræna húsið v/Hringbraut Norski myndlistarmaðurinn Yngve Zakar- ias sýnir málverk og grafík. Nýlistasafnið Vatnsstíg 3b 1 Nýlistasafninu stendur yfir norsk sýn- ing, sem er liður í skiptisýningaáætlun milli Islands, Svíðþjóðar og Noregs. Á sýn- ingunni eru málverk, skúlptúrar, mynd- bond, grafík, hljóðverk, gerningur, bækur og fl. Sýningin er opin virka daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20. Sýningin stendur til 7. júní. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning opin á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14- 16. Þjóðminjasafnið í Bogasal Þjóðminjasafns íslands stendur yfir sýningin „Hvað er á seyði? Eldhúsið fram á okkar daga“. Þar eru til sýnis eld- húsáhöld frá ýmsum tímum. Opið alla daga frá kl. 13.30-16. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8, Hafnarfirði Lokað vegna breytinga fram í júlí. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Akureyri Sýning í Gamla Lundi Ingvar Þorvaldsson sýnir 36 vatnslita- myndir málaðar á þessu og síðasta ári í Gamla Lundi, Akureyri. Sýningin er opin kl. 14-22 um helgar og kl. 17-22 virka daga og lýkur henni mánudaginn 8. júní.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.