Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Side 8
30
FÖSTUDAGUR 29. MAI' 1987.
** 01
Mannaþefur í hellinum
Wanted Dead or Alive heldur enn
velli í toppsæti DV listans, aðra
vikuna í röð. ShortCircuit sækir
þó verulega á enda Steve Gutten-
berg, fyrrura lögregluskólanem-
andi, með afbrigðum vinsæll. Aðrar
hreyfingar á myndalistanum eru
vart í frásögur færandi. Myndir
hækka, myndir lækka, eins og
gengur í hverfulum heimi vinsæld-
anna. Sama er upp á teningnum á
þáttalistanum þar sem þáttaröð eft-
ir metsölubók Judith Kranz hefur
vinninginn.
í Bandaríkjunum fór mynd með
unglingastirninu Matthew Brod-
erick á toppinn. Af myndum sem
eru á uppleið þar vestra má svo
nefna Sid & Nancy, myndina um
pönkarann í Sex Pistols. Umdeild
mynd um umdeildan pönkara.
-ÞJV
DV-LISTINN
_________MYNDIR__________
1 .(1) Wanted Dead or Alive
2. (-) Short Circuit
3. (3) Extremities
4. (2) Howardthe Duck
5. (5) Enemy Mine
6. (7) A Breed Apart
7. (-) Better of Death
8. (9) Joey
9. (-) Eleni
10.(4) Pretty in Pink
ÞÆTTIR
1. (1) l’ll Take Manhattan
2. (3) The Great Bookie
Robbery
3. (4) Anna í Grænuhlíð
4. (2) Strong Medicine
5. (5) Pirates
BANDARÍKIN
1. (2) Ferris Bueller’s
Day Off
2. (3) Stand by Me
3. (1) Top Gun
4. (4) The Fly
5. (5) Legal Eagles
6. (8) Blue Velvet
7. (9) Soul Man
8. (6) Aliens
9. (7) Ruthless People
10.(10) A Room with a View
THE CLAN OF THE CAVE BEAR
1 og hálf stjarna
Útgefandi: Embassy/Warner.
Framleiöandi: Gerald I. Isenberg.
Gerö eftir sögu Jean M. Auel.
Leikstjóri: Michael Chapman.
Aöalhlutverk: Daryl Hannah.
Bönnuö yngri en 16 ára.
The Clan of The Cave Bear er
nafn á metsölubók bandaríska rit-
höfundarins Jean M. Auel. Þar
sagði frá frumbyggjastúlkunni
Aylu. Þetta var fyrsta skáldsaga
höfundar. I kjölfarið fylgdu fleiri
bækur um Aylu, Valley of the Hor-
ses og the Mammoth Hunters.
Höfundur hefur lofað að minnsta
kosti þrem bókum til viðbótar.
Myndin fylgir bókinni eftir í meg-
inatriðum. Aula er ósköp venjuleg
frumbyggjastúlka sem lendir í
fóstri hjá ættflokki sem heldur til
í hellum. Skyldleiki manna við apa
kemur greinilega fram hjá hellis-
búunum, bæði í útliti og hátterni.
Aula lendir þannig upp á kant við
son höfðingjans sem kemur heldur
illa fram við hana. En Aulu tekst
að sanna sig í hópnum, meðal ann-
ars er hún ansans ári góður veiði-
maður.
The Clan of the Cave Bear er eins
konar snyrt útgáfa af Quest for
Fire. Höfundurinn Jean M. Auel
lætur sér annt um aðalpersónuna
Aulu. Hún er eins konar fornald-
arfeministi sem veit svo sannarlega
hvað hún vill. Sem betur fer enda
samferðamennirnir algerir villi-
menn. Daryl Hannah hefur til að
bera þann fínleika sem aðgreinir
Aulu frá hellisbúunum. Hún skaust
upp á stjörnuhimininn í myndun-
um Blade Runner, Pope of Green-
wich Village og síðast en síst,
Splash. I stað sporðsins, sem hún
hafði þar, gengur hún nú um í
druslum og talar torkennilegum
tungum. Hún hefur alltént útlitið
með sér.
Kvikmyndaútfærsla sögunnar
sleppur fyrir horn. Leikstjórinn
Michael Chapman leggur til ágæta
umgjörð en tekst illa. að halda
spennu. Myndin endar líka í hálf-
kæringi sem vissulega hefur sínar
skýringar. Framhald er á næsta
leiti.
■ÞJV
Fornaldarfeministi í helli.
Fagra
draumaveröld
Kraftaverk
og kvensemi
I LL TAKE MANHATTAN
Útgefandi: Steinar ht.
Gerð eftir sögu Judith Krantz.
Aðalhlutverk: Valerie Bertinelli, Jack Scalia, Perry
King, Barry Bostwick og Jane Kaczmarek.
Bönnuð yngri en 12 ára
Hér er um að ræða fjögurra spólna mini-
* U i KHYHfi MVk
rtm\ **m*Hi*;fc
sápuóperu. i orðsins fyllstu merkingu.
Þættirnir eru gerðir eftir sögu Judith
Krantz sem á að baki vel heppnaðar mini-
sápur eins og Dóttur málarans og Princess
Daisy. Krantz þykir því örugg söluvara og
hefur ekkert verið til sparað að gera þessa
þætti sem best úr garði.
Hér segir frá Amberville-fjölskyldunni
sem á mikið fjölmiðlaveldi er faðirinn, Zac-
hary Amberville, hefur stofnað. I upphafi
þáttanna er hann látinn en áhorfendur fá
eigi að síður að fylgjast með uppgangi veld-
is hans með aðstoð afturhvarfa (flashbacks).
Þeim er beitt af mikilli hörku og með því
er unnt að segja tvær sögur samtímis sem
þykir mjög gott í sápum. Zachary á einn
bróður, Cutter, sem er hið versta fól og
svífst einskis til að koma fyrirtæki bróður
síns á vonarvöl. Það hefði sjálfsagt tekist
ef ekki hefði komið til skelegg dóttir, Maxi
að nafni...
Það hafa margir orðið til að velta fyrir
sér af hverju fólk er hrifið af sápuóperum
en líklega hafa þær aldrei átt eins miklum
vinsældum að fagna og núna. Hver einasta
þjóð, sem eitthvað má sín, keppist nú við
að framleiða innihaldslausar sápur er
byggja á þjóðlegum grunni. Með því ætla
þjóðir heimsins að sporna við amerískri
menningardrottnun!
Heldur er þetta nú hæpin pólitík, þó ekki
væri nema fyrir það að Ameríkumenn eru
bestir allra við þessa framleiðslu á tilbúnum
draumaveröldum þar sem enginn „venju-
leg“ vandamál steðja að. „I’ll Take
Manhattan" er dæmigerð fyrir þetta. Aðal-
persónurnar eru hafðar svo ríkar og fagrar
að ekki þarf framar að hafa áhyggjur af því.
Það eru hins vegar ástir, hatur og fjármála-
vafstur sem spila fyrstu fiðlu hér sem annars
staðar. Persónusköpun er ákaflega einföld.
Vondi maðurinn er svo andstyggilegur að
áhorfandann langar helst til að skríða inn
í sjónvarpið til að lúskra á honum. Hegðun
hans er auðvitað óskiljanleg og stjórnast
eingöngu af almennri mannvonsku. Svipað-
ar „stereótýpur“ má finna alls staðar.
Þrátt fyrir að I’ll Take Manhattan taki
sex tíma í flutningi eru þættirnir sjaldnast
langdregnir. Umbúðirnar eru áferðarfalleg-
ar og fagmennskan er hér allsráðandi. Það
bjargar þessari draumaveröld.
-SMJ
HEAVENLY PURSUITS
Útgefandi: Warner/Tefli
Framleiöandi: Michael Ralph
Leikstjórn og handrit: Charles Gormley
Aóalhlutverk: Tom Conti, Helen Mirren
Bönnuð yngri en 12 ára
Viv Mathews (Tom Conti) er kennari við
skoskan skóla, kaþólskan skóla. Trúin' er
nefnilega ríkjandi í öllu skólastarfi, svo ríkj-
andi að leikir og lærðir trúa ótæpilega á
kraftaverk. Þannig stjórnar skólaprestur-
inn bænagjörðum fyrir hina og þessa sem
verða til þess að viðkomandi verða alheilir.
Vic er hins vegar raunsærri en svo að harn
trúi á svoleiðis kerlingabækur. Hann er
hrifinn af einum samkennara sinna (Helen
Mirren) og reynir ýmislegt til að komast
yfir hana.
Þannig er söguþráðurinn hjá Charles
Gormley sem skrifar handrit myndarinnar
auk þess að leikstýra. Heavenly Pursuits
er ósköp notaleg kómedía um trú, hræsni
og samskipti manna almennt. Tom Conti
er ætlað að halda öllu saman á floti ásamt
Helen Mirren. Conti gat sér gott orð fyrir
leik sinn í Merry Christmas Mr. Lawrence
á sínum tíma og ekki síst fékk hann mikið
lof fyrir fyllibytturulluna í Ruben Ruben.
Conti svíkst ekki undan ábyrgð hér og nær
því sem hægt er út úr hlutverki Vics kenn-
@
Leikrit Hryllingsmynd
® 0
Tónlist Gamanmynd
©
jþróttir Barnamynd
ara. Sömu sögu má segja um Helen Mirren,
þá ágætu bresku leikkonu, sem sýndi ótví-
ræða hæfileika sína í myndinni Cal.
Annað er svo sem ósköp hversdagslegt og
ekki sérlega áhugavekjandi. Vic nær í skott-
ið á samkennaranum og meðbræður hans í
skólanum trúa áfram á kraftaverk. Það er
allt og sumt. -ÞJV
Úr myndinni Merry Christmas Mr. Law-
rence þar sem Tom Conti gat sér gott orð
fyrir leik sinn.
O
Fullorðinsmynd
Hasarmynd
O
Ástarsaga
Vísinda-
skáldsaga
Fjölskyldumynd
e
Annað