Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Síða 1
Nýr danskur rafbíll Danir hafa verið seigir við að prófa sig áfram með smíði rafbíla. Margir muna eflaust eftir tilraun dönsku Hope-verksmiðjanna til smíði ó slíkum bíl en sú tilraun fór að mestu út um þúfur. Nú hefur annað fyrirtæki farið af stað með smíði lítils rafbíls sem þeir kalla Mini-el. Tveir fyrstu Mini-el bílarnir fóru í umferð í heimabæ sínum, Randers á Jótlandi, fyrir nokkrum dögum. Það er fyrirtækið El-Trans A/S í Randers sem framleiðir bílana og þessir fyrstu tveir bílar voru I Danmörku er Mini-el ekki skráður sem bíll heldursem þriggja hjóla mótorhjól. Þar mega þeir sem hafa mótorhjólapróf eða ökupróf aka um á þessu ökutæki. afhentir eigendunum við hátíðlega athöfn. Þeir eiga að þjóna bæjaryfirvöldunum í Randers næsta árið sem nokkurs konar tilraunabílar. Bæjaryfirvöld ætla að nota þá til sendiferða og til að skjótast á fundi. Reynslan frá þessu fyrsta ári verður síðan notuð til að leggja grunninn að frekari framleiðslu á þess- um bíl sem mætir vel vaxandi mengunarkröfum hjá frændum okkar í Danmörku. Reiknað er með að framleiðslan hefjist af fullum krafti strax næsta sum- ar. Bæjarstjórnin i Randers hefur sýnt málinu mikinn áhuga og sérstaklega vegna þeirra atvinnutækifæra sem smíði bílanna skapar. Til að sýna áhuga sinn í verki hafa þeir komið upp fyrstu stöðumælunum þar sem jafnframt er hægt að hlaða bílinn ókeypis á meðan hann stendur kyrr. Fyrsta þannig bílastæðið var vígt samtímis því að bílamir voru teknir í notk- un. Mini-el er ekki bíll í venjulegum skilningi heldur er hann í Danmörku skráður sem þriggja hjóla mót- orhjól. Til aksturs hans þurfa ökumenn annaðhvort að hafa réttindi til aksturs mótorhjóla eða bíla. Þetta þríhjól er mun þægilegra til aksturs en mót- orhjól eða skellinaðra. I honum er pláss fyrir einn fullorðinn og tvö börn og með fulla hleðslu er akst- ursvegalengdin 70 kílómetrar áður en hlaða þarf rafgeymana aftur. Heldur verður hægt að aka styttri vegalengd ef mikið er um hraðabreytingar á leiðinni. Hámarkshraðinn er 40 kílómetrar á klukkustund og það er of lítill hraði til að levfilegt sé að aka ökutækinu á hraðbrautum. í Danmörku kostar bíll- inn. tilbúinn á götuna, um 27.000 danskar krónur eða um 152.200 krónur. Reiknað er með að evðslan á kílómetra verði á milli 15 og 30 aurar íslenskir. Framleiðendurnir, El-Trans, reikna með að bíllinn seljist fyrst og fremst sem aukabíll í fjölskyldu og verði notaður til aksturs til og frá vinnu þar sem sjaldnast er nema einn í bílnum hvort eð er. j þessum litla danska rafbil er pláss fyrir einn fullorðinn og tvö börn eða dágóðan farangur. GÓÐIR BÍLAR Saab 900 turbo '84, 5 dyra, Ijósblár, beinskiptur, 5 gira, með topplúgu, litað gler, rafmagn I rúðum, sport- felgur, útvarp, segulband o.fl. Mjög fallegur og góður bill. Saab 900 GL '84, 4 dyra, rauður, beinskiptur, 4 gira, ekinn 74 þús. km, bíll I algjörum sérflokki að utan sem innan. Saab 900 GL '82, 3 dyra, Ijósblár, beinskiptur, 4 gira. Mjög fallegur og góður. Gott verð og kjör. Allar nánari upplýsingar í sima 72212. NOTAÐIR BÍLAR TIL SÖLU - SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ: Mazda 929 H/T 2000 CC, árg. 1986, sjálfsk., 2d., hvítur, ekinn 25 þús. Verð 780.000,- Saab 900 2000 CC, árg. 1983, beinsk., 5 gíra, 4d., blásans., ekinn 83 þús. Verð 420.000,-. Mazda 626 2000 CC, árg. 1984, beinsk., 5 gira, 2d., rauður, ekinn 40 þús. Tilboð. Mazda 323 1300 CC, árg. 1981, sjálfsk., 5d., rauður, ekinn 82 þús. Verð 180.000,- Mazda 323 st. 1300, árg. 1980, beinsk., 5d., orange, ekinn 130 þús. Verð 120.000,-. Skuldabréf. Mazda 626 2000, árg. 1980, beinsk., 5 gira, 4d., brúnn, ekinn 140 þús. Verð 150.000,-. Skuldabréf. Mazda 929 2000, árg. 1982, sjálfsk., v/s, 4d., grænn, ekinn 45 þús. Verð 330.000,-. Mazda 323 st. 1,5 árg. 1986, sjálfsk., 5d., grænn, ekinn 15 þús. Verö 490.000,- Mazda 626 2,0C GLX, árg. 1984, beinsk., 5 gíra, 2d., blásans., ekinn 42 þús. Verð 480.000,- Mazda 323 1,5 GLX, árg. 1986, beinsk., 5 gíra, 3d., rauður, ekinn 15 þús. Verð 410.000,- OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ KL. 1-5. mazoB BtLABORG HF FOSSHÁLSI 1, SÍMI 68 12 99

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.