Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Blaðsíða 1
 \ * 'ýj ‘ - "\ ‘‘ . #1*1 Ai - : 11 Forráðamenn Fortuna Diisseldorf vilja með engu móti missa Pál Ólafsson: kk þá íhuga ég málið „Páll besti alhliða leikmaðurinn í Þýskalandi, segir Bredemeier, þjátfari Dusseldorf „Eg var búinn að gefa ákveðið svar um að hætta að ieika handknattleik með Dusseldorf og halda heim til Islands í vor að loknu þessu keppnistímabili. Ef hins vegar forráðmenn Dusseldorf bjóða mér góðan samning, sem erfitt væri að hafna, þá myndi ég íhuga málið gaumgæfilega,“ sagði Páll Olafsson í samtali við DV í gær. Vera kann að Páll Ólafsson verði áfram hjá Dússeldorf ef marka má ummmæli Horst Brede- meier í íþróttaþætti vestur-þýska sjónvarpsins á laugardagskvöldið. I umræddum sjónvarpsþætti sagoi Bredemeier að Dusseldorf mætti alls ekki við þvi að missa Pál úr herbúðum félagsins. • Páll Olafsson i leik með islenska landsliðinu gegn Pólverjum. Páll segist munu ihuga málin vel fái hann girnilegt tilboð frá Diisseldorf. Sigurður Bjömsson, DV, V->ýskalandi: Horst Bredemeier, þjálfari Diisseldorf, var fenginn í viðtal í íþróttaþáttinn til aö ræða um frá- bæra frammistöðu liðsins í Bun- desligunni í vetur en sem stendur er liðið í öðru sæti í deildinni. í upphafi keppnistímabilsins var allt á huldu með framtíð handknatt- leiksins hjá félaginu og hefur hin óvænta frammistaða liðsins komiö forráðamönnum félagsins sem og öðrum heldur betur á óvart. Hafa áformin um að leggja handknatt- leikinn niöur hjá féiaginu þvi farið í ruslakörfuna. • í viðtalinu við Bredemeier barst í tal að Páll Ólafsson, sterk- asti leikmaður liðsins, myndi yflrgefa félagiö í vor og væri aöalá- stæöan sú að Páll ætlaði af heilum hug að taka þátt í undirbúningi ís- lenska landsliðsins í handknattleik fyrir ólympíuleikana í Seoul. • „Ef Páll yrði áfrarn hjá okkur þurftum við að fara fram á frestun 6-7 leikja meðan á þátttöku íslend- inga á ólympíuleikunum stæði. Framtíð Páls hjá félaginu þarf að ræöa alveg sérstaklega á allra næstu dögum hjá forráðmönnum félagins þar sem Páll Ólafsson er álbesti alhliða leikmaðurinn í Vest- ur-Þýskalandi. Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til halda Páli hjá félaginu," sagði Horst Brede- meier í sjónvarpsþættinum. • Bredemeier sagðist ennfremur skilja vel áhuga Páls á undirbún- ingi íslenska landsliðsins fyrir OL. Viö veröum að hafa í huga að við stöndum ekki einir frammi fyrir þessu vandamáli. íslenskir lands- liösmenn leika meö Essen og Gummersbach og ég veit að þeir standa ráðþrota gagnvart þessu máli eins og við,“ sagði Brede- meier. „Skrímslið" varði allt og Ivanescu sá rauða spjaldið" íslensku leikmennirnir skoruðu mikið í leikjum heigarinnar í V-Þýskalandi Siguröur Bjömsson, DV, V-Þýskalandi: Lið Páls Ólafssonar, Dússeldorf, tapaði á útivelli um helgina gegn Dormagen, 17—16, í vestur-þýska handboltanum. í hálfleik var staðan 8-7 fyrir Dormagen ■ sem var yflr mestallan leikinn. Leikmenn Dússeldorf voru taugaóstyrkir og kom það talsvert niður á leik liðsins. Markvörður Dormagen, Bardke, átti stórleik. Bardke þessi er mikill að vexti eða 2,16 m á hæð og er af mörg- Sigur hjá Arsenal Einn leikur fór fram í gær í ensku knattspyrnunni. Arsenal lék gegn Tottenham og sigraði, 2-1. Alan Smith skoraði fyrst fyrir Arsenal, Clive Allen jafnaði og það var síðan Peter Groves sem skoraði sigurmark Arsenal. -SK um kallaður „skrímslið" í þýskum handknattleik. • í síðari hálfleik var harkan í fyr- irrúmi og var Ivanescú, þjálfara Dormagen, sýnt rauða spjaldið. Und- ir lok leiksins komst Dússéldorf yfir, 15-16, en Dormagen var sterkara á lokasprettinum. Páll Ólafsson átti mjög góðan leik með Dússeldorf og var markahæstur með 6 mörk. • Lemgo með Sigurð Sveinsson í broddi fylkingar gerði 22-22 jafntefli á heimavelli gegn Núrnberg sem hafði forystu, 12-14, í hálfleik. Lemgo komst yfir, 22-21, þegar skammt var til leiksloka en Núrnberg jafnaði. Á síðustu sekúndum leiksins tókst Sig- urði Sveinssyni að brjótast í gegnum vörn Núrnberg en þrumuskot hans fór í slána. Sigurður var markahæst- ur í liði Lemgo með 8 mörk. • Essen var rænt sigrinum af dómurum og tímavörðum í leiknum gegn Hofweier. Þegar tímataflan sýndi að 3. sekúndur væru eftir af leiknum skoraði Essen mark og breytti stöðunni í 16-15. Essen fagn- aði sigri og yfirgaf völlinn og hélt til búningsherbergis. Þá hófst mikil rekistefna dómara og tímavarða sem stóð yfir í hálftíma. Niðurstaðan varð að þegar Essen skoraði 16. mark leiksins hafi leiktíminn verið úti. Úrslitunum var breytt í 15-15. Essen mun kæra úrslitin. „Ef einhvern tímann ætti að kæra leik þá er hiklaust komið tækifæri til aö láta verða af því að þessu sinni,“ sagði Alfreð Gíslason eftir leikinn í samtali við DV. Alfreð Gíslason var tekinn úr umferð í leiknum en skoraði samt sem áður 6 mörk og voru fjögur þeirra gert úr vítum. • Gummersbach og Milbertshofen gerðu jafntefli, 17-17, á heimavelli Milbertshofen í Múnchen. • Kiel er efst í Bundesligunni með 29 stig eftir 19 leiki, Gummersbach og Dússeldorf koma næst í öðru til þriðja sæti, einnig með 29 stig en hafa leikið einum leik fleira eða 20 talsins. . • Wanne-Eickel, sem Bjarni Guð- mundsson leikur með, sigraði Nett- elstedt 20-25 á útivelli og skoraði Bjarni sex mörk í leiknum. Wanne- Eickel er í þriöja sæti í 2. deild. Akureyringar unnu öruggan sigur yfir Reykvíking- um í bæjarkeppni í íshokkíi sem fram fór á Akureyri um helgina. Úrslitin urðu 8-2 en leikurinn var jafn framan af. í fyrstu lotunni af þremur var jafnræði meö liðunum og staðan að henni lokinni var 1-1. í næstu lotu fór heldur að síga á ógæfuhliðina fyrir Reykvík- ingum en þó var staðan að henni lokinni ekki nema 3-2 Akureyri í vil. En í lokalotunni tóku Akureyringar síðan öll völd, þeir skoruðu þá 5-0 og.unnu því leikinn 8-2 sem fyrr sagði. Leikurinn var ágæt skemmtun fyrir áhorfendur en aðstaða til að fylgjast með er þó ekki nægilega góð við vallarsvæðið ennþá. í gær átti að leika ann- an leik en honum varð að fresta vegna þess að frystibúnaður.skautasvellsins bilaði. Mörk Akureyringa í leiknum skoruðu: Sigurgeir Haraldsson 2, Garð- ar Jónasson 2, Kristján Öskarsson 2, Ueiðar Ágústsson 1 og Héðinn Björnsson 1. Mörk Reykvíkinga skoruðu Gunnar Richter og Þorsteinn Sæmundsson. Myndin hér að ofan var tekin í leik Akureyringa og Reykvíkinga á laugar- dag. DV-mynd GK Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.