Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1988, Síða 4
26 MÁNUDAGUR 7. MARS 1988. KAUPUM ALLA M£! Tökum á móti brotajárni, samkvæmt samkomulagi, í endurvinnslu okkar að Klettagörðum 9 við Sundahöfn. sinpraAstálhf BORGARTÚNI31, SlMI 272 22 (10 LÍNUR) Hárgreiðslustofan Klapparstíg ^ Pantanasími 13010 Litakynning. ^ ^ Permanettkynning. Strípukynning. Rakarastofan Klapparstíg Pantanasími 12725 ANTIK Langar þig í fallega og vandaða hluti? Líttu inn á Grettisgötu 16. Húsgögn, málverk, Ijósakrónur, konunglegt postlín, silfur, klukkur og margt fleira. Greiðsluskilmálar - staðgreiðsluafsláttur. Antikmunir Grettisgötu 16 - sími 24544 Blazer S-10 '83 (litli bíllinn) - glæsilegasti billinn í bænum, 4 gíra, sjálfskipting, m/overdrive, veltistýri, 10" álfelgur, 33" dekk, 4" upphækkun, sólskyggni, toppl- úga, brettaútvíkkanir - Tahoe innrétting, litur svartur. Verð 980 þús. Fasteignatryggt skuldabréf kemur til greina. Uppl. í síma 667363. RAFGEYMAR ALLAR GERÐIR Fríar mælingar og ísetningar innanhúss. POLAR RAFfirYMAI'JO\US IA mm Sirrholfió Sími: 18401 Iþróttir i>v • Þrír efstu menn á Stofumótinu í Hafnarfirði. Talið frá vinstri: Vilhjálmur Húnfjörð, sem hafnaði í öðru sæti, sigur- vegarinn, Sveinbjörn Hansson, og Ásgeir Guðbiartsson sem varð þriðji. Sveinbjöm var bestur - á Stofumóti í billiard í Hafnarfirdi Sveinbjöm Hansson varö hlut- skarpastur í Stofumóti Billiardstofu Hafnarfjarðar sem fram fór á dögun- um. Keppt var í tveimur riölum, allir viö alla, og tveir efstu í hvorum riðli komust áfram. Ásgeir Guðbiartsson vann slaginn um þriðja sætið við Hafþór Hafdal en Sveinbjöm Hans- son hafði betur í baráttunni um efsta sætið við Vilhjálm Húnfjörð. Sigurvegarinn, Sveinbjörn Hans- son, náði hæsta skori allra keppenda á mótinu, eða 49. Næsta mót hjá billiardmönnum er páskamót sem fram fer á föstudaginn langa og páskadag. -SK Þýskir eru lafhræddir við mikinn flótta til Ítalíu - ef erlendum leikmönnum verður fjölgað á Ítaiíu Sigurður Bjömsson, DV, Þýskalandi: Mikill ótti hefur nú gripið um sig í Vestur-Þýskalandi á meðal forráöa- manna 1. deildar félaganna í knatt- spyrnu og einnig vestur-þýskra blaðamanna vegna fyrirhugaðra breytinga á reglum varðandi erlenda leikmenn í ítölsku knattspyrnunni. Áætlað er aö fjölga erlendum leik- mönnum í ítölsku knattspyrnunni og standa þeir þýsku í þeirri mein- ingu að snjalhr knattspyrnumenn muni flýja hópum saman frá Vestur- Þýskalandi. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort fjölgunin verður leyfð en allar líkur benda til þess að svo verði. • Þeir þýskir leikmenn sem eru taldir í „mestri hættu“ eru þessir: Lothar Mattheaus, Bayern Munc- hen, Uwe Rahn, Gladbach, Olaf Thon, Schalke, Wolfgang Rolff, Bay- er Leverkusen, Wolfram Wuttke, Kaiserslautern, Maurizio Gaudino, Stuttgart, og Bernd Schuster sem reyndar leikur á Spáni. • í einu þýsku blaðanna skrifaði fréttamaður aö Þjóðverjar yrðu að passa djöfullega vel upp á Franz Beckenbauer og koma í veg fyrir það með öllum ráðum að ítalir næðu í hinn snjalla þjálfara þýska landsliðs- ins. Þess má geta að Beckenbauer er efstur á listanum hjá stuðnings- mönnum Juventus en eins og kunnugt er hefur hðinu ekki gengið vel að undanfornu. Kínverjar erlendis í fyrsta skipti Kínverjar tveir hafa brotið blaö í sögu íþróttamála í heimalandi sínu. Þetta eru þeir Liu Haiguang og Jia Xiuquan sem iöka knattspymu en þeir hafa nú fengiö leyfi til að leika með hinu þekkta júgóslavneska knattspymufélagi Partizan Belgrad. Kínveijar hafa ekki áður leikið með erlendum félagshðum. „Þetta er í fyrsta skipti í sögu fé- lagsins síðan 1945 sem við höfum erlenda leikmenn innanborðs og ég er mjög ánægður með að þeir skuli koma frá Kína,“ sagði forseti Partiz- an, Zdrakov Loncar. „Við ætlum okkur að vera hér að minnsta kosti tvö eða þrjú ár, læra að leika knattspymu og aö þjálfa og snúa síðan aftur til Kína reynslunni ríkari,“ sagði Liu Haiguang. -SK • Wolfgang Rolff, til vinstri á myndinni, reynir að skora fyrir Bayer Lever- kusen gegn Barcelona í Evrópuleik liðanna á dögunum. Rolff er orðaöur viö itölsku knattspyrnuna. Simamynd Reuter Enska knattspyrnuliöiö Arsenal I hefUr lengi átt marga aödáendur : hér á landi og hafa þeirjaöian sleg- | iö saman í hópferð á hveiju ári og Iekki veröur breyting þar á nú. Stefnan verður tekin á Wembley leikvanginn í London og þar ætla Arsenalaðdáendumir aö horfa á úrslitaleik Littlewoods-bikar- keppninnar á raUli Arsenal og Luton Town en hann fer fram þann 24. april. Fariö verönr utan þann 24. apríl apríl og komiö aftur heim þriöjudaginn 26. apríl. Gist veröur á þriggja stjömu hóteli Verði verö- ur mjög stUlt í hóf en allar nánari upplýsingar um ferð þessa er hægt aö fá í síma 99-1666 á skrifstofutíma. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.