Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Blaðsíða 8
LAUGARDAGUR 26. MARS 1988. 40 Bflar Nú nýlega var haldiö upp á þaö aö ein öld var liðin síðan skoski dýra- læknirinn John Boyd Dunlop (1840-1921) fékk einkaleyfi á fyrsta loftfyllta hjólbaröa í heimi. Aö sögn Dunlop-verksmiðjanna varð þessi uppfmning til nóttina 28. til 29. febrúar 1888. Dýralæknirinn, sem var frá Dreg- hom í Ayrshire, haföi tekið sér búsetu áriö 1867 í Belfast á Noröur- írlandi, þar sem hann notaði frítím- ann til tæknilegra athugana. Einn daginn tók hann sig til og setti hjól- barða fyllta með lofti á þríhjól Johnny sonar síns - og til aö veröa ekki aö athlægi nágrannanna fór hann út um nóttina í hjóltúr um steinlögð stræti Belfast. Þetta var grunnurinn að einni af veigameiri uppfinningum nútímans. Bílar þess tíma voru meö jámhjól- um, sem síðar fengu heilsteypt gúmmí, en samt voru þessi ökutæki harla höst í akstri. Dunlop var ekki sá fyrsti sem fékk- hugmyndina um loftfyllta hjólbarða. Þegar áriö 1836 haföi Belgíumaður- inn Dietz reynt shka uppfinningu og síðar Englendingurinn Robert W. Thompson. Engin þessara tilrauna leiddi til árangurs, jafnvel þótt Thompson heföi fengið einkaleyfi á uppfmningu sinni þegar árið 1846. Þaö einkaleyfi rann út og þegar Dunlop sá árangur tilrauna sinna gaf hann dýralækningar upp á bátinn og fékk fyrsta einkaleyfið á uppfinn- ingu sinni þann 7. desember 1888. lohn Boyd Dunlop (1840-1921), dýralæknirinn sem tókst aó koma fram með yrstu raunhæfu lausnina á því að nota loftfyllta hjólbarða. Aldarafmæli loftfylltra hj ólbarða J.B. Dunlop stendur hér við fyrsta reiðhjólið sem framleitt var með loft- fylltum hjólbörðum. Hann hóf þá framleiðslu hjólbarða með gúmmísteypuaðferð sem fundin haföi verið upp af Bandaríkjamann- inum Goodyear. Dekk með slöngu var síðan fundið upp árið 1891 af Michelin- fyrirtæk- inu sem stjómað var af bræðrunum André og Edouard Michehn. Þetta var algjör bylting því ef sprakk á loft- fylltum hjólbörðum Dunlops gátu aðeins sérfræðingar gert við dekkin en með tilkomu slöngunnar gat nán- ast hver sem er gert við dekkin. Dunlop-fyrirtækið var á árinu 1984 selt og var kaupandinn japanska stórfyrirtækið Sumitomo Rubber Industries. Þar með var þó ekki sagt að framleiðslan væri komin í ókunn- ugar hendur því þessi japanska samsteypa er sprottin upp úr jap- önsku fyrirtæki sem John Boyd Dunlop stofnaði árið 1909. Þessi sam- steypa er í dag sjötti stærsti framleið- andi hjólbarða i heiminum. Volvo 340 GL, árg. 1987, 82 hö, 5 gira, 4ra dyra, ekinn 7.000 km, beige/metallic, rafm. í rúðum. Verð 625.000. Volvo 740 GL árg. 1985, 112 hö, sjálfsk., m/OD, 4ra dyra, ekinn 26.000 km, siifur/metallic. Verð 785.000, toppeintak. Ath. skipti á ódýrari. Volvo 245 GL árg. 1987, 116 hö, sjálfsk., m/OD, 5 dyra, ekinn 19.000 km, blár/metallic. Verð 990.000. Ath. skipti á ódýrari. Volvo 340 GL, árg. 1986, 82 hö, 5 gíra, 5 dyra, ekinn 33.000 km, Ijós- blár. Verð 525.000. Volvo 240 GL árg. 1984, 112 hö, sjálfsk., m/OD, 4ra dyra, blár/ metallic, plussáklæði, centrallæs- ingar. Verð 560.000. Ath. skipti á Audi 100 cc, árg. 1984, 5 gira, 4ra dyra, ekinn 96.000 km, hvítur. Verð 650.000, toppeintak. Ath. skipti. Volvo 740 GLE árg. 1986, ekinn 12.000 km, silfur/metallic, beinsk., 5 gira, vökvastýri, centrallæsingar, rafdrifnar rúður og speglar, plussá- klæði, topplúga, læst drif o.m.fl. Verð 1.150.000. Ath. skipti á ódýrari. Volvo 740 GL árg. 1987, 117 hö, sjáltsk., m/OD, 4ra dyra, ekinn 16.000 km, steingrár. Verð 1.000.000. Ath. skipti á ódýrari. Volvo 245 GL árg. 1983, ekinn 59.000 km, blár/metallic, sjálfsk., vökvast., eins og nýr. Verð 560.000. Suzuki Swift árg. 1986, ekinn 20.000 km, rauður, sjálfsk., sumar- og vetr- ardekk. Verð 330.000. Ath. skulda- bréf. N N GOTT VERÐ - GÓÐ KJÖR Allt að 18 mánaða VOLVO- kjör NOTAÐIR BÍLAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.