Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Qupperneq 8
44
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1988.
Flugan ferlega heldur fyrsta sæt-
inu en myndin um Richie Valens,
La Bamba, skýst í 2. sæti og stefnir
í stórræði. í 3. sæti má sjá Jón
Bónda og má það sama segja um
þá mynd að hún er líkleg til af-
reka. Bondmyndimar hafa ávallt
staðið fyrir sínu hér á klakanum'
og þessi mynd verður þar án efa
engin undantekning.
Páskarnir eru nú framundan og
miklar útgáfur fyrir þá, enda marg-
ir sem hugsa gott til glóðarinnar
fyrir framan skjáinn heima í stofu
- það komast jú ekki allir fyrir í
skíðabrekkunum.
DV-LISTINN
1. (1) The Fly
2. (■) La Bamba
3. (■) The Living Daylights
4. (2) Stella í orlofi
5. (8) April Fools Day
6. (-) From The Hip
7. (-) Big Easy
8. (3) Blind Date
9. (5) Outrageous Fortune
10. (7) Lethal Weapon
Grátt gaman
APRIL FOOL’S DAY
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Fred Walton.
Handrit: Danilo Bach.
Bandarísk: 1986 - sýningartimi: 85 min.
1. apríl nálgast og eins og allir
vita nota margir þennan dag til að
gera grín að vinum og kunningjum.
Oftast er þetta saklaust grín og eft-
irleikur enginn. Saklausu gríni er
þó ekki fyrir að fara í April Fool’s
Day sem gerist eina helgi þegar
laugardag ber upp á 1. apríl.
April Fool’s Day er gerö af sömu
mönnum og eru ábyrgir fyrir
myndunum um föstudaginn þrett-
ánda, einhverjum sóðalegustu
hryllingsmyndum sem gerðar hafa
verið. Og þeir kunna svo sannar-
lega að fá hárin til að rísa á höfði
áhorfandans.
Myndin gerist eina helgi á éyju
nokkurri. Ung stúlka hefur boðið
nokkrum skólasystkinum að dvelja
hjá sér. Þetta eru léttir krakkar
sem ákveðnir eru í að skemmta sér
ærlega. Allt gengur snurðulaust
fyrsta kvöldið, en strax um morg-
uninn vantar eitt ungmennið. Og
svo fara þau að týna tölunni hvert
á fætur öðru. Þau sem eftir eru telja
víst að brjálaður morðingi leynist
meðal þeirra og vantreysta aö sjálf-
sögöu hvert öðru.
Það fer svo að aðeins tvö eru eft-
ir, kærustupar, og treystir hvort
pn r
öðru. Þau eru nú ákveðin í að kom-
ast að því hver það er sem er á eftir
þeim en þá tekur söguþráðurinn
óvænta stefnu sem ekki er vert að
fara nánar út í hér.
April Fool’s day er ágæt afþrey-
ing fyrir þá sem hafa taugar til og
kunna að njóta spennumynda á
borð við þessa. Að vísu eru nokkrir
hnökrar á atburðarásinni sem er
þó ekki alvarlegt því hraöinn er
mikill. Sem sagt mynd sem hrærir
upp í taugakerfl áhorfandans.
HK
Hugljúf fjölskyldumynd
AMY
Útgefandi: Bergvík.
Leikstjóri: Vincent McEveety.
Aðalhlutverk: Jenny Agutter, Barry
Newman og Nanette Fabray.
Bandarísk, 1981 -Sýningartími 101 mín.
Amy er kvikmynd eins og þær
gerast bestar frá Walt Disney fyrir-
tækinu, falleg og hugljúf. Myndin
segir frá ungri konu, Amy, sem
yfirgefur ríkan eiginmann í byijun
aldarinnar til að geta kennt heyrn-
arlausum talmál í skóla sem
eingöngu er ætlaður blindum og
heymarlausum. Mikil vantrú er á
slíkri kennslu og mætir hún mót-
byr í byrjun, en erfiðið borgar sig
og fordómarnir hverfa smátt og
smátt.
Amy er sérlega þægileg og látlaus
mynd sem lítið lætur yfir sér en
veitir þess meiri ánægju. Breska
leikkonan Jenny Agutter leikur
erfitt hlutverk Amy og á hún auð-
velt með ásamt börnunum að halda
áhorfendum við efniö.
HK.
Nýjum Bond heilsað
THE LIVING DAYLIGHT
Útgefandi: Steinar
Leikstjóri: John Glen. Framleiðandi: Al-
bert R. Broccoli og Michael G. Wilson.
Handrit: Richard Maibaum og Michael
G. Wilson. Aðalhlutverk: Timothy Dal-
ton, Maryam d’Abo og Jeroen Krabbe.
Bresk 1987. 126 min. Bönnuö yngri en
12 ára.
Það eru án efa margir sem bíða
spenntir eftir þessari mynd því Jón
bóndi hefur ávallt átt stóran hóp
tryggra fylgismanna. Hópurinn
stækkar stöðugt og nú er svo kom-
ið að frumsýninga Bondmynda er
beðið með óþreyju í skemmtanalíf-
inu því hér er um uppákomu að
ræða frekar en kvikmynd. Þessi
Bondmynd markar að mörgu leyti
tímamót því hér leysir Timothy
Dalton sjálfan Roger Moore af
hólmi en hann hefur verið ímynd
Bond í liðlega 14 ár. Enn er allt á
huldu með það hvort Dalton lifir
skiptin af því öðru hvoru berast
fréttir af því að hann sé valtur í
sessi - verði jafnvel ekki látinn
leika í næstu mynd og flokkist því
í framtíðinni með George Lazenby
hinum ástralska sem „flopp” í
kvikmyndasögunni. Reyndar hef
ég trú á því að Dalton eigi eftir að
sjást aftur í hlutverki njósnara
allra tíma. Hann ákveður þegar að
reyna ekki að stæla Moore, heldur
reyna eitthvaö nýtt. Hann er að
vísu ekki eins sjálfsöruggur og
Moore og Connery voru.
Hlutverk Bond hefur þróast sér-
kennilega og þá aðallega fyrir
tilstilli aðalleikarans. Sean Conn-
ery átti auðvitað mestan þátt í
mótuninni sem Bond I. Hann var
ímynd karlmennskunnar þar sem
hann skokkaði um, hálfnakinn,
innan um stóð fagurra kvenna á
milli þess sem hann leysti alheims-
vanda.
Moore var hins vegar öðruvísi í
háttum; hann flutti með sér þá
persónu sem hann hafði skapað
sem Ðýrlingurinn í samnefndum
sjónvarpsþáttum og var alls ekkert
fyrir það að fækka fotum, enda
sannur breskur herramaður. Hú-
morinn fór nú að leika mun stærra
hlutverk, þannig að sumum þótti
nóg um. - Fannst njósnarinn snjalli
vera orðinn hálfgerður trúður. Lík-
lega hefur þetta verið rétt ákvörð-
un hjá Moore og Broccoli því
vinsældir myndaflokksins jukust
fremur en hitt og ekki sér fyrir
endann á því.
Ástæðan fyrir því að fólk heillast
alltaf af Bond er líklega það alvöru-
leysi sem yfir myndunum hvíhr.
Þá hafa þær ávaút verið framúr-
skarandi skemmtilega unnar
tæknilega, þannig að myndirnar
eru í raun ein tæknibrellu-uppá-
koma.
Hér er í raun ósköp hefðbundinn
söguþráður sem þarf varla að fjöl-
yrða um. KGB setur í gang hræði-
legt plott sem Bond verður að leysa.
Leikurinn berst um viðan heim en
endar samkvæmt venju í rúminu.
Bond er að vísu orðinn siðsamari
en hann var og heldur sig allan tím-
ann við sömu stúlkuna. Glöggir
menn hafa bent á að hér megi sjá
áhrif frá eyðniumræðunni og má
það vel vera.
Myndin stendur fyllilega undir
nafni og nær Bond sér aftur á strik
eftir þann þreytutón sem óumræði-
lega mátti greina í Víg í sjónmáli
(A View to á Kill). -SMJ
lifandi en samt dauð
DEADLY FRIEND
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Wes Craven.
Aðalhlutverk: Matthew Laborteaux,
Kristy Swanson og Michael Sharrett.
Bandarísk 1986 - Sýningartími: 87
min.
Wes Craven er sjálfsagt þekktast-
ur fyrir að hafa leikstýrt myndum
um hinn ógnvekjandi Freddy
Krueger sem herjar á fólk við Elm
Street. í Deadly Friend er hann við
sama heygarðshornið, vekur upp
dáið fólk og þar eftir götunum.
Deadly Friend byrjar svo sem
nógu sakleysislega. Unglingur
einn, Paul Conway, flyst ásamt
móður sinni í nýtt hverfi. Conway
þessi er snillingur, hefur háa
greindarvísitölu og hefur hannað
róbót sem stöðugt bætir sig og er
að nálgast það að verða mannlegur.
Við hliðina á honum býr ung
stúlka, Samantha, sem hann hrífst
af. Hún býr með brjáluðum fóður
sínum sem misþyrmir henni. Aðrir
nágrannar koma við sögu, sérstak-
lega kona ein gömul og illgjörn sem
gengur frá róbótnum, Paul til mik-
illar raunar.
Verra er þegar faðir Samönthu
hrindir henni niður stiga svo hún
hlýtur það mikil meiðsl að henni
er ekki hugað líf.
Paul er samt ekki á því aö láta
vinkonu sína deyja. Með sömu
tækni og hann bjó til róbótinn, vek-
ur hann Samönthu til lífsins. En
vélmenni er ekki sama og lifandi
manneskja og brátt kemur í ljós að
hann hefur lífgað við ófreskju sem
man hverjir gerðu á hlut hennar
og hefnd hennar er grimmileg.
Deadly Friend er nokkurs konar
Frankenstein á tölvuöld. Margt er
líkt með Samönthu og ófreskjunni
sem Dr. Frankenstein lífgaði við á
sínum tíma. Myndin ber það aftur
á móti með sér að lítið hefur veriö
lagt í hana peningalega og eru því
þau atriði ’sem eiga að skelfa sem
mest nokkuð ódýr og leikarar
standa varla undir nafni.
HK.
* © l
í minningu brjálaða Max
SPACERACE
Útgefandi: JB myndbönd
Leikstjóri: Conrad E. Palmisano. Hand-
rit: Jim Lenahan. Aðalhlutverk: Richard
Farnswourth og Michael Paré.
Bandarísk 1986. 74 mín. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Það þarf ekki að hafa mikið
ímyndunarafl til að ráðast í gerð
mynda um framtíðina - það sannar
þessi uppsuöa úr Mad Max mynd-
unum rækilega. Hugmyndaleysið
er algert og í raun þaif varla að
ræða mikið um myndina.
Hér segir frá því þegar jarðarbú-
ar eru búnir að stofna nýlendur út
um allan geim. Þeir nota sumar
pláneturnar sem fanganýlendur
þar sem fangamir verða að vinna
í námum þar til þeir deyja. Á eina
slíka kemur fangi einn, Grange,
sem er ákaflega vondur strákur.
Hann nær fljótlega yfirráð yfir öðr-
um fóngum og nýtir það til að gera
uppreisn. Þá virðist aðeins vera
einn maður til bjargar og mætást
því stálin stinn.
Eins og áður segir þá er hér um
ófrumlega eftiröpun á Mad Max
myndunum að ræða án þess þó aö
ná þeim neista sem þar mátti finna.
Paré nær allavega engan veginn
að koma í stað Mel Gibson í hlut-
verki Mad Max. Þá er sorglegt að
sjá hinn ágæta leikara Famsworth
í jafntómlegu hlutverki en karlinn
á betri hlutverk skilið nú í ellinni.
Ekki er miklu til kostað við gerð
myndarinnar enda heppilegasta
sviðið fyrir myndir sem þessar að
finna í næstu eyðimörk. Þar má
djöflast í sandbingjum án þess að
eyða neinu sem dýrmætt er nema
tíma áhorfandans. -SMJ