Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Qupperneq 1
■
■■i
■■mHi
■
Leikfélag Akureyrar:
Fiðlarinn á þakinu
frumsýndur í kvöld
Theódór JúHusson (er með aðalhlutverkið i sýningu Leikfélags Akur-
eyrar á Fiðlaranum á þakinu sem frumsýndur verður í kvöld.
DV-mynd gk
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í
kvöld hinn þekkta söngleik, Fiðlar-
ann á þakinu, og er þetta í þriðja
skipti sem „Fiðlarinn" er settur
upp hér á landi. Leikstjóri er Stefán
Baldursson, Egill Bjarnason þýddi
leiktexta og einnig söngtexta ásamt
Þórarni Eldjárn, Ingvar Björnsson
sér um lýsingu, Magnús Blöndal
Jóhannsson er tónlistarstjóri, Sig-
urjón Jóhannsson gerði leikmynd
og haföi yfirumsjón með búningum
og Juliet Naylor er höfundur
dansa.
Theódór leikur Tevje.
Fiðlarinn á þakinu hefur tvívegis
verið sýndur áöur hér á landi, í
Þjóðleikhúsinu og hjá Leikfélagi
Húsavíkur. Róbert Arnfmnsson
lék aðalhlutverkið, Tevje, hjá Þjóð-
leikhúsinu á eftirminnilegan hátt
og Sigurður Hallmarsson á Húsa-
vík. í kvöld bætist í hópinn þriðji
íslenski leikarinn sem leikur þetta
hlutverk en það er Theódór Júlíus-
son, einn af reyndustu leikurum
Leikfélags Akureyrar. Þegar DV
leit inn á æíingu hjá LA í vikunni
mátti glöggt sjá að Theódór kemur
til meö að skapa eftirminnilegan
Tevje á Akureyri.
Með önnur helstu hlutverk fara
Anna Sigríður Einarsdóttir sem
leikur Goldu, konu Tevje. Dætur
þeirra hjóna leika Arnheiður Ingi-
mundardóttir, Margrét Kr. Péturs-
dóttir, Erla Ruth Harðardóttir,
Helga Hlín Hákonardóttir, Arn-
björg Valsdóttir og Júlía Egilsdótt-
ir. Sunna Borg leikur Yentu
hjúskaparmiðlara, Gunnar Rafn
Guðmundsson Motel klæðskera,
Skúli Gautason Perchik stúdent og
Þráinn Karlsson leikur Lazar
Wolfe slátrara.
Fjölmenn sýning
Fiðlarinn á þakinu er ein fjöl-
mennasta sýning sem Leikfélag
Akureyrar hefur ráðist í, en á sjötta
tug manna koma fram í sýning-
unni, leikarar, kór, dansarar og
hljómsveit. Það er því þröng á þingi
í gamla Samkómuhúsinu á Akur-
eyri og aö mörgu að hyggja svo
sýningin geti gengið snurðulaust
fyrir sig. En LÁ hefur áður ráðist
í mannmörg og erfið verkefni svo
ekki er ástæða til aö ætla annaö
en að dæmið gangi upp nú sem
ávallt áður.
Höfundarnir
Höfundur sagnanna um mjólkur-
póstinn Tevje er Shalom Aleichem
sem hét í raun og veru Salomon
Rabinovitz og var fæddur 1859 í
Úkraínu. Faðir hans var efnaður
kaupmaður sem missti allar eigur
sínar í mislukkuðum viðskiptum.
Móðir hans lést úr kóleru 1872 og
Shalom dvaldist hjá móðurforeld-
rum sínum þar til faðir hans giftist
á ný. Að loknu stúdentsprófi gerð-
ist hann kennari, m.a. í rússnesku.
Hann hóf ritstörf 18 ára að aldri
og skrifaði fyrst ýmist á hebresku
eða rússnesku, en það var ekki fyrr
en hann hóf að skrifa á jiddisku að
hann náði verulegum vinsældum.
Hann skrifaði smásögur, leikrit og
ljóð og vinsældir hans byggðust
fyrst og fremst á kímni og sjálfs-
háði í umfjöllun um alvöru hvers-
dagslífs gyðinga í Rússlandi, lífs
sem krafðist þess að kunna jafn-
vægislist fiðlarans á þakinu.
Shalom Aleichem hefur verið kall-
aður Mark Twain Rússlands og
Mark Twain verið kallaður Shalom
Aleichem Bandaríkjanna.
Shalom Aleichem varð efnaður
af skrifum sínum en tapaði aleigu
sinni í kauphallarbraski. Árin sem
fylgdu í kjölfarið voru ár fátæktar
og niðurlægingar og ritstörf hans
drógust saman. Það var einmitt á
þessum tíma sem sögurnar um
mjólkurpóstinn Tevje urðu til, sög-
urnar sem eru sjálfstæðar smásög-
ur og eintöl sem Tevje segir
höfundinum. Aleichem hélt áfram
að skrifa sögur af Tevje þar til hann
lést árið 1916.
Joseph Stein er höfundur hand-
rits. Hann fékk níu verðlaun fyrir
handritið að „Fiðlaranum". Hann
er einnig höfundur handrits fyrir
söngleikinn Zorba.
Sheldon Harnick, sem er höfund-
ur söngtextanna, og Jerry Bock,
sem er höfundur tónlistarinnar,
störfuðu fyrst saman við söngleik-
inn „The Body Beautiful“ árið 1958.
Þeir störfuðu síðan saman að
nokkrum verkefnum og samstarf
þeirra náði hámarki í „Fiðlaran-
um“.
Mikill áhugi
Fyrirhugað er að sýna „Fiölar-
ann“ á Akureyri fram í júni og ef
marka má fýrirspurnir mun ekki
af veita. Pétur Einarsson leikhús-
stjóri tjáði DV að mjög mikill áhugi
virtist vera fyrir leikritinu og mik-
ið væri t.d. um að fyrirspurnir og
miðapantanir hefðu borist frá
Reykjavík og öðrum stöðum á
landinu.
Mánaklúbbur:
Kynningar-
kvöld
- fyrir þá sem vilja kynnast klúbbnum
Um helgina verða kynningarkvöld
fyrir alla þá sem hafa haft hug á að
skella sér í Mánaklúbb en hafa ekki
látið verða af því. Mánaklúbbur er
til húsa á þriðju hæð í sama húsi og
Þórscafé en inngangur er á horni
Brautarholts og Nóatúns.
Salarkynni staðarins eru einkar
glæsileg og skiptast í setustofu með
bar, danssal þar sem flutt er lifandi
tónlist og veitingasal þar sem boðið
er upp á sérréttamatseðil.
Um helgina mun Guðmundur
Haukur svo sjá um að skemmta gest-
um staðarins.
Guðmundur Haukur heldur uppi fjörinu í Mánaklúbbi um helglna.
Beathoven
á risaskjá
- sjá bls. 19
Islandsmót
í tví-
menningi
- sjá bls. 19
Pönnu-
steikt
stórlúða
- með hvft-
lauksijóma-
sósu
- sjá bls. 18
Hausar
og skór
sjá bls. 20
DV-mynd
banda-
listinn
- sjá bls. 32
Ef þú vilt
útaðborða
- sjá bls. 18
Kvik-
myndir
helgarinnar
- sjá bls. 30