Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Side 7
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988. 31 Grafí k frá Frans Soulages í listasafni Islands og safn Sorliers að Kjarvalsstöðum Sú var tíðin að Frakkar sáu sér hag í því að senda hingað merkar myndlistarsýningar, aðallega á grafíkverkum. Síðan hafa dvalið hér nokkrir opinberir fulltrúar Frakkaveldis, sem verið hafa fremur áhugalitl- ir um slíkar sendingar, því mið- ur. Nú virðist vera að rofa til í þess- um málum því að um þessar mundir er tvær franskar grafík- sýiúngar að finna í bænum og báðar hafa til síns ágætis nokk- uð. Pierre Soulages hefur lengi verið eitt af stóru nöfnunum í franskri myndlist á sjötta áratugnum og því er fagnaðarefni að Listasafn ís- lands skuh hafa fengið hingað sýningu á úrvali grafíkmynda hans. í úttektum á þróun vestrænnar myndhstar eftir síðustu heims- styrjöld hefur Soulages yfirleitt farið illa út úr samanburðinum við hstrænan sálufélaga sinn og sam- tímamann, bandaríska hstmálar- ann Franz Kline. Báðir sérhæfðu sig nefnhega í gerð stórra afstraktmálverka af dökkum sveipum eða blökkum, á hvítum grunni, og þótti mörgum gagnrýnendum Kline komast betur frá þess konar málverki en Soulag- es enda hafði bandarísk myndhst þá mikinn meðbyr. Með tímanum urðu menn þess þó áskynja að markmið þessara tveggja listamanna voru gjörólík. Khne lagði mest upp úr átakamik- hh myndbyggingu en Soulages er í eðh sínu maður taktfastrar hrynj- andi og ljósbrigða. Forsögulegt yfirbragð Þessir eiginleikar koma berlega fram á sýningunni í L.í. Listamaðurinn sker þrykkplötur sínar niður í óreglulegar einingar og stilhr meginformum upp þannig að þau mynda láréttar og lóðréttar áherslur á víxl eða þá að þau koma saman í mikla stöpla eða strend- inga sem hafa á sér forsögulegt yfirbragð. Við gerð ætinga sinna notar Sou- lages tækni sem ég átta mig ekki á til fuhs en virðist að einhverju leyti ganga út á mikla sýruböðun svo mikla að sýran fær iðulega að éta sig gegnum þrykkplöturnar og narta utan af þeim. í prentuninni myndast svo skjannahvítir reitir eða göt þar sem áhrifa sýrunnar gætir en þeir virka eins og ljósgjafar innan í hinum húmdökku strendingsformum. Grafík Soulages er mjög „frönsk“ Pierre Soulages - Æting, 1974. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson að því leyti að í henni skarast frum- stæð kynngi og nútímaleg fágun. Að Kjarvalsstöðum er sýnt 21 steinprent úr safni Charles Sorher en þau tilheyra nú hstasafninu í Sables-d Olonne. Sorher þessi var einna fremstur margra snihinga í vinnslu stein- prents sem gerðu Mourlot grafík- verkstæðið í París að stórveldi í nútímagrafík. Á langri starfsævi eignaðist hann yfir 500 steinþrykk eftir helstu hstamenn í Evrópu og gaf þau ofangreindu safni. Lærifaðir listamanna Segja má að Sorlier hafi bókstaf- lega kennt ýmsum listamönnum að nota steinþrykk auk þess sem hann tók sjálfur af þeim ómakið og yfírfærði málverk eða klippi- myndir þeirra á stein og þrykkti í takmörkuðu upplagi fyrir þá. Á sýningunni að Kjarvalsstöðum eru dæmi um hvorttveggja, þrykk eftir frumteikningum listamann- anna á stein (Masson, Tapíes) og þrykk sem Sorlier gerði eftir mál- verkum þeirra (Chagah, Picasso o.íl.) og er tæplega hægt að sjá nokkurn mun þar á. Þótt myndirnar á sýningunni verði tæpiega taldar th merkustu grafíkverka þeirra listamanna sem í hlut eiga er þó gaman að fá að skoða þau í návígi hér uppi á sker- inu. Sjálfur hafði ég mesta ánægju af því að endumýja kynnin við tvo frumkvöðla í steinprenti, þá Daumier og Lautrec, hverra mynd- ir Sorlier þrykkti eftir upprunaleg- um steinum þeirra. -ai AÐALFUNDUR Aðalfundur Olíufélagsins hf. verður haldinn á Hótel Sögu föstudaginn 13. maí nk. kl. 17.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félags- ins. Stjórn Olíufélagsins hf. I vörslu óskilamunadeildar lögreglunnar er margt óskilamuna svo sem: reiðhjól, barnakerrur, fatnaður, lyklaveski, lyklar, buddur, seðlaveski, kvenveski, skjalatöskur, úr, gler- augu o.fl. Er þeim sem slíkum munum hafa glatað bent á að spyrjast fyrir um þá á skrifstofu óskilamuna, Hverfis- götu 113, (gengið inn frá Snorrabraut) frá kl. 14.00 - 16.00 virka daga. Þeir óskilamunir sem eru búnir að vera í vörslu lög- reglunnar ár eða lengur verða seldir á uppboði í portinu að Borgartúni 7 laugardaginn 30. apríl 1988. Uppboðið hefst kl. 13.30. Lögreglustjórinn i Reykjavík 27. apríl 1988 Húsmæðraskólinn Ósk, ísafirði, 75 ára Orðsending til nemenda nær og fiær, yngri og eldri: í tilefni af 75 ára afmæli skólans verður haldið af- mælishóf laugardaginn 28. maí næstkomandi. Stefnt er að því að gestir komi til ísafjarðar á föstudag. Gefst þá tækifæri til að hittast og rifja upp gömul kynni. Á laugardag verður skólinn opinn, þar verður yfirlits- sýning á handavinnu nemenda, yngri og eldri. Gestum verður boðið upp á kaffi í skólanum. Um kvöldið verð- ur sameiginlegt hóf í íþróttahúsinu í Bolungarvík og mun rúta ganga á milli staðanna. Ferðaskrifstofa Vest- fjarða býður upp á ferðapakka, þ.e. flugfar og hótel- pláss í 2 nætur og einnig verður veittur afsláttur af fargjaldi hjá Flugleiðum og Flugfélagi Norðurlands. Afmælisgestir njóta forgangs með gistingu á Hótel Isafirði. Fjölmennum, stelpur Nemendasambandið SverrirStormskerer í Dublin með fríðu föruneyti og ætlar aðsigra ísöngva- keppni sjónvarps- stöðva hvað sem veðbankastjórar segja. I Dublin er líka Elín Alberts- dóttirsem flytur lesendum helgar- blaðsins nýjustu fréttiraf víkingaferð Stormskersins. Bjartsýnir menn segja að nú verði bjórfrum- varpið loksinssam- þykktá þingi. Þeirsvartsýnu neita þó að trúafyrren þeir halda á fyrstu bjórkoll- uni ogbendaáað á þingi hefuralltgengið gegn bjórnum í nærri áttatíu ár. I helgarblaðinu ersaga bjórmálsins rifjuð upp. Á Stöð 2 geisa nú Stríðsvindar- ein skrautlegasta sápuópera sem íslenskumsjón- varpsáhorfendum hefur lengið gef- istkosturáaðsjá. I helgarblaðinnu segjum viðfrá ástum og örlög- umíþessutröll- aukna verki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.