Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Síða 8
32 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988. Mynd- bönd Umsjón: Sigurður M. Jónsson Hilmar Karlsson r x töffarinn MALONE Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Harley Cockliss. Aðalhiutverk: Burt Reynolds, Cliff Ro- bertson og Lauren Hutton. Bandarísk: 1987 - Sýningartími 92 min. Ekki er hægt aö segja um Mal- one, nýjustu mynd Burt Reynolds, aö hún sé frumleg. Kappinn endur- tekur hér enn einu sinni töffara- hlutverkið sem hann hefur endurtekið margoft. Leikur hans ber þess einnig merki að hann er farinn aö eldast, hreyfingar stirðari en áöur. Þrátt fyrir vanhæfni Reynolds og stórar gloppur í handriti er hér um sæmilegustu afþreyingu að ræða. Keyrt er á fullu alla myndina. Reynolds í hlutverki Malone, fyrrverandi drápara hjá CIA, lend- ir í því aö bíllinn hans bilar og áður en hann veit af er hann kominn í slag við harðsvíraða glæpamenn sem ætla sér hvorki meira né minna en taka völdin i Bandaríkj- unum. Eins og Burt Reynolds er von og vísa sættir hann sig ekki við yfir- gang þessara manna en hefur sig lítt í frammi í byrjun en þegar fyrr- verandi samstarfskona hans er myrt á hrottalegan hátt gengur hann berserksgang og er lítið eftir af höfuðstöðvum glæpamannanna í lokin. Malone er uppfull af ofbeldi. Vopnin eru engin smásmíði, tæta í simdur þann sem verður fyrir skoti og þar fram eftir götunum. Áður ör talað um frammistöðu Reynolds. Aðrir leikarar gera betur, sérstak- lega Cliff Robertson og Scott Wilson. HK. Það er óvenjumikið af nýjum myndum inni á listanum'að þessu sinni en hæst ber auðvitað stökk Eddy Murphy í lögguleik sínum. Hann veður upp í 3. sæti og mun, ef að líkum lætur, fara hærra. Steve Martin er óborganlegur í Roxanne og er ekki að undra að sú mynd fellur videóglápurum í geð. Stríðsmyndin um hamborgara- hæðina skýst inn á listann og einnig Eddy stálkrumla. Sá óskemmtilegi náungi birtist hér í þriðja sinn, ferskur sem endranær. Þá tekst véllöggunni að komast í 1. sæti í fyrsta skipti eftir harðvít- uga baráttu við aðra myndsmelli. DV-LISTINN 1. (2) Robocop 2. (4) La Bamba 3. (-) Beverly Hills Cop II 4. (3) Jumping Jack Flash 5. (-) Roxanne 6. (1) The Living Daylight 7. (-) Nightmare on Elm. St. III 8. (-) Hamburger Hill 9. (9) The Sicilian 10. (-) Wise Guys Á valdi útvarpsins RADIO DAYS Útgefandi: Skífan Lelkstjóri og handritshöfundur: Woody Allen. Aðalhlutverk: Mia Farrow og Dianne Wiest. Bandarfsk: 1987. öllum leyfð. 80 mfn. Einhverra hluta vegna hefur Woody AUen ekki tekist að gera sjálfan sig að söluvöru. Líklega sækist hann ekki mjög eftir því eins og sjá má af efni því sem hann tek- ur fyrir. Líf bandarísku milhstétt- arinnar, sérstaklega New Yorkbúans, er hans helsta áhuga- mál en einnig hefur áhugi hans beinst að uppvaxtarárunum og mörgu því sem skapað hefur Bandaríki nútímans. Hér tekur hann fyrir uppvaxtar- ár ungs drengs í sjálfsævisöguleg- um stíl. Það fer ekki á mUU mála að þaö er ævi Allens sem hér er lýst enda tengir hann söguna sam- an með því að gerast sjálfur sögumaður. Hann kýs að gera út- varpið að miðpunkti og lýsir á skemmtílegan hátt hvemig útvarp- ið varð stór hluti af daglegu lífi fólks. Minnisstæðir þættir og út- varpsmenn fá hér skemmtilega afgreiðslu og eru ávaUt tengdir ein- hverri persónulegri uppUfun hjá AUen. Undirritaður hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á Allen enda er hann án efa einn sjálfstæðasti og merkasti kvikmyndagerðar- maður Bandaríkjanna. Það verður þó að segjast eins og er að þetta er ekki besta mynd kappans og verður síðar meir örugglega talin tíl hUð- arspora hans. Þó ágætlega takist við að draga upp áhrif útvarpsins verður frásögnin dálítið sundur- laus og Uöktandi og jafnvel snubb- ótt. Sviðsmynd og leikur er í góðu lagi og húmorinn er á sínum stað. Aðdáendur AUens geta ekki látiö þessa mynd framhjá sér fara en óvíst er hvort hún affar honum nýrra. -SMJ !4 #1 Sjúkur Sikileyingur THE SICILIAN Útgefandi: JB-myndbönd Leikstjóri: Michael Cimino. Handrit: Michael Cimino og Joann Carell eftir sögu Mario Puzo. Aóalhlutverk: Chri- stopher Lambert, Terence Stamp og John Turturro. Bandarisk 1987. Það var ekki laust við að beðið væri með nokkuri eftirvæntingu eftir þessari nýjustu stórmynd Cimino (Deer Hunter, Heaven Gate, Year of the Dragon). Eftir stórgóða byrjun þessa umdeUda leikstjóra Hjartarbanans kom eitt mesta Uopp allra tíma, HimnahUð, sem kostaði gjaldþrot kvikmynda- fyrirtækis og drap vestrana í nokkur ár. Nú hafa margir reynt að halda uppi vömum fyrir HimnahUðið enda varð hún að ganga í gegn um mikinn hreinsunareld í kUppingu. Segja þeir jákvæðu að ef myndin heföi haldið fjögurra tíma lengd hefði hún komið betur út en þetta eru auðvitað vangaveltur. Þá var mynd Cimino um ár drekans fuU- komlega oUofað ofbeldisdekur. Eftir aö hafa horft á þessa mynd er ekki nema von að menn spyrji hvort Hjartarbaninn hafi bara ve- rið heppni. Myndin er í raun hvorki fugl né fiskur og sama hvar á hana er litið. Hörmulegust er þó líklega leikstjórn Ciminos sem er fuUkomlega mislukkuð. Hann virð- ist ekki hafa hugmynd um að hverju hann stefnir og er myndin í raun brotakennt púsluspif sem enginn botnar í. Atriði eru bygggð upp án þess að vera í neinu inn- byrðis samhengi og engin leið er að finna söguþráðinn sem þó var víst fyrir hendi í bók Puzo. Þá er Lambert eins og frá ann- arri plánetu í hlutverki sínu sem afhjúpar fullkomnlega takmarkan- ir hans sem leikara. Þessi mynd er því best gleymd og graffn nema menn séu því meiri aðdáendur Cimino. -SMJ ★ !4 Dansað í myrkri CAN YOU FEEL ME DANCING Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Michael Miller. Aðalleikarar: Justine Bateman, Jason Bateman og Michael Miller. Bandarisk: 1986. Sýningartimi: 100 mín. Þær eru nokkrar myndirnar sem gerðar hafa verið um bhnt fólk sem reypir að spjara sig á eigin vegum. Þessum myndum er sameiginlegt að höfðað er til tilfinninga áhorf- andans. GaUinn við þessar myndir er að þær líkjast hver annarri fuU- mikið og er Can You Feel Me engin undantekning - hvorki verri né betri en aðrar slíkar. Myndin er byggð á sannsögulegu efni. Karin er nitján ára og hefur verið blind frá fæðingu. Hún hefur ávaUt lifað í vernd fjölskyldu sinnar. Þegar hún kynnist ungum manni, Ritchie, og verður ástfangin Unnur hún að hana skortir margt tU að geta lifaö sjálfstætt. Hún berst samt á móti fjölskyldu sinni og Uyt- ur að heiman. AUt gengur vel til að byrja með en vandamáUn í sambúðinni skjóta upp kolUnum hvert á fætur öðru. Ritchie reynist Karin þó mjög vel. Hann getur samt ekki neitað sér um að hrósa blindu stúlkunni í návist annarra og það þolir Karin ekki. Hún ákveður því að yíirgefa Ritchie þrátt fyrir að hún elski hann. Can You Feel Me Dancing er hug- ljúf mynd, óvenjuleg ástarsaga sem krydduð er léttri tónlist og dansi. Justine Bateman, sem aðaUega er þekkt úr sjónvarpsþáttunum Fam- Uy Ties, hagar sér kannski ekki alltaf eins og blind stúlka mundi gera en þar fyrir utan sýnir hún ágætan leik. Þessi kvikmynd spUar um of á tilfmningar áhorfandans eins og flestar bandarískar vanda- málamyndir sem gerðar eru fyrir sjónvarp. Þá breytast sannsöguleg- ar persónur myndarinnar úr venjulegu fólki í skáldsagnaper- sónur. HK. ★★!4 íi Gluggagæir af verstu SOMEONE WATCHING ME Útgefandi: Steinar. Leikstjóri: John Carpenter. Aðalhlutverk: Lauren Hutton, David Bir- ney og Adrianne Barbeau. Bandarfsk: 1978. - Sýningartími 90 mín. John Carpenter á að baki margar ágætar hrollvekjur og er taUnn meðal meistara á því sviði. Hann fæst þó ekki eingöngu við hroU- vekjur og er Someone Watching Me þriUer þar sem ofbeldið er frem- ur andlegt en líkamlegt. Að nokkru leyti minnir Someone Watching Me á annan þekktari þrUler, Gluggann á bakhUðinni eftir Alfred Hitchcock. Hér snýst dæmið að vísu við. Ógnin kemur frá þeim sem vaktar gluggann. Aðalpersónan er Leigh Michaels (Laureen Hutton) sem nýflutt er frá New York til Los Angeles. Hún er ekki fyrr flutt inn í nýja íbúð en hún fer að fá torkennilegar sím- hringingar og póstsendingar. Hún tekur þessu með ró í fyrstu en brátt veröur ljóst að sá sem hringir tU hennar fylgist nákvæmlega með öllu sem hún gerir. Ónæði þetta fer brátt að hafa áhrif á taugar Leigh og verður hún uppstökk og bitnar það á vinum hennar. Sakleysislegar símhring- ingarnar breytast í hótanir og stendur Leigh ráðþrota ásamt vin- um sínum. Lögreglan gétur ekkert gert meðan sá sem hótar gerir ekk- ert af sér... Someone Watching Me ber það með sér að hún er gerð fyrir sjón- varp. Sögusviðið er þröngt, fáar persónur og handritið er nokkuð laust í reipunum. John Carpenter gerði þessa mynd 1978 þegar hann var á mikilli uppleið og bera mörg atriði með sér að bak við kvik- myndavéUna er maður sem kann sitt verk. Ekki verður samt Some- one Watching Me talin með betri verkum Carpenters. Nokkur galli á myndinni er slak- ur leikur aðalleikaranna. Nokkuð vantar upp á að Laureen Hutton nái tökum á hlutverki sínu. Afleið- ingin er sú að áhorfandinn fær aldrei samúð með henni. Hún er samt hátíð á móti David Birney. Sá leikari sannar enn einu sinni að hann er á rangri hiUu í líflnu. Someone Watching Me er þrátt fyrir ýmsa gaUa ágæt afþreying. Áhorfandinn missir aldrei þráðinn og eins og áður sagði fá nokkur atriði myndarinnar hárin til að rísa. HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.