Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1988, Blaðsíða 1
31 19. TBL. LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988. 17. jum Það var kominn 17. júní og Palli hafði feng- ið að leika með hljómsveitinni. Allir voru að hlusta á hann: amma, afi, mamma, pabbi, Sigga systir, frændi, frænka, Siggi bróðir og vinir hans og margir aðrir. Kalli var fimmti í röðinni. Þegar þeir voru búnir að spila kom skrúðganga sem gekk í tvo og hálfan klukkutíma. Þegar þau komu heim töluðu þau um skrúðgönguna og hvað það hefði verið gam- an. Allir vinir og ættingjar fengu svo að borða heima hjá Kalla því 17. júní er jú auðvitað hátíðisdagur! Svava Ólafsdóttir, Miðleiti 6, Reykjavík ■■ • F F 17. jum Einu sinni var lítill strákur, sem hét Siggi. Hann spurði mömmu sína hvort hann gæti fengið að spila á trommur 17. júní. Mamma sagðist ætla að spyrja hljómsveitarmennina hvort hann mætti vera með. Hún sagði þeim að Siggi litli væri í Tónlistarskólanum að læra á trommur. Kalli litli fékk að vera með að spila 17. júní og þá varð hann glað- ur. Líney Rakel Jónsdóttir, 11 ára, Reykjavík (Líney, þú gleymdir að skrifa heimilisfang- ið!) Frá Bama-DV: Því miður berast mörg bréfin allt of seint til birtingar í réttu blaði! Margar ágætar sögur er því ekki hægt að birta. Vinsamleg- ast munið að póstleggja bréfin strax á mánudegi. Svona til undantekingar birtum við nú nokkrar sögur sem því miður bárust of seint í síðasta blað! Bíllinn Einu sinni voru fjórir krakkar sem hétu Gunna, Jón, Páll og Vilborg. Þessir krakk- ar voru vinir og áttu heima í sömu blokk. Á bak við hana var autt svæði. Þar léku þau sér alltaf saman. Dag einn er þau voru að leika sér í París, sáu þau fjarskalega flottan bíl koma þar að. Maðurinn, sem átti bílinn, spurði böm- in hvar Skúlagata 20 væri. Krakkamir svöruðu að hún væri hinum megin við göt- una. Maðurinn þakkaði fyrir og fór burt en skildi bílinn eftir. Allt í einu segir Jón: „Lyklarnir eru í. Eigum við að prófa?“ Hin börnin vom ekk- ert á móti því og hoppuðu inn í bílinn. „Ég vil fá að keyra fyrstur af því að ég er elstur,“ sagði Jón sem var 14 ára. „Allt í lagi,“ sögðu hin bömin og Jón setti í gang. í sömu svifum kom maðurinn handan við hornið og sá að það var búið að setja bílinn í gang. Hann hljóp því að næsta síma og kallaði á lögregluna. „Það eru bílaþjófar hér á Skúlagötu 20. Bíllinn, sem rænt var, er svartur Camaró Z-28.“ „Allt í lagi,“ sagði lögregluþjónninn og skaust upp í lögreglubílinn og ók af stað í hvelli. Nú hófst mikill eltingaleikur. Krakkarnir óku upp Klapparstíg og niður Bjarnhóla- stíg. En allt í einu stöðvaðist Camaró-bíll- inn af því að hann varð bensínlaus! Lögregluþjónninn náði krökkunum og fór með þá niður á lögreglustöð og síðan heim. Upp frá þessu fengu krakkamir aldrei að leika sér á auðu svæðinu. Ragnar Fjalar Þrastarson, Furugrund 64, Kópavogi Nýi bíllinn Einu sinni vom fjögur böm sem áttu heima hjá mömmu sinni og pabba. Pabbinn var í útlöndum. Á sunnudaginn kom hann heim með nýjan bíl. Allir urðu svo ánægðir með nýja bílinn. E.Þ.I. Skagfirðingabraut 10, 550 Sauðárkróki Dísa, Jakob, Óli og Anna Lilja Pabbi hennar Dísu átti nýjan bíl og Óli sagði: „Mig langar að bruna út um allan bæ á honum.“ Þá sagði Jakob: „Eigum við ekki heldur að fara að leika okkur í skott- inu?“ Anna Lilja sagði: „Leikvun okkur frekar úti um allt í bílnum, það er miklu skemmtilegra.“ Þá sagði Dísa: „Nei, ég vil þetta ekki. Pabbi minn vill ekki láta skemma nýja bíl- inn sinn.“ Svo hrópuðu allir krakkarnir: „Leikum okkur í mömmó í kofanum.“ „Já, það skulum við gera og keyra bara bílinn í þykjustunni.“ Pabbi kom og sagði: „Hvað viljið þið?“ „Við viljum gjarnan fá frostpinna og keyra um í nýja bílnum,“ sögðu bömin. Svo fóru þau út að keyra og fengu frostpinna. Þegar þau komu heim, sagði mamma: „Guð minn góður, pabbi, það er ekki nammidagur í dag! Hann er á morgun!“ Krakkamir fóru að skellihlæja og skríkja. „Ég var alveg búinn að gleyma því,“ sagði pabbi. Þá sagði mamma: „Krakkaskammirnar ykkar, að plata pabba svo til að kaupa frost- pinna handa ykkur!“ Svo lokaði hún þau inni í herbergi. „Það var Dísa sem plataði pabba,“ sögðu krakkarnir. Þá fengu börnin að fara út á leikvöll en mamma kom með kúst og rassskellti pabba! Köttur úti í mýri setti upp á sér stýri úti er ævintýri. Björk Viggósdóttir, 6 ára, Njálsgötu 59, 101 Reykjavík Sagan mín Skrifið sögu um þessa mynd. Sagan birtist síðan í 22. tbl. og getur að sjálfsögðu hreppt verðlaun. ■ . . ■: ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.