Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1988, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1988, Qupperneq 1
FjórðimgsmótVesturlands - á Kaldármelum Það er vonandi að veðurguðirnir leiki við hestamenn um helgina eins og á síðasta fjórðungsmóti Vestur- lands sem haldið var árið 1984. Nú um helgina er haldið á Kaldár- melum mikið hestamannamót, íjórðungsmót Vesturlands. Það eru sjö hestamannafélög á Vesturlandi og Vestfórðum sem standa að þessu móti sem hófst 30. júní og mun standa fram á sunnudag, 3. júlí. Mótið hófst á fimmtudag með kynbótadómum en Þorkell Bjama- son og hans menn hafa frá því um miðjan maí ferðast um flórðunginn og valið kynbótahross á mótið. Hafa nú 35 hryssur og 11 stóðhestar áunnið sér rétt til þátttöku í mótinu sem einstaklingar. Hópar frá sama bæ Einnig verða tveir stóðhestar sýndir með afkvæmum. Sjö hryss- ur verða afkvæmasýndar og sex hrossabú sýna framleiöslu sína. Á fyrri mótum hafa verið sýndir ræktunarhópar út af einhveiju ákveðnu hrossi en nú koma fram hópar sem eru fæddir á sama bæ. A mótinu verður keppt í 150 og 250 metra skeiði, í 250, 350 og 800 metra stökki og í 300 metra brokki. Verðlaun eru hæst í 250 metra skeiði, 26.000 krónur fyrir fyrsta sætið. Danspallur og grillmatur Miklar framkvæmdir hafa verið á Kaldármelum vegna mótsins. Nýr hringvöllur hefur verið gerður og tvö hús hafa verið sett upp. Einnig hefur verið settur upp dans- pallur á svæðinu þannig að gestir mótsins þurfa ekki að fara af svæð- inu til að komast á dansleik. Þess má geta að aðgangur að danspalli er innifalinn í miðaveröi. Á mótsstaö verður öll almenn veitingasala og á kvöldin verður hægt að kaupa mat af útigrilli sem Gunnar Páll Ingólfsson sér um. Á svæðinu eru næg tjaldstæði. Alla gæslu annast björgunarsveitirnar á Vesturlandi sameiginlega. Möguleiki á útreiðum Aðstaða fyrir feröahross verður í landi Snorrastaða gegnt mótsvæð- inu. Verða hrossin rekin í aðhald tvisvar á dag þannig að fólk hefur möguleika á því að stunda útreiöar þá daga sem mótið stendur. For- maður framkvæmdanefndar er Tryggvi Gunnarsson á Brimilsvöll- um og framkvæmdastjóri er Erna Bjarnadóttir, Stakkhamri. Ólympíuhlaup - á tveim stöðum á landinu í tilefni ólympíudagsins, sem var hinn 21. júní síðastliðinn, verður haldið ólympíuhlaup á laugardag, 2. júlí. Hlaupið hefst í Reykjavík kl. 11.00 á túninu við sundlaugina í Laugardal og á Akureyri kl. 14.00 á Ráðhústorginu. Hlaupið verður 5 og 10 kílómetra. Eyðublöö til skráningar fyrir hlaupið liggja frammi á sundstöðum á höfuðborgarsvæðinu og á Akur- eyri. Skráningu í Reykjavík lýkur í dag, 1. júlí, og getur fólk utan af landi skráð sig í síma 91-685525. Á Akur- eyri geta hlauparar skráð sig sam- dægurs. Verðlaun í hlaupinu verða minnis- peningar Ólympíunefndar íslands, einnig verða dregin út sjö pör af Nike-skóm í Reykjavík og 3 pör á Akureyri, síðan fá allir stuttermaboli í viðurkenningarskyni fyrir þátttöku í hlaupinu. Skráningargjald er 200 kr. fyrir fullorðna og 100 kr. fyrir 16 ára og yngri. Það eru Frjálsíþróttasamband íslands, Ólympíunefnd íslands og íþrótta- og tómstundaráð Reykjavík- ur sem standa að hlaupinu. Allir geta tekið þátt í ólympíuhlaupinu Tangó og gamlir slagarar - sjá bls. 19 Pönkarar í villta vestrinu - sjá bls. 32 Huldufólk, tröll og draugar - sjá bls. 19 Sumartón- leikar í Skálholts- kirkju - sjá bls. 20 Flautu- leikur í Dillons- húsi - sjá bls. 29 Hlíðarendi F a Hvolsvelli - sjá bls. 18 Svíþjóðar- farar í Heita pottinum - sjá bls. 19 Ríkey í Eden - sjá bls. 29

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.