Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1988, Síða 7
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988.
27
SJÓNVARPIÐ
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Heiða. Teiknimyndaflokkur byggð-
ur á skáldsögu Johanna Spyri. Þýð-
andi Rannveig Tryggvadóttir. Leik-
raddir Sigrún Edda Björnsdóttir.
19.25 iþróttasyrpa. Umsjónarmaður Ing-
ólfur Hannesson.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Fósturlandsins Freyja. Þessi þáttur
fjallar um íslenskar konur í fortíð, nútíð
og framtíð, um stöðu þeirra og kjör.
Björg Einarsdóttir fjallar um fortíðina
og rætt er við ýmsar merkiskonur um
framtið íslenskra kvenna. Meðal þeirra
sem rætt er við er Vigdís Finnboga-
dóttir forseti íslands, Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra og Svava
Jakobsdóttir rithöfundur. Þátturinn
verður sýndur á Nordisk Forum sem
framlag Kvenréttindafélags Islands.
Umsjónarmaður og stjórnandi upp-
töku er Sigrún Stefánsdóttir.
21.15 Matlock. Bandarískur myndaflokkur
um lögfræðing í Atlanta. Aðalhlutverk
Andy Griffith. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.05 Viðtal við Weizsácker. Arthúr
Björgvin Bollason ræðir við Richard
von Weizsácker forseta Vestur-Þýska-
lands. Viðtalið var tekið upp í Bonn
þegar Vigdís Finnbogadóttir forseti var
þar í opinberri heimsókn. Umsjón Karl
Blöndal.
22.20 Úr norðri - Einstaklingur og um-
hverfi. (Studio Nord: Menneske og
miljö - framtidas museum). Þjóðverjar
eyðilögðu stór landsvæði i Norður-
Noregi er þeir hörfuðu þaðan haustið
1944. Á þessum svæðum bjuggu áður
Samar, Norðmenn og Kvenar. Safn
sem var stofnað 1979 er helgað menn-
ingararfleifð þeirra. (Nordvision -
Norska sjónvarpið).
23.00 Útvarpsfréttir í dagskárlok.
16.25 Fráskilin. Separate Tables. Mynd
þessi byggir á leikriti I tveimur sjálf-
stæðum þáttum sem var frumsýnt árið
1954 I Bretlandi og sló öll aðsóknar-
met. Baksviðið er sóðalegt hótel fyrir
langdvalargesti I Bournemouth í Eng-
landi árið 1954. Aðalhlutverk: Julie
Christie, Alan Bates og Clare Bloom.
Leíkstjóri: John Schlesinger. Framleið-
andi: Mort Abrahams. MGM/UA
1983. Sýningartimmi 115 mín.
18.20 Furðuverurnar. Die Tintenfische.
Leikin mynd um börn sem komast í
kynni við tvær furðuverur. Þýðandi:
Dagmar Koepper. WDR.
18.45 Dægradvöl. ABC's World Sports-
man. Þáttaröð um frægt fólk með
spennandi áhugamál. Þýðandi: Sævar
Hilbertsson. ABC.
19.19 19.19. Lifandi fréttaflutningur, ásamt
umfjöllun um málefni líðandi stundar.
20.30 Svaraðu strax. Léttur spurninga-
leikur. Starfsfólk ýmissa fyrirtækja
kemur i heimsókn í sjónvarpssal og
veglegir vinningar eru í boði.
21.10 Morögáta. Murder She Wrote.
Jessica Fletcher er vinamörg og alltaf
velkomin á heimili vina sinna þrátt fyr-
ir að búast megi við dauðsfalli i fjöl-
skyldunni I kjölfar heimsókna hennar.
Þýðandi: Örnólfur Arnason. MCA.
Universal.
22.00 Paradisargata. Paradise Alley.
0.10 Hildarleikur. Battle of the Bulge.
Striðsmynd sem fjallar um hina löngu
og blóðugu orrustu sem bandamenn
háðu við nasista i Ardennafjöllum árið
1944. Aðalhlutverk: Henry Fonda,
Robert Shaw, Robert Ryan. Leikstjórn:
Ken Annakin. Þýðandi: Björn Baldurs-
son. Warner 1965. Sýningartími 150
mín.
2.40 Dagskrárlok.
0Rásl
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Ólafur Jó-
hannsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 I morgunsárið með Ingveldi Ólafs-
dóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30,
fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatiminn.
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra
Björnsdóttir.
9.30 Landpósturinn - Frá Noröurlandi.
Umsjón: Gestur Einar Jónasson.
(Einnig útvarpað nk. mánudagskvöld
kl. 21.00.)
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tið. Hermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.^5 Samhljómur. Umsjón: Daníel Þor-
steinsson.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn. Umsjón: Álfhildur
Hallgrímsdóttir og Anna Margrét Sig-
urðardóttir.
13.35 Miðdegissagan: „Þvert yfir ísland"
eftir Jean-Claude Barreau. Catherine
Eyjólfsson þýddi ásamt Franz Gíslasyni
sem les (9).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Heitar lummur. Umsjón: Inga Eydal.
(Frá Akureyri) (Einnig útvarpað að-
faranótt þriðjudags að loknum fréttum
kl. 2.00.)
15.00 Fréttir.
15.03 Heimshorn. Þáttaröð um lönd og
lýði í umsjá Jóns Gunnars Grjetarsson-
ar. Fjórði þáttur: Paraguay. (Endurtek-
inn frá kvöldinu áður.)
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpiö. Vikið að islensku
kvikmyndunum „Punktur, punktur,
komma, strik" og „Jón Oddur og Jón
Bjarni" og bókunum sem þær eru
byggðar á. Umsjón: Sigurlaug Margrét
Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Tsjaíkovskí og
Beethoven.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgiö. Umsjón: Þorlákur Helga-
son. Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegtmál. Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Sigurður Konráðsson flyt-
ur.
19.40 Að utan. Fréttaþáttur um erlend
málefni.
20.00 Litli barnatíminn. Umsjón: Gunnvör
Braga. (Endurtekinn frá morgni.)
20.15 Tónlistarkvöld Rikisútvarpsins -
Listahátið í Reykjavík 1988. Tónleikar
Guarneri-kvartettsins i Gamla bíói 19.
júní sl. Á efnisskránni voru strengja-
kvartettar eftir Wolfgang Amadeus
Mozart, Leos Janacek og Ludwig van
Beethoven. Kynnir: Þórarinn Stefáns-
son.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Ljóð frá ýmsum löndum. Úr Ijóða-
þýðingum Magnúsar Ásgeirssonar.
Sjötti þáttur: „Meðan sprengjurnar
falla". Úmsjón: Hjörtur Pálsson. Lesari
með honum: Alda Arnardóttir.
23.00 Tónlist á síðkvöldi eftir Sergei
Rakhmaninoff.
24.00 Fréttir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp
með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og
fréttum kl. 8.00. Veðurfregnir kl. 8.15.
9.03 Viöbit - Þröstur Emilsson. (Frá Ak-
ureyri)
10.05 Miðmorgunssyrpa - Eva Ásrún Al-
bertsdóttir.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. - Valgeir Skagfjörð.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp.
18.00 Sumarsveifla með Gunnari Salvars-
syni.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 A( tingrum Iram - Rósa Guðný
Þórsdóttir.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í
næturútvarpi til morguns.
Svædisútvarp
Rás n
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.30-19.00 Svæðlsútvarp Austur-
lands. Umsjón: Inga Rósa Þórðardótt-
ir.
7.00 Haraldur Gislason og morgunbylgj-
an. Litið í blöðin og hressileg tónlist á
milli. Síminn hjá Halla er 611111.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00 Anna Björk Birgisdóttir. Hressilegt
morgunpopp, bæði gamalt og nýtt,
flutt af sölumanni Bylgjunnar, Önnu
Björk. Flóamarkaður kl. 9.30. Sími
611111. Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00 Hádegisfréttir Bylgjunnar - aðal-
Iréttir dagsins. Sími fréttastofunnar er
25390.
12.10 Hörður Arnarson. Hörður lítur á það
helsta sem biður fólks um naéstu helgi,
einnig ýmis uppátæki sem hann einn
kann. Fréttir kl. 13.00,14.00 og 15.00.
16.00 Ásgeir Tómasson, i dag - i kvöld.
Ásgeir Tómasson spilar þægilega tón-
list fyrir þá sem eru á leiðinni heim og
kannar hvað er að gerast. Fréttir kl.
16.00 og 17.00.
18.00 Kvöldfréttatími Bylgjunnar.
18.15 Margrét Hrafnsdóttir og tónlistin
þin. Síminn hjá Möggu er 611111.
21.00 Góö tónlist á Bylgjukvöldi eins og
hún á að vera.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar - Bjarni
Ólafur Guðmundsson
7.00 Þorgeir Ástvaldsson. Lífleg og
þægileg tónlist, veður og hagnýtar
. upplýsingar, auk frétta og viðtala.
8.00 Stjörnufréttir (fréttasími 689910).
9.00 Gunnlaugur Helgason. Seinni hluti
morgunvaktar með Gulla. Beinn sími
681900.
10.00 og 12.00 Stjörnufréttir (fréttasími
689910).
12.10 Hádegisútvarp. Bjarni D. Jónsson.
Bjarni Dagur veltir upp fréttnæmu efni,
innlendu jafnt sem erlendu, í takt við
vel valda tónlist.
13.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Leikið af
fingrum fram meö hæfilegri blöndu af
nýrri tónlist.
14.00 og 16.00 Stjörnufréttir (fréttasími
689910).
16.10 Mannlegi þátturinn. Árni Magnús-
son leikur tónlist, talar við fólk um
málefni liðandi stundar og mannlegi
þáttur tilverunnar er í fyrirrúmi.
18.00 Stjörnufréttir (fréttasími 689910).
18.00 íslenskir tónar. Innlend dægurlög
að hætti hússins. Stillið á Stjörnuna.
19.00 Siðkvöld á Stjörnunni. Gæðatónlist
leikin fyrir þig og þína með Bjarna
Hauki.
00.00- 7.00 Stjörnuvaktin.
ALFA
FM-102,9
10.00 Morgunstund. Guðs orð, bæn.
10.30 Tónlistarþáttur: Fjölbreytileg tónlist
leikin.
21 OOBiblíulestur. Leiðbeinandi Gunnar
Þorsteinsson.
22.00 Fagnaöarerindið flutt i tali og tónum.
Miracle. Flytjandi Aril Edvardsen.
22.15 Fjölbreytileg tónlist.
24.00 Dagskrárlok.
8.00 Forskot.
9.00 Barnatimi. Framhaldssaga.
9.30 Opið. E.
10.00 Baula. Tónlistarþáttur I umsjá
Gunnars L. Hjámarssonar. E.
11.30 Mormónar. Þáttur i umsjá sam-
nefnds trúfélags.
12.00 Tónafljót. Opið að fá að annast
þessa þætti.
13.00 íslendingasögur.
13.30 Frá vímu til veruleika. Umsjón:
Krýsuvíkursamtökin. E.
14.00 Skráargatið.
17.00 Trellar og servíettur. Tónlistarþáttur
í umsjá Önnu og Þórdisar. E.
18.00 Kvennaútvarpið. Umsjón: Samtök
um kvennaathvarf, Kvennaráðgjöfin,
Islensk/lesbíska, Kvennalistinn, Vera,
Kvenréttindafélagiðog Menningar- og
friðarsamtök íslenskra kvenna.
19.00 Umrót.
19.30 Barnatími. Framhaldssagan.
20.00 Fés. Unglingaþáttur í umsjá ungl-
inga. Opið að sækja um.
20.30 Dagskrá Esperantosambandsins.
Esperantokennsla og blandað efni flutt
á esperanto og íslensku.
21.30 Erindi. Haraldur Jóhannsson flytur.
22.00 íslendingasögur.
22.30 Við og umhverfió. Umsjón: dag-
skrárhópur um umhverfismál á Útvarp
Rót.
23.00 Rótardraugar.
23.15 Kvöldtónar.
24.00 Dagskrárlok.
13.00 Á útimarkaði, bein útsending frá
útimarkaði á Thorsplani. Spjallað við
gesti og gangandi. Oskalög vegfar-
enda leikin og fleira.
18.00 Halló Hafnarfjörður. Fréttir úr bæjar-
lífinu, létt tónlist og viðtöl.
19.00 Dagskrárlok.
Hljóöbylqjan Akureyri
FM 101,8
7.00 Pétur Guöjónsson leikur tónlist við
allra hæfi og spjallar við hlustendur.
09.00Rannveig Karlsdóttir með góða tón-
list kemur öllum í gott skap.
12.00 Ókynnt afþreyingartónlist.
13.00 Pálmi Guðmundsson á dagvaktinni,
leikur blandaða tónlist við vinnuna.
Tónlistarmaður dagsins tekinn fyrir.
17.00 Pétur Guðjónsson leikur létta tón-
list. Timi tækifæranna er kl. 17.30.
19.00 Ókynnt kvöldmatartónlist.
20.00 Linda Gunnarsdóttir með tónlist i
rólegri kantinum.
22.00 Kvöldrabb. Steindór G. Steindórs-
son fær til sin gesti I betri stofu og
ræðir við þá um þeirra áhugamál.
24.00 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 28. júlí
Samakona við vinnu sína. En þátturinn fjallar einmitt um menningararf-
leifð þeirra.
Sjónvarp kl. 22.20:
Maður og umhverfi
Umhverfissafn í Norður-Noregi
Safnið, sem sagt er frá í þessum
sjónvarpsþætti, er að mörgu leyti
mjög einstakt. í fyrsta lagi er það
mjög nýtt af safni að vera. í öðru
lagi byggir það á vistfræðilegum
sjónarmiðum og er eina safniö í
allri Evrópu með mann og um-
hverfi að leiðarljósi.
Fyrir síðari heimsstyrjöldina
bjuggu á þessu svæði þrír ólíkir
hópar með mismunandi menning-
arlegan grunn. Það voru Samar,
Norðmenn og Kvenar. í dag er ver-
ið að velta fyrir sér hvað varð um
menningararfleifð þessa fólks. Og
vandinn er sá að sameina í einu
safni allar þær minjar sem vert er
að halda í. En sá vandi hefur verið
leystur í þessu safni.
Þetta er fróðlegur þáttur um ná-
granna okkar sem við þó vitum lít-
ið um. -JJ
Tónlistarkvöld
Guameri kvartettinn á listahátíð
Meðal gesta á nýafstaðinni Lista-
hátið var Guameri strengjakvart-
ettinn. Þessi víðfrægi kvartett hélt
sína fyrstu tónleika árið 1964. Síðan
þá hefur kvartettinn haldið yfir eitt
þúsund tónleika víðs vegar um
heiminn. Efnisskrá kvartettsins
spannar meira en þrjú hundrað ár
í tónlistarsögunni, allt frá Haydn
til Lutoslawskis.
Upptakan, sem útvarpað er í
kvöld, er frá tónleikum kvartetts-
ins í íslensku óperunni þann 19.
júní. Á efiiisskránni voru þrír
strengjakvartettar, í G-dúr K.387
eftir Mozart, kvartett nr. 1 eftir
Leos Janácek og kvartett í B-dúr
op. 130 eftir Ludwig Van Beetho-
ven.
Áþessu starfsári hélt kvartettinn
yfir hundrað tónleika í ýmsum
löndum og voru tónleikarnir hér á
landi þeir síðustu á starfsárinu.
-JJ
Stöð 2 kl. 22.00:
Paradísargata
Það er sjálfur Sylvester Stallone
sem er allt í öllu í þessari mynd.
Hann er höfundur handrits og leik-
stjóri myndarinnar, ásamt því að
leika eitt aðalhlutverkið.
Myndin fjallar um baráttu
þriggja bræðra af ítölskum ættum
við að brjótast úr fátækt til frama.
Cosmo (Sylvester Stallone) er sá
með vitið. Hann fær bróðir sinn
Victor, þann með kraftana, til að
keppa í glímu. Sá þriðji, sem er
með útlitið á hreinu, gerist um-
boðsmaður.
Eftir því sem velgengni Victors í
glímunni vex því verra veröur
sambandið milli bræðranna. En
þegar á móti blæs úr öllum áttum
standa bræöurnir þétt saman.
Kvikmyndahandbækur gefa
myndinni annað hvort enga eða 1 ‘A
stjömu. Gefið er í skyn að leikstjór-
inn Stallone geri of mikið úr stjörn-
unni Stallone. -JJ
Sylvester Stallone er aðalleikari,
handritahöfundur og leikstjóri
myndarinnar Paradísargata.
Guarneri strengjakvartettinn hefur haldið yfir eitt þúsund hljómleika um
allan heim.
Rás 1 kl. 20.15: