Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1988, Page 1
Fridarsinnar fleyta kertum
Friöarsinnar um allan heim
minnast þess um þessar mundir að
43 ár eru liðin frá því að Banda-
ríkjamenn vörpuöu kjarnorku-
sprengjum á japönsku borgirnar
Hírósíma og Nagasaki. í kjölfar
þess opnuðust augu heimsins fyrir
ógnarmætti kjarnorkunnar og því
að ekkert getur réttlætt notkun
slíkra vopna.
Minnast fórnarlambanna
Af þessu tilefni hafa íslenskar
friðarhreyfingar ákveðið að fleyta
kertum á Reykjavíkurtjörn í kvöld,
föstudagskvöldið 5. ágúst. Með ker-
tafleytingunni vilja félagar hreyf-
inganna minnast fómarlamba ár-
ásanna um leið og þeir vilja benda
Þeir sem lifðu hörmungarnar af
máttu líða vitiskvalir í langan tima
á eftir.
á leiðir til að hindra að slíkur
harmleikur endurtaki sig.
íslenskir friðarsinnar leggja
einkum áherslu á nauðsyn þess að
nýgerðum afvopnunarsamningum
verði fylgt eftir meö eftirfarandi:
Stofnuð verði kjarnorkuvopnalaus
svæði. Allri framleiðslu kjarnorku-
vopna veröi hætt nú og tilraunir
með þau bannaöar. Vígvæðingin í
höfunum veröi stöðvuö og þeim
kjarnorkuvopnum, sem þar eru,
eytt.
Á sömii stundu
og sprengingin varð
Við kertafleytinguna í kvöld
verður safnast saman við Tjörnina
klukkan 22.30. Þar mun verða stutt
dagskrá. Meðal annars mun Viðar
Eggertsson leikari lesa ljóð. Flot-
kerti verða seld á staðnum og er
ætlunin aö fleyta þeim á þeirri
stundu er sprengjunni var varpað
á Hírósíma.
Samstarfshópur friðarhreyfinga
samanstendur af eftirfarandi frið-
arhreyfingum: Friðarhópi fóstra,
Friðarhreyfingu íslenskra kvenna,
Menningar- og friðarsamtökum ís-
lenskra kvenna, Samtökum her-
stöövarandstæöinga, Samtökum
íslenskra eðlisfræðinga gegn
kjarnorkuvá, Samtökum lækna
gegn kjarnorkuvá og Samtökum
um kjarnorkuvopnalaust ísland.
Opnar
syningu
með tón-
leikum
- sjá bls. 20
Örvænt-
ing
Polanskis
- sjá kvik-
myndirbls. 30
Græn-
lenskur
kór á ferð
- sjá bls. 19
Stórmót
á Hellu
- sjá bls. 19
íþróttir
helgar-
innar
- sjá bls. 31
Tveir
austur-
lenskir
Vedísk eldfóm og
kosmískir kraftar
- meðal efnis á Snæfellsás '88
Nú um helgina verður mótið
Snæfellsás ’88 haldið að Arn-
arstapa á Snæfellsnesi. Á
þessu móti mun gestum gefast
kostur á að auka reynslusvið
sitt, kynnast nýjum leiðum og
fleiri kostum til eflingar lífs-
fyllingar.
Á miðju mótsávæði hefur
verið reist kúluhús og rúmgott
mótstjald. Þar verða fyrir-
lestrar, sýnikennsla, drauma-
þing, kvöldvökur, tónlistar-
flutningur, námskeiða- og
vörukynningar, dans, söngvar
og ýmsar aðrar uppákomur.
Nokkrir aðilar munu bjóða
upp á þjónustu eins og lófalest-
ur, tarrot og rúnavéfrétt í sér-
stökum tjöldum.
Dagskrá Snæfellsás ’88 er
með fjölbreyttasta móti. Sýnd
verður töfralist og helgisiðir
indíána og mun Ken Cadigan
frá Main í Bandaríkjunum
sýna eldgöngu. Jóna Ingibjörg
Jónsdóttir mun ræða um kyn-
líf - leið til andlegs þroska.
Gunnlaugur Guðmundsson
mun fjalla um stjörnuspeki og
Einar Aðalsteinsson um hug-
rækt. Margt fleira verður á
dagskrá og má þar nefna um-
fjöllun um heiðni, jóga, kosm-
íska krafta, vedíska eldfóm og
miðilsfundi svo eitthvað sé
nefnt.
Leikkonurnar Herdís Þpr-
valdsdóttir og Guðrún Ás-
mundsdóttir verða með dag-
skrá sem nefnist Þar sem Jök-
ulinn ber við loft - frásagnir,
skáldskapur, ljóð. Leiðbein-
endur á mótinu verða bæði
erlendir og innlendir og verða
margir þeirra meö námskeið
og einkatíma eftir mótið.
Á mótssvæðinu eru tjald-
stæði og þar verður boðið upp
á heilsufæði og sérhæfða ind-
verska rétti á vægu verði.
Skráning á mótið fer fram í
síma 622305 til kl. 18 í dag.
Verð er 2.300 kr. en 1.300 kr.
fyrir einn dag. Innifalið í verði
er aðgangur að dagskrá, tjald-
stæðum og bamapössun kl.
10-17 laugardag og sunnudag.
Ókeypis aðgangur er fyrir 16
ára og yngri.