Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1988, Síða 1
Sex hundruð
manns í sætum
- a
EUefta íslandsmótiö í hesta-
íþróttum veröur að þessu sinni
haldið á Varmárbökkum í Mos-
fellsbæ. Félagar í Hestamannafé-
laginu Herði í Mosfellsbæ hafa ver-
ið ötulir við framkvæmdir á svæð-
inu undanfarnar vikur og hefur
svæðið tekið stakkaskiptum frá því
sem var. Metskráning er á mótið
og hafa 114 knapar tilkynnt þátt-
töku. 59 knapar keppa í töltkeppn-
inni og er það met á íslandsmóti.
Vegna fjölda keppenda hefst mótið
strax á fóstudaginn, klukkan 8.00
um morguninn.
Það er óhætt að segja að Harðar-
félagar ætla sér að halda gott ís-
landsmót. Mótssvæðið er orðið gott
xog eru tveir vellir á því. Einungis
verður keppt á öðrum vellinum en
hinn verður notaður til upphitun-
ar. Einnig er til staðar keppnis-
braut fyrir gæðingaskeið og 250
metra skeiðkeppnina.
Mótsstjórn hefur beint vinsam-
legum tilmælum til knapanna um
að vera ávallt tilbúnir til keppni
þegar að þeim kemur og eins verð-
ur reynt að koma á stemmningu
með því að leika tónlist undir þegar
keppni fer fram. Eins er þess æskt
aö keppendur verði snyrtilega
klæddir. Aöstaða verður fyrir
keppnishross í hesthúsunum rétt
hjá Varmárvelli og verður hey selt
þar gegn vægu gjaldi.
Aðstaða fyrir áhorfendur veröur
betri en oft áður. Settir hafa verið
upp áhorfendapallar fyrir sex
hundruð manns. Veitingasala
íslandsmótinu í hestaíþróttum
verður á svæðinu og ættu allir sem
koma að verða mettir. Aðgangseyr-
ir er 800 krónur fyrir þrjá daga en
500 krónur fyrir sunnudaginn. í
tengslum við íslandsmótið verður
dansleikur í Reiðhöllinni í Víðidal
í Reykjavík á laugardagskvöldið og
mun Sniglabandið spila á hljóð-
færi.
Mótið hefst klukkan 8.00 föstu-
daginn 12. ágúst með keppni í
fimmgangi fullorðinna. Klukkan
12.00 hefst" fimmgangur unglinga
og klukkan 13.00 fjórgangur full-
orðinna. Klukkan 17.00 er íjórgang-
ur unglinga, klukkan 18.30 fjór-
gangur barna og klukkan 19.30 250
metra skeið, fyrri sprettur.
Á laugardaginn hefst mótið
klukkan 8.00 meö töltkeppni full-
orðinna. Þar keppa 59 knapar ef að
líkum lætur. Klukkan 12.30 er tölt-
keppni unglinga og klukkan 13.30
töltkeppni barna.
Klukkan 14.30 eru úrslit í íjór-
gangi fullorðinna og strax á eftir
úrslit í fjórgangi unglinga og fjór-
gangi barna. Klukkan 16.30 er gæð-
ingaskeið, klukkan 18.00 hlýðni-
keppni A og klukkan 19.00 hlýðni-
keppni B. Um klukkan 22.00 hefst
dansleikur í Reiðhöllinni.
Á sunnudaginn hefst mótið
klukkan 11.00 með keppni í hindr-
unarstökki og þegar henni er lokið
hefjast úrslit í öllum þeim greinum
sem ekki. verður lokið. Áætluð
mótslok eru klukkan 17.30 á sunnu-
daginn.
E.J.
Það er óhætt að segja að Harðarfélagar ætla að hafa þetta gott hesta-
mót en mikið hefur verið lagt í undirbúning fyrir mótið á Varmárbökkum
í Mosfellsbæ.
Sumarhátíð í Ólafsvík
Ámi E. Albertsson DV, Ólaísvík
Sumarhátíð Ólafsvíkinga veröur
haldin dagana 11.-14. ágúst næst-
komandi. I Ólafsvík hefur þeirri hefð
verið komið á að hátíö er slegið upp
þegar líða tekur á sumar og þá er
reynt að sameina hinar ýmsu uppá-
komur sem félög í bænum standa
fyrir.
Sumarhátíðin er haldin jfyrir at-
beina lista- og menningarnefndar
Ólafsvíkur og er það von nefndar-
manna að hún eigi eftir að verða
árlegur viðburður í bæjarlífmu. Há-
tíðin var sett fimmtudaginn 11. ágúst
með opnun myndlistarsýningar.
Þetta er sýning þeirra níu aðila er
Það verður geysilegt fjör hjá Olsurum um helgina.
standa að Galleríi Grjóti í Reykjavík
og komu þeir allir til Ólafsvíkur í
tilefni sýningarinnar. Verður hún
opin í húsnæði grunnskólans í Ólafs-
vík fram á sunnudag, 14. ágúst. Sýnd
verða olíumálverk, grafík, vatnslita-
myndir, teikningar, skúlptúrar unn-
ir í grjót, járn og leir, silfurskartgrip-
ir og ýmsir leirmunir. Eru öll verkin
einnig til sölu.
í dag, föstudaginn 12. ágúst, mun
Alþýðuleikhúsið heimsækja Ólafs-
vík og vera með tvær sýningar. Fyrst
mun það sýna barnaleikritið Ævin-'
týrið á ísnum, kl. 17.00. Síðan veröur
sýnt leikritið Eru tígrisdýr í Kongó,
kl. 21.00. Að þeirri sýningu lokinni
mun söngtríóið Heklur koma fram.
Tríóið skipa þær Erla Skúladóttir,
Hanna G. Sigurðardóttir og Guörún
Gunnarsdóttir. Undirleikari með
þeim er Magnús Einarsson.
Á morgun, laugardag, verður
Kvenfélag Ólafsvíkur síðan með sína
árlegu grillveislu í Sjómannagarðin-
um. Ýmsar uppákomur verða þar
fyrir börnin, meðal annars kassa-
bílarallý. Einnig stendur til að kafíi-
húsið Kaldilækur verði opið svo og
byggðasafnið í gamla pakkhúsinu.
Dansleikur veröur á laugardags-
kvöldið í félagsheimilinu á Klifi og
þar munu Stuðmenn halda uppi íjöri
langt fram eftir nóttu. Hátíðinni lýk-
ur svo á sunnudag.
Tónlist
og hey-
skapur
- sjá bls. 20
Blústón-
leikar
systkina
- sjá bls. 19
- sjá kvik-
myndirbls.30
Verk
ungra
tón-
skálda
- sjá bls. 20
La bella
Napoli
- sjá bls. 18
Chagall
lýkur
- sjá bls. 29
Skær
ljós stór-
borgar-
innar
- sjá bls. 30