Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1988, Blaðsíða 1
Frumgerð „braggans" frá árinu 1939 en bið varð á fjöldaframleiðslu allt til ársins 1948 vegna seinni heimsstyrj- aldarinnar. TVeggja hesta vagn - „bragginn" frá Citroen fertugur „AEt er fertugum fært“ er gott orð- tæki og það á svo sannarlega við um „braggann" frá Citroen. Fáir bOar hafa átt jafnlanga sögu og fjölbreytta og Citroen 2CV - „deux chevaux" - sem nýlega átti íjörutíu ára afmæli. Þessum bíl var upphaflega ætlað að þjóna frönskum bændum fyrst og fremst og þá með tveimur vélar- hestum í stað eins lifandi fyrir vagn- inum. í áranna rás hefur þessi bíll hins vegar náð því að verða eftirlæti fólks eins og umhverfisverndar- sinna, því hann hefur getað gefið þeim ánægjuna af hinum annars hataða bíl án þess að líkjast venjuleg- um bílum of mikið. Bárujárnsklædd yfirbyggingin á upprunalegu gerðinni frá 1948 hafði þeim eina tilgangi að gegna að halda úti vindi og vatni. Það er sagt að útlit- ið hafi verið ákveðið af þáverandi forstjóra Citroen, sem setti það að aðalmarkmiði að auðvelt væri fyrir sig að fara inn og út úr bílnum. Fjöðrunin var engu öðru lík. Lang- ir gormar voru settir við fram- og afturhjól. Útkoman varð undramjúk fjöðrun í akstri. Bóndinn varð nefni- lega að geta ekið um nýplægðan ak- urinn á hestunum sínum tveimur með eggjakörfu í aftursætinu án þess að nokkuð þeirra brotnaði. Franskir þjóðvegir á árunum eftir heimsstyrjöldina voru hreint út sagt hræðilegir. Ferðamenn, sem leið áttu um landið á þessum tíma, minnast þess að þegar þeir létu bíla sína læðast yfir brotið malbikið á vegun- um, þá geystust fram úr þeim furðu- lega útlítandi Citroenbílar meö hjól- in skoppandi upp og niður á meðan sjálf yfirbyggingin haggaðist ekki. Þegar bíllinn tók beygju þá hallaðist hann svo mjög að hann virtist ætla að velta, en skákaði síðan náttúru- lögmáhnu með því að rétta sig af aft- ur. Vélin var 375 rúmsentimetra, tveggja strokka flatliggjandi, sem gaf níu hestöfl. 2CV er hins vegar fengið vegna þess að vélin mældist aðeins tvö hestöfl eftir þeim skrýtnu reglum sem gilda um vélarstærð í Frakk- landi. Með þessari vél komst bíllinn upp í um 65 kílómetra hraða á klukkustund, en undan brekku, svo ekki sé talað um vind í bakið, þá komst hann verulega hraðar. í fyrstu útgáfunni var eini mælir- inn hraðamælir á stærð við kaffi- bolla. Hraðamælisbarkinn hafði einnig það hlutverk að knýja rúöu- þurrkurnar á framrúðunni og þegar þær voru settar í gang sveiflaðist náhn á hraðamælinum í takt. í áranna rás hafa braggarnir þjón- að mörgum og mikilsverðum hlut- verkum, aUt frá því að bruna þvert yfir Sahara til þess að flytja hermenn í konunglega breska sjóhernum, en 40 bíla floti var hafður um borð í HMS Bulwark og fluttir í land ef þurfti með þyrlum. BílUnn sem ætlað var að taka við af bragganum, Citroén Dyane, og seinni gerð Ami 6, komu og fóru á árunum eftir 1960, en bragginn hélt veUi. Gömlu bílasmiðjunum í Levallois í Frakklandi, sem smíðað hafa 2CV í fjóra áratugi, var lokað fyrr á þessu Skoda Favorit kominn átékk- neska vegi PRAG: Fyrstu tvö þúsund bU- amir af hinni nýju gerð af Skoda, Favorit,- eru komnir í akstur á tékkneskum vegum. GreinUegt er að nú á að reyna bílinn við raunverulegar að- stæður og jafnframt að kanna viðhorf tékknesks almennings gagnvart þessum nýja fram- hjóladrifna bíl, sem fyrst sá dagsins ljós opinberlega fyrir tæpu ári. Raunveruleg fjöldafram- leiðsla hefst í þessum mánuði, en útflutningur dregst trúlegast í einhverja mánuði, sennilega vel fram á næsta ár. í byrjun er lagt upp með sömu 1,3 Utra vélina sem við þekkjum í dag úr venjulega skódanum, en rætt hefrn- verið um nýja vél fljótlega. Þessi nýi Favorit er teiknaður af Bertone hinum ítalska og einnig hefur Porsche tekið þátt í hönnuninni. í dag hefur 2CV tekið miklum stakkaskiptum frá frumgerðinni, hér er ein gerðin sem kennd var við franska seglskipið „France 3“. Dráttarbeisli - Kerrur Kerruhásingar fyrir tjaldvagna, hestakerrur o.fl. Burðarþol 500 kg - 3 tonn. ÓDÝRAR HESTAKERRUR Á LAGER. Smíðum allar gerðir af beislum og kerrum. Seljum alla hluti í kerrur og vagna. Vélsmiðja Þórarins Laufbrekku 24 - Dalbrekkumegin Símar 45270 - 72087 ári og nú er bUlinn aðeins smíðaður í Portúgal. En áfram er hægt að kaupa bíhnn á flestum bUamörkuð- um Evrópu. 1988 árgerð 2CV, er eUítið hrað- skreiðari en upphaflega gerðin frá 1948 og kemst upp í 115 kílómetra hraða. Mun meira er lagt upp úr inn- réttingum í dag en áður var, þótt ekki séu alhr sammála því að sætin í bílnum í dag, sem eru mun þykkari en þau upphaflegu, séu þægilegri en þau gömlu sem voru gerð líkt og sól- stólar, dúkur strengdur á stálgrind. Dagar braggans í okkar hluta heimsins eru senn taldir, nema kannski hjá nokkrum sérvitringum. Hins vegar í þeim heimshluta þar sem orðið vegur er notað í kurteisis- skyni yfir holótta moldarslóða, þar á bíllinn sé enn framtíð. Við slíkar aðstæður geta fáir ódýrir bílar skák- að þessum fjörutíu ára gamla tveggja strokka Citroen. Subaru 4x4, árg. 1987, ekinn 22.000, 5 gira, 5 dyra, grænn. Verð 700.000. MMC Lancer, árg. 1987, ekinn 18.000, sjálfsk., 4ra dyra, grábrúnn. Verð 540.000. MMC Galant EXE, árg. 1987, ekinn 6.000, 5 gira, 4ra dyra, hvitur. Verð 790.000. MMC Galant turbo, árg. 1987, ekinn 12.000, 5 gira, 4ra dyra, rauður. Verð 950.000. \ Vi j Range Rover Vogue, árg. 1987, MMC Lancer 4x4, árg. 1987, ekinn ekinn 25.000, sjálfsk., 4ra dyra, steingrár. Verð 2.100.000. 15.000, 5 gira, 5 dyra, grábrúnn. Verð 680.000. VW Golf CL, árg. 1987, ekinn 25.000, 5 gíra, 3ja dyra, svartur. Verð 550.000. Nissan Sunny 4x4, árg. 1987, ekinn 18.000, 5 gíra, 5 dyra, hvítur. Verð 595.000. Audi 80 1,8E, árg. 1988, ekinn Seat Ibiza GLX, árg. 1988, ekinn 12.000, 5 gira, 4ra dyra, svartur. 12.000, 5 gira, 3ja dyra, svartur. Verö 1.300.000. Verö 430.000. MMC Lancer GLX, árg. 1987, ekinn Mazda 1500, árg. 1986, ekinn 28.000, 5 gira, 4ra dyra, silfur. Verð 28.000, 5 gira, 3ja dyra, hvítur. Verð 490.000. 430.000. Opið virka daga kl. 9-18.30 laugardaga kl. 10-17. Greiðslukjör í sérflokki á bílum I eigu HEKLU 15% ÚT eftirstöðvar t allt að 18 mánuði BRAUTARHOLTI33 - SIMI695660.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.