Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1988, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1988, Side 4
LAUGABDAGUR,13. ÁGÍJST 1988. 34 DV Bílar Bílarnir geta ekið í sam- felldri lest. Aksturstölvur bílanna sjá um að halda jöfnu millibili og hraða en lestinni í heild er stjórnað frá aksturstölvu viðkom- andi svæðis. Framtíöarbíllinn Tölvumiðstöðvar í hverju hér- aði fylgjast með ástandi um- ferðar og öðrum aðstæðum. Upplýsingarnar eru síðan sendar til hvers bíls á svæð- inu. Aksturstölva bílsins sér um að grípa inn í aksturinn við hættulegar aðstæður, minnk- ar hraðann í hálku og við aðrar slíkar hættulegar að- stæður. Þá er fylgst með ástandi bílsins og hugsanleg- ar bilanir sýndar á tölvuskján- um. Skjár í mælaborði bilsins sýn- ir ástand vegar og akstursað- stæður. Staðsetningarkerfi sýnir stöðu bílsins, bensín- stöðvar, gististaði, vegavinnu fram undan og fleira. Stysta leið á áfangastað er sýnd, jafnvel í þríviddarmynd. Framtíðin í Evrópu eftir átta ár? Vegir þar sem engin óhöpp eiga aö koma fyrir - rannsóknir sem kosta munu um 40 milljarða króna eiga að gera Evrópu að heimsálfu með „hugsandi" og örugga umferð, háleitt takmark sem fáir trúa á Prómeþeus var sá títananna í grískri goðafræði sem stal eldinum frá guðunum og lét mannfólkið fá hann. Á næstu átta árum koma margir TEGUND BMW 518 Isuzu Trooper DLX, 5 d. Opel Corsa LS Opel Rekord GL dísil Opel Ascona, 1,6S, ss. Ch. Capri classic dísil Nissan Sunny Coupé Cadillac Seville Suzuki Alto Opel Kadett st. Ford Fiesta Isuzu Trooper, bensin, 4 d. Opel Kadett, 5 d. Galant 1600 Daihatsu Charade Ch. Monza SLE, sjálfsk. Pontiac Grand Am, sjálfsk. Ch. BlazerSIO, sjáifsk. Lada Samara Opel Kadett LS, 2 d. til með að setja nafn þessa gamla eld- guðs í samband við aðra gjöf því það verður aukið umferðaröryggi og „hugsandi" umferð sem tengd verð- ur nafni hans. ARG. EKINN VERÐ 1982 98.000 395.000 1987 16.000 1.190.000 1985 27.000 300.000 1985 139.000 570.000 1985 36.000 460.00 1985 70.000 850.000 1984 51.000 320.000 1981 39.000 1.500.000 1981 86.000 90.000 1985 37.000 390.000 1986 41.000 295.000 1986 54.000 900.000 1984 54.000 280.000 1980 126.000 180.000 1979 129.000 80.000 1987 69.000 545.000 1987 21.000 m 890.000 1986 27.000 m 1.200.000 1986 8.000 200.000 1985 23.000 360.000 Takmarkið með áætluninni Prómeþeusi er að mun færri farist í umferðarslysum í Evrópu um næstu aldamót en nú. Alls týna um 55 þúsumd manns lífi í umferðinni í Evrópu árlega . Allt frá því að áætluninni var hleypt af stokkunum 1. október 1986 hefur hún vakið athygh fyrir háleit markmið. Það að 13 af stærstu bíla- framleiðendum í Evrópu hafa leitt saman hesta sína í þróun „hugs- andi“ bíls er athyglisvert eitt og sér. „Hugsandi" bíll er í sjálfu sér ekk- ert öryggi fyrir færri slysum og betri umferð. Þetta er aðeins hluti af stærra púsluspili sem verður allt að falla í eina heild, segja upphafsmenn Prómeþeus-áætlunarinnar. Alls eru það um 70 háskólastofnan- ir og 140 tæknistofnanir víðs vegar um Evrópu sem taka þátt í þessu þróunarverkefni sem jafnframt verður eitt allra dýrasta umferðar- öryggisátak sem nokkum tíma hefur verið sett í gang. Meginmarkmið þessara aðila verð- ur að búa til svo fullkomin tölvufor- rit og vélbúnað að geimskutlurnar verða á við gamlar rellur séu þær skoðaðar í svipuðu ljósi. Prómeþeustilraunin mun kosta rúma 3 milljarða króna á ári þau ár sem hún stendur yfir. Nafnið á tilrauninni er sett saman úr skammstöfun á nafni tilraunar- innar sem í lélegri íslenskri þýðingu er „prógramm fyrir evrópska umferð og enn þá óuppgötvað umferðarör- yggí“. Háleit markmið Áætlunin gengur út á að búa til kerfi sem eykur umferöaröryggi - í reynd ræða þeir sem að tilrauninni vinna um að skapa slysalaust um- ferðanunhverfi, „slysalausa vegi“ - og með hjálp tölvukerfa að sameina samgöngukerfi Evrópu í eina heild. Prómeþeus mun gera umferðár- flæði auðveldara og þar með ættu langar biðraðir á hraðbrautum á sumarleyfistímanum að heyra sög- unni til. Jafnframt ættu samræmdir staðlar í umferð að auðvelda skipu- lagningu þessara mála í allri Evrópu. Tveir stórir „aukavinningar“ ættu að fást með áætluninni, minni meng- un og aukin hagkvæmni. Þeir sem vinna að þróun Prómeþe- usaráætlunarinnar ætla sér ekki að taka ábyrgðina frá ökumanninum sjálfum. Það verður áfram ökumað- urinn sem stýrir bílnum og ákveður hvert haldið skuli. Hjálpartæki ökumannsins Hátækninni er ætlað að hjálpa öku- manninum við aksturinn. Segja má í hnotskurn að Prómeþeus gangi út á að fá ökumanninum hjálpartæki. Af nógu er að taka í því efni. Til dæmis sjá menn fyrir sér að tölvu- stýrt viðvörunarkerfi geti varað öku- menn við aðsteðjandi hættu, sérstak- lega í slæmu skyggni og hálku, svo að dæmi sé tekið. Talið er að komast megi hjá meira en helmingi allra slysa og óhappa, ef ökumaðurinn fengi svo sem hálfa eða heila sekúndu til viðbragðs til viðbótar. Annað atriði, sem gæti hjálpað ökumanninum, er fullkomið stað- setningarkerfl sem gefur nákvæm- lega til kynna hvar bílhnn er staddur hverju sinni og velur stystu og bestu leiðina að áfangastað. Tölvukerfl á líka að geta komist í samband við umferðartölvur í hverju héraði og á þann hátt miðlað nákvæmari upplýsingum til öku- manna um ástand umferðarinnar fram undan. Tölvustýrðar bílalestir Ein hugmyndin gengur út á það að tölvukerfln geti stýrt akstri bíla á þann hátt að þeim sé safnað saman í langar „lestir" og þá sjái tölva bíls- ins um að halda sama hraöa og miUi- bili á milU bUa. Stærri tölvukerfi grípi svo inn í og stjórni meðal ann- ars umferðarljósum þannig að „bíla- lestin" geti ekið óhindrað í gegn. Tölvuaðstoð í bílnum gæti komið inn í myndina, til dæmis þegar öku- maðurinn þarf að víkja skyndilega undan aðsteðjandi hættu. Það er allt of algengt að ökumenn missi stjórn á bílum sínum við slíkar aðstæður. Þá getur aksturstölva bílsins „les- ið“ veginn og varað við ef ástand vegarins er orðið þannig að hætta geti hlotist af og þvingi ökumanninn til að hægja á ferðinni. Tilraunir hafa sýnt að mannsheil- inn skypjar mun betur þrívíddar- myndir en venjuleg landabréf. Því má reikna með því að ökumanni framtíðarinnar verði frekar vísað til vegar á skjá með þrívíddarmynd af umhverfinu fremur en venjulegu landabréfi eins og við þekkjum nú. Miktar kröfur Fyrst og fremst verður að gera kröfur til þeirrar tölvutækni sem nota á í bílum framtíðarinnar, aö hún sé aðgengileg og endist við erfiðar aðstæöur í bílnum. Þá má slíkur búnaður ekki taka of mikið pláss né ’vera of þungur. Þá má þessi búnaður ekki kosta of mikið því gera verður ráð fyrir slíkum búnaði sem staðal- búnaði í öllum bílum framtíðarinnar. En fleiri ljón gætu veriö í veginum fyrir þessari nýju tækni. Jafnvel þótt tæknileg lausn finnist og bílaiðnað- urinn sé tilbúinn að taka við henni, þá geta stjómmálamennirnir fellt áætlunina. Prómeþeusáætlunin gengur út á að öll lönd Evrópubandalagsins sam- ræmi umferðarreglur og aðrar reglu- gerðir um búnað bíla, bílaskoðun og slíka hluti. En segja má að líkt sé komið með Prómeþeusi og áætlun- inni því á sínum tíma varð Prómeþe- us að kyngja valdi guðanna. Vísindin og bílaiönaðurinn hafa enn sjö ár fram undan til að vinna að þessari hátækni í umferðaröryggi framtíðarinnar, og hver veit nema það takist. -JR Byggt á BT Bilen Opið laugardaga frá 13 til 17. Bein lína, sími 39810. BILVANGUR se ÚRVALS NOTAÐIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.