Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Qupperneq 2
34
Bílar
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988.
ounr g-jor/r^Pfrao
Með sænskum blaðamönnum í reynsluakstri á Fiat Tipo:
Landið forvitiiilegra en bíllinn
„Þegar bundna slitlagiö endar er
eins og vegurinn endi en svo er ekki
heidur lítur bara út fyrir þaö.“
Eitthvaö í þessa átt hljóðuðu leiö-
beiningarnar sem sænsku blaöa-
mennimir fengu í hendur á Hótel
Valhöll á Þingvöllum á þriöjudaginn.
Þá voru þeir að leggja upp í reynslu-
akstur á nýjum Fiatbílum, nánar til-
tekið Fiat Tipo.
Þaö vakti nokkra athygli á dögun-
um þegar það fréttist aö von væri á
20 sænskum blaðamönnum hingað
til lands til þess eins að reynsluaka
nýjum ítölskum bíl á íslandi vegna
kynningar á honum í Svíþjóð, eins
og sagt var frá í DV Bílar um síðustu
helgi.
Ótrúlegir vegir
Eftir kynningu á bílnum í fyrir-
lestrarsal Hótel Loftleiða var haldið
í rútu austur á Þingvöll þar sem
Tipo-bílarnir tíu biðu í röð eftir
óþreyjufullum Svíunum. íslenska
náttúran og vegakerfið beið eftir því
að þeir tækjust á við hvort tveggja.
Fyrst var haldið sem leið lá út úr
þjóðgarðinum og norður Bolabás
áleiðis á Kaldadal. Undirritaður var
farþegi í einum bílanna í fylgd með
tveimur Svíum. Það lá vel á þeim á
meðan ekið var í þjóögarðinum en
um leið og bundna slitlagið var á
enda skildu þeir leiðbeiningarnar
sem þeir höfðu verið að lesa niöri viö
Valhöll. Vegurinn var nefnilega
horfinn og við tók eitthvað sem kall-
að var vegur. Það sem við leyfum
okkur að kalla vegi heitir eitthvað
allt annað í huga margra útlendinga.
Þeir róuðust heldur þegar ég sagði
þeim að þetta væri með verri vegum
landsins og framhaldið yfir Kaldadal
væri ekki akfært nema nokkra mán-
uði á sumrin.
Lausamölin erfiðust
Það var ekið með varúð fyrsta kafl-
ann, frá Bolabás og áleiðis upp á
Uxahryggi. Sænsku blaðamennirnir
voru greinilega hálfhræddir við gróf-
an veginn, en þegar fór að halla ofan
í Lundarreykjadalinn var farið að
gefa í og þá var ekki laust við að
stundum mætti litlu muna að bíllinn
héldist á veginum þegar ekiö var á
fullri ferð inn í lausamölina í beygj-
unum.
Þá mátti sjá suma bílana fara í
„veghefilsleik" þegar þeir plægðu sig
eftir malarhryggnum á miðjum veg-
inum, en þrátt fyrir grófa vegi og
óvana ökumenn sluppu allir heilir
og það sprakk ekki einu sinni eitt
dekk, hvað þá meir.
Ekið var sem leið lá um Borgar-
íjörðinn, yfir Bröttubrekku og þaðan
um Skógarströnd í Stykkishólm. Á
þessari leiö skiptast á góöir og slæm-
ir kaflar, sem reyndu bæði á bíla og
bílstjóra. Var greinilegt að Svíunum
fannst gaman að spreyta sig á ís-
lenska vegakerfinu.
Kjarkaðir Fiatmenn
Allir sænsku blaðamennirnir voru
sammála um að Fiat-menn væru
kjarkmikhr að stefna þeim hingað til
að reyna nýjan bíl við jafnerfiðar
aðstæður og raun bar vitni. Það gæfi
vissulega allt aðra mynd af bílnum
að rúlla á honum einhvers staðar á
meginlandi Evrópu á góðum vegum
en uppundir jökli á íslenskum fjall-
vegi.
Af hálfu Fiat var greinilegt aö
menn treystu bílnum fyrirfram fylli-
lega til að takast á við þetta verk-
Nýr 1988
GMC SIERRA CLASSIC
6,2 dísil
Rafmagnshurðalæsingar, rafmagnsrúðu-
upphalarar. Sjálfvirkur hraðastillir, stereo
útvarp og segulband, veltistýri, sjálfskiptur
m/overdrive.
Rally sportfelgur 31" dekk, læst drif 3,73
drifhlutfall.
Það var greinilegt að landslagið togaði oft meira í sænsku blaðamennina
en bíllinn. Hér eru þeir Ronny Carisson og Gösta Nilsson staddir i Ber-
serkjahrauni á Snæfellsnesi og þar vöktu hraunmyndanirnar meiri athygli
en billinn.
Eftir sænskan reynsluakstur á íslandi:
Bíll sem kemur á óvart
Upplýsingar í síma 92-46641 eða 985-21341.
TEGUND ÁRG. EKINN VERÐ
Ch. Monza SLE ss. 1987 19.000 575.000
Mazda 323 LX 2 d. 1987 16.000 475.000
Ch. Monza SLE bs. 1987 21.000 515.000
Oldsm. Cutl. Sie. Brough. 1986 35.000m 980.000
Lada Samara 1988 8.000 200.000
Toyota Tercel 4x4 1984 76.000 430.000
Merc. Benz 280 SE 1981 141.000 1.000.000
Buick Skylark Ltd. 1981 60.000m 320.000
Scout Traveller V8 bs. 1979 100.000 500.000
Opel Ascona 1,6 S, sjálfsk. 1985 36.000 460.000
Ch. Capri Classic, disil 1985 70.000 850.000
Nissan Sunny coupé 1984 51.000 320.000
Opel Kadett st. 1985 37.000 390.000
Ford Fiesta 1986 41.000 295.000
Opel Kadett, 5 d. 1984 54.000 280.000
Pontiac Grand Am., sjálfsk. 1987 21.000m 890.000
Lada 1500 st. 1987 11.000 230.000
Daihatsu Charade CS 1986 17.000 360.000
Opel Corsa LS 1986 34.000 360.000
Lada Sport, 5 g. 1986 31.000 320.000
Isuzu Trooper DLX 1984 72.000 720.000
Buick Regal Ltd., 2 d. m/öllu 1984 28.000 700.000
Opel Reckord Berl. dísil 1982 190.000 320.000
Opið laugardaga frá 13 til 17.
Bein lína, sími 39810.
BíLVANGURsf
HÖFDABAKKA 9 SÍMI BB7^Qn
Eftir tveggja daga reynsluakstur
um stóran hluta Vesturlands með
sænskum blaðamönnum er hægt
að segja með réttu að Fiat Tipo sé
bíll sem kemur á óvart. Við höfum
áður Qallað um þennan nýja Fiat
hér í DV Bílum eftir kynninguna á
honum í Englandi fyrr á árinu. Þá
var meðal annars innanrými bfls-
ins hrósað og það hrós er hægt að
endurtaka eftir þennan akstur. Ég
sat sem farþegi í aftursæti frá Þing-
völlum um Uxahryggi og Borgar-
fjörð vestur í Stykkishólm. Það
gekk á ýmsu enda ökumennirnir
ekki vanir íslenskum vegum. Þrátt
fyrir hopp og snöggar sveiflur er
ekki hægt aö segja annað en vel
Grófir malarvegirnir, sem ekið var um, eins og hér á Uxahryggjaleið,
voru lítið mál fyrir Tipo og þar sannaði fjöðrunin ágæti sitt.
Fiat Tipo - hér við flóabátinn Baldur sem lá við bryggju í Stykkishólmi, eða „Stokkhólmi Islands" eins og
einn Svíinn vildi kalla staðinn.