Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988.
31
• Erna Lúðvíksdóttir verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu um helgina. Á myndinni sést Erna skora
í landsleik gegn Frökkum fyrir nokkrum árum.
Alþjóðlegt mót
í handknattleik
Næstsíðasta umferðin á íslands-
mótinu í knattspymu fer fram um
helgina. Fram hefur þegar tryggt
sér íslandsmeistaratitilinn en línur
hafa enn ekki skýrst í því hvaða lið
fá það erfiða hlutverk að falla í 2.
deild. Á þeim vígstöðvum er spenn-
an í algleymingi. Sömu sögu er að
segja frá keppninni í 2. deild. Ann-
ars er helgin í rólegri kantinum hér
heima vegna ólympíuleikanna sem
hefjast í Seoul í nótt að íslenskum
tíma.
1. deild
Fjórir leikir verða í 1. deild á
laugardag. Víkingar leika gegn
Völsungum á heimavelli sínum í
Stjörnugrófinni. Ef Völsungar ná
að sigra eiga þeir enn möguleika
að halda sæti sínu í 1. deild, svo
framarlega sem Þór vinnu ..igur á
Keflvíkingum á Akureyri. Ef Kefl-
víkingar ná hins vegar að sigra era
þeir endanlega lausir við falldraug-
inn. Á Akranesi leika Skagamenn
við KA sem hvað mest hefur komiö
á óvart fyrir góða frammistöðu í
deildinni í sumar. Bæði þessi hð
berjast um 3. sætiö á mótinu sem
gefur sæti í UEFA-keppninni á
næsta ári. Loks leikur Leiftur gegn
Fram á Ólafsfirði og þar er sama
sagan uppi á teningnum. Leiftur
verður helst að hafa sigur og Kefl-
víkingar að tapa sínum leik á Akur-
eyri til að halda í þá veiku von að
komast frá falli í 2. deild. Þessir
leikir allir hefjast kl. 14.00 að und-
anskildum leiknum á Ólafsfirði en
hann hefst kl. 17.00.
Síðastí leikur 17. umferðar verð-
ur á sunnudag og leika KR og Val-
ur á KR-velli kl. 14.00.
2. deild
Fjórir leikir verða í 2. deild á
laugardag. Á Kaplakrikavelli í
Hafnarfirði leika FH og Selfoss,
Tindastóll og ÍR leika á Sauðár-
króki, Þróttur og KS leika á Laug-
ardalsvelh og í Vestmannaeyjum
leika ÍBV og Víðir. Ahir þessir leik-
ir hefjast kl. 14.00. Á sunnudag
verður einn leikur og leika þá Fylk-
ir og Breiðablik á Árbæjarvellli ki.
17.00.
Alþjóðlegt
handknattleiksmót
Um helgina fer fram hér á landi
alþjóðlegt handknattleiksmót í
kvennaflokki. Auk a- og b-landsliða
íslands taka þátt í mótinu Spán-
verjar og Portúgahr. Mótið er hður
í undirbúningi íslenska hðsins fyr-
ir C-heimsmeistarakeppnina sem
hefst í Frakklandi í næsta mánuði.
Fyrstu leikir mótsins verða í Kefla-
vík á laugardag og leika þá b-lið
íslands og Spánverjar og a-lið ís-
lands og Portúgalar. Á sunnudag
verður leikið í Hafnarfirði og verð-
ur fyrri leikurinn á milli a- og b-liðs
íslands og á eftir leika Portúgalir
og Spánveijar. Mótinu lýkur síðan
á mánudagskvöldið í fþróttahúsi
Seljaskóla og leikur þá b-lið íslands
gegn Portúgal og síðan leika íslend-
ingar gegn Spánveijum.
-JKS
,®
Lakkgljái
er
betra bón !
AÐALFUNDUR
FÉLAGASAMTAKANNA VERNDAR
vetður haldinn í Borgartúni 6, 5. hæð, fimmtudaginn
22. sept. nk. kl. 17.30. Mætum öll vel og stundvís-
lega.
Stjórnin
KENNARAR - KENNARAR
Héraðsskólann í Reykjanesi við fsafjarðardjúp vantar
2 áhugasama kennara til að kenna ensku, dönsku,
íslensku og samfélagsgreinar.
Mjög góð vinnuaðstaða og gott ódýrt húsnæði.
Nánari upplýsingar eru fúslega veittar hjá skólastjóra
í símum 94-4840 og 94-4841 og hjá grunnskóla-
deild menntamálaráðuneytisins, sími 91 -25000.
Héraðsskólinn Reykjanesi
AUGLÝSING
Fjármálaráðuneytið óskar að ráða starfs-
mann í hálft starf til sendistarfa. Umsóknir
■*
sendist fjármálaráðuneytinu eigi síðar en 27.
september nk.
14. september 1988
Fjármálaráðuneytið
TORFÆRUKEPPNI
Bílaklúbbur Akureyrar heldur torfærukeppni 18. 09. 88
kl. 14. Keppnin verður í Glerárdal ofan Akureyrar. Stjórnin.
LOKASLAGUR UM ÍSLANDSMEISTARATITILINN
Hann heitir Gylfi Gunnars-
son og hefur atvinnu af að
fljúga þyrlum á olíuvinnslu-
svæðunum við Mexíkófló-
ann þarsem fellibylurinn
Gilbert geisar með ógn-
vænlegum afleiðingum.
Gylfi var hér heima í sum-
arfríi þegar kallið kom um
að halda utan til björgunar-
starfa. Gylfi segirfrá ævin-
týralegu lífi sínu í helgarvið-
talinu.
Hvert haust hyggja góðir bændur að upp-
skeru sumarsins og bera hana saman við
uppskeru síðustu sumra. í sumargleðipoppinu
sá menn af kostgæfni hvert vor en með mis-
jöfnum árangri. Poppsérfræðingurinn Ásgeir
Tómasson skoðaði í hlöðursumarpoppar-
anna fyrir helgarblaðið.
Mikil sVeit íslenskra víkinga hélttil Skotlands
fyrir skömmu og tókst þar á við heimamenn
í aflraunum hvers konar og hetjuskap. Okkar
menn sigruðu auðveldlega sem von var og
sat þó Jón Páll á bekknum ög slappaði af
meðan hinir börðust. Helgarblaðið var á
staðnum og hafði með sér myndir heim.