Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1988, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1988, Page 8
FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988. Ævintýramyndin hugljúfa, Princ- ess Bride, tekur við fyrsta sætinu af gamanmyndinni Hentu mömmu af lestinni. Vera hennar í fyrsta sæti verður þó varla löng því tvær nýjar myndir stökkva beint í þriðja og fjórða sætið. Ber þar fyrst að telja hina mögnuðu sakamálamynd Black Widow með þeim Debru Winger og Theresu Russel í aðal- hlutverkum og Dragnet þar sem þeir félagar Dan Aykroyd og Tom Hanks eru verðir laganna í Los Angeles. Ein önnur ný mynd er á listanum Three For The Road sem styðst nær eingöngu við vinsældir Charhe Sheen. Nokkrar aðrar myndir banka á dyr listans enda haustið í nánd og innivera eykst. LISTINN 1. (2) Princess Bride 2. (1) Hentu mömmu af lestinni 3. (-) Black Widow 4. (-) Dragnet 5. (3) Kæri Sáli 6. (-) Three For The Road 7. (7) Some Kind Of Wonderful 8. (6) Nornirnarfrá Eastwick 9. (4) Summer School 10. (9) Revenge Of The Nerds II ★★ Eftirprentanir INVASION OF THE BODY SNATCHERS Útgefandi: Steinar Leikstjóri: Philip Kaufman. Handrit: W.D. Richter, byggt á sögu eftir Jack Finney. Framleiðandi: Robert H. Solo. Aðal- hlutverk: Donald Sutherland, Brooke Adams, Leonard Nimoy, Jeff Goldblum og Veronica Cartwright. Bandarisk 1978. Bönnuð yngri en 16 ára. 114 mín. Hér er um endurgerð að ræða á frægri hrollvekju frá 1956. Sú mynd þótti prýöileg en þessi eftirgerð hefur ekki þótt mjög merkileg. Um er aö ræða eina fyrstu mynd Kauf- mans (The Right Stuff, The Un- bearable Lightness of Being) og er greinilegt að hann er að leita fyrir sér. Mýndataka er t.d. mjög sér- kennileg, allt að því flöktandi, og þó að það gangi stundum ágætlega upp þá getur það verið þreytandi. Myndin segir frá sérkennilegum lífverum utan úr geimi sem berast til jarðar og stefna að yfirtöku með því að umskapa hverja mannveru. Þetta verður mikið samsæri og vekur auövitað tortryggni og skelf- ingu meðal þeirra fáu sem átta sig á því sem er að gerast. Hugmyndin hefur margoft verið útfærð síðan frummyndin var gerð enda vinsælt þema í vísindaskáld- *S| F.NSKUR TEXTI A M >•*%**■ h«sto>K, ttko '■ Invaudof»of the öady SnAtrJw.n' ’ Ðunakl Snthertawl • U»«<ke Adams • Lcotwni tsín^, itavaim WO íteíwtt *o ÚK wrt-n* smoWIo j** »«*s- PoxtvoBd fc, ttoh«1 H bs sögum. Hér ganga hlutimir ekki nógu vel upp. Myndin er of löng, en það virðist siður Kaufmans að gera langar myndir, og þá er per- sónusköpun ekki nógu vel útfærð sem birtist í því að endirinn verður ekki nógu spennandi. Myndin er þó að mörgu leyti athyglisverð enda forvitnilegt kvikmyndafólk sem kemur nálægt henni. -SMJ ★ /> Unglingaveiki MEATBALLS III Útgefandi: Myndbox Leikstjóri: George Mendeluk. Handrit: Michael Poseornek og Bradley Kesden. Aóalhlutverk: Sally Kellerman, Shannon Tweed og Patrick Dempsey. Bandarisk 1986. 90. mín. Bönnuð yngri en 12 ára. Það er ekkert lát á framleiðslu Bandaríkjamanna á „unglinga- myndum“ sem snúast ekki um annaö en stráka og stelpur sem vilja komast í náin kynni. Vegna bældra tjáskipta hins venjulega ameríska unglings gengur það auð- vitað ekki. í þessari mynd segir frá dæmi- gerðri skræfu sem dreymir um ungar stúlkur og öllu þvi sem þeim er samfara. Honum gengur illa að ná kynnum við veikara kynið en fær fljótlega aðstoð frá tilvonandi engli (Kellerman) sem verður að vinna góðverk til að komast í himnaríki. Góðverkið felst í því að aðstoða piltinn við að komast yfir stúlku. Svona myndir eru framleiddar í kippum svo að einhver markaður hlýtur að vera til fyrir þær. Því miður er húmorinn hvorki fjöl- breyttur né hátt stemmdur. Þessi mynd’ er í sjálfu sér ekkert verri en gengur og gerist og Kellerman er jafnvel nokkuð skondin í hlut- verki sínu. -SMJ THE PRINCESS BRIDE Útgefandi: JB Leikstjóri: Rob Reiner. Handrit: William Goldman. Myndataka: Adrian Biddle. Tónlist: Mark Knopfler. Aðalhlutverk: Gary Elwes, Mandy Patinkin, Christop- her Guest, Wallace Shawn, Peter Falk og Andre The Giant. Bandarísk 1987. 98 mín. Öllum leyfð. „Kvikmyndir snúast um ævin- týri,“ sagði Roman Polanski þegar hann var hér á landi á síðasta ári og var hann þá að útskýra hrifn- ingu sína á myndum Stevens Spiel- berg. Polanski komst nærri kjarna málsins en hér tekur Rob Reiner (Stand by Me) að sér að sanna það. Myndin segir frá afa nokkrum (Falk) sem tekur að sér að hafa ofan af fyrir dóttursyni sínum í veikind- um hans. Hann les fyrir hann æv- intýri og þó strákur vilji vídeóleiki þá hrífst hann fljótlega með. í ævin- týrinu eru nefnilega hetjur, skúrk- ar, fagrar meyjar, risar og allt sem nöfnum tjáir að nefna. Hér er á ferðinni sérlega skemmtilegt ævintýri sem í alla staði lukkast vel. Þó að Reiner treysti óþekktum leikurum fyrir burðarhlutverkum þá er það ein- mitt leikaravalið sem hvað skemmtilegastan svip setur á myndina. Þó að allir standi sig vel þá vekur risinn franski, Andre, lík- lega mesta athygli. Þá er handrit Goldmans frísklegt og hugmyndaríkt að ógleymdum húmomum sem er óborganlegur. Það er víst óhætt að mæla með þessari mynd fyrir alla aldurshópa og þó að Reiner eigi vonandi eftir að skapa metnaðarfull kvikmynda- verk í framtíöinni þá verður þetta ekki talið til hliðarspora á þeirri braut. -SMJ' ★★/2 Enginn er fullkominn SOME KIND OF WONDERFUL Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Howard Deutch. Aðalhlutverk: Eric Stoltz, Mary Stuart Masterson og Lea Thompson. Bandarisk, 1987 - Sýningartimi 91 mín. Eric Stoltz, sem lék svo eftir- minnilega drenginn í Mask, er mættur til leiks í Some Kind Of Wonderful í frekar átakalausu hlutverki sem er nokkuð langt frá hinu erfiða hlutverki hans í Mask, enda rennir hann sér auðveldlega í gegnum hlutverkið, er nær allan tímann á tjaldinu. Some Kind of Wonderful er virki- lega skemmtileg skólamynd þar sem tekist hefur að skrifa mann- A JOHN MUGHKS PRODUCTION WONDERFUl 1T'S SOME KIND 0F FEEIING, SOME KIND OF FUN. IT'S TURNING THEIR WORLDS UPSIDE DOWN. m nsgsnsssf cic ~~enn:sa'jt;uCK'SOAvorr' '-»»<5 sæmandi handrit sem ekki gerir krakkana að einhverjum viöund- rum. Eric Stoltz leikur Keith Nelson, fátækan pilt sem er hrifinn af ríku og vinsælu stelpunni í skólanum. Samkvæmt ráðum bestu. vinkonu hans, Watts, sem er strákalega klædd og spilar á trommur, á hann að láta ríku stúlkuna eiga sig og snúa sér að einhverri í sama klassa, til dæmis henni sjálfri. Nelson er aftur á móti blindur af ást og hleypir í sig kjarki til að bjóða Amöndu út og hittir þannig á að hún er nýbúin að rífast viö kærastannogþyggurboöhans... Söguþráðurinn er ekki merkileg- ur. Aftur á móti er handritið vel skrifað og leikur ungmennanna sérlega skemmtilegur. Senuþjófur- inn er Mary Stuart Masterson í hlutverki Watts, sérlega skemmti- leg leikkona sem vinnur á. Unglingamyndir. eru fjöldafram- leiddar vestanhafs. Flestar þeirra eru ómerkilegar og aðeins ætlaðar unglingum á þroskastigi. Some Kind of Wonderful er mörgum þrepum fyrir ofan slíkar myndir, hugljúf og skemmtileg mynd. -HK ★ /2 Þijú á ferðalagi m uum <*m wuir *m mm m• m wtm • t«ai um Mitins jaa *ra»»*m«j»uaiw«uHUM» K»eUHtw« — ÍSUENSKUR TEXTI Púðurskot REAL BULLETS Útgefandi: Bergvik. Leikstjóri: Lance Lindsay. Aðalhlutverk: Merrit Yohnka, John Gaz- arian og Darlene Landau. Aðalleikarinn í Real Bullets, John Gazarian, er jafnframt handrits- höfundur og framleiðandi myndar- innar. Hann skrifar um áhættu- leikara sem er eftirsótt starfsstétt af köldum körlum. Þetta er honum nærtækt efni því hann er sjálfur áhættuleikari. •Satt best að segja ætti hann að halda sér við aðalatvinnu sína, sleppa því að skrifa handrit og leika í kvikmyndum, sama má raunar segja urti flesta aðra leikara því útkoman er vægast sagt ruglings- legur kokkteill um áhættuleikara sem lenda í alvöru sakamáli, kokk- teill sem lítiö er gaman að. -HK THREE FOR THE ROAD Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: B.W.L. Norton. Aðalhlutverk: Charlie Sheen, Kerri Gre- en, Alan Ruck og Sally Kellerman. Bandarisk, 1987-Sýningartími 88 min. Af gæðum Three For The Road að dæma mætti halda að Charlie Sheen hafi leikið í myndinni áður en hann sló í gegn í Platoon og Wall Street. Svo er nú samt ekki. Hún er gerð á milli þessara tveggja mynda og hlýtur drengurinn að vera haldinn slæmri dómgreind ef hann hefur haft fyrir því aö lesa handritið áöur en hann lék í mynd- inni. Sheen leikur ungan framagosa í stjórnmálum sem smjaðrar fyrir öldungardeildarþingmanni einum sem virðist allt annað í huga en hagur fólksins. Þingmaðurinn biður Sheen að flytja dóttur sína sem haldin er eit- urlyfjafíkn á hæli nokkrar dagleið- ir í burtu. Sheen játar að sjálfsögðu og tekur vin sinn með. Kemur í ljós að stúlkan er hiö besta skinn en pabbinn vondi karj- inn og hana langar aðeins til að heimsækja móður sína. Ferðin gengur ekki átakalaust. Stúlkan reynir að stijúka og tekst það á tímabili og Sheen, sem sér pólitískan frama sinn í hættu, tek- ur á það ráð að handjárna stelp- una ... Three For The Road á að heita gamanmynd en skemmtunin er lít- il og leikur með allra versta móti og er hin ágæta leikkona Sally Kell- erman ekki undanskilin. Sjálfsagt vill Charlie Sheen gleyma þessari mynd sem fyrst og það ættu allir að gera. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.