Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1989, Blaðsíða 2
30
w
s A F G i S H R A
Ð K D A B A U T s|
E F l H * E K 1 G D
0 M F P A L K R j
R T '0 R N 5 E P U
U X T u 0 N V P y
y 5 Æ K 6 S B A 0*
A Ð E U D F K G E i
'/ K R A 1 L J U H
M R u G N J F N R
P U X A y P T 0 Ú
Æ R F F ö V Ö A B
D A Ý A Ð 'A E G J
P F H P 1 s K S
I þessari STAFASÚPU er búið að fela heiti hlutanna umhverfis stafina. Orðin eru ýmist
falin lárétt, lóðrétt, á ská, aftur á bak eða áfram. Sendið lausnina til: BARNA-DV.
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989.
MIG DREYMDI...
Mig dreymdi að ég var að keppa á hestamóti og besta vinkona mín varð í öðru sæti og
bekkjarsystir okkar, sem er hrædd á hesti, varð í þriðja sæti. Þær fengu verðlaunapen-
inga. Ég veit ekki hver varð í fyrsta sæti. Og ein bekkjarsystir mín, sem ég hata, hélt að
ég hefði fengið verðlaunapening. Ég varð svo rosalega móðguð af því að bekkjarsystur
mínar fengu verðlaunapeninga en ég engan.
Ein forvitin
Kæra forvitna!
Ósamlyndi ykkar bekkjarsystra virðist halda áfram á næstunni! Það er nefnilega talið
boða ósætti að vera í keppni með mörgu fólki. Þú „slappst við“ að fá verðlaun í draumn-
um og máttu þakka fyrir það því sá sem hlýtur verðlaun í draumi mun fá mjög óhag-
stætt tilboð sem verður honum til einhvers tjóns gangi hann að því. Vertu því á veröi
gagnvart bekkjarsystrum þínum, reyndu eftir fremsta megni að forðast árekstra og rifr-
ildi því þú veist að það leiðir bara til ills.
Elsku BARNA-DV!
Mig dreymdi að ég og Rannveig systir mín værum á diskóteki. Þar var svo rosalegur
gæi að ég glápti úr mér augun! Hann bað mig um að koma. Ég gekk til hans og þá sagði
hann mér að hann héti Ásgeir. Þá vaknaði ég.
Bless, bless.
Dreymi þig að þú sért á
dansleik og dansir er það
fyrir heppni í peningamál-
um. Og það er fyrir góðu ef
þú dansar hratt, sem þú
sjálfsagt hefur gert á
diskótekinu.
Þú ert líklega vinmörg og
félagslynd en að dreyma
nafnið Ásgeir er sagt að boði
vinamissi. Að öllum líkind-
um lendir þú í einhverju
rifrildi og þrasi við vini þína
og líklega móðgast einn
þeirra og hættir vinskap við
Þig.
KRAKKAR!
NAFN: Arnljótur Bjarki Bergsson
HEIMILI: Selás 17 á Egilsstöðum
SKÓLI: Egilsstaðaskóli
FÆDDUR: 17. september 1977
ÁHUGAMÁL: Að hjóla og synda
BESTI MATUR: Grillaður kjúklingur
UPPÁHALDSLITIR: Svartur, blár, grár og hvítur
SYSTKINI: Sigrún Dóra og hálfsystkini eru Fríða, Hjör-
dís, Þórunn og Björn .
BESTI VINUR: Hann heitir Þorsteinn
BESTI BRANDARI: - Hvað gerir mamma Stevie Wonders
þegar hann er óþekkur? - Hún færir til húsgögnin!
NAFN: Sigrún Birna Björnsdóttir
HEIMILI: Smáravegur 8 á Dalvík
FÆDD: 13. júlí 1979
ÁHUGAMÁL: Sund, skíði, skautar og afmæli
BESTA VINKONA: Eygló Sveinbjörnsdóttir
BESTI DRYKKUR: Kakó, Kvikk og Blanda
5 villur
Geturðu fundið 5 atriði sem EKKI eru eins á báðum
myndunum? Sendið lausnina til: BARNA-DV.
Brandarar
Palli: Ég hef ekki sofið í marga daga.
Óli: Ertu ekki þreyttur?
Palli: Nei, ég sef vel um nætur.
Björk R.
- Einu sinni voru þrír bræður. Þeir hétu allir Siggi nema
Bjarni. Hann hét Árni!
Indíana A. Hreinsdóttir,
Smáratúni 14, Akureyri.
- Galdramaðurinn í sjónvarpinu í gær var frábær. Hann
sagði bara hókus - pókus og þá hurfu allar kanínurnar.
- Iss, það er ekkert merkilegt. Ég þarf ekki að segja
nema uppvask og þá hverfa allir úr eldhúsinu.
- Ég frétti að sonur ykkar væri farinn að tala.
- Já, en nú þurfum við að kenna honum að þegja!
Magnea Garðarsdóttir, 8 ára,
Garði, Öng., Akureyri.