Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1989, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989.
TILKYNNINGAR:
Heiðar, sem flutti til Mosfellsbæjar frá
Sauðárkróki. Viltu senda heimilisfangið þitt
til mín. Einar Tryggvason,
Skagfirðingabraut 10, Sauðárkróki.
Viljið þið skrifast á við 13 ára stelpu í Dan-
mörku? Hún heitir Birgitte Meyer. Hún vill
skrifast á við krakka á svipuðum aldri og
hún. Áhugamál Birgittu eru: tennis, borð-
tennis, badminton, handbolti, lestur, að
sauma, teikna og margt fleira. Einnig ef þið
vitið um krakka frá öðrum löndum, skrifið
þá endilega heimilisfóngin þeirra til mín og
ég seiidi þau til hennar. Heimilisfangið mitt
er: Þórhildur Guðmundsdóttir,
Munkaþverárstræti 10, 600 Akureyri.
Aðalheiður Sigurðardóttir (eða Heiða),
Þórunúpi, biður Ævar Smára á Egilsstöðum
um að sénda sér heimilisfangið hjá sér.
Ég er búin að týna heimilisfanginu hjá
pennavinkonu minni. Hún heitir Sigríður
Margrét og er kölluð Sigga Magga. Hún á
heima í Neskaupstað. Fullu nafni heitir hún:
Sigríður Margrét Gunnarsdóttir. Ég bið
hana um að skrifa mér og athuga að ég er
flutt. Helena Gísladóttir,
Lækjarkinn 16,
220 Hafnarfirði.
ELSKU AMMA!
Elsku amma!
Ég hef það vandamál að vera hrifin af strák en ég held að hann sé ekkert hrifinn af
mér. Hann er þremur árum eldri en ég. Ég er í 5. bekk en hann er í 8. bekk. Ég er í svo
miklum vanda út af þessu. Ég hef spurt hann hvort hann vilji dansa við mig á opnum
húsum en hann neitaði mér. Ég hugsa um hann á hverju kvöldi. En ég er það heppin að
hann á heima á sama stað og ég. Elsku amma! Viltu hjálpa mér?
Madonna
Kæra Madonna!
Ég er ansi hrædd um að enginn geti hjálpað þér eins og þú vilt nema tíminn! Á þessum
aldri er þessi aldursmunur ykkar allt of mikill. Það er ekki von að 14-15 ára strákur sé
hrifinn af stelpu í 11 ára bekk! Hann segir þér það líka og sýnir með því að neita þér um
dans. Þú verður að taka þessu og láta þér nægja að dreyma um piltinn.
Þín AMMA
Kæra amma!
Ég er í vanda. í skólanum eru krakkarnir alltaf að stríða mér og berja mig. Ég hef far-
ið til sálfræðings og hann sagði að ég væri með félagsvanda. Ég býð krökkunum í af-
mælið mitt og þá koma þau, en í skólanum segja þau við mig: - Farðu, þú þekkir mig
ekki, þú hefur aldrei séð mig. Ein vinkona mín er ekki vinkona mín. Hún er alltaf að
sníkja peninga frá mér og segir: - Ég borga þér seinna. En hún borgar mér aldrei. Ég á
núna bara þúsund inni í banka. Kæra amma! Hvað á ég að gera?
Ein í vanda
P.S. Amma, ertu karl eða kona?
Kæra „í vanda“!
Þú ert ekki ein um það að vera út undan í skóla. En það er lítil huggun í því. Fyrst þú
ert komin í samband við sálfræðing og hann segir þér að þú eigir við félagsvandamál að
stríða þá finnst mér að þú ættir að fara til hans aftur og spyrja hvaða ráð sé við því
vandamáli. Einnig ættir þú að ræða málið við kennarann þinn því hann hefur tök á að
ræða við skólafélagana og ég veit að það hefur oft gagnað í tilvikum sem þessum. Þú
nefnir ekki að þú hafir rætt málið við foreldra þína, en það fihnst mér að þú ættir endi-
lega að gera. Ef ekkert af þessu hjálpar þá verður þú aö taka til þinna ráða. Reyndu að
vera sjálfri þér nóg á þessum erfiðu tímum. Farðu að sinna einhverjum áhugamálum,
fara í sund, dans, leiklist, tónlist, myndlist, fóndur eða eitthvað sem þú gætir hugsað
þér. Þá er ég viss um að þú kynnist krökkum sem hafa svipuð áhugamál og þú og þeir
krakkar gætu reynst þér betur.
Hvað „vinkonuna“ varðar þá áttu að steinhætta að lána henni peninga. Þú getur aldrei
keypt sanna vináttu með peningum! Segðu henni að borga þér skuldina strax og vertu
ákveðin. Kannski ertu alltof lin við félaga þína og þess vegna misnota þeir þig og troða
á þéT. Hertu upp hugann og taktu nýja stefnu í lífinu!
Þín AMMA
P.S. Auðvitað er ég kvenkyns eins og allar aðrar ömmur!
Hvaða leið?
Hvaða leið á froskmaðurinn að velja til að finna fjársjóð-
inn? Er það leið 1-2 eða 3? Sendið svar til: BARNA-DV.
Komdu nú að kveðast á
Grasið græna og himinninn blár.
Fjöllin fögur og há. Diana G.A. Kristjándóttir,
Lömbin skoppa, Grænahjalla 19, Kópavogi, og
jarma og hoppa Aðalheiður Halldórsdóttir,
til og frá. Engihjalla 17, 4 F í Kópavogi.
Hvað er á seyði?
sagði amma gamla á Heiði.
Sem brá sér í lund
þegar hún sá risastóran hund.
En þegar hún sá Óla gamla
vera að hjóla, Anna Margrét
datt hún um koll Þorsteinsdóttir Hraundal,
ofan í risastóran poll. Fjarðarseli 36 (kjallara),
Reykjavík.