Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1989, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1989
Fréttir
Eini íslendmgurinn sem var i nýmavél á heimilL sínu:
Nýrnaþegi sóttur til
Eyja og þotan beið
- heppilegt nýra fékkst í Kaupmannahöfn. Maðurinn á batavegi
Ólafur Þorsteinsson í nýrnavélinni á heimili sínu. Meö honum er dóttir hans Elín Þóra.
DV-mynd Ómar Garðarsson
Ómax Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
Ólafur Þorsteinsson frá Vest-
mannaeyjum, sem þurft hefur aö
notast við nýrnavél undanfarin
misseri, fékk grætt í sig nýra á
fóstudagsmorgun á Ríkisspítalan-
um í Kaupmannahöfn og sam-
kvæmt upplýsingum DV hefur allt
gengið vel tií þessa. Allt gott er að
frétta af Ólafi að sögn ættingja
hans. ígræðslan hefur tekist vel og
engin höfnunareinkenni komið
fram. Ólafur er þegar farinn að
matast.
Það bar mjög brátt að meö að-
gerðina. Ólafur fékk að vita það
milli kl.17-18 á fimmtudag aö nýra,
sem hæfði líkama hans, væri til
reiðu í Kaupmannahöfn en hann
yrði að koma sér á staðinn sem
fyrst. Flugvél flugmálastjórnar var
send eftir Ólaíi hingað til Vest-
mannaeyja úr Reykjavík og meðan
hún var á leiðinni hafðist upp á
Ólafi og hann dreif sig upp á flug-
völl. Síðan var flogið til Keflavíkur
þar sem farþegaþota beið eftir hon-
um og var hann kominn þangað
eftir eina klukkustund og sjö mín-
útur frá því vél flugmálastjórnar
fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli.
Þotan sem beið eftir Ólafi í Kefla-
vík varð fyrir bilun eftir að hún
var komin í loftið og varð að lenda
aftur. Viðgerð tók rúma tvo tíma
og á meðan var farið að svipast um
eftir leiguvél því ef viðgerð hefði
dregist öllu lengur hefði Ólafur
þurft aö fara út með annarri vél.
En kl. 22.30 var þotan komin í loft-
ið og lenti í Kaupmannahöfn um
kl. eitt um nóttina aöfaranótt fóstu-
dags.
Klukkan fimm um morguninn
var Ólafur kominn á skurðarborð
í Ríkisspítalanum í Kaupmanna-
höfn og var aðgerðinni loldð þrem-
ur tímum seinna eða um kl. átta.
Eins og áður segir er hann nú á
góðum batavegi.
Það var sagt frá því hér í blaðinu
sl. sumar að Ólafur væri fyrsti ís-
lendingurinn sem fengið hefði
nýrnavél heim til sín en áöur hafði
hann þurft að fara til Reykjavíkur
tvisvar í viku. Þá kom fram aö
hann beið eftir nýra sem hæfði lík-
ama hans og hefur þaö nú fundist.
Þetta er óvenju stutt biö því oft
þurfa nýrnasjúklingar aö bíða svo
árum skiptir eftir nýra.
Ford-kepprun:
Sérstætt útlit
réð úrslitum
- segir BUl Ford, sem
„Lállí Karen hefur það útlit sem
við erura aö leita að fýrir tímarit.
Við leitum að slíkum stúlkum um
allan heim. Hæð hennar er mjög
ákjósanleg, 176 sm, hún hefur fall-
ega fótleggi og sérstætt útlit. Ef hún
myndast jafnvel og ég ímynda mér
á hún bjarta framtíö í fyrirsætu-
starfinu,“ sagði BiU Ford frá Ford
Models 1 New York er hann var
spurður hvað ráðiö hefði úrslitum.
Bill var elnvaldur í vali sigurvegar-
ans.
Lillí Karen Wdowiak er fyrsta
stúlkan sem valin er til aö taka
þátt í Supermodel of the World í
ágúst.
BLll Ford fór héðan í morgun tU
írlands þar sem hann velur aöra
stúlku á morgun. Þaöan liggur leið-
in til Lundúna. „í næsta mánuði fer
ég til Hong Kong og á sama tíma
fer móðir mín, Eileen Ford, ogsyst-
ur mínar til annarra landa til að
velja stúlkur."
tújátíu og þijár stúlkur taka þátt
í keppninni Supermodel of the
World og í þeim hópi verður í fyrsta
valdi sigurvegarann
skipti 9túlka frá Rússlandi. „Ég er
svo heppinn aö íá aö velja þá
stúlku," sagði Biil. „Ég fer tU Sovét-
ríkjanna í maí og þá fer ég einnig
tíl Sviss, Sviþjóöar og Spánar."
Bill sagðist ekki vita af hvetju
ísland heföi verið fyrst í röðinni,
þaö heföi verið ákveöið af systur
hans, Lacey, sem skipulegði aRar
ferðir þeirra. BUl sagöist hafa verið
hepplnn að vera sendur til íslands
og hann hefur ákveöið að koma
hingar sem fýrst aftur. „Mér sýnlst
þetta yndislegt land og sundlaug-
arnar frábærar. Ef ég verð á leið
aftur frá Evrópu á föstudegi hef ég
áhuga á aö fijúga hingað fyrst og
dvelja hér um helgi áöur en ég flýg
heimsagði BiU Ford.
Þegar Bill var spurður hvort ekki
væri erfitt að velja eina stúlku úr
stórum hópi svaraði hann: „Það er
mjög erfitt, en þó að margar stúlk-
umar séu guUfaUegar þá hafa þær
ekki nógu góða fótleggi og það er
það sem skiptir mestu máU.“
-ELA
Stangast aukaflárveitingar á við stjómarskrá?
8 milljarðar óloglega
úr rikissjóði í fyrra
- segir Ólafur Þ. Þórðarson
„Þetta mál er miklu stærra en svo
að það verði skipaö með almennum
lögum. 41. grein stjómarskrárinnar
er alveg ótvíræð. Málið er það að
samkvæmt stjómarskránni er
óheimUt að greiöa eina einustu
krónu úr ríkissjóði nema búiö sé að
samþykkja þaö áður í venjulegum
fiárlögum eða með fjáraukaiögum
sem hafa veriö lögö fram og sam-
þykkt af þinginu. Þetta hefur bara
veriö kolbrotið um áraraðir. Þannig
má í raun segja aö í fyrra hafi 8 mUlj-
arðar fariö ólöglega úr ríkissjóði,"
sagöi Ólafur Þ. Þórðarson, annar
fuUtrúi Framsóknarflokksins í fjár-
veitinganefnd Alþingis. Ólafur sagð-
ist vera búinn að taka töm tíl þess
að herja á þessu innan Framsóknar-
flokksins og nú væri hann búinn að
færa umræðuna inn í íjárveitinga-
nefnd.
Um leið hefur komið fram frum-
varp frá tveimur þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins, þeim Geir H. Haarde
og Pálma Jónssyni, um meöferð
greiðslna úr ríkissjóði umfram fjár-
lagaheimUdir. í frumvarpinu segir
að: „Fjármálaráðherra getur því að-
eins heimUað greiðslu úr ríkissjóði
umfram heimUdir fjárlaga að um sé
að ræða lögboðið viöfangsefni eða
samning sem fé er veitt til á fjárlög-
um og skapast hafi frekari greiöslu-
þörf sem ekki þolir bið og fellir fyrir-
varalausa greiðsluskyldu á ríkis-
sjóð.“
Ólafur sagðist ekki ætla að styöja
þetta frumvarp. „Þeirra hugmyndir
ganga út á það að fjárveitinganefnd
eigi aö vera úrskuröaraðili. Það
gengur ekki. Það er Alþingi íslend-
inga sem er úrskuröaraöili. Fjárveit-
inganefnd er ekki ætlað aö ráða því
hvert peningar fara - enda væri það
fráleitt."
í gærmorgun var rætt um það á
fundi fj árveitinganefndar að fá úr-
skurð frá prófessor í stjórnlagafræð-
um við Háskóla íslands. Ólafur sagði
að viö heföum sams konar ákvæði
og Bandaríkjamenn í stjómarskrá
sinni. Þar heföi Ronald Reagan staöiö
frammi fyrir þeirri staðreynd aö
þingið heföi ekki viljað láta hann
hafa þá peninga tU ákveðinna verk-
efna sem hann heföi viljað fá.
„Heldur þú aö þaö heföi ekki veriö
þægUegt hjá honum að hringja í fjár-
málaráðherrann og óska eftir auka-
fjárveitingu? Valdiö er bara ekki hjá
honum. Hér á landi hafa menn sagt
sem svo að þegar þingiö sé búið að
samþykkja séu greiðslumar orðnar
löglegar. Það er alveg rétt en það
breytir því ekki að þegar greitt var
voru þær kolólöglegar."
Ólafur segir aö eina ráðið sé að
fjáraukalög séu lögð fram um leið og
fjárlög og síðan aftur áður en þing
fer í sumarfrí. Þannig eigi ekki aö
þurfa að greiöa neitt úr ríkissjóði án
þess að heimUd sé fyrir því.
-SMJ
Draumurinn gæti ræst
- segir Lillí Karen Wdowiak, sigurvegari Ford-keppninnar
„Ætii maður búist ekki aUtaf innst
inni við því að einhver annar sigri,“
sagði LiUí Karen Wdowiak eftir að
úrslit Ford-keppninnar urðu Ijós í
gærkvöldi. „Ég verð því aö segja að
þetta kom mér á óvart. Við vorum
allar mjög ólíkar og það var ekki
nokkuö leiö aö vita hveija BUl Ford
myndi velja. Mig langar mjög mikiö
til að starfa við fyrirsætustörf og
frænka mín, Helga Melsted, var búin
að segja mér að þetta væri besta leið-
in til að koma sér áfram,“ sagöi Lillí
Karen.
Þess má geta að Helga Melsted,
fyrrum sigurvegari Ford-keppninn-
ar, og Lillí Karen era systraböm. „Ég
vona aö draumur minn um fyrir-
sætustörf rætist með þessum titli.
Þetta gæti breytt lífi mínu,“ sagði
Lillí Karen.
- En hvaöan kemur eftimafn þitt?
„Það kemur frá PóUandi. Faðir
minn er pólskur í föðurættina en ís-
lenskur í móöurættina. Fjölskylda
hans fluttist til Bandaríkjanna á
stríðsárunum þar sem hann fæddist.
Ég er einnig fædd í Bandaríkjunum
en fluttist til íslands nokkurra mán-
aða gömui,“ sagöi Lillí Karen.
Foreldrar hennar em Valborg
Bjamadóttir og Ludvik Duke Wdow-
iak. Lillí Karen starfar í bakaríi í
Gnoðarvogi. Hún hætti námi til að
safna peningum áður en haldið yrði
út í hinn stóra heim.
Tíu stúlkur tóku þátt í úrslitunum
og að minnsta kosti þijár þeirra, fyr-
ir utan Lillí, vom beönar að senda
fleiri myndir til Ford Models um-
boðsskrifstofunnar í New York. Það
gæti þýtt að þær fengju störf næsta
sumar á vegum Ford. Lillí Karen
mun taka þátt í keppninni Su-
permodel of the World sem fram fer
í Bandaríkjunum í ágúst.
-ELA
Sú leiða villa kom fram í grein-
mni Sjónarhornið i gær, að sagt
var, aö fruravarp um launavísi-
tölu, sera saltað hefiir verið, væri
komið frá Jóni Sigurðssyni við-
skiptaráöherra. Hið rétta er, að
írumvarpiö er komið frá forsæt-
isráðherra Viöskiptaráöherra er
beöinnafsökunar á þessari vtiiu.
Haukur Helgason.