Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1989, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1989.
Fréttir__________________________________________________
Nýju skutlúgumar á Nönnu VE vekja efasemdir:
Lúgur á skipum ættu
að vera sem fæstar
segir Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri
Togskipið Nanna VE, sem sökk út
af Reynisdröngum á þriðjudags-
kvöld, var með tvær skutlúgur sem
4
Nanna VE við bryggju ettir að skip-
inu var breytt. DV-mynd Ómar
er nýjung hér á landi. Skipið fékk sjó
inn um þessar lúgur þegar það fórst.
Skipið var endursmíðað í Portúgal
og kom til landsins í janúar síðast-
liðnum og hóf þá veiðar. Sjómenn,
sem DV hefur rætt við, eru fullir efa-
semda um þessar skutlúgur. Magnús
Jóhannesson siglingamálastjóri var
inntur álits á málinu en að sjálfsögðu
voru þessar lúgur settar á skipið með
leyfi Sighngamálastofnunar.
„Það er ekkert í okkar reglum sem
bannar að skutlúgur séu settar á
skip. Ég vil að sjálfsögðu ekkert tjá
mig um þetta mál fyrr en að loknum
sjóprófum. Hins vegar er það stað-
reynd að ýmiss konar lúgur eru á
skipum en mín persónulega skoðun
er sú að þær ættu að vera sem allra
fæstar á hverju skipi.
Magnús sagði að þegar leyfi var
veitt fyrir þessum skutlúgum hefði
þess verið krafist að fjórir stórir lens-
brunnar væru á dekkinu og jafn-
framt afkastamikil dæla. Það kæmi
væntanlega fram við sjópróf hvort
þessi búnaður hefði brugðist og eins
hitt hvort lúgan á efra dekki hefði
líka verið opin. Allt skipti þetta
miklu máli. S.dór
Verðhrun af mannavöldum á þýska fískmarkaðnum:
Ráðuneytismenn hlusta
ekki á neinar aðvaranir
- og veita leyfi og hvetja menn til vonlauss gámaútflutnings, segir Ari Halldórsson umboðsmaður
„Það var búið að vara menn heima
á íslandi viö þessu en þeir ráðuneyt-
ismenn í utanríkisráðneytinu hlusta
ekki á neinar aövaranir. Þeir úthluta
mönnum leyfum til gámaútflutnings
og hvetja menn til útflutnings þvert
ofan í ráðleggingar að utan. Siglingar
skipanna eru aUtaf ljósar enda
ákveðnar með löngum fyrirvara. Það
var skref fram á við og meðan Lands-
samband íslenskra útvegsmanna
hafði þessi mál á sinni könnu var
ástandið miklu betra. Þá var hlustað
á aðvaranir og málin þróuðust með
öðrum hætti en þessi vitleysa í dag.
Nú er ekkert mark tekið á aðvörun-
um okkar. Við höfum ekkert legið á
að gefa því allar upplýsingar en þrátt
fyrir ráðleggingar okkar er ekkert
eftir þéim farið. Þegar viö segjum að
óhætt sé að senda 10 til 15 gáma sem
hámark í viðbót við þau skip sem
selja, þá er dembt á okkur yfir 40
gámum. Ég skil ekki hvers vegna
maður er að eyða tíma í að skrifa
þeim telefaxskeyti eða yfir höfuð að
eyða peningum í sendingarkostnað
til þeirra þegar ekkert mark er á
okkur tekið,“ sagði Ari Halldórsson,
fiskumboðsmaður í Bremerhaven,
um það hrikalega verðhrun sem orð-
ið hefur á íslenskum fiski á þýska
markaðnum.
Ari sagði að verðið núna væri
hreinlega á núlh. Fiskurinn færi á
lægsta leyfða verði. Hann sagði að
menn úti hefðu beðið um að ekki
yrði sendur út ufsi, vegna þess að svo
mikið bærist af honum með heima-
skipum úr Norðursjó. Samt sem áður
væri hrúgaö á markaðinn ufsa frá
íslandi sem ekkert verð fengist fyrir.
„Það er alveg ljóst aö það vantar
gagnkvæmar upplýsingar um mark-
aðinn og aö stjórnvöld á íslandi hætti
að skipta sér af þessum málum, enda
ráða þau ekki við þau. Fyrir utan það
að samkvæmt alþjóðasamningum
hafa þau ekki leyfi til að skipta sér
af fiskútflutningnum og ekki getu til
þess heldur," sagöi Ari Halldórsson.
Hann sagði að útlitið fyrir næstu
viku væri alveg eins. Þá hafa 6 skip
leyfi til að selja og mætti gera ráð
fyrir aö þau verði með um 1200 lest-
ir, mest karfa. Ofan á þetta á svo að
setja á markaðinn um það bil 400 lest-
ir af gámafiski og afleiðingin er
áframhaldandi verðhrun.
S.dór
Stjórnleysi veiðanna er
ástæðan fyrir auknum
gámaútflutningi
- segir Helgi Reynisson hjá Gámavinum 1 Vestmannaeyjum
„A sama tima og fiskvinnslan á
íslandi á í slíkum erfiðleikum að
vinnslustöðvar eru ýmist lokaðar
eða reknar með hálfum afköstum er
engin stjómun á fiskveiðunum. Skip-
in veiða og veiða en geta svo ekki
losnað við aflann með öörum hætti
en setja hann í gáma eða að skip sigli
með aflann, þau sem til þess hafa
leyfi. Menn vita ósköp vel að ef ekki
fara meira en 1000 til 1200 tonn á viku
á þýska markaðinn fæst hámarks-
verð. Allt sem er fram yfir það verð-
ur til að lækka veröið. Samt senda
menn út,“ sagði Helgi Reynisson hjá
Gámavinum í Vestmannaeyjum um
þaö hrikalega verðhrun sem oröið
hefur undanfarið á þýska fiskmark-
aðnum vegna offramboðs frá íslandi.
Helgi sagði að þeir hefðu fengið að
vita hjá utanríkisráðuneytinu aö 380
lestir færu á þýska markaöinn í þess-
ari viku og þvi hefðu Gámavinir að-
eins sent einn gám. Annar afli var
seldur til fiskvinnslustööva hér
heima. Hann sagði að ef hann hefði
vitaö um allt þaö magn sem fór á
markaðinn hefði hann engan gám
sent út þvi allir gátu vitað að þetta
myndi valda verðhruni.
Marías Þ. Guðmundsson, sem
vinnur með utanríkisráðuneytinu að
gámaleyfisveitingum, sagði að á
þýska markaðinn í þessari viku hefði
komið fiskur frá Noregi sem ráðgjaf-
ar ráðuneytisins vissu ekki um. Þar
að auki hefði hitabylgja, sem gengið
hefur yfir Þýskaland, haft sitt að
segja varöandi fiskverðið. Marías
sagði að miklu meira væri sótt um
að flytja út en leyfi fengjust fyrir.
Nefndi hann sem dæmi að sótt hefði
verið um leyfi til útflutnings á 3020
lestum til Bretlands í þessari viku
en leyfi var veitt fyrir eitt þúsund
lestum.
S.dór
Veröhnmið á þýska markaðnum:
Fyrst og fremst
vegna vorhitanna
- segir viðskiptadeild utanríkisráðuneytisins
Skýring viðskiptadeildar utan-
ríkisráðuneytisins á veröhruninu á
fiski frá íslandi í Þýskalandi und-
anfarið eru fyrstu vorhitamir þar
út. Þórður Ægir Óskarsson, blaða-
fulltrúi ráðuneytisins, sagði í sam-
tali við DV að það væri reynsla síð-
ustu ára að þýski markaðurinn
þyldi þetta fiskmagn á fóstunni.
Það sem nú hefði gerst væri að hit-
inn í Þýskalandi heföi rokiö upp
og fólk hlaupið til og tekið grilliö
fram og fisksala við það dottið nið-
ur.
Hann sagði að ekkert sérstakt
yrði gert af hálfu ráðuneytisins til
að takmarka gámaútflutninginn
um næstu helgi. Menn vissu aö
þetta væri alltaf ákveðin áhætta og
yrðu að taka henni ef þeir ætluðu
að spila meö. Hann sagðist í gær
hafa rætt við menn á þýska mark-
aönum og þeir heföu talið að mark-
aðurinn í næstu viku myndi þola
það magn sem þá fer utan.
S.dór
Vera sýnir á Austfjörðum
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Leikhópurinn Vera hér á Fá-
skrúðsfirði frumsýndi nýlega Sletti-
rekuna, breskan gamanleik með al-
varlegu ívafi, í félagsheimilinu Skrúö
viö góðar undirtektir leikhúsgesta.
Leikstjóri er Finnur M. Gunnlaugs-
son leikhúsfræðingur.
Næstu sýningar leikhópsins verða
í Staðarborg, Breiödal, fimmtudag,
Herðubreið, Seyöisfirði, laugardag
og Félagslundi, Reyðarfirði, sunnu-
dag. Allar sýningamar hefjast kl.21. '
Sandkom dv
Fair vilja
ódýran bjór
Verölagöld-
urhúsannaá
bjómumer
afarmismun-
andi.Dæmi eru
umaðglasiðsé
seltáheilar300
krónur.Þrátt
fyrirsvohátt
verð er bjórinn keyptur og drukkinn
af bestu lyst. Einxúg er til dæmi um
að bjórinn sé seldur til muna ódýr-
ari. Sandkom hefur frétt af einu veit-
ingahúsi sem selur glasið á 175 krón-
ur. Þrátt fyrir að verðið sé ekki hærra
er salan nánast engin. Þess bcr að
geta að staðurinn er ekki þekktur
fyrir vínveitingar eða veislurétti. Um
er aö ræða hamborgarastað í út-
hvcrfi. Eigandi staðarins er gáttaður
á hversu lítið af bjór hann selur -
þegar verðið á bjómum er ekki hærra
enraunbervitni.
Gamalten
skemmtilegt
símagabb
Fyrirnokkuð
mörgum árum
gerðutveirfé-
lagaraðgamni
sínuaðplata
fólkígegnum
slma. Pélagarn-
irhringdui
símanúmer
semþeirvöldu
skipulagslaust úr símaskrá. Þeir
sögðu þeim sem svöruðu að þeir
væru aðhringjafrá skrifstofúland-
læknis. Þeir sögðu að skæð inntlú-
ensa væri í Reykjavík og báðu við-
komandi að mæla sig á hálftíma fresti
og hringja niðurstöðurnar á næstu
lögreglustöð. Flestir trúðu félögun-
um og bmgöust vel við óskum um
mælingar og tilkynningarskyldu á
niðurstöðum. Lengi á eftir var mikið
hringt til lögreglunnar til að tilkynna
um hitastig - sem oftast var um 37
gráður.
Vélsleði í lyfjapróf
Mikilvél-
sleðakeppni
varhaldiní
Mývatnssveit
umhelgina. 1 :
AA-tlokkisigr-
aðiungur Ak-
ureyringur
semókPolaris i
sleða.Keppi-
nautar hans vom ekki ánægðir að
keppni lokinni og töldu að Akur-
eyringurinn og sleðinn hans hefðu
haft rangt við. Þeir kröfðust þess aö
sleðinn yrði krufinn og skoðaður af
kunnáttumönnum. Keppinautamir
töldu víst að sleðanum hefði verið
breytt og því svindlað í keppni
óbreyttra sleða. Sleðinn var tekinn i
sundur stykki fyrir stykki. Þrátt fyrir
mikla rannsókn fannst ekkert at-
hugavert við sleðann. Það varð þvi
ekki nýtt Ben Johnson hneyksli í
keppninni eins og þeir tapsáru höfðu
óskað.
Hvemig blað
er Þjóðviljinn?
. Möröur
Árnason, rit-
stjóri Þjóðvilj-
ans.varmikið
reiðurium-
ræðuþættiá
Stöð2þarsem
ræddvarhugs-
anlegsamcÍH-
ingBlaða-
prentsblaðanna. Mörður hafði flest á
homum sér. Hann talaði um erfiða
markaðsstöðu síns blaðs og amiarra.
En hvað er það sera gerir stööu Þjóð-
vOjans svo slæma? Þaö kemur fram
í viðtali sem Mogginn átti við Úlfar
Þormóðsson, formann útgáfustjómar
Þjóðviljans. „Grundvöllurinn fyrir
blaðið eins og það er 1 dag, krafllítið
og máttvana, er ekki til staðar, en ef
blaðið fengi kraft og raátt, væri sann-
arlega þörf fyrir slfkt blað.“ Og síöan
bætir Ulfarvið: „Egeraðtalaum
þess lags blað, sem fólk vill kaupa,
þarf að kaupa og veröur að kaupa,
ef að þaö ætlar að fylgjast meö. Þann-
ig blað er Þjóðviljinn ekki í dag, og
ég held að ástæðan fýrir þvl aé ekki
skuldir, þetta er spuming um hand-
bragðogtalfærl“
Umsjón: Sigurjón Egilsson