Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1989, Page 9
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1989.•
9
ísraelskir hermenn keyra með bryndreka yfir brynvarðan bíi norskra her-
manna í friöargæslusveitum Sameinuðu þjóðanna. Höfðu Norðmenn reynt
að koma í veg fyrir að ísraelsku hermennirnir kæmust inn í þorpið Ebel
es Saqi á öryggissvæðinu í suðurhluta Líbanon þar sem þeir eru með
aðalstöðvar sínar. í hefndarskyni lokuðu ísraelar vegum á öryggissvæðun-
um fyrir friðargæslusveitunum en opnuðu þá aftur eftir mótmæli norsks
ofursta. Símamynd Reuter
Settu ferðabann
á norskar
friðargæslusveitir
ísraelskar hersveitir í Suður-
Líbanon afléttu í gær banni því sem
þeir höfðu sett á ferðir friðargæslu-
sveita Sameinuðu þjóðanna á örygg-
issvæðinu. ísraelar sökuðu norsku
friðargæsluhermennina um að hafa
hjálpað óvinum ísraels til árásar-
ferða.
Norskur ofursti segir að áttatíu
ísraelskir hermenn hafi á þriðjudag-
inn komið inn í þorpið Ebel es Saqi
þar sem norsku friðargæslusveitim-
ar eru með aðalstöðvar sínar. Norð-
mennimir reyndu að stöðva ísra-
elsku hermennina en samkvæmt
skipun frá herforingja sínum keyrðu
þeir með stómm herbíl yfir níu bíla
sem lagt hafði verið á veginn að þorp-
inu til að hindra framgöngu ísrael-
anna.
Snemma í gær lokuðu ísraelar öll-
um vegum á öryggissvæðinu í suður-
hluta Líbanon fyrir norsku friðar-
gæslusveitunum en opnuðu þá síðan
aftur í kjölfar mótmæla norska
ofurstans. Norsku friðargæslusveit-
imar starfa innan öryggissvæðisins
sem ísraelar hafa yfirráð yfir.
Norski vamarmálaráðherrann, Jo-
han Jörgen Holst, hefur lýst áhyggj-
um sínum vegna atburðanna og segir
þá greinilega sýna hversu litla virð-
ingu ísraelar beri fyrir Sameinuðu
þjóðunum. NTB
fl :; M É' ' ÍSSjr'lif
9. •; v . S'í’ jtw lí
; . :< m P‘ A Uh i >' ; i J w I
íbúðarhúsið, þar sem eldurinn kom upp, var í lélegu ástandi og stigar innan-
húss Úr tré. Símamynd Reuter
Fimmtán létust
í eldsvoða
Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux:
Fimmtán manns létu lífið og tíu
slösuðust í eldsvoða í borginni Bel-
fort í Frakklandi í gær. Upptök elds-
ins em enn ekki kunn en byggingin
er í lélegu ástandi og í henni leigðu
fyrst og fremst nemendur og ungir
verkamenn en eitthvað var einnig
um eldra fólk. Er þetta mannskæð-
asti eldsvoði í Frakklandi í fiögur ár
og hefur lögreglurannsókn verið haf-
in.
Margir létu lífið er þeir hentu sér
út um glugga til að forðast eldinn.
Stigar vom úr tré og byggingin inn-
anhúss yfirleitt mjög iíla farin þótt
utanfrá væri búið að gera hana upp.
Rúmlega 120 slökkviliðsmenn börð-
ust við eldinn í meira en tvo tima og
vora íbúar nærhggjandi húsa fluttir
burt þar sem óttast var að eldurinn
breiddist út.
Varnarmálaráðherra landsins, Je-
an Pierre Chevenement, sem jafn-
framt er borgarstjóri í Belfort, kom
strax á vettvang og heimsótti hina
slösuðu.
______________________________________________Útlönd
Árásir haf nar
á Jalalabad
Afganskir skæruliðar hafa und-
anfama daga haldið uppi stöðugum
eldflauga- og stjórskotaárásum á
borgina Jalalabad. Talsmaður afg-
önsku stjórnarinnar greindi frá
árásunum í gær. Hafa því skæru-
hðar látið til skarar skríða fyrr en
þeir höfðu gefið yfirlýsingar um.
Nokkrar flugvélar á flugvelhnum
í Jalalabad hafa eyðilagst og tahð
er að margir óbreyttir borgarar
hafi látið lífið í árásunum. Skæra-
hðar segjast hafa tekið til fanga
nokkur hundruð afganska her-
menn en þær fregnir hafa ekki
fengist staðfestar. Skæruhðamir
hafa aðeins gert eina alvarlega til-
raun til að komast í gegnum þre-
fálda varnarhnu borgarinnar. Þeir
urðu frá aö hverfa, að sögn tals-
manns stjórnar Najibullah.
Aðalvegurinn til Kabúl er enn
undir yfirráðum hersins en leiðin
frá Jalalabad til Torkham við
landamæri Pakistans er rofin þar
sem skæruhðar sprengdu brú í um
tuttugu kílómetra Qarlægð frá Embættismenn segja að á hverri borgina Kandahar í suðurhluta
landamæranum. nóttu séu gerðar eldflaugaárásir á Afganistan. Reuter
Aðalvegurinn frá Jalalabad til Kabúl er enn á valdi stjórnarhersins.
PASKATILBOÐ
Frystiskápur frá ZANUSSI.
Z-9350, stærð 350 lltrar með 2
snúanlegum hurðum.
Hæð 210 cm - breidd 59.5 cm
- dýpt 59.5 cm
Verðáður: 76.050.-
Páskatilboð: 64.642.-
Örbylgjuofnarfrá ZANUSSI.
MW-614.3,10 hitastillingar, dreifigeisli, 14 lítra.
Verð áður: 24.444.-
Páskatilboð: 20.777.-
MW-622.3,10 hitastillingar, dreifigeisli, 22 lítra.
Verð áður: 34.936.-
Páskatilboð:29.695. -
Ofn, vestur-þýsk gæðavarafrá KUPPERSBUSCH.
EEH-63CWLB, blástursofn til innbyggingar með
innbyggðu rofaborði fyrir hellur, stafræn klukka,
möguleiki á því að setja í sjálfhreinsibúnað. ■
Verð áður: 70.208.-
Páskatilboð: 59.676.-
Helluborð EM-60-W, einnig frá KUPPERSBUSCH.
Innbyggingarmál:
Hæð 3 cm - breidd 56 cm - dýpt 49 cm.
Verðáður: 12.836.-
Páskatilboð: 10.910.-
Seljum einnig örfá lítiö útlitsgölluö heimllistæki.
Mikill afsláttur.
Lækjargötu 22, Hafnarfirði. Sími 50022.
Öll verð eru miöuð við staögreiöslu.