Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1989, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1989, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 9. MARS 1989. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON * Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr. Verð I lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. íslenzk stefna í Kreml Tilraunir stjórnvalda í Sovétríkjunum og víöar aust- an tjalds til viðreisnar efnahags eru dæmdar til að mis- takast. Gorbatsjov og stuðningsmenn hans hefðu betur kynnt sér málin á íslandi áður en þeir tóku upp svipaða Framsóknarstefnu og íslenzkar ríkisstjórnir stunda. Skiljanlegt er, að ráðamenn í Sovétríkjunum og fylgi- ríkjum þeirra, svo og í Kína, horfi öfundaraugum til auðsöfnunar Vesturlanda og vilji notfæra sér brot af reynslunni að vestan. En það dugar bara ekki til árang- urs að taka bara btinn hluta hins vestræna hagkerfis. Velgengni auðmagnsstefnunnar stafar af notkun sjálfvirkrar markaðstækni í stað tilskipana stjómvalda. Stefnan nær ekki árangri, nema verð á vörum, þjónustu og fjármagni fái að mótast 1 samræmi við hin köldu markaðsöfl, sem koma í stað hlýju Stóra bróður. Ef hagspekingar Gorbatsjovs hefðu lagt leið sína til íslands, hefðu þeir komizt að raun um, að miðstýring hagkerfisins leiðir til fátæktar. Þeir hefðu séö, að hand- afl stjórnvalda er ekki fært um að skipuleggja gengi peninga, vaxtahlutfall og aðra mælikvarða á verðgildi. Þeir hefðu líka kynnzt hér á landi viðamikilli sam- vinnuhreyfingu, sem er að veslast upp í hlýjunni hjá stjómvöldum, er hafa haft hana að gæludýri í fjölmarga áratugi. Þeir hefðu séð, að samvinnufélög em ekki hag- kvæma leiðin til að leysa ríkisbú af hólmi. Hins vegar er gaman fyrir íslendinga að fylgjast með viðreisnartilraunum sérfræðinga Gorbatsjovs. Það gæti orðið tilefni veðmála að þrátta um, hvenær hagfræði hans og Steingríms Hermannssonar mætast á miðri leið og hvort sá fundur hafi raunar þegar átt sér stað. Þótt ráðandi stjórnmálaöfl á Norðurlöndum kenni sig við félagshyggju, er deginum ljósara, að í úármálum og hagkerfi þeirra ríkir markaðshyggja og aðrar undirstöð- ur auðmagnsstefnunnar. ísland er á þessu svæði eina landið, sem neitar sér um hin arðbæru þægindi. Á Norðurlöndum hafa menn sætzt á þá niðurstöðu, að auðmagnshyggjan sé notuð til að magna verðmæta- framleiðsluna og félagshyggjan sé síðan notuð til að dreifa dáhtlu af réttlæti út um þjóðfélagið. í þessari sátt fær auðmagnshyggjan að njóta sín á sviði peninganna. Reynslan sýnir, að ekki dugir að blanda saman stjórn- tækjum, sem er handstýrt að ofan, og sjálfvirkri mark- aðsstýringu. Steingrímur og Gorbatsjov eru báðir smám saman að staðfesta þetta enn einu sinni. Skárra er að hafa algera miðstýringu og bezt að hafa hana alls enga. Það er Framsóknarstefnan, sem er til vandræða í þessu samhengi. Þess vegna er þjóðarhagur á niðurleið í Sovétríkjunum og á íslandi, en í miklum uppgangi í öllum vestrænum ríkjum, sem forðast millileið hafta, kvóta, búmarks, fastgengis, lágvaxta og sjóðakerfis. Ekki er nóg fyrir Gorbatsjov að hvetja ríkisfyrirtæki og samvinnufyrirtæki til að taka sjálfstæðar ákvarðanir og starfsfólk til að hætta að drekka og fara að vinna. Ef verðkerfi markaðarins er ófullkomið, vantar sjálf- hreyfiaflið, sem veldur velgengni auðmagnsstefnunnar. Engan varðar um, þótt íslendingar stundi þá sjálfs- pyndingastefnu að kjósa yfir sig Hina leiðina. Hitt mark- ar söguleg tímamót, ef hhðstæð stefna í Sovétríkjunum veldur vonbrigðum fólks þar eystra og rótleysi fer að mapnast af þeim völdum, meö óræðum afleiðingum. Áður en Island á austurleið mætir Sovétríkjunum á vesturleið væri gott, að miðstýrimenn okkar kynntu sér böhð, sem Hin leiðin er að baka Sovétmönnum. Jónas Kristjánsson 1 ■ 1 iS 1ÉM il'1 | v;l 11JP „Enn viröist eiga að byggja nýtt húsnæðislánakerfi á væntingum og björtum vonum,“ segir greinarhöfundur. Húsbréfakerfi verðbréfasala: Ut í óvissuna í húsabréfakerfinu leysa verð- bréfasalar Byggingarsjóð rikisins af hólmi. Húsnæðiskaupendur verða að keppa við atvinnufyrir- tæki um takmarkað íjármagn. Vextir hækka, lánstími styttist og opinber aðstoð minnkar. Kaupgeta þeirra sem ekki eiga íbúð fyrir minnkar. Fjölskyldur sem nú ráöa við húsnæöiskaup gera það ekki í húsbréfakerfinu. Til dæmis þarf einstæð móðir fimmtungi hærri tekjur.til að ráða viö íbúöakaup. Húsbréfakerfið er hvalreki fyrir verðbréfasala en fyrir húsnæöis- kaupendur er þaö stökk út í óviss- una. Sagan endurtekur sig Núverandi húsnæðislánakerfi er ónýtt. Fyrirheit kerfisins eru meiri en það stendur undir. Þó hefur fátt komið fram sem ekki var vitaö í upphafi. Hugmyndir aö núverandi húsnæðiskerfi hlutu góðar undir- tektir. Útreikningar sérfræðinga lofuðu góðu. Viö afgreiðslu hlaut þaö víötækan stuðning. Góður ásetningur, jákvæðir útreikningar og miklar vonir dugöu þó skammt. Nú hggja fyrir drög að breyttu hús- næðiskerfi. Sérfræðingar halda því fram aö nýja húsbréfakerfiö leysi þann vanda sem það gamla raeður ekki viö. Röksemdir þeirra eru ekki sannfærandi. Mildð skortir á að veigamiklir þættir séu rökstuddir. Kerfinu fylgja afar fátæklegir út- reikningar. Alls er óvisst hvort verðbréfamarkaðurinn veldur því hlutverki sem honum er ætlaö. Ekki hefur verið metið hvaöa áhrif breytingin hefur fyrir launþega. Hlutur launþega meö lágar tekjur er fyrir borö borinn. Kaupgeta þeirra minnkar. Enn virðist eiga aö byggja nýtt húsnæðislánakerfi á væntingum og björtum vonum. Höfum við ekkert lært? Hvernig vinnur húsbréfakerfið? Til að sýna hvaða breytingu hús- bréfakerfiö hefur í for með sér má taka dæmi af fjölskyldu sem kaupir sína fyrstu íbúð. íbúðin er fjögurra herbergja og kostar 5,2 milljón krónur. í útborgun greiöir fjöl- skyldan 35% af kaupverðinu eða 1800 þúsund krónur. Útborgunin er greidd með sparnaði og milljón króna bankaláni. Eftirstöðvar kaupverðsins, 3,4 milljón krónur, lánar seljandi íbúðarinnar. Lánið er verðtryggt með 8% vöxtum. Lánstími er aht aö 25 ár. Seljandinn fær skuldabréf fyrir fjárhæðinni meö veði í íbúöinni. Hann fer með það tíl Húsnæöisstofnunar ríkisins og skiptir á því og jafnhárri fjárhæð í húsbréfum. Að því loknu fer seljandinn með húsbréfin til veröbréfasala og felur honum að selja þau fyrir sig. Þegar kaupandi finnst seljast bréfin þó ekki á nafnverði. Þegar afFóll hafa verið reiknuð og veröbréfasalanum greidd sölulaun fær seljandinn 2,9 KjaUariim Stefán Ingólfsson verkfræðingur mhijón krónur í hendur. Mismun- urinn er 500 þúsund krónur. And- mælendur kerfisins halda því fram að kaupendur þurfi að taka á sig mismuninn f hækkuðu fasteigna- verði. Hvaðan kemur fjármagn? Meö thkomu húsbréfakerfisins hættir Byggingarsjóður ríkisins að lána húsnæðiskaupendum. Sama máh gildir um hfeyrissjóðina. Þeir taka húsbréfin fram yfir hefð- bundin lán th sjóöfélaga. Allt fjár- magn mun koma frá verðbréfasöl- um. Fjárfestingarfélagið, Kaupþing og veröbréfamarkaðir bankanna leysa opinbera húsnæðislánakerfið af hólmi. Húsbréfakerfið er hval- reki á fjörur þeirra. Sölulaun verð- bréfasala munu aukast um 100-200 mhljón krónur á ári. Undanfama áratugi hafa hús- næðislán aðallega komið úr opin- berum lánasjóðum á borð viö Bygg- ingarsjóð ríkisins og félagslegum sjóðum eins og lífeyrissjóðunum. í húsbréfakerfinu er verðbréfa- markaöinum ætlað að fjármagna alla lánsfjárþörf húsnæðismarkað- ims. Á verðbréfamarkaðinum verða húsnæðiskaupendur að keppa viö atvinnufyrirtæki, fjár- festingasjóði og ríkissjóö um Qár- magn sem er th skiptanna hverju sinni. Þeir njóta hliðstæðra kjara og aðilar sem nú berjast um tak- markað fjármagn. Stjómmálamenn hafa í áratugi verndaö húsnæöiskaupendur fyrir miskunnarleysi hins „frjálsa" fjár- magnsmarkaðar. Húsbréfakerfiö bindur enda á það. Hvernig breytast lánskjör? Lán frá Byggingarsjóði ríkisins bera 3,5% vexti og eru veitt th 40 ára. Fasteignaveðlán í húsbréfa- kerfinu mundu í dag bera 8,0% vexti. Lánstími verður 15 til 25 ár. Vextir í húsbréfakerfinu munu breytast eftir ástandi á lánamark- aði. Þegar mikh ásókn er í lán hækka vextimir og lækka þegar eftirspum minnkar. Húsnæðis- kaupendur munu glíma við sama vandamál og fyrirtæki sem eru háð gráa fjármagnsmarkaðinum. Að- gerðir ríkisstjómarinnar hafa beinst að því að hefta frelsi fjár- magnsins og þvinga niður vexti. í húsbréfakerfinu verður ekkert svigrúm fyrir opinbera sjóði th aö aöstoða húsnæðiskaupendur. Þeir verða algjörlega háöir fiármagns- markaðinum. Gengi húsbréfa gæti oröið lægra en nokkurn órar fyrir. Húsnæðiskaupendur, sem leituðu th verðbréfafyrirtækja með ríkis- tryggö lánsloforð hjá Húsnæðis- stofnun, urðu th dæmis að greiða 15% raunvexti. Lítill skattaafsláttur-minnk- uð kaupgeta Húsbréfakerfið minnkar kaup- getu fólks. Það er óhagstætt fyrir ungt fólk sem ekki á íbúð fyrir, sérstaklega launþega sem eru á mörkum þess aö ráða viö hús- næöiskaup vegna lágra tekna. Stytting lánstíma og hækkun vaxta veldur kaupendum áukinni greiöslubyrði. Til dæmis þarf fiöl- skyldan sem áöur var nefnd aö greiöa 80 þúsund krónum meira í vexti á ári en í núverandi kerfi. Til að standa undir aukinni greiöslu- byrði þarf hún hærri tekjur. í húsbréfakerfinu er svonefndum vaxtabótum ætlaö að bæta kaup- endum upp vaxtahækkunina. Vaxtabætumar eru hins vegar allt pf lágar th að þjóna hlutverki sínu. í núverandi húsnæðislánakerfi njóta kaupendur niöurgreiddra vaxta. Við það bætist skattafrá- dráttur, svonefndar húsnæðis- bætur. Vaxtabætur húsbréfakerf- isins eru lægri en húsnæöisbætur og vaxtaniöurgreiðsla gamla kerf- isins. Þetta kemur misjafnlega við einstaka þjóðfélagshópa. Kaupgeta þeirra sem eru í dag á mörkum þess að ráða viö íbúðar- kaup minnkar það mikiö aö hús- næöiskaup verða þeim ofviða. Til dæmis þarf einstæð móðir 20% hærri tekjur til að ráða við ibúðar- kaup eftir að húsbréfakerfið tekur gildi. Stefán Ingólfsson „Einstæö móðir þarf 20% hærri tekjur til að ráða við íbúðarkaup eftir að hús- bréfakerfið tekur gildi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.