Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1989, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1989.
23
fþróttir um helgina:
Handboltateiti í
Höllinni og Hafnarfirði
- tveir Evrópuleikir í 8 liða úrslitum í handknattleik
Á íþróttasviöinu rísa án efa hæst
tveir Evrópuleikir um þessa helgi.
Eru það viöureign Valsmanna ann-
ars vegar og FH-inga hins vegar í
handknattleik en þessi félög unnu
sér fyrir nokkru rétt til að leika í
8 liða úrslitum, hvort í sínu mótinu.
FH leikur við sovéska félagið
SKIF Krasnodar frá Svarthafi en
landsliðsmarkverðir Sovétmanna
spila báðir með því félagi. Aðrir
liðsmenn, sem eru í hávaxnara
lagi, þykja auk þessi ekki aukvisar
á handknattleikssviðinu.
Leikur þessara aðila er á sunnu-
dag og fer hann fram í íþróttahús-
inu í Hafnarfirði. Hefst hann
klukkan 17 en forsala er í húsinu
frá klukkan 15.
Hart barist í Höllinni
Valsmenn glíma við hið firna-
sterka lið Magdeburg frá A-Þýska-
landi. Með því félagi leikur fjöldinn
aUur af landsliðsmönnum með þá
Wieland Schmidt og Ingolf Wiegert
í broddi fylkingar. Báðir hafa þeir
um langt skeið verið álitnir aUra
bestu leikmenn heims í sínum stöð-
um, Schmidt undir slánni en Wie-
gert inni á línunni. Þeir félagar
hafa þó átt við meiðsl að stríða
undanfarið en engir meðaljónar
hafa leyst þá að hólmi og er arftaki
Schmidts, Gunnar Schimrock, nú
þegar búinn að taka sæti hans í
a-þýska landsliðinu.
Ætla má að leikur Vals og Magde-
burg verði i járnum en Uðin spUa
svipaöan handknattleik á margan
hátt. Bæði gera vörmnni hátt undir
höfði en keyra síðan á hraðaupp-
hlaupum þegar andstæðingurinn
gerir mistök.
Leikur Vcds og Magdeburg hefst
klukkan 20.30 á sunnudag en for-
sala er í Miklagarði á morgun,
laugardag, frá klukkan 14 til 16 og
í Laugardalshöll, þar sem leikurinn
verður spilaður, frá klukkan 18 á
sunnudag.
íslandsmótið í handknattleik
Á sunnudag leika lið Stjörnunnar
og KA í 1. deild karla í handknatt-
leik. Viðureignin fer fram í Digra-
nesi og hefst hún klukkan 14.
Badminton
Opið meistaramót Reykjavíkur í
badminton verður um helgina,
11.-12. mars. Hefst keppni klukkan
15.30 á morgun, laugardag, og verð-
ur fram haldið klukkan 10 á sunnu-
dag. Keppt verður í einliðaleik, tví-
liðaleik og tvenndarleik í úrvals-
flokki, meistaraflokki, A-flokki,
öðlingaflokki og æðstaflokki.
Fimleikar
íslandsmót Fimleikasambands
íslands verður haldið í Laugardals-
höll dagana 12. mars og aftur 19-
og 20. mars. Á sunnudag verður
keppt í skylduæfingum en um aðra
helgi veröur keppt í frjálsum æf-
ingum. Mótið fer fram í Laugar-
dalshöll.
Körfuknattleikur
í kvöld verður einn leikur í úrslit-
um úrvalsdeildar í körfuknattleik
en þá eigast við lið KR-inga og
Njarðvíkinga á heimavelli þeirra
síðartöldu. Leikurinn hefst klukk-
an 20 og má gera ráð fyrir mikilli
baráttu.
Á sunnudag eigast síðan við lið
ÍBK og Vals í sömu keppni og hefst
leikur þeirra klukkan 20. Leikur-
inn, sem án efa verður tvísýnn, fer
fram á Suðurnesjum.
Sigurður Sveinsson, vitaskytta Valsmanna með meiru, á sjálfsagt eftir að sýna kúnstir í leiknum við Magde-
burg á sunnudag.
KNATTSPYRNUÞJÁLFARI
Erlendur knattspyrnuþjálfari, búsettur á íslandi, óskar
eftir þjálfarastöðu á höfuðborgarsvæðinu á komandi
keppnistímabili.
Uppl. í síma 652271 e. kl. 17.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Skeljabrekku 4, þingl. eig. Blikkvers hf„ fer
fram á eigninni sjálfri mánud. 13. mars '89 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur
eru Magnús Norðdahl hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Fjárheimtan hf„
Brunabótafélag íslands, Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi, Árni Einarsson
hdl„ Einar S. Ingólfsson hdl„ Guðjón Ármann Jónsson hdl„ Sveinn Snorra-
son hrl. og Jón Sigfús Sigurjónsson lögfr.
________Bæjarfógetinn i Kópavogi
SILKIPRENTUN
Prentum á allan fatnad
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF
SKÚLAGÖTU 51, 105 REYKJAVÍK. SÍML 11520
SUMARBÚÐIR AÐ
LAUGARVATNI
íþróttasamband íslands mun starfrækja sumarbúðir
að Laugarvatni á komandi sumri og voru umsóknar-
eyðublöð og upplýsingar sendar héraðssamböndum
og sérsamböndum þann 23. janúar sl.
1. Ekki er ennþá fullbókað á allar vikurnar og eru
þeir sem hyggjast nýta ágæta aðstöðu hvattir til
að hafa samband við skrifstofu (SÍ hið fyrsta og
eigi síðar en 23. mars.
2. Dvalarvikur í sumar eru:
17. júní - 24. júní
24. júní - 1. júlí
1. júlí — 8. júlí
8. júlí - 15. júlí
15. júlí - 22. júlí
22. júlí - 29. júlí
29. júlí - 5. ágúst
5. ágúst - 12. ágúst
12. ágúst - 19. ágúst
19. ágúst - 26. ágúst
íþróttasamband íslands
Styrkir til listiðnaðarnáms
Islenzk-ameríski listiðnaðarsjóðurinn (Menningar-
sjóður Pamelu Sanders Brement) og Íslenzk-Amer-
íska félagið auglýsa til umsóknar tvo námsstyrki við
Haystack listaskólann í Maine fylki til 2ja og 3ja vikna
námskeiða á tímabilinu 4. júní til 13. ágúst 1989.
Námskeiðin eru framar öðru ætluð starfandi listiðn-
aðarfólki í eftirtöldum greinum: glerblæstri, skart-
gripagerð og bútasaumi, en einnig er nýútskrifuðu
listiðnaðarfólki gefinn kostur á að sækja um byrj-
endanámskeið i leirlist, vefjalist, trésmíði, pappírs-
gerð, glerblæstri, körfugerð og járnsmíði.
i námsstyrknum felast kennslugjöld og húsnæði.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 672087.
Umsóknir berist islenzk-Ameríska félaginu, b/t Fun-
fold 13, 112 Reykjavík, fyrir 21. marz nk.
Íslenzk-Ameríska félagið.