Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Side 1
Ur færeyska gestaleiknum Framá sem sýndur verður tvisvar í Þjóðleikhúsinu um helgina.
Þjóðleikhúsið:
Knattspyma á stóra sviðinu
Hvað gerist í búningsklefa knatt-
spyrnuliðs í afgerandi úrslitaleik?
Fyrir leik, í leikhléi og eftir leikinn?
Hvemig er staðan hjá knattspymu-
mönnum sem era á mörkum at-
vinnumennsku og áhugamennsku?
Svör við þessum spurningum fást
kannski á stóra sviði Þjóðleikhússins
á laugardags- og sunnudagskvöld, en
þá verður þar á ferðinni leikhópur
frá Þórshöfn í Færeyjum með leikrit-
ið Framá, eða Áfram. Höfundar þess
eru Sigvar Olsson og Fred Hjelm, en
leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir.
Leikmynd og búningar eru eftir
Messíönu Tómasdóttur.
Leikurinn gerist í búningsherbergi
hðs sem stendur frammi fyrir því að
falla niður í þriðju deild ef illa geng-
ur. Lið þetta var eitt sinn í fyrstu
deildinni og átti menn í landsliði.
Áhorfendur kynnast ýmsum mann-
gerðum sem eiga þó eitt sameigin-
legt, knattspyrnuna. Persónurnar
velta fyrir sér orsökinni fyrir stöðu
liðsins nú, hver beri ábyrgðina.
Líta má á leikinn sem dæmisögu
með djúpar rætur í samfélaginu er
leiðir hugann að valdabaráttunni í
þjóðfélaginu. Búningsherbergið er
lokaður heimur, leikaramir skipta
um ham, afklæðast fyrri persónu-
leika og vígbúast til stríðs upp á líf
og dauða.
Framá var upphaflega sænskt leik-
rit. Það var síðan umskrifað fyrir
aðstæður ahar í Danmörku og þaðan
er það komið til Færeyja. Sýningin
fékk einróma lof í færeyskum blöð-
um. Leikarar eru tuttugu og einn.
Þjóðminjasafnið:
Fjaðraskúfar og fiskiklær
- Buffy Sainte-Marie syngur við opnun sýningar um menningu inúíta og indíána
Fjaðraskúfar og fiskiklær heitir
farandsýning sem verður opnuð í
Þjóðminjasafninu í dag kl. 17.15. Sýn-
ingin, sem fjallar um menningu inú-
íta, og indíána er hingað komin á
vegum Norrænu stofnunarinnar í
Nuuk í tilefni 10 ára afmælis heima-
stjómar á Grænlandi.
Sýningin er sett upp í tengslum við
námskeið í „shamanisma“ á vegum
norrænu leiklistarnefndarinnar.
Fjölmargir erlendir gestir verða við
opnun sýningarinnar. Þekktust er
áreiðanlega indíánasöngkonan Buffy
Sainte-Marie sem naut töluverðra
vinsælda um heim allan í kringum
1970 og ætlar hún að taka lagið fyrir
gesti. Aðrir indíánar, sem verða við-
staddir opnunina, em Ramona
Blackgoat af sioux ættflokknum, Ir-
on Shell og Norman Charies. Þá
verða þar saminn Ása Charles og
inúítinn Ehse Reimer, auk fleiri
góðra gesta.
Á undan opnuninni verður kvik-
myndin Koyaanisquatsi eftir God-
frey Reggio sýnd í Háskólabíói kl.
15.30. Þetta er heimildarmynd um
hopi indíánana og heimssýn þeirra.
Ættflokkur þessi telur að með hinu
háþróaða tæknisamfélagi sé heimur-
inn að fara úr böndunum. Kvik-
myndin verður aðeins sýnd í þetta
eina skipti og er öhum heimih ókeyp-
is aðgangur.
Sýningin í Þjóðmiujasafninu er
opin út ágústmánuð og aðgangur er
ókeypis.
Menning inúita og indíána er kynnt á farandsýningu sem verður opnuð í
Þjóðminjasafninu í dag.
Dómkirkjan á sunnudag:
Biskup settur
inn í embætti
Séra Olafur Skúlason, nýkjörinn
hiskup íslands, verður settur inn í
embætti við guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni á sunnudag kl. 10.30.
Athöfnin hefst með skrúðfylkingu
presta frá Alþingishúsinu og verða
flestir prestar landsins viðstaddir.
Við guðsþjónustuna mun kór Bú-
staðakirkju, undir stjóm Guðna Þ.
Guðmundssonar, fmmilytja verk
eftir Jón Ásgeirsson sem hann til-
einkar nýjum biskupi íslands og er
við 33. vers í 119. sálmi Davíðs. Dóm-
kórinn og Marteinn H. Friðriksson
dómorganisti annast annan tónhst-
arflutning við guðsþjónustuna.
Herra Pétur Sigurgeirsson annast
altarisþjónustu ásamt Ólafi biskupi,
sr. Hjalta Guðmundssyni dómkirkju-
presti og sr. Jóni Einarssyni pró-
fasti. Ritningarlestur annast sr. Auð-
ur Eir Vhhjálmsdóttir, sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson dómprófastur og sr.
Sigurður Guðmundsson vígslubisk-
up.
Allmargir erlendir gestir verða við
athöfnina í Dómkirkjunni á sunnu-
dag, biskupar frá Norðurlandakirkj-
unum, fulltrúar frá Alkirkjuráðinu,
Lúterska heimssambandinu, Lút-
ersku kirkjunni í Vesturheimi og
erkibiskupnum í Kantaraborg. Þá
kemur hingað forseti Mekane Yesus
kirkjunnar í Eþíópíu þar sem íslend-
Séra Ólafur Skúlason, nýkjörinn
biskup íslands, verður settur inn í
embætti við guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni á sunnudagsmorgun.
ingar hafa stundað kristniboð um
áratuga skeið.
Síðdegis á sunnudag verður bisk-
upshjónurium Ebbu Sigurðardóttur
og Ólafi Skúlasyni fagnað með hátið-
artónleikum í Hallgrímskirkju og
heflast þeir kl. 16.
Hvanneyri:
Afmælishátíð
um helgina
Bændaskóhnn á Hvanneyri heldur
upp á eitt hundrað ara afmæli sitt a
þessu ári og í thefni þessara merku
tímamóta verður haldin þar hátíð á
laugardag.
Hátíðahöldin hefjast kl. 13.30 þar
sem skólanum verða fluttar kveðjur.
Heiðursgestur samkomunnar verður
forseti íslands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir. Um miðjan dag verður boðið
upp á kaffiveitingar. Gestum býðst
einnig að ganga um staðinn og skoða
hús og híbýli. Um kvöldið verður síð-
an efnt th kvöldvöku, þar sem eink-
um verður slegið á hina léttari
strengi. Þar mun koma fram margt
hæfheikafólk úr hópi eldri og yngri
Hvanneyringa. Að gömlum og góð-
um sið verður væntanlega dregin
upp harmóníka og hún þanin eitt-
hvað fram eftir kvöldi.
Það var á krossmessu vorið 1889
sem fyrsti nemandinn kom aö
Hvanneyri til náms í búvísindum.
Skóhnn hét reyndar þá Búnaðarskóli
Suðuramtsins. Síðan hafa nálega
Hvanneyringar fyrr og nú ætla að
halda upp á eitt hundrað ára af-
mæli skólans á laugardag.
þrjú þúsund manns stundað nám við
skólann.
Hvanneyrarskóli er nú meðal
þeirra flmm framhaldsskóla landsins
sem eiga lengstan óshtinn starfsferh
að baki.
Veitingahús vikunnan
Naust
-sjábls. 18
Fornbflar
í Höllinni
-sjábls. 19