Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1989, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1989, Blaðsíða 1
Nýr Prairie kominn Fyrir nokkrum árum, nánar tiltek- iö í kringum bílasýninguna stóru, Auto ’84, kom í fyrsta sinn hingað til lands nýr bíll frá Nissan: Prairie. Fáum árum seinna kom þessi sami bíll í fj órhj óladrifsútgáfu. Hann seld- ist að vísu kannski ekki nógu vel en þeir sem keyptu kunna ákaflega vel við bílinn og segja að það eina sem vanti sé lága drifið, annars uppfylh bílhnn allar ,jeppaþarfir“ venju- legra notenda. Á síðasta ári kom á Evrópumarkað ný og endurbætt gerð af Prairie, bæði með og án fjórhjóladrifs. Þessi nýja gerð er enn meiri fólksbíli en áður en aö sama skapi vandaðri. Nú er þessi nýi Prairie kominn hingað tfi lands og fyrir þá áhuga- sömu er bUlinn tU sýnis í nýjum aðal- stöðvum Ingvars Helgasonar hf. við Sævarhöfðann sem formlega voru teknar í notkun um síðustu helgi. Nissan Prairie SLX 4WD er með tveggja lítra vél, 4,36 m að lengd og kostar um 1.480 þúsund krónur í þeirri útfærslu sem er tU sýnis hjá umboðinu. -JR Hulunni svipt af BMW 850i - bls. 33 Öryggisbeltin þrjátíu ára - bls. 32 Komdu og prófaðu nýjusfu bílana! BMW Touring og Renault 19 Sýningunni á BMW Touring og Renault 19 veröur framhaldiö í dag til klukkan 17. Þér gefst tækifæri til reynsluaksturs og viöræöna viö sölumenn um hagstæö skiptikjör og viðráðanlega skilmála. Kynningarverð á Renault 19 verður óbreytt þrátt fyrir gengisbreytingu. Renault 19 kostar frá kr. 799.399 — án ryövarnar og skráningar. Veriö velkomin í reynsluakstur. Opiö í dag frá kl. 13—17. Bilaumboðið hf Krókhálsi 1, sími 686633, Reykjavik. RENAULT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.