Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1989, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1989, Page 1
Skoðunarferðir á sjó t Haldið verður áfram skoðunar- ferðum þeim á sjó sem byrjað var að fara milli páska og hvítasunnu í vor á vegum Náttúruvemdarfé- lags Suð-Vesturlands og Eyjaferða. Megináhersla var lögð á að kynna lífríkið í sjónum og áhrif vorkom- unnar á það en staðháttum og sög- unni voru jafnhliða gerð skil og útsýnisins notið af sjó. Skipulagi ferðanna nú verður ht- ið breytt en fitjað upp á nýjungum. Ferðimar skiptast í blandaðar náttúruskoðunar- og söguferðir um firði, út í eyjar og meðfram strönd- inni og í sérhæfðar náttúruskoðun- arferðir, söguferðir og ferðir þar sem siglingaleiðir og sighngatæki Hafrúnar verða kynnt sérstaklega. Ýmislegt verður gert til að gefa ferðunum gildi, til dæmis verða gerðar ýmsar mæhngar og athug- anir sem fólk getur tekið þátt í. Farið verður frá Grófarbryggju og er öhum heimil þátttaka í ferðun- um. Fyrstu ferðirnar verða á sunnu- daginn. Kl. 10 verður farið í nátt- úruskoðunarferð um sundin og að öllum eyjunum í Kohafirði. Gerðar verða ýmsar mælingar, botndýralíf skoðað með botnsköfu, skoðað verður í krabba- og fiskigildrur og fjallað um haustkomuna í sjónum. Fargjald er 1100 kr. og ferðin tekur um eina og hálfa klukkustund og leiðsögumaður er Konráð Þórisson sjávarlíffræðingur. Næsta ferð verður kl. 14, Skerja- fjarðarferð. Siglt verður fyrir Gróttu og Suðurnes og inn á Seil- una, Arnamesvog, Kópavog og Fossvog. Þetta verður söguferð en jafnframt skemmtileg útsýnisferð. Fargjald er 1300 kr. Ferðin tekur um tvo klukkutíma og er leiðsögu- maður Páh Líndal. Kl. 17 verður farin náttúruskoðunar- og söguferð út í Engey. Slysavamadeildin Ing- ólfur mun annast flutninginn á fólki á miUi báts og eyjar. Gengið verður um eyjuna en hún er rík af mannvistar- og náttúruminjum. TU dæmis er á eyjunni að fmna mjög fallega stuðlað grágrýtis- kirkjugólf). Ferðin tekur tvo klukkutíma og kostar 800 kr. Um kvöldið kl. 21 verður boðið upp á nýja ferð, siglingu um sundin blá í tunglsljósi. Ferðin tekur um klukkutíma og er fargjald 800 kr. Frítt er í ferðimar fyrir börn sjö ára og yngri, hálft gjald fyrir átta til tólf ára í fylgd með fuUorðnum. -HK Meðal sögustaða, sem skoðaðir verða á sunnudaginn, er Engey. Fylkir og Víkingur berjast hatrammri baráttu um veru sína í 1. deild. Myndin er úr leik þessara liða á dögunum. Baldur Bjarnason og Hallsteinn Arnarson berjast um knöttinn. Spennan eykst í 1. deildinni í knattspymu: Leysist úr flækjunni Regnboginn: Gömul meistaraverk kvikmyndasögunnar Sjaldan eða aldrei hefur 1. deildin verið jafnspennandi og nú. Næstsíð- asta umferð fer fram um helgina og er óhætt að segja að allt sé í hnút í efri kantinum sem og þeim neðri. Kannski leysist úr flækjunni. Hver verður íslandsmeistari og hvaða hð falla í 2. deUd? Svo gæti einnig farið að spenningurinn ykist aðeins í næstsíðustu umferðinni og að það kæmi ekki í ljós fyrr en í siðustu umferð hver verður íslandsmeistari og hvaða tvö lið verða að leika í 2. deUd að ári. Sjá aUt um leiki helg- arinnar á bls. 23. í Regnboganum stendur yfir sýn- ing gamaUa kvikmynda. Kvikmyndir þessar tUheyra farandsýningu á gömlum meistaraverkum sem send er út um heim í tUefni af 50 ára af- mæh alþjóðasamtaka kvikmynda- safna. Hér er um að ræða tíu kvik- myndir sem kvikmyndasöfn hafa bjargað frá eyðUeggingu og endur- • gert. Sýningar á myndunum hófust á miðvikudag og verður framhaldið tU þriðjudags. Gefst kvikmyndaunn- endun einstakt tækifæri tU að sjá ýmis srúlldarverk aht frá upphafi kvikmyndasögunnar. Við endurgerð myndanna hefur verið leitast við að ganga frá þeim sem næst upphaflegri gerð. í sumum tilfellum eru tU dæm- is svart/hvítar myndir Utaðar, eins og algengt var snemma á öldinni. Þekktustu kvikmyndirnar, sem sýndar verða, eru Eroktikon, sem Mauritz Stiher leikstýrði árið 1922, og Lost Horizon, sem Frank Capra leikstýrði árið 1937, með Ronald Coleman í aðalhlutverki. Lost Horiz- on er gerð eftir samnefndri sögu James HUton og gerist á tímum ind- versku uppreisnarinnar gegn Bret- um. Eroktikon fjaUar um prófessor í skordýrafræði, sem er mjög upptek- inn af starfi sínu, og vanrækta konu hans sem leitar sér huggunar annars staðar. Mynd þessi hafði víðtæk áhrif á kvikmyndagerðarmenn sem fylgdu í kjölfarið, eins og Jean Renoir, Char- les Chaplin og Ernst Lubitsch. Lost Horizon veröur sýnd á mánudag kl. 19.15 og Eroktikon á sunnudag kl. 23.15. Aðrar myndir eru Morðið á greif- anum af Guise (L’assassinat du duc de Guise) sem var gerð 1908 og til- heyrir þeirri kvikmyndastefnu sem kölluð hefur verið Film d’art. Þrátt fyrir tæknilega galla og ýmsa ann- marka er mynd þessi flokkuð sem meistaraverk þessarar stefnu. Síðasta árás indíánanna (E1 uitimo malon) er argentísk kvikmynd frá 1917. Þetta er leikin heimildarmynd sem lýsir árás indíána á þorp árið 1904. Enginn atvinnuleikari leikur í myndinni. Saman eru sýndar kanadíska kvik- myndin Aftur til lands guðs (Back to God’s Country), sem er frá 1919, og nýsjálenska kvikmyndin Myndir úr lífi Maóra á austurströndinni, sem er heimildarmynd um líf og störf maóra á austurströnd Nýja Sjálands. Mynd þessi var gerð 1923. Acto de Primav.era er portúgölsk kvikmynd frá 1963. Hún er að hluta til byggð á 17. aldar leikriti um píslar- sögu Krists og að hluta á fréttamynd- um samtímans. Rauði hálfmáninn (Az Arnayem- ber) er ungverk kvikmynd frá 1919 sem Alexander Korda, hinn þekkti leikstjóri, stýrði. Hin gömlu lög (Das alte Gesetz) er þýsk kvikmynd frá 1923, leikstýrt af E. A. Dupont. Hún fjallar um rabb- ínasoninn Baruch sem fer að heiman til að gerast leikari gegn vilja fóður síns. Skósmiður þorpsins (Nummisuut- arii) er finnsk kvikmynd frá árinu 1923 og fjallar um piparsveininn Esko sem fær ekki stúlkuna sem hann elskar. Kvikmyndir þessar, sem flestar eru þöglar, hafa mikið sögulegt gildi fyr- ir kvikmyndagerð þeirra þjóða, sem þær koma frá, og því er þetta kjörið tækifæri fyrir kvikmyndaáhuga- menn til að sjá myndir sem óvíst er aðverðisýndarafturhér. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.