Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1989, Qupperneq 6
22
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989.
Kvikmyndir - Kvikmyndir
Bíóborgin og Bíóhöllin:
Batman
Þá er komið að frumsýningu á
vinsælustu kvikmynd ársins og
þeirri kvikmynd sem á kannski eft-
ir að verða vinsælasta kvikmynd
allra tíma ef fram heldur sem horf-
ir því í Bandaríkjunum hefur hún
slegið öll aðsóknarmet þá tæpa þrjá
mánuði sem hún hefur verið sýnd.
Myndin er, eins og flestum ætti
að vera kunnugt, byggð á þekktri
teiknimyndafígúru. Myndin gerist
í Gothamborg. Þar ræður glæpa-
lýður lögum og lofum og er ekki
hollt fyrir heiðarlegan mann að
eiga heima þar. Þegar allir eru að
gefast upp við að reyna að stíUa til
friðar í borginni fara fíölmiðlar að
tala um veru eina sem sést á ferli
á hinum ólíklegustu stöðum. Vegna
klæðaburðarins er henni gefið
nafnið Batman eða leðurblöku-
maðurinn. Fer það svo að þessi
dularfulla vera fer að gera glæpa-
mönnunum erfitt fyrir.
Það er Michael Keaton er leikur
Batman. Keaton, sem er þekktari
sem gamanleikari, bregður sér í
hetjuhiutverkið án fyrirhafnar.
Það sem aftur á mótí hefur vakið
hvað mesta athygli og á sjálfsagt
einhvem þátt í hinum ótnilegu
vinsældum myndarinnar er að
Jack Nicholson leikur skúrkinn
Jack Napier eða gámngann eins
og hann er kallaður vegna útlits
síns. Það er svo þokkagyðjan Kim
Basinger sem leikur ljósmyndar-
ann fagra, Vicki Vale.
Þess má geta að lokum að ísland
er þriðja landið þar sem myndin
er sýnd. Hún hefur enn sem komið
er aðeins verið sýnd í Bandaríkjun-
um og Englandi.
-HK
Jack Nicholson leikur skúrkinn í Batman. Er hann kallaður gárunginn
(Joker) vegna útlits síns.
Cohen &
Tate
Cohen & Tate er sakamálamynd
með Roy Scheider í aðalhlutverki.
Leikur hann atvinnumorðingja
sem búinn er að starfa í faginu í
þijátíu ár án þess að mistakast.
Hann er ekki hrifinn af nýjum að-
stoðarmanni sem hann fær til að-
stoða við verkefni. Saman em þeir
sendir til að drepa fjölskyldu eina
sem fer huldu höfði fyrir glæpa-
samtökunum. Þeim tekst ætlunar-
verk sitt þótt fjölskyldunnar sé vel
gætt af FBI mönnum.
Einn drengur lifir árásina af og
taka atvinnumorðingjamir hann
með sér. Það sem þeir reiknuöu
ekki með var að drengurinn er
hinn kjaftforasti og stendur uppi í
hárinu á þeim...
Roy Scheider leikur Cohen. Ad-
am Baldwin leikur aftur á mótí
Tate. Vaktí hann fyrst athygli fyrir
leik sinn í mynd Stanleys Kubrick,
Full Metal Jacket. -HK
Cohen og Tate (Roy Scheider og Adam Baldwin) ásamt drengum Tra-
vis (Harley Cross) sem þeir ræna.
Michael Keaton leikur Batman og Kim Basinger þokkagyðjuna Vicki Vale.
Laugarásbíó:
Sýningar
Art-Hún,
Stangarhyl 7,
Reykjavík
Að Stangarhyl 7 eru sýningarsalur og
vinnustofur. Þar eru til sýnis og sölu olíu-
málverk, pastelmyndir, grafík og ýmsir
leirmunir eftir myndlistarmennina Erlu
B. Axelsdóttur, Helgu Ármanns, Elín-
borgu Guðmundsdóttur, Margréti
Salome Gunnarsdóttur og Sigrúnu
Gunnarsdóttur. Opið aiia virka daga kl.
13-18.
Árbæjarsafn,
simi 84412
Opið kl. 10-18 alla daga nema mánudaga.
Leiðsögn um safiúð laugardaga og
sunnudaga kl. 15. Veitingar í Diilonshúsi.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Þar eru til sýnis 24 landslagsmyndir,
bæði olíumálverk og vatnslitamyndir,
eftir Ásgrím. Sýningin stendur til sept-
emberloka og er opið aiia daga nema
mánudaga kl. 13.30-16.
Ásmundarsalur,
Freyjugötu 41, sími 14055.
Gígja Baldursdóttir sýnir í Ásmundarsal.
Myndirnar á sýningunni eru málaðar
með akrýllitum á pappír og eru gerðar á
árunum 1988-1989. Sýningin verður opin
virka daga kl. 16-20, um helgar frá kl.
14-20, og lýkur sunnudaginn 10. septemb-
er.
Djúpið,
Hafnarstræti 15
Ulla Hosford sýnir textílverk. Sýningin
er opin alla daga frá kl. 11-23.30.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6
Tveir á ferð nefhist sýning þeirra feðgina
Margrétar Jónsdóttur og Jóns Benedikts-
sonar sem opnuð verður á morgun kl. 16.
Margrét sýnir olíumálverk og Jón sýnir
höggmyndir unnar í eir. Sýningin stend-
ur til 26. september.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
Jón Jóhannsson sýnir verk sín í Galierí
Borg. Á sýningunni eru glerverk sem öll
eru til sölu. Þetta er fyrsta einkasýning
Jóns hérlendis en hann h,efur tekið þátt
í sýningum í Bandaríkjuniun, Englandi
og Þýskalandi. Sýningin er opin virka
daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18.
Sýningunni lýkur 19. september. í Graf-
ík-gallerí Borg, Austurstræti 10, er mikið
úrval af grafík og keramiki, einnig olíu-
verk eftir yngri kynslóðina í stækkuðu
sýningarrými. Grafik-galleríiö er opið
virka daga kl. 10-18.
Kjarvalsstaðir
Ljósmyndasýning Ysuf Karsh hefur verið
fi-amlengd tÚ 10. sept. vegna mikiilar að-
sóknar.
Listamannahúsið,
Hafnarstræti 4
Dagur Sigurðarson sýnir þrjátíu mynd-
verk sem hann hefur málað hérlendis og
erlendis imdanfarin ár. Sýningin er opin
alla daga kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla daga kl. 13.30-16 nema mánu-
daga. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Hafnarborg,
menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar
Aðalheiður Skaiphéðinsdóttir sýnir 38
verk, teikningar og grafík, en hún rekur
eigið grafik- og textílverkstæði að Suður-
götu 45, Hafnarfirði. Sýningin stendur til
10. september og er opin kl. 14-19 alla
daga nema þriðjudaga. Þá stendur einnig
yfir í Hafiiarborg sýning á oliumálverk-
um, svartlist og listmunum frá Moldavíu.
Katel,
Laugavegi 20b
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eför innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafik og leir-
munir.
Sýning í Odda,
nýja hugvisindahúsinu,
er opin daglega kl. 13.30-17. Þar eru til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðaUega
eftír yngri listamenn þjóðarinnar. Að-
gangur að safiúnu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Leiðsögnin Mynd mánaðarins fer fram í
fylgd sérfræðings á fimmtudögum kl.
13.30-13.45. Safnast er saman í anddyri
safnsins og er leiðsögnin öllum opin og
ókeypis.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar,
Laugarnestanga 70
Ákveðið hefur verið að framlengja sýn-
ingu Kristjáns Davíðssonar til septemb-
erloka. Frá 1. september er safhið opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-7 og öU
þriðjudagskvöld kl. 20-22. Kaffistofan er
opin á sama tíma.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Davíð Þorsteinsson sýnir 30 svarthvítar
Ijósmyndir á Mokkakaffi. Myndimar eru
úr borgarlandslagi og sýna mótíf eins og
tré, glugga, múrveggi og mannfólk. Flest-
ar eru teknar á sl. fjórum árum í gamla
bænum í Reykjavík og nokkrar á ferða-
lögum í Skotlandi og Frakklandi. Sýning-
in stendur til 28. september.
Norræna húsið
v/Hringbraut
í anddyri Norræna hússins stendur yfir
sýning á ljósmyndum sem Nanna Bisp
Buchert hefúr tekið. Á sýningunni eru
28 myndir sem skiptast í fjórar myndrað-
ir, flestar í svart-hvítu og teknar hér á
landi. Sýningin stendur til 24. september
og er opin daglega kl. 9-19 nema sunnu-
daga kl. 12-19. I kjaUara hússins sýnir
Elías B. HaUdórsson málverk. Á sýning-
unrú eru rúmlega 40 myndir, unnar í olíu
og er hún opin daglega kl. 14-19 fram til
17. september.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Hörður Ágústsson sýnir portrett frá Par-
ís, teikningar imnar á árunum 1947^49.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10-18 og um helgar kl.
14-18. Henni lýkur 13. september.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8,
Hafnarfirði, s. 52502
Fundur Ameríku nefnist sýning i Sjó-
minjasafni íslands. Sýrúngin er tvískipt.
Annars vegar er sýning um ferðir nor-
rænna manna tíl Ámeriku og fund Vín-
lands um 1000. Hins vegar er um að ræða
farandsýningu frá ítalska menntamála-
ráðuneytinu um Kristófer Kólumbus og
ferðir hans fyrir um 500 árum. Sýningin
er opin alla daga nema mánudaga kl.
14-18.
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
í SPRON, útibúinu Álfabakka 14, Reykja-
vík sýnir Ragnheiöur Jónsdóttir myndir.
Sýningin stendur til 10. nóvember nk. og
er opin frá mánudegi tU fimmtudags frá
kl. 9.15-16 og fóstudaga frá kl. 9.15-18.
Sýningin er sölusýning.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Stofhunar Áma Magn-
ússonar er í Ámagarði við Suðurgötu á
þriðjudögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 14-16.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriöjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar,
Hverfisgötu
Þar em tíl sýrús og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-16.
Myntsafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, s. 24162
Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar.
Slunkaríki,
Aðalstræti 22,
fsafirði
Sýning á ljósmyndaverkum Arthurs Bell.
Árthur Bell er Bandaríkjamaður og
stundaði nám í ljósmyndun við listahá-
skóla Chicagoborgar. Hann hefur sýnt
myndir sínar víða í Bandaríkjunum og
Mið-Ameríku en sýningin í Slunkaríki
er sú fyrsta héma megin Atlantshafs.
Sýningin stendur til 17. september og er
opin fimmtudaga-sunnudaga kl. 16-18.