Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1989, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1989, Síða 8
24 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989. Fátt ber til tíðinda þessa vikuna á á vinsældalistanum. Young Guns og Big Business halda efstu sætun- um en The Presido þrýstir á, fer úr fimmta sætinu í það þriðja. Tvær myndir, sem hafa verið þaul- sætnar á listanum undanfarna mánuði, Big og Midnight Run, kíkja aftur inn á listann en út fara The Tenth Man og Poltergeist II sem gerðu stuttan stans. Nokkrar myndir eru væntanlegar sem ör- ugglega eiga eftir að koma við sögu, má þar nefna A Fish Called Wanda, The Accused og Arthur II Ef litið er á skiptingu mynda á listanum kemur í ljós að fimm gam- anmyndir eru á listanum, þrjár sakamálamyndir, einn vestri og eitt drama. DV-LISTINN 1. (1) Young Guns 2. (2) Big Business 3. (5) The Presido 4. (3) Masquerade 5. (4) Stand and Deliver 6. (6) Caddysack il 7. (8) D.O.A. 8. (-) Big 9. (7) Moving 10. (-) Midnight Run Hættulegir unglingar KANSAS Útgefandi: Skífan Leikstjóri: David Stevens. Framleiöandi: George Litto. Handrit: Spencer East- man. Aðalhlutverk: Matt Dilon og Andrew McCarty. Bandarisk 1988. 110 min. Bönnuð yngri en 16 ára. Hin mjög svo forvitnilega per- sóna, „hinn reiði ungi maður*', sem áður fyrr fékk snilldarlega með- höndlun hjá mönnum eins og Brando og Dean, hefur þróast yfir í fremur leiðinlegan ungling. - Ungling sem þvælist um öllum til ama og hefur enga skírskotun til þess þjóðfélags sem við lifum í. Þannig unglingamyndir (sem eru reyndar varla unglingamyndir) eru sífellt að berast hingað enda svo mikið af ungum og „efnileg- um“ leikurum sem þurfa að fá að sýna sig. Hér eru tveir slíkir piltar á ferð. Þeir leika tvo unga menn sem hitt- ast fyrir tilviljun á stefnulausu ferðalagi. í fyrstu vingast piltamir og virðast eiga samleið. Þegar þeir koma síðan á heimaslóðir annars þeirra hefjast átökin sem í lokin snúast í uppgjör þeirra í milii. Þrátt fyrir fremur tómlega per- MATT ' Dinor »■■* ANDREW V McCARTHY W . ? IM |V> A‘ SLÖCSDHTEZH v »■ iM Íí c ^ SkÍF-AN frryrW:»tkK> *teWIUil*Tir«*l»«- , ujiíUvrjw.. fHii VftWií.e .■ K«íi VM* :«• • w ., i« • >•■• *«» w»í tmie otsu ».««.•» —«*<jm i m •»:. y 5í.io «Wí(IÍÍM:xt >»ATStt x-.rmwi Ittfi sónusköpun og klisjukennt handrit þá næst upp þokkaleg spenna á köflum, aðallega fyrir tilstfili kraft- mikillar atburðarásar. Þrátt fyrir að undirritaöur hafi fremur lítið álit á Dillon þá tekst honum þokka- lega upp hér í hlutverki brjálæð- ingsins. Þó er engin leið að skilja framferði hans - það er eitthvað sem á sér ytri orsakir. McCarty er á hægari nótum en virkar sem ágætis andsvar við ofstopanum í Dillon. -SMJ Erfiðleikar unglingsáranna SAGA CHARLIES CHAPLIN Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Baz Tayior. Aðalhlutverk: Joe Geary, Twiggy, lan McShane og Lee Whitlock. Bresk, 1989 - sýningartimi 162 min. Leyfð öllum aldurshópum. Hinn þekkti leikari og leikstjóri Richard Attenborough vinnur nú af fullum krafti við að undirbúa kvikmynd um ævi þekktasta gam- an leikara kvikmyndasögunnar, Charlies Chaþlin. Það hlýtur að valda honum mörgum andvöku- nóttum hver eigi að leika snilling- inn því eitt er víst ef ekki tekst vel með hlutverkavalið þá mistekst kvikmyndin. Þetta er vandmál sem aðstand- endur Sögu Charlies Chaplin hafa örugglega lent í en þó skiptir hlut- verkavalið ekki eins miklu máli og í mynd Attenborough þar sem ein- göngu er fjallað um unglingsár Chaplins. Samt er það svo að maður á erf- itt með að sætta sig við hinn unga leikara Joe Geary í hlutverki Chaplins. Leikur hans er að vísu til fyrirmyndar, sérstaklega sam- skipti hans við fóður og móður, en þegar hann er kominn upp á svið og gamanleikarinn tekur við, vant- ar hann þessa fínu takta og þann einstaka leik sem gerði Chaplin að þeim snillingi sem hann varð. Æska Chaplins var enginn dans á rósum. Faðir hans var hæfileika- mikill gamanvísnasöngvari sem drakk frá sér allt vit og gat aldrei séð sómasamlega fyrir fjölskyldu sinni. Móðir hans þoldi ekki álagið sem því fylgdi að vera fátækur á þessum árum og var hvað eftir annað sett á geðveikrahæli. Það kom því í hlut Charlies og eldri bróður hans, Sidneys, að sjá að miklu leyti um sig sjálfir. Og það gerðu þeir á þann eina hátt sem þeir kunnu og höfðu lært af foður sínum, að koma fram á sviði. Saga Charlies Chaplin endar þeg- ar leiðir þeirra bræðra skilja að sinni. Sidney tekur við rekstri leik- húss en Charíie fer með leikflokki Fred Kamos til Bandaríkjanna. Þar var einnig annar ungur og efn- ilegur gamanleikari innanborðs sem átti eftir að skrá nafn sitt á' spjöld sögunnar, Stan Laurel. Saga Charlies XhapUn er bæði skemmtileg og hugljúf kvikmynd. Litið er raunsæjum augum á æsku ChapUns og vandamál þau sem for- eldrar hans áttu við að stríða. Ian McShane er virkilega góður í hlut- verki íöður Chaplins, ávallt drukk- inn en fullur af falskri bjartsýni og hann á auðvelt með að öðlast fyrir- gefningu sona sinna. Twiggy hefur útUtið með sér. Virkar brothætt og aumkunarverð, en skortir dýpt í leik. Áður hefur verið minnst á Joe Geary sem veldur hlutverkinu upp að vissu marki en hann er enginn CharUe ChapUn. -HK Hinn ómögulegi njósnari THE IMPOSSIBLE SPY Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Jacinta Peel. Handrit: Marthy Ross. Aðalhlutverk: John Shea, Eli Wallace. Framleiðendur: Graham Mas- ey og David Goldstein. Bandarisk 1987. 96 mín. 'fhc ln«.- su»r; of the ukiautc uttiknww «p«r: Hér á síðunni hefur áður verið nefnt að svo virðist sem ísraelska leyniþjónustan Mossad sé óvenju dugleg við kvikmyndagerð. Þessi mynd rennir .stoðum undir þá kenningu. Hér er á ferðinni njósnasaga úr hinni eilífu styrjöld araba og gyð- inga. Gyðingarnir eru góðu gæ- jarnir og aðalhetjan er ísraelskur njósnari sem tekst að smygla sér í innsta hring meðal Sýrlendinga. Þaðan tekst honum að koma skila- boðum til ísraels sem hafa úrslita- þýðingu í styrjöld. Njósnasögur eru vandmeðfarnar því til að þær gangi upp þarf sögu- þráöurinn að vera nokkuð skot- heldur og unnin af einhverjum frumleik. Því er ekki til að dreifa hér. Fyrir það fyrsta er aðalpersón- an ákaflega óspennandi og leikin á fullkomlega litlausan hátt af Shea. Hin gamli refur, Wallace, gefur smálíf í persónu yfirmanns leyni- þjónustunnar en hefur ekki úr miklu að moða frá handritshöf- undi. Þó að sviðsmynd og umgjörð myndarinnar sé nokkuð samvisku- samlega unnin verður heildar- myndin bara ósköp litlaus. -SMJ ★★ M1 Morð í glansborginni GLITZ Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Sandor Stern. Aðalhlutverk: Jimmy Smits, Markie Post og John Diehl. Bandarísk, 1988-sýningartími 95 mín. Elmore Leonard er einn allra besti sakamálarithöfundur nútím- ans. Hann hefur í sögum sínum skapað „hetjur" sem eru ólíkar mörgum öðrum þekktum söguper- sónum. Ekki get ég ímyndað mér að Leonard sé ánægður með Jimmy Smits er leikur Vincent Mora í Glitz, því haxm er í raun ekki mjög líkur fyrirmyndinni, dæmigerður sjónvarpsleikari frá Hollywood sem er þekktastur fyrir leik sinn í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Lagakrókar (L.A. Law). í andfit hans. vantar alveg þá hörku og lífs- reynslu sem sögupersónur Leon- ard búa yfir. BYSQT A SAMNEFNDIU METSÖLUBÖK $EM FiALLAR UM HEIM >AH 8EM MAMNFTRLRUTNINQ, MISKUNNARLAUS Vel hefur aftur á móti tekist að skipa í önnur hlutverk í myndinni. Sérstaklega er John Diel góður í hlutverki fangans sem telur að Mora eigi sök á öllum sínum vanda. Smits leikur lögreglumanninn Mora sem er í fríi á Bahamaeyjum eftir að hafa særst í skotbardaga. Þar kynnist hann Lindu sem sér gull og græna skóga þegar henni er boðið fyrirsætustarf í Atlantic City. Hún fer þangað þrátt fyrir aðvaranir Mora. Þegar hann fær svo tilkynningu um að hún hafi framið sjálfsmorð þýtur hann til Atlantic City, veit sem rétt er að sjálfsmorð kemur ekki til greina. Eins og svo margar sjónvarps- kvikmyndir heldur myndin manni við efnið, er hröð og spennandi en skilur ósköp lítið eftir þegar upp er staðiö. -HK Flótti úr heimsstyrjöld THE GREAT ESCAPE II Útgefandi: Skífan. Leikstjórar: Paul Wendkos og Jud Tayl- or. Handrit: Walter Halsey Davis. Aðal- hlutverk: Christopher Reeve, Judd Hirsch, Anthony Denison, Michael Nad- er, Charles Haid, lan McShane og Don- ald Pleasence. Bandarisk 1989.2x91 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Það er ágætistími nú að rifja upp seinni heimsstyrjöldina en nú eru sem kunnugt er 50 ár liðin frá fyrsta skotinu. Fáir ef nokkrir at- burðir heimssögunnar hafa fengið jafnmikla umfjöllun í kvikmynd- um eða sjónvarpi. Hér er það fangabúðaafbrigðið en myndin segir frá flóttatilraunum hermanna bandamanna úr þýsk- um fangelsum. Mikil flótti er und- irbúinn og margir komast undan. Þjóðverjar bregðast æfir við og hefna grimmilega. Seinni hlutinn fer síðan í að segja frá uppgjörinu við Þjóðverja eftir stríð. Lopinn er teygður þokkalega mikið hér og frásögnin ekkert sér- lega beinskeytt. Efnismeðferð er kunnugleg og frumleika haldið í hófi. Frásögnin er þó þokkalega trúverðug og bærilegt leikaralið (fyrir utan Súperman) gerir það að verkum að þessi þáttaröð verður nokkumveginn áhorfanleg. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.