Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1990, Page 3
EÖSTUDAGUR 26.- JÁNÚAR "1990. '
Dans-
staðir
Ártún,
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir fóstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljómsveitin Danssporið leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Bjórhöllin,
Gerðubergi 1
Opið öll kvöld frá kl. 18-1 og um helg-
ar til kl. 3. Li£andi músík fimmtu-
dags-, föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Casablanca,
Skúlagötu 30
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Danshöllin,
Brautarholti 22, s. 23333
„Þjóðbjörg og Doddi bregða fyrir sig
betri fætinum“ sýnt laugardags-
kvöld. Klakabandið frá Ólafsvík leik-
ur fyrir dansi fóstudags- og laugar-
dagskvöld á annarri hæðinni. Lúdó
og Stefán leika fyrir dansi í Mánasal
á fóstudagskvöld.
Duus-hús,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Fjörðurinn,
Strandgötu 30, sími 50249
Hljómsveit leikur fyrir dansi á fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
Danshúsið Glæsibær,
Álfheimum, sími 686220
Danshljómsveitin leikur fyrir dansi
fóstudags- og laugardagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavík
Hin góðkunna hljómsveit Ðe Lónli
Blú Bojs leikur fyrir dansi fóstudags-
og laugardagskvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavik, sími
11440
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld. Borgarkráin er opin til kl. 24
báða dagana. Gömlu dansarnir meö
hljómsveit Jóns Sigurðssonar á
sunnudagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, simi
82200
Dansleikir fóstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Opið frá kl.
19-1.
Hótel ísland,
Ármúla 9, sími 687111
Söngskemmtunin „Rokkóperur“ á
laugardagskvöld. Hljómsveitin
Stjómin leikur fyrir dansi fóstudags-
og laugardagskvöld. Á Café fsland-
spilar Kvartett Tómasar R. Einars-
sonar á laugardagskvöld.
Hótel Saga
Á laugardagskvöldið verður fmm-
sýnd skemmtidagskráin „Skemmti-
sighng á þurru landi" í Súlnasal.
Nokkrir af fremstu skemmtikröftum
landsins hrífa gesti með sér í bráð-
hressandi skemmtun. Hljómsveitin
Einsdæmi leikur fyrir dansi.
Keisarinn
v/Hlemmtorg
Diskótek föstdags- og laugardags-
kvöld.
Sportklúbburinn,
Borgartúni 22
Hljómsveitin Hvísl leikur á neðri hæð
um helgina. Á 3. hæðinni er lokað
vegna einkasamkvæmis á föstudags-
kvöld en hljómsveitin Rósin leikur
fyrir dansi á laugardagskvöld og Þor-
steinn Eggertsson kemur fram og
rokkar. Frítt inn.
Staupasteinn,
Smiðjuvegi 14D, s. 670347
Hljómsveit leikur fyrir dansi fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
Tunglið og Bíókjallarinn,
Lækjargötu 2, sími 621625
Diskótek fostudags- og laugardags-
kvöld.
Ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Hljóm-
sveitin Hrím leikur um helgina.
• .......................-.........--19-
» -v ' ■ f *■ i ■ • í 1 • í * K - ♦ •• » '• £ í . t « 1 >» 5 i * 3 'W ' . • ■
Angus Rollo
skemmtir
Á veitingahúsinu Fógetanum
skemmtir þessa dagana skoskur
skemmtikraftur, Angus Rollo.
Angus Rollo er mjög fjölhæfur
skemmtikraftur. Hann syngur,
gamnar sér viö áhorfendur og held-
ur uppi góðri stemningu.
Kvartett Kristjáns Magnússonar.
Hótel Saga - Ómladí, Ómlada:
Skemmtisigling
á þurru landi
Hótel Saga kveður skammdegis-
drungann eftirminnilega í kútinn
með splunkunýrri skemmtidag-
skrá í Súlnasal. Það eru hinir
landsþekktu grínarar Ómar Ragn-
arsson og Þórhallur Sigursson,
Laddi, sem bjóða gestum í hressa
„sjóferð" þar sem stefnan er tekin
á stanslaust fjör og haldið rakleitt
suður til „Horrimolinos“.
Skipstjóri er grínfræðingurinn
Halli og Ómar og Laddi bregða sér
í allra sjókvikinda líki. Meðal far-
þega eru gleðimennirnir Eddi, Elli,
Leifur óheppni, hin hrokafulla Elsa
Lund, Magnús og Mundi, HLÓ-
flokkurinn, Marteinn Mosdal og
síðast en ekki síst magadansmær
sem iðar í undirfógru skinninu.
Þegar á leiðarenda er komið taka
Ragnar Bjarnason og hljómsveitin
Einsdæmi við og leika fyrir dansi.
Miðaverð (skemmtun og veislu-
matur) er 3900 kr. Til hagræðis fyr-
ir gesti utan af landi er boðið upp
á sérstaka helgarpakka með ferð-
um og gistingu í samvinnu við
Flugleiðir og Arnarflug.
Hin mörgu andlit Omars og Ladda.
Bjartmar í
Stykkishólmi
Bjartmar Guölaugsson heldur
tónleika í Hótel Stykkishólmi í
kvöld, 26. janúar. Á laugardags-
kvöld heldur hann tónleika í Klif-
inu, Ólafsvík.
Hefjast tónleikarnir kl. 23.00.
Bjartmar mun flytja efni af síðustu
hljómplötu sinni, Það er puð að
vera strákur, ásamt fjölda laga af
öðrum plötum sínum.
Maraþon-
keppni í
boccia
Tuttugu og fimm íþróttamenn í
íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík
munu leika boccia í 24 tíma frá kl.
17 í dag til kl. 18 annað kvöld í
íþróttahúsi fatlaðra sem nú er ver-
ið aö byggja í Hátúni 14. Keppnin
er til styrktar ferð _ íþróttafélags
fatlaðra á norrænt íþróttamót í
Málmey 10.-11. febrúar en þangað
fara 20 keppendur frá félaginu.
íslendingar voru mjög sigursælir
á íþróttamótinu í Málmey fyrir ári
og urðu stigahæstir og unnu far-
andbikar mótsins. Einnig urðu ís-
lensku þátttakendurnir stigahæst-
ir í bocciakeppninni og sundkeppni
mótsins.
íslensku íþróttamennirnir stefna
að því að vinna bocciakeppnina á
Málmeyjarleikunum aftur í ár og
verða því með áheitasöfnun í mara-
þonkeppninni þar sem haégt er að
greiða 50 aura fyrir hvern boccia-
leik sem leikinn verður þennan
sólarhring. Áheitum á meðan á
keppninni stendur er tekið á móti
í símum félagsins, 688002 og 688226.
Glaumberg í Keflavík:
Rokk, sviti og pilsaþytur
Café Hressó:
Smekk-
leysukvöld
Smekkleysa efnir til hljómleika í
Café Hressó í Austurstræti þar sem
fram koma nokkrar af litríkari
hljómsveitum höfuðborgarinnar,
alls þrjár.
Hljómsveitirnar eru þungarokks-
sveitin Bootlegs sem sendi frá sér
sína fyrstu plötu seint á liðnu ári,
Ham sem gáfu út plötuna Buffalo
Virgin á erlendri grund í gegnum
One Little Indian í Bretlandi og
loks Bless sem gáfu út plötuna
Melting á merki Smekkleysu
skömmu fyrir áramót.
Skemmtikvöld Smekkleysu hefst
kl. 23.00 stundvíslega í innri sal
Hressó. Aðgangseyrir er kr. 500.
í sýningunni er fylgst með ungum
sveitapilti, Lúðvík Lyndal að nafni,
og hans fyrstu ferð til stórborgar-
innar. Lúðvík er saklaus sveita-
drengur í meira lagi og lendir í hin-
um ýmsu ævintýrum er til borgar-
innar kemur og eru þau túlkuð með
dansi, söng og látbragði.
í sýningunni er fjöldi dansara og
söngvara ásamt stórsveit Rokka-
billibands Reykjavíkur. Söngvarar
eru meðal annars Einar Júlíusson,
Anna Vilhjálmsdóttir, Bjarni Ara-
son, Guðmundur Hermannsson,
Tómas Tómasson og Haraldur
Helgason. Dansarar eru meðal
annars Jón Ólafur Magnússon,
Eydís Eyjólfsdóttir og rokkparið
María Huldardóttir og Jóhannes
Bachmann en hann leikur jafn-
framt aðalpersónuna Lúðvík Línd-
al. Kynnir og sögumaður er hinn
kunni útvarpsmaður Gunnlaugur
Helgason. Miðaverð á sýninguna
er 2700 með tvíréttaðri máltíð.
Þorrasveifla í Pottinum
Fógetinn:
Stórsýningin Rokk, sviti og pilsa-
þytur er nú að fara á stað í annað
sinn í Glaumbergi í Keílavík laug-
ardaginn 27. janúar og fer fjöldi
sýninga eftir aðsókn og eftirspurn.
Aðsókn var mjög góð fyrir áramót
og öll aðsóknarmet á Suöurnesjum
slegin.
Arnaldur Bachmann og Eydís Eyjólfsdóttir i hlutverkum sínum i Rokk,
sviti og pilsaþytur.
Angus Rollo.
Kvartett Kristján Magnússonar, píanóleikar mun leika í heita Pottinum
í Duus-húsi á .sunnudagskvöldið. Áuk hans skipa hljómsveitina altó- og
tenórsaxófónleikarinn Þorleifur Gíslason, kontrabassaleikarinn Tómas
R. Einarsson og trymbillinn Guðmundur R. Einarsson.
Kvartettinn meö þá Kristján og Þorleif í broddi fyikingar hefur leikið
saman í nær áratug með nokkrum mannabreytingum þó. Tónlistin flokk-
ast að stærstum hluta undir hefðbundinn djass, lög frá svingskeiðinu og
bobbtímabilinu ásamt öðrum frá síðasta áratug.
Ekki er loku fyrir það skotið að sveitin fái óvæntan gest til að spila með
á sunnudagskvöldið. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30.