Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1990, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1990, Blaðsíða 6
jgtt&t B&lffilM, BE ffp.’ímaTWT FOSTUDAGUR 26.. JANUAR 1990.. Bíóhöllin: Johnny myndarlegi Kvikmyndahúsin Kvikmyndahúsin ráni. Þar verður hann vitni að því að vinur hans er drepinn, um leið er hann skilinn eftir til að taka á sig sökina. Hann leynir dómarana því hverjir voru með honum og tekur á sig fangelsisdóm, en hann gleymir ekki hver þau eru sem hann á skuld að gjalda... Það virðist heilla Mickey Rourke að leika persónur sem eru á skjön við lífið og ekki er hægt að segja að hann sé feiminn við að breyta útliti sínu til hins verra. Virðist það loða viö þennan ágæta leikara að vilja vera eins óaðlaðandi og hann framast getur. Hann fær þó tæk- ifæri hér til að sýna tvær hliðar á sér, annars vegar hinn ófríða Jo- hnny og hins vegar Johnny mynd- arlega. Það er liö útvalinna leikara sem er honum til aðstoðar. Má þar nefna Ellen Barkin, Elizabeth McGovern, Forest Whittaker, Scott Wilson og Lance Henriksen. Leikstjóri Johnny Handsome er Walter Hill sem er gamalreyndur spennumyndaleikstjóri. Hann hef- ur einu sinni áður kvikmyndað í New Orleans. Það var fyrsta kvik- mynd hans, Hard Times. Af öðrum myndum sem hann hefur leikstýrt má nefna The Warriors, The Long Riders, Southern Comfort, 48 Ho- urs, Crossroads, Extreme Prejudice og Red Heat. -HK. Mickey Rourke leikur Johnny Handsome sem er í hefndarhug. „Johnny Handsome er saga um hefnd,“ segir leikstjóri myndarinn- ar Walter Hill. „Hún er líka kvik- mynd um fordæmingu, ást, trú og tilviljanir.1' Johnny Handsome, sem Mickey Rourke leikur, er ekki myndarleg- ur. Þegar hann gengur niður Bour- bone-stræti í New Orleans lítur fólk undan þegar það mætir honum og Johnny veit það, ekki vegna þess að hann er ekki myndarlegur, held- ur er andlit hans afskræmt. í fyrstu sárnuðu honum öll nöfnin sem hann var kallaður, en er orðinn ónæmur fyrir þeim þegar myndin hefst. Kvöld eitt er hann þátttakandi í Ellen Barkin og Lance Hendriksen eiga ekki von á góðu frá Johnny myndarlega. Háskólabíó: Innan fjölskyld- unnar Um leiö og Háskólabíó opnaði nýjamsal, einn þriggjasem teknir veröa í gagnið á næstunni var frumsýnd Innan fjölskyldunnar (Cousinsj sem er kvikmynd sem hefur fengiö góöa dómagagnrýn- enda víðast hvar sem hún hefur verið sýnd. Innan fjölskyldunnar er gerð eftir þekktri franskri gamanmynd. Aðalpersónurnar eru Larry Kozinski og Maria Hardy sem eru vinir og tengjast fjölskyldubönd- um þegar frændi hans giftist móöur hennar. Þegar eiginkona Larry fer að halda við eiginmann Nariu kemur það af stað ástaræv- intýri innan fjöiskyldunnar sem verður keðjuverkandi á alla fjöl- skyldumeðlimi. Aðalhlutverkin leika Ted Dan- son, sem leikur Larry Kozinski, Sean Young leikur eiginkonu hans, Isabella Rossellini leikur Mariu Hardy og William Petersen eiginmann hennar. Þykja þau öll skila hlutverkum sínum eins og best verður á kosið. „ínnan fjölskyldunnar er kvik- mynd um fóik sem dreymdi drauma, svo þegar draumarnir rætast á það í erfiðleikum með að vefja og hafna," segir ieikstjóri myndarinnar, Joey Schumacher, sem byrjaði feril sinn í kvik- myndum sem fatahönnuöur, meðal annars fyrir Woody Allen. Síðan skrifaði hann nokkur handrit en hóf leikstjórnarferil sinn meö The Incredible Shrink- ing Woman. Hann sló fyrst í gegn þegar hann leikstýröi unglinga- myndinni vinsælu St, Elmo’s Fire. -HK Kvikmyndaklúbbur íslands Ferðalög hafa ávallt veriö mik- ilvægt þema í kvikmyndum Theo Angelopoulos sem er fyrsti leik- stjórinn sem Kvikmyndaklúbbur íslands kynnir á vortímabílinu 1990. Landslag í þokunni, verð- launamynd hans frá síðasta ári sem sýnd var í síöustu viku, fjall- ar um ferðalag tveggja barna og Ferð til Kithira fjallar um ferða- lag eldri manns. Aðalpersóna myndarinnar er gamall kommúnisti sem hefur verið í útlegð í Moskvu síöan borgarastyijöldin geisaði íGrikk- landi. Hann ákveður að snúa til fóðurlandsins og krefjast eigna sinna. Hann hittir fjölskyldu sína sem hann skildi eftir, eiginkon- una, soninn sem orðinn er kvik- myndaleikstjóri og dóttur sína. Hann kemst einnig að raun um að skrifræðið gleymir engu sem gert er á hluta þess og honum er vísað úr landi. Lögreglan getur ekki komið honum um borð í skip sem siglir til útlanda og yfir- gefur hann og konu hans á fleka... Ferð til Kithira er sjötta kvik- mynd Angeloupolos og eins og oftast áður byggir hann mynd sína á löngum myndskeiöum með pólitísku söguefni sem jafnvel er einnig með goðsögulegu ívafi. Ferð til Kithira er gerð 1984. Aðal- hlutverkin leika Manos Katrikis og Mary Chronopoulou. Fyrstu sýningar á Ferð til Kit- hira voru í gærkvöldi en hún verður endursýnd i aðalsal Regn- bogans á morgun, laugardag, kl. 15.00. John Litgow á ekki sjö dagana sæla i hlutverki Dave Geary i Köid eru kvennaráð. Hann er hér með Bruce McGill sem leikur eiginmann Sunny. Terri Garr og Randy Quaid í hlutverkum sínum i Köld eru kvennaráð. Regnboginn: Köld eru kvennaráð Köld eru kvennaráö (Out Cold) er gamanmmynd um hinn klass- íska þríhyrning. Framleiðandi myndarinnar segir að myndin gefi mönnum nýja meiningu orösins þríhyrningur. Þá ségir hann að áhorfendur muni hlæja þegar þeir eru ekki alveg vissir um hvort þeir eigi að hlæja eða ekki. I stuttu máli fiallar myndin um Dave, Sunny og Lester sem öll lang- ar í eitthvað annað en þau hafa en fá í lokin það sem þau áttu skilið. Aðalhlutverkin eru í höndum þekktra leikara, Terri Garr leikur Sunny Cannald, hina kynþokka- fullu húsmóður sem er áhrifavald- ur atburðanna í myndinni. John Litgow leikur Dave Geary, pipar- sveininn sem alltaf hefur elskað Sunny, en er eins og peð í höndum hennar og Randy Quaid leikur einkaspæjarann Lestar Atlas sem Sunny ræður til sín. Leikstjóri myndarinnar er Mal- colm Mowbray sem er breskur og er Out Cold hans önnur kvikmynd. Framleiðendur Out Coild völdu hann vegna frammistöðu hans sem leikstjóra The Private Function þar sem Maggie Smith lék aðalhlut- verkið. Hlaut sú mynd góða dóma þegar hún kom á markaðinn 1985, sérstaklega þótti Maggie Smith sýna frábæran leik. Þá hefur Mow- bray leikstýrt þremur sjónvarps- kvikmyndum fyrir BBC, Hanging Around, Days at the Beach og Our Winnie.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.