Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1990, Qupperneq 5
20
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990..
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990.
21
Messur
Guðsþjónustur
28 janúar.
Árbæjarprestakall: Barnasamkoma
kl. 11 árdegis. Guðsþjónusta kl. 14.
Organleikari Jón Mýrdal. Fyrir-
bænastund miðvikudag kl. 16.30.
Æskulýðsfundur kl. 20. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kafíi eftir
messu. Sr. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
Breiðholtskirkja: Kynningardagur á
starfi Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Valdís Magnúsdóttir kemur í
heimsókn. Guösþjónusta kl. 14. Sr.
Kjartan Jónsson kristniboði prédik-
ar. Barnakórinn syngur. Organisti
Daníel Jónasson. Áð lokinni guðs-
þjónustu sýna þau Valdís og Kjartan
myndir frá kristniboðsakrinum og
svara fyrirspurnum. Tekið á móti
gjöfum til kristniboðsstarfsins.
Bænaguðsþjónusta þriðjudag kl.
18.30. Fyrirbænaefni má koma á
framfæri við sóknarprest í viðtals-
tíma hans þriðjud.-fóstud. kl. 17-18,
s. 71718. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sr.
Pálmi Matthíasson. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Þorvaldur Björnsson.
Fermingarbörn og íjölskyldur þeirra
eru hvött til þátttöku. Miðvikudagur:
Félagsstarf aldraðra kl. 13-17. Æsku-
lýðsfundur kl. 20. Sr. Pálmi Matthías-
son.
Digranesprestakall: Barnasamkoma
í safnaöarheimilinu viö Bjarnhóla-
stíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Sr. Þorbergur Krist-
jánsson.
Dómkirkjan: Laugardagur 27. jan.:
Barnasamkoma kl. 10.30. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson. Sunnudagur 28.
jan. Messa kl. 11. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson. Messa kl. 14. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Dómkórinn syngur
við báðar messurnar. Organleikari
Marteinn Hunger Friðriksson.
Landakotsspítali: Messa kl. 13. Org-
anisti Birgir Ás Guðmundsson. Sr.
Hjalti Guömundsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Magnús Bjömsson. Organisti
Kjartan Ólafsson.
Fella- og Hólakirkja: Barnasamkoma
kl. 11. Umsjón Ragnheiður Sverris-
dóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur
sr. Hreinn Hjartarson. Organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Mánudag-
ur: Fundur í Æskulýðsfélaginu kl.
20.30. Miðvikudagur: Guðsþjónusta
kl. 20.30. Prestur Sr. Hreinn Hjartar-
son. Organisti Guðný M. Magnús-
dóttir. Sóknarprestar.
Frikirkjan í Reykjavík: Guðsþjón-
usta kl. 11. Helgistund kl. 17. Orgel-
leikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
Grafarvogsprestakall: Messuheimil-
ið, félagsmiðstöðinni' Fjörgyn við
Foldaskóla. Barnamessa kl. 11
Sunnudagspóstur - söngvar. Aðstoð-
arfólk Guðrún, Valgerður og Hjört-
ur. Skólabíll fer frá Hamrahverfí kl.
10.45. Almenn guðsþjónusta kl. 14.
Fermingarböm og foreldrar þeirra
hvött til þátttöku. Kirkjukór Grafar-
vogssóknar syngur. Organisti Sig-
ríður Jónsdóttir. Sr. Vigfús Þór
Árnason.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl.
11. Eldri börnin uppi í kirkjunni,
yngri börnin niðri. Messa kl. 14. Org-
anisti Ámi Arinbjarnarson. Almenn
samkoma fimmtudag kl. 20.30.
Æskulýðsfundur föstudag kl. 17.
Biblíulestur og bænastund laugar-
dag kl. 10. Prestamir.
Slunkaríki:
Jean-Paul Franssens sýn-
ir á afmælissýningu
í tilefni fimm ára afmælis
Slunkaríkis á ísafirði er efnt til
sýningar á verkum hollenska lista-
mannsins Jean-Paul Franssens.
Jean-Paul Franssens er fæddur í
Groningen 1938. Hann fór ungur
að mála og heillaðist af expression-
ískri myndlist. Um tvítugt hlaut
hann styrk til söngnáms og stefnt
var að óperusöng. Eftir hálft annað
ár söðlaði hann um og sneri sér að
óperustjórn og starfaði í Hollandi
og Vestur-Þýskalandi fram til árs-
ins 1975. Frá og með því ári hefur
hann helgað sig myndlist og rit-
störfum og orðiö vel ágengt.
Franssens hefur sýnt verk sín á
fjölmörgum einka- og samsýning-
um á meginlendinu og ritverkum
hans hefur verið lofsamlega tekið.
Skáldsagan De wisselwachter
(Brautarvörðurinn) kom út 1981 og
vakti mikla athygli og var kvik-
mynduð 1987.
Sýning Jean-Paul Franssens
verður opnuð laugardaginn 27. jan-
úar kl. 16 og stendur hún til 18.
febrúar. • Slunkaríki er opið
fimmtudaga til sunnudags kl.
16-18.
Leikfélag Kópavogs:
Blúndur og
blásýra
Nýhöfn:
Olíu-
verk
Guðrún Einarsdóttir opnar
málverkasýningu i Nýhöfii,
Hafharstræti 18, laugardaginn 27.
janúar kl. 14-16. Á sýningunni
veröa olíumálverk unnin á síð-
astliðnu ári.
Guörún er fædd 1957 í Reykja-
vík. Hún stundaði nám viö Mynd-
lista- og handíöaskóla Islands á
árunum 1984-1989. Þetta er önnur
einkasýning Guðrúnar en hún
sýndi 1988 í Hafnargalleríunu,
Hafnarstræti 4.
Sýningin stendur til 14. febrúar.
Hún er opin virka daga frá kl.
10-18 og um helgar frá kl. 14-18.
Leikfélag Kópavogs sýnir á
sunnudagskvöld kl. 20.00 gaman-
leikinn Blúndur og blásýra eftir
Joseph Kesselring í þýðingu Ævars
Kvaran. Leikritið fjallar um syst-
urnar Abby og Mörthu Brewster
sem af góðmennsku sinni taka upp
á því að eitra fyrir einmana körl-
um. Einnig koma við sögu bræðra-
synir þeirra þrír, hver öðrum dul-
arfyllri. Einn þeirra heldur sig vera
Ronald Reagan, annar er eftirlýst-
ur fyrir morö. Sá er í slagtogi með
hinum undarlega lýtaiækni Dr.
Einstein.
Miðasala er opin milli kl. 16 og
18 virka daga og símsvari tekur við
pöntunum þess á milli. Sýnt er í
Félagsheimili Kópavogs, Fannborg
2.
Guðný Magnúsdóttir ásamt einum leirskúlptúr eftir hana.
Múrristur í sparisjóðnum
í Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis, Álfabakka 14 í Breiöholti,
verður opnuð sýning á múrristum
eftir Gunnstein Gíslason á sunnu-
daginn kl. 14.
Gunnsteinn Gíslason er fæddur
13. september 1946. Hann stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1963-67 í kennara-
deild og frjálsri myndlist. Hann
innritaðist í Edinburg College of
Art 1967 og lagði stund á vegg-
myndagerð og glerhönnun. Hann
kom heim 1969 og setti upp vinnu-
stofu í Reykjavík auk þess sem
hann kenndi myndlist.
Haustið 1972 hóf Gunnsteinn nám
í kennslugreinum myndmennta
við Konstfacksskolan TI í Stokk-
hólmi og lauk þaðan prófi 1975. Þá
var hann ráðinn kennari og deild-
arstjóri við myndlistardeild Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti. 1988 var
hann settur lektor við Kennarahá-
skóla íslands.
Gunnsteinn hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í fjölda
samsýninga. Sýningin að Álfa-
bakka 14 mun standa yfir til 27.
apríl og veröur opin frá mánudegi
til föstudags frá kl. 9.15-16.00.
Norræna húsið:
Kvikmyndasýning og fyrirlestur
um vetrarstríöið í Finnlandi
Um þessar mundir eru liðin
fimmtíu ár frá því vetrarstríðið var
háð í Finnlandi 1939-40. Undanfar-
in ár hefur verið unnið að rann-
sóknum á vetrarstríðinu og nýjar
niðurstöður hafa nýlega verið birt-
ar. Auk þess var frumsýnd kvik-
mynd sem gerð var eftir skáldsögu
finnska rithöfundarins Antti Tu-
uri, Talvisota, undir íslenska heit-
inu Vetrarstríðið. Hefur sú kvik-
mynd vakið mikla athygli.
Á sunnudaginn kl. 16 mun Jarl
Kronlund liðsforingi, hernaðar-
sagnfræöingur frá Helsinki, halda
fyrirlestur í Norræna húsinu um
vetrarstríðið. Kronlund stundar
rannsóknir við sagnfræðistofnun
liðsforingjaskólans í Helsinki. Eftir
fyrirlesturinn verður sýndur tutt-
ugu mínútna langur útdráttur úr
fyrrnefndri kvikmynd.
Orgeltónleik-
ar í Hall-
grímskirkju
Listvinafélag Hallgríms- framt haldnir til fjáröflunar
kirkju gengst á sunnudaginn fyrir orgelsjóð Hallgrímskirkju
kl. 17 fyrir orgeltónleikum í og rennur aðgangseyririnn
Hallgrímskirkju. Hörður óskiptur í orgelsjóð.
Áskelsson, organisti kirkjunn- Seint á síðasta ári var undir-
ar, leikur orgelverk eftir Bach ritaður kaupsamningur um 70
og Buxtehude, meðal annars radda orgel við orgelsmiðjuna í
Passacaglíur beggja höfund- Bonn. Smíðatími er tvö og hálft
anna. Auk þess leikur hann ár og verður að greiða orgelið
preludíur og fúgur og sálmafor- að mestu á þeim tíma. Verið er
leikir beggja höfundana eru á að undirbúa átak til fjáröflunar
efnisskránni. sem Listvinafélagið á aðild að.-
Hörður leikur á tíu radda kór- Á tónleikunum á sunnudaginn
orgel kirkjunnar. Þessir tón- verður sýnd teikning af vænt-
leikar, sem eru áskriftartón- anlegu Klaisorgeh Hallgríms-
leikar hjá félaginu, eru jafn- kirkju.
Tolli sést hér vera að setja upp eitt verka sinna.
Kjarvalsstaðir:
Olímálverk eftir Tolla
- og leirmunir eftir Guðnýju
Á laugardaginn verða opnaðar tvær
nýjar sýningar á Kjarvalsstöðum. Þorlák-
ur Kristinsson eða Tolli eins og hsta-
mannsnafn hans er opnar sýningu á olíu-
málverkum. í sambandi við opnun sýning-
ar Tolla verður haldin kvöldvaka á sunnu-
dagskvöldið sem ber yfirskriftina Upphaf
aldarloka. Þar munu koma fram Megas,
Bubbi Mortens, Sigfús Bjartmarsson, Ein-
ar Már Guömundsson, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Tolli fæddjst 3. október 1953 í Reykjavík.
Hann stundaði nám við Myndlista- og
handfðaskóla íslands 1978-1983 og viö
Hochschule der Kúnste í Vestur-Berlín
1983-1984. Hann hefur haldið fjölda einka-
sýninga og verið með í samsýningum. Síð-
ustu þrjár einkasýningar hans voru ahar
erlendis. Ein í Seoul í Kóreu um leið og
ólympíuleikarnir stóðu yfir 1988 og í fyrra
sýndi hann bæði í Kaupmannahöfn og í
Uppsölum í Svíþjóð. Sýning Tolla stendur
til11. febrúar.
í vesturforsal sýnir Guðný Magnúsdóttir
skúlptúr og veggmyndir úr leir. Verkin
eru unnin á síðasta ári. Þetta er sjötta
einkasýning Guðnýjar og sú fjórða í
Reykjavík en tvær einkasýningar hélt hún
í Helsinki þar sem hún starfaði í fjögur
ár, 1981-1985.
Guðný héfur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga á íslandi, Norðurlöndunum, í Frakkl-
andi, Japan og Bandaríkjunum. Sýning
Guðnýjar er opin til 11. febrúar.
Einar Jóhannesson og Philip
Jenkins á tvennum tónleikum
Hörður Áskelsson.
Einar Jóhannesson klarínettu-
leikari og Philip Jenkins píanóleik-
ari munu leika á tvennum tónleik-
um um helgina, aðrir verða í Borg-
arnesi, en hinir í Reykjavík. Á laug-
ardaginn kl. 16 munu þeir félagar
leika í Borgarneskirkju á vegum
Tónlistarfélags Borgarfjarðar. Eru
þetta þriöju tóleikar félagsins á
þessu starfsári.
Á sunnudaginn munu þeir svo
halda tónleika í íslensku óperunni
á vegum Tónlistafélags Reykjavík-
ur og hefjast þeir kl. 17.
Báðir eru þessir listamenn vel
þekktir. Auk þess að vera 1. klar-
íneettuleikari Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands og leika í Blásarakvint-
ett Reykjavíkur verður Einar á
ferðinni á næStunni í Evrópu og
Bandaríkjunum þar sem hann mun
leika bæði með hljómsveitum og á
einleikstónleikum.
Síðan Phihp Jenkins flutti frá
Akureyri aftur til Bretlands 1972
hefur hann starfað sem prófessor í
píanóleik við Royal Academy of
Music í London, auk tónleikahalds.
Nýlega tók hann við píanódeildinni
í Konunglega skoska tónlistar-
háskólanum í Glasgow. Hann hélt
síðast hér tónleika 1987 þá með
Guðnýju Guðmundsdóttur.
Einar Jóhannesson, sem ásamt Philip Jenkins mun halda tónleika i
Borgarneskirkju og íslensku óperunni um helgina.
Hallgrímskirkja: Laugardagur: Sam-
vera fermingarbarna kl. 10. Sunnu-
dagur: Messa og barnasamkoma kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Org-
eltónleikar Listvinafélagsins kl. 17.
Hörður Áskelsson leikur á kórorgel
Hahgrímsirkju verk eftir Dietrich
Buxtehude og Johann Sebastian
Bach. Þeir sem vilja bflfar hringi í
Hahgrímskirkju í síma 10745 eða
621475. Þriðjudagur 30. jan. Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum. Miðvikudagur 31. jan.
Opiö hús fyrir aldraða kl. 14.30.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Bragi
Skúlason.
Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10.
Sr. Tómas Sveinsson. Bamaguös-
þjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer um
Hhðarnar fyrir og eftir barnaguðs-
þjónustuna. Hámessa kl. 14. Sr. Arn-
grímur Jónsson. Kvöldbænir og fyr-
irbænir eru í kirkjunni á miðviku-
dögum kl. 18. Prestarnir.
Kársnesprestakall: Barnasamkoma í
safnaðarheimihnu Borgum sunnu-
dag kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 14. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Óskastund bamanna kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Þórhahur
Heimisson.
Hjallaprestakall: Messusalur Hjalla-
sóknar í Digranesskóla. Barnamessa
kl. 11 en hálfri klukkustund áður
hefst föndurstund. Almenn guðs-
þjónusta kl. 14. Fermingarbörn að-
stoöa við messuna. Sr. Kristján Einar
Þorvarðarson.
Laugarneskirkja: Laugardagur 27.
jan. Guðsþjónusta í Hátúni 10 b, 9.
hæð, kl. 11. Sunnudagur 28. jan.
Messa kl. 11. Barnastarf á sama tíma.
Kafií á könnunni eftir messu. Opið
hús hjá samtökum um sorg og sorg-
arviðbrögð þriðjudagskvöld kl. 20-22.
Helgistund kl. 22. Kyrrðarstund í
hádeginu fimmtudag. Orgelleikur,
fyrirbænir, altarisganga. Léttur há-
degisverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Sóknarpestur.
Óháði söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl.
14. Leikmenn sjá um ritningarlestra.
Björn Bjömsson syngur einsöng.
Organisti Jónas Þórir Þórisson. Þor-
steinn Ragnarsson safnaðarprestur.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Messa kl. 14. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Sóknarprestur. Mánu-
dagur. Fundur hjá KFUK, yngri
stúlkur kl. 17.30, eldri kl. 18.30. Fund-
ur í æskulýðsfélaginu kl. 20. Mið-
vikudagur. Fundur hjá KFUM, yngri
drengir kl. 17.30, eldri kl. 20.
Neskirkja: Laugardagur 27. jan. Fé-
lagsstarf aldraðra. Farið verður í
Þjóðminjasafnið. Lagt af stað frá
kirkjunni kl. 15. Sunnudagur 28. jan.
Barnasamkoma kl. 11. Umsjón Sig-
ríður Óladóttir. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Frank M. Halldórsson. Munið
kirkjubílinn. Orgel- og kórstjórn
Reynir Jónasson. Miðvikudagur.
Guðsþjónusta kl. 18.20. Sr. Frank M.
Hahdórsson. Fimmtudagur. Opið
hús fyrir aldraða kl. 13-17.
Seltjarnarneskirkja: Fjölskyldu-
guðsþjónusta í beinni útsendingu í
útvarpi kl. 11. Organisti Gyða Hall-
dórsdóttir. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir. Bamastarf á sama
tíma. Umsjón hafa Adda Steina, Sig-
ríður og Hannes. Æskulýösfundur
mánudagskvöld ki. 20.30. Opið hús
fyrir 10-12 ára þriöjudag kl. 17.30.
Ópið hús fyrir foreldra ungra barna
fimmtudag kl. 15. Halla Jónsdóttir
kemur og talar um þroska barna, 3
ára og eldri. Takið börnin með.
Fríkirkjan, Hafnarfirði: Barnasam-
koma kl. 11. Einar Eyjólfsson.
Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sóknarprestur.
Keflavíkurkirkja: Sunnudaggskóli
kl. 11 í umsjón Málfríðar Jóhanns-
dóttur og Ragnars Karlssonar. Mun-
ið skólabílinn. Messa kl. 14, altaris-
ganga. Kór Keflavíkurkirkju syngur.
Organisti örn Falkner. Sóknarprest-
ur.
Tilkyimingar
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi veröur á morgun, 27. janúar.
Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.
Gönguglaðir Kópavogsbúar heilsa þorr-
anum með vaxandi bjartsýni og þátttöku
í bæjarröltinu. Kemst þó hægt fari er
sannleikur þar sem gangan er fyrir alla.
Einkunarorð eru: samvera, súrefni og
hreyfing. Nýlagað molakaffi.
Göngu-Hrólfur
hittist að Nóatúni 17, laugardaginn 27.
febrúar kl. 10. Göngunni lýkur að þessi
sinni með því að koma saman í safnaðar-
heimili Langholtskirkju og fagna þar
þorra með söng' og kaffiveitingum.
Félagsvist Breið-
firðingafélagsins
Breiðfirðingafélagið í Reykjavík verður
með félagsvist í kvöld, 26. janúar, kl. 20.30
í Breiðfirðingabúð. Góð verðlaun. Dans-
að frá kl. 23.
Húnvetningafélagið
Félagsvist spiluö laugardaginn 27. janúar
kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir vel-
komnir.
10 ára afmæli íslenska
kvikmyndavorsins
Áratugur er liðinn frá frumsýningu
fyrstu íslensku kvikmyndarinnar í hinu
svokallaða „kvikmyndavori", eða frá því
að samfelld kvikmyndagerð hófst í
landinu. í tilefni þess hyggst Félag kvik-
myndagerðarmanna efna til ráðstefnu í
„Rúgbrauðsgerðinni", Borgartúni 6, í dag
kl. 17. Á ráðstefnunni verður horft yfir
farinn veg og reynt aö meta stöðu is-
lensku kvikmyndarinnar í dag. Ávörp á
ráðstefnunni flytja: Þorsteinn Jónsson,
form. Félags kvikmyndagerðarmanna,
yigdís Finnbogadóttir, forseti íslands,
Ágúst Guðmundsson, form. Sambands
íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Þrá-
inn Bertelsson kvikmyndagerðarmaður
og Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra.
Safnaðarkvöld í
Laugarneskirkju
í kvöld, 26. janúar, kl. 20.30 verður al-
mennt safnaðarkvöld í safnaðarheimili
Laugarneskirkju. Dr. Sigurbjörn Einars-
son biskup flytur erindi er hann nefnir:
Sorgin og trúin. Einnig mun strengja-
kvartett úr Tónlistarskólanum í Reykja-
vík spila verk eftir Mozart. Boðið verður
upp á laffi. Kvöldinu lýkur með stuttri
helgistund í kirkjunni.
Fyrsta hestamót ársins
Fyrsta hestamannamót ársins verður
haldið á Hellu laugardaginn 27. janúar
kl. 14. Mótið er nefnt „Vetrarmót Geys-
is“ og er fyrirkomulag þess með nýstár-
legu sniði því það er stigamót þar sem
keppnishestar safna stigum á fimm mót-
um sem haldin verða i janúar, febrúar,
mars, apríl og maí. Á hverju móti verða
veittir 10 verðlaunapeningar og þrír efstu
hestar á öhum mótunum fá veglega verð-
launabikara auk þess sem eigandi efsta
hestsins fær folald í verðlaun. Það er
hrossaræktarbúið á Árbakka á Landi
sem gefur folaldið. Keppt verður í tölti
með útsláttarfyrirkomulagi, þannig að
loks verður bestu hestunum raöað í sæti
eitt til tíu. Að auki er svo ætlunin að
keppa einnig í skeiði og í barnaflokki en
þar verður ekki um stigasöfnun að ræða
milli móta. Vetrarmót Geysis er bundiö
við að keppnishestar verði í eigu félags-
manna en knapar mega koma hvað-
anæVa að.
Islandsgangan 1990
Skógargangan sem er fyrsta keppnin í
„íslandsgöngunni" fer fram á Egilsstöð-
um nk. laugardag, 27. janúar, kl. 13.
Gengnir verða 20 km með hefðbundinni
aðferð. Einnig verður boöið upp á 10, 5
og 2,5 km. hringi. Hér er um að ræða
trimmkeppni fyrir almenning og eru
verðlaun veitt fyrir flokka kvenna og
karla 17-34 ára, 35-49 ára og 50 ára og
eldri. Allir þátttakendur fá viðurkenn-
ingu. Skráning og nánari upplýsingar í
símum 97-11891 og 97-11470. Það er UÍA
sem stendur að Skógargöngunni, sem nú
er haldin í 5. sinn. Islandsgangan er röð
5 trimmkeppna á gönguskíðum fyrir al-
menning og eru næstu göngur þessar: 17.
feb. Fjarðargangan, Ólafsfirði, 10. mars
Lambagangan, Akureyri, 24. mars Blá-
fjallagangan, Reykjavik, og 5. mai Fossa-
vatnsgangan, ísafirði. Stig þátttakenda
eru reiknuð út eftir hverja göngu og eru
bikarverðlaun veitt fyrir bestan saman-
lagðan árangur eftir veturinn í fyrr-
greindum flokkum. Þátttaka í þremur
göngum nægir til þess að vera fullgildur
í bikarkeppninni.
Kristniboðskynning í
Breiðholtskirkju
Sunnudaginn 28. janúar verður í Breið-
holtskirkju í Mjódd kynning á starfi Sam-
bands íslenskra kristniboðsfélaga. Munu
hjónin Valdís Magnúsdóttir og sr. Kjart-
an Jónsson kristniboðar annast þessa
kynningu en þau eru nú í ársleyfi eftir
að hafa starfað í Kenýa í tjölda ára.
Bamaguðsþjónusta verður kl. 11 og mun
Valdís þá koma í heimsókn og segja böm-
unum frá, sýna myndir og kenna söngva
frá Kenýa. Guðsþjónusta verður síðan
kl. 14. Mun sr. Kjartan þá predika og
barnakór kirkjunnar syngur. Að guðs-
þjónustunni lokinni sýna þau síðan
myndir frá kristniboðsstarfmu og svara
fyrirspumum. Einnig verður sýning á
myndum og munum frá kristniboðs-
akrinum í anddyri kirkjunnar.
Kvikmyndasýning og
fyrirlestur um
vetrarstríðið í Finnlandi
Sunnudaginn 28. janúar kl. 16 mun Jarl
Kronlund liðsforingi, hernaðarsagnfræð-
ingur frá Helsinki, halda fyrirlestur í
Norræna húsinu um vetrarstríðið. Jarl
Kronlund stundar rannsóknir við sagn-
fræðistofnun liðsforingja-skólans í Hels-
inki. Eftir fyrirlesturinn verður sýndur
u.þ.b. 20 mínútna langur úrdráttur úr
kvikmyndinni Vetrarstríðið eftir sögu
Antti Tuuri.
Smekkleysukvöld
Smekkleysukvöld verður haldið á Hressó
í kvöld, 26. janúar, kl. Ú. Fram koma
hljómsveitirnar Bless, Ham og Bootlegs.
Miðaverð kr. 500.
Tónleikar
Ljóðatónleikar í Gerðubergi
Eins og menn mun gekk yfir fárviöri
mánudaginn 8. janúar. Þetta kvöld vom
ljóðatónleikar í Gerðubergi og vegna
fjölda tilmæla hefur verið ákveðið að
verða við þeirri áskorun að endurtaka
ljóðatónleikana laugardaginn 27. janúar
kl. 15. Um er að ræða þriðju tónleika í
ljóðatónleikaröð sem haldin er á vegum
Geröubergs nú í vetur. John Speight,
baríton syngur við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. Fluttur verður laga-
flokkur eftir B. Britten svo og sönglög
effir Purcell, H. Wolf, F. Schubert, R.
Schumann, C. Ives o.fl.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Þorrablót í Þórsmörk
2.-4. febrúar.
Kynnist Mörkinni í vetrarbúningi.
Skipulagðar gönguferðir á daginn. Þorra-
blót og kvöldvaka á laugardagskvöldinu.
Siðamaður: Árni Björnsson. Fararstjór-
ar: Hilmar Þór Sigurðsson og Kristján
M. Baldursson. Aíbragðs gistiaðstaða í
Skagfjörösskála, Langadal. Verið með í
fyrstu þorrablótsferðinni í Þórsmörk.
Pantið strax. Farmiðar á skrifst.
Sunnudagsferðir 28. jan. kl. 13
A. Hraun - Grindavík Staðarhverfi.
Létt og fróðleg ganga milli gömlu hverf-
anna: Þórkötlustaða - Járngerðarstaða
og Staðarhverfis. Staðkunnugur heima-
maður slæst í hópinn og fræðir um sitt-
hvað sem ber fyrir augu. Rútan fylgir
hópnum. Áð við Bláa lónið á heimleið.
Verð 1000 kr., frítt f. böm m. fullorðnum.
Brottfor frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin, (í Hafnarf. vfKirkjug.).
B. Skíðaganga á Hellisheiði.
Nú er um að gera að dusta rykið af göngu-
skíðunum og drifa sig með. Hreyfing og
útivera með Ferðafélaginu er ein besta
heilsubótin. Verð 800 kr. Brottfór frá
Umferðarmiöstöðinni, austanmegin.
Útivistum helgina
Þórsmerkurgangan, 2. ferð
sunnudaginn 28. jan.
Gengin verður gamla Seljadalsleiðin frá
Árbæ upp í Leirdal, norður fyrir Reynis-
vatn, sunnan í Reynisvatnsási síöan aust-
ur Langavatnsheiði að Miðdal. Þetta er
elsta Þingvallaleiðin og liggur hún um
fjölbreytilegt vatnasvæði. Brottfór kl. 13
frá Umferðarmiðstöð - bensínsölu. Verð
600 kr.
Skiðagöngunámskeið
sunnudaginn 28. jan.
Brottfór kl. 13 frá Umferöarmiðstöð
bensínsölu. Vanur skiðakennari. Verð
600 kr.
Myndakvöld Útivistar verður fimmtu-
daginn 1. febrúar í Fóstbræðraheimilinu,
Langholtsvegi 109, og hefst kl. 20.30.
Margrét Margeirsdóttir sýnir myndir úr
hálendisferð sumarið 1989 og myndir frá
Grænlandi. í hléi er boðið upp á góðar
kaffiveitingar sem eru innifaldar í miða-
verði. Aðgangseyrir 450 krónur.
Fundir
3. framkvæmdastjórnar-
fundur JC íslands
verður haldinn laugardaginn 27. janúar
kl. 9-18 að Skipholti 70, 2. hæð. Allir JC
félagar velkomnir.
22. ráðsfundur III. ráðs
ITC á íslandi
verður haldinn í félagsheimili Kópavogs,
Fannborg 2, Kópavogi, laugardaginn 27.
janúar. Fundarstef: Vex vilji ef vel geng-
ur. Fundurinn hefst kl. 9 og er áætlað að
honum verði slitið kl. 16.30. Umsjónar-
maður fundarins er: Jóhanna Óskars-
dóttir, ITC Fífu, sími 42232. IU. ráði ITC
á íslandi tilheyra ITC Þöll, Grundarfirði,
ITC Ösp, Akranesi, ITC Stjarna, Rangár-
þingi, ITC Seljur, Selfossi, ITC Melkorka,
Reykjavík, og gestgjafadeild þessa ráðs-
fundar, ITC Fifa, Kópavogi.