Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1990, Qupperneq 1
JTca )' I
íU
Þjóðleikhúsið:
Stefnumót
Síðasta frumsýningin á stóra sviði
Þjóðleikhússins fyrir lokun verður
dagskráin Stefnumót með smá-
verkum erlendra afbragðshöfunda.
Fyrstu sýningar eru ráðgerðar á
stóra sviðinu 2. og 4. mars.
Stefnumót er byggt upp á örstutt-
um leikritum eftir nokkra merkis-
höfunda sem sumir hafa aldrei ver-
ið kynntir fyrir íslenskum leikhús-
gestum. Höfundarnir eru Peter
Barnes, Michel de Ghelderode,
Eugene Ionesco, David Mamet og
Harold Pinter. Höfundur tónlistar
er Jóhann G. Jóhannsson og þýð-
endur eru Árni Ibsen, Ingunn Ás-
dísardóttir, Karl Guðmundsson,
Sigríður M. Guðmundsdóttir og
Sigurður Pálsson.
Tveir leikendanna hættu í vetur
sem fastráðnir leikarar við húsið
og fóru á eftirlaun, þeir Bessi
Bjarnason og Rúrik Haraldsson.
Fjórir þeirra voru með í opnunar-
sýningum hússins og eiga því 40
ára starfsafmæli, þau Baldvin Hall-
dórsson, Bryndís Pétursdóttir,
Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert
Arnímnsson. Auk þeirra leika
Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arn-
ar Jónsson, Bríet Héðinsdóttir,
Gunnar Eyjólfsson og Tinna Gunn-
laugsdóttir.
Leikstjórar eru fjórir talsins, allt
ungt fólk sem nýlega hefur lokið
sérnámi í leikstjórn og þreytir
þarna frumraun sína í Þjóöleik-
húsinu.'Þar með er stefnt saman
þeim leikurum sem verið hafa
Rúrik Haraldsson og Herdís Þorvaldsdóttir I Góö til
að giftast.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Róbert Arnfinnsson í Þrír
leikarar - eitt drama eftir Ghelderode.
burðarásar Þjóðleikhússins í 40 ár
og yngstu kynslóð leikstjóra, sem
vænta má að láti til sín taka í fram-
tíðinni. Leikstjórarnir eru Hlín
Agnarsdóttir, sem hefur yfirum-
sjón með dagskránni, Ásgeir Sigur-
valdason, Ingunn Ásdísardóttir og
Sigríður M. Guömundsdóttir.
Gunnar Bjarnason, yfirleikmynda-
teiknari Þjóðleikhússins, hannar
leikmynd og búninga og sýningar-
stjóri er Kristín Hauksdóttir.
Leikþættirnir eru: Þrír leikarar -
eitt drama, eftir Ghelderode; Bið-
stöðin eftir Pinter; Tilbrigði við önd
eftir Mamet; Staður og stund eftir
Barnes; Leikæfing eftir Barnes;
Góð til að giftast eftir Ionesco; og
Það er nú það eftir Pinter.
ÆSKR sýnir Líf og frið i Langholtskirkju á sunnudaginn.
Langholtskirkj a:
Líf og friður
Æskulýðssamband kirkjunnar í
Reykjavíkurprófastsdæmi sýnir
söngleikinn Líf og frið eftir Per Harl-
ing og Lars Collmar í Langholts-
kirkju kl. 20.30 að kvöldi Æskulýðs-
dags þjóðkirkjunnar þann 4. mars.
Leikurinn gerist meöal dýranna í
örkinni hans Nóa eftir að mannkynið
hefur eyðilagt lífsskilyrðin á jörö-
inni. Umhverfismálin eru í brenni-
depli og ábyrgð okkar mannanna og
ráðsmennska í sköpunarverki Guðs.
Leikurinn fjallar um von andspæn-
is vonleysi og lífstrú andspænis upp-
gjöf og örvæntingu. Hann einkennist
af mjög lifandi og aðgengilegri tónlist
og kímni en undirtónninn er tíma-
bær og alvarleg skilaboð til okkar
sem byggjum þessa jörð og höfum
framtíð hennar í hendi okkar.
Það eru félagar úr æskulýðsfélög-
um safnaðanna í Reykjavík sem leika
og syngja. Leikstjóri er Rúnar Reyn-
isson og Gyða Þ. Halldórsdóttir
stjórnar kór og hljómsveit.
Norræn list 1960-1972
í Listasafni ísiands
Laugardaginn 3. mars verður
opnuð í Listasafni íslands sýningin
Uppþot og árekstrar, Norræn hst
1960-1972. Stendur sýningin til 8.
apríl.
Hér er um að ræða samnorræna
farandsýningu sem hefur göngu
sína í Reykjavík en fer síðan til
annarra höfuðborga Norðurlanda.
Sýningin er unnin að frumkvæði
norrænu listamiðstöðarinnar í
Sveaborg en Listasafn íslands hef-
ur staðið að undirbúningi hennar
fyrir íslands hönd. Hún er beint
framhald af sýningunni Norræn
konkretlist sem stóð í Listasafni
íslands síðastliðið sumar.
Listsköpun sjöunda áratugarins
er í brennidepli og verður einkar
athyglisvert að bera íslenska Ust-
sköpun þessa áratugar saman við
það sem gert var á sama tíma ann-
ars staðar á Norðurlöndum.
Fulltrúar íslands á þessari sýn-
ingu eru m.a. Erró, Jón Gunnar
Árnason, Kristján Guðmundsson,
Á laugardaginn verður opnuð sýning á norrænni list 1960-1972 í Lista-
safni íslands.
Sigurður Guðmundsson og Hreinn
Friðfinnsson. Laufey Helgadóttir
listfræðingur annast val verka og
skrifar einnig grein í sýningarskrá.
Listasafn íslands er opið alla daga
nema mánudaga milli kl. 12 og 18.