Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1990, Qupperneq 8
24
i! ;j ,u\tjrj£,vairT2Cr':
FÖSTUDAGUR 2. MARS 1990.
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
ivlicliael Caine og Steve Martin,
sem leika bragöarefina tvo í Dirty
Rotten Scoundrels, haida 1. sæt-
inu örugglega þessa vikuna, en
búast ntá viö að þaö veröi erfitt
að halda því sæti áfram, því
stormandi inn á listann, beint í
5. sætið, koma þeir félagar Mel
Gibson og Danny Glover sem
endurtaka leikinn í Lethal Weap-
on 2, mynd sem gerö eru nánari
skil hér á síðunni. Þá er Tom
Hanks einnig mjög vinsæll, sem
marka má af því að The Burbs
stekkur úr níunda sæti í annaö.
Lethal Weapon 2 er eina nýja
myndin á listanum. Tvær mynd-
ir, sem búnar voru aö gera þaö
gott, Naked Gun og Her Alibi,
kíkja inn á listann svona rétt til
að minna á sig.
8. (■)
9. (7)
10. (-)
Dirty Rotten Scoundrels
The Burbs
Feds
Betrayed
Lethal Weapon 2
Working Girl
The Unberable Lightness
of Being
Naked Gun
Police Academy 6
Her Alibi
★★★
Háspennuframhald
LETHAL WEAPON 2
Leikstjóri: Richard Donner.
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glo-
ver, Joe Pepsci og Joss Ackland.
Bandarísk, 1989 - sýningartími 114 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Lethal Weapon varð geysivinsæl
og vel heppnuð spennumynd og
varö þaö því aðeins tímaspursmál
hvenær framhald kæmi.
Tvö ár liðu en sú bið var alveg
þess viröi. Lethal Weapon 2 er há-
spennuþriller frá upphafi til enda.
Sumum kann að finnast fullmikið
af því góða, enda minna mörg atrið-
in á það sem aðeins gerist í teikni-
myndum, þvílíkur er hraðinn og
lætin. Raunsæi er lítið og til að
mynda er harla ólíklegt að pickup-
bíll geti dregiö stöpla undan stóru
einbýlishúsi með þeim afleiðingum
að það hrynur.
Hvað um það, Lethal Weapon er
eingöngu ætluð til að skemmta
spennuþyrstum áhorfendum og
það tekst. Sem fyrr eru aðalpersón-
urnar löggurnar Riggs og Maur-
taugh. Riggs, sem af mörgum
myndi vera talinn léttgeggjaður,
veigrar sér ekki við að rífa sig úr
axlarliðnum til að geta unnið veð-
mál.
í fyrri myndinni var töluvert
meira gert úr þeirri sjálfseyöingar-
arhvöt sem einkennir allar gerðir
hans. Hér er það látið liggja milli
hluta og því er persónan ekki jafn
heilsteypt nema fyrir þá sem muna
þá sjálfstortímingu sem einkenndi
hann í fyrri myndinni.
Maurtaugh er sem fyrr fjöl-
skyldumaðurinn sem Riggs dregur
með sér í allt brjálæðið. í þetta
skiptið eru þeir látnir gæta vitnis
í eiturlyfjamáli. Það gengur bæri-
lega þar til þeir uppgötva að þeir
sem sækjast eftir lífi vitnisins eru
þeir sömu og þeir höfðu verið að
eltast við þegar þeim var sagt að
gæta vitnisins.
Þótt tækifæri gefist þá er erflð-
leikum bundið að eiga við glæpa-
flokkinn því á yfirborðinu eru þeir
suður-afrískir erindrekar og þar
meö friðhelgir. Riggs og Maur-
taugh sjá samt ástæðu til að láta
það ekki hindra aðgerðir gegn þeim
þegar félagar þeirra eru felldir
hver á eftir öðrum.
Mel Gibson og Danny Glover eru
traustir í hlutverkum sínum og
passa þeir ágætlega saman. Sam-
leikur þeirra er bestur í kómískum
atriðum. Þá er hinn ágæti skap-
gerðarleikari, Joss Ackland, sann-
færandi illmenni.
-HK
★★★★
Listakokkurinn Babette
GESTABOÐ BABETTU
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Gabriel Axel.
Aðalhlutverk: Stephane Audran, Birgitte
Federspiel og Bodil Kjær.
Dönsk, 1987 - sýningartimi 103 mín.
Leyfö öllum aldurshópum.
Þau áhrif sem Gestaboð Babettu
hefur á áhorfandann eru fyrst og
fremst vellíðan og þegar áhorfand-
anum líður vel eftir kvikmynda-
sýningu eru það góð meðmæli með
myndinni.
Á þeim þremur árum sem liðin
eru frá því Gestaboð Babettu var
frumsýnd er búið að hlaða á hana
lofi og verölaunum, meðal annars
fékk hún óskarsverðlaunin sem
besta erlenda kvikmyndin og hér á
íslandi gekk hún í kvikmyndahúsi
í meira en ár.
Myndin á allt þetta lof og góða
aðsókn skilið. Leikstjóririn og hand-
ritshöfundurinn Gabriel Axel hefur
skapað einhverja mannlegustu
kvikmynd síðari ára um leið og list-
rænn metnaður ræður ferðinni.
Myndin gerist í dönskum smábæ.
Við kynnumst tveimur systrum en
hvorug lætur undan tilfmningum
sínum þegar þær eru ungar. Þær
taka upp merki fóður síns, sem var
★★*/2
í frjálsu falli
FIRE AND RAIN
Útgefandi: Háskóiabíó.
Leikstjóri: Jerry Jameson. Handrit: Gary
Sherman. Aðalhlutverk: Charles Haid,
Aingie Dickinson, Robert Guillaume og
David Hasselhoff.
Bandarísk. 1989. Bönnuö yngri en 12
ára.
í þessari mynd eru raktar á mjög
skilmerkilegan hátt allar kringum-
stæður þegar flugvél fórst við Dall-
as í Texas í upphafl áratugarins.
Að sjálfsögðu er heimildarmynd-
in yfirgnæfandi og er myndin allt
að því skýrslukennd. Öðru hvoru
er reynt að bijótast út úr því fari
og hlaða upp tilfmningaþrungnum
atriðum. Þau eru ef til vill það sísta
í myndinni.
Þótt ekki sé mikið um tilþrif í
kringum myndina þá er hún mjög
raunsönn að sjá og gefur bara
nokkuð fróðlega innsýn í þá skelfi-
legu atburði sem eiga sér stað þeg-
ar farþegaflugvél ferst.
-SMJ
★★
Skýjakljúfamartröð
TRAPPED
Útgefandi: Laugarásbió.
Leikstjóri: Fred Walton.
Aðalhlutverk: Kathleen Quinlan, Bruce
Abbott og Ben Loggins.
Bandarisk, 1989-sýningartimi 86mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Trapped er formúluþriller sem
aö mestu leyti gengur upp. Öll
spennuatriðin hafa margoft verið
notuð og eru klassísk í kvikmynd-
um, atriði sem hætt eru aö koma
mönnum á óvart en eru ágætlega
framreidd hér.
Myndin gerist í nýjum skýja-
kljúfi. Mary Ann Marshall er
ásamt vinkonu sinni síðust út úr
húsi en forlögin taka í taumana.
Einhver hefur lokað öllum út-
gönguleiðum og fljótlega komast
þær að því aö sá hinn sami er geð-
veikur morðingi. Nóttin verður því
líkust martröð hjá Mary Ann og
óvæntum bandamanni hennar.
Trapped er ágæt spennumynd.
Helsti galli við myndina er að við
fáum aldrei skýringu á því hvað
þessi geðveiki morðingi er aö gera
í húsinu og hvað það er sem rekur
hann til að myrða hvern þann sem
nálgasthann. -HK
Hótel undir berum himni
STARLIGHT HOTEL
Útgefandi: Myndform.
Leikstjóri: Sam Pillsbury. Framleiðandi:
Finola Dwyer og Larry Parr. Handrit:
Grant Hinder-Miller.
Nýsjálensk. 1988. 93 mín. Bönnuö yngri
en 12 ára.
Haltu mér - slepptu mér samband
aðaipersónanna í þessari nýsjá-
lensku mynd er að mörgu leyti for-
vitnilegt. Þó er eins og eitthvað
vanti við persónusköpun þeirra og
þau skötuhjú veröa aldrei nógu
nákomin áhorfandanum. í þessari
að mörgu leyti forvitnilegu nýsjá-
lensku mynd er lýst lífi tveggja
ílökkukinda sem fyrir tilviljun
hefja ferðalag saman. Hún er ungl-
insstúlka í leit að foöur en hann er
á flótta undan réttvísinni. í baksýn
sést þjóðfélagsleg ádeila sem meðal
annars birtist í lögregluofbeldi og
kreppuástandi.
Myndin nær aldrei að grípa
áhorfandann almennilega - meðal
annars vegna þess að samúðin með
aðalpersónunum er ekki nógu
sterk. Þá er eins og eitthvað skorti
á í uppbyggingu og spennupunktar
eins og Úða framhjá, meðal annars
vegna of sterks heimildarmynda-
tóns.
-SMJ
prestur, þegar þær eldast og halda
litlum söfnuði saman. Þegar þær
eru komnar á efri ár kemur óvænt-
ur gestur til þeirra, leyndardóms-
full frönsk kona sem er að flýja
fóðurland sitt. Hún býðst til að
vinna fyrir þær kauplaust. Skyn-
semi og eljusemi Babette gerir það
að verkum að hún verður þeim
systrum brátt ómissandi.
Óvænt fær Babette stóran happ-
drættisvinning. í stað þess að flytja
aftur til Parísar eins og systurnar
óttast heldur Babette veislu...
Erfitt er að gera upp á milli ein-
stakra hluta myndarmnar en þó er
kannski veislan eftirminnilegust
en hún tekur meiri hluta sýningar-
tímans. Skapgerð hvers einstakl-
ings í myndinni kemur þar vel
fram um leið og léttur og skemmti-
legur húmor yfirtekur annars al-
varlegan söguþráð.
Gestaboð Babettu er kvikmynd í
hæsta gæðaflokki sem öllum er
hollt að sjá.
-HK
Vitni vantar
A STONING
Útgefandi: Myndform.
Leikstjóri: Larry Elikann. Handrit: Jud
Kinberg og Jackson Gillis. Framleiö-
endur: Alan Landsburg og Joan Bar-
nett. Aðalhlutverk: Ken Olin, Jill Elken-
berry og Ron Perlman.
Bandarisk. 1988. Bönnuð yngri en 16
ára. 97 mín.
Hið sérstaka líf fólksins í Amis-
söfnuðinum í Bandaríkjunum er
nokkuð vinsælt kvikmyndaefni og
án efa hafa viðtökur Vitnisins ekki
orðið til að draga úr því.
Hér segir frá því þegar ungbarn
úr söfnuðinum er drepið vegna
vítaverðs gáleysis nokkurra ungl-
inga í nágrenni við söfnuðinn. Pilt-
amir eru bara að gera það sem all-
ir stunda - sem sagt að hrella
Amis-fólkið. Það ber ekki hönd fyr-
ir höfuð sér heldur trúir á refsingu
drottins. Þarna í nágrenninu er
hins vegar ungur saksóknari sem
vill stöðva óréttlætið en allt veltur
á því að þolendurnir, Amis-fólkið,
fallist á að bera vitni.
Þrátt fyrir fremur erfitt viðfangs-
efni tekst leikstjóra og handrits-
höfundum ótrúlega vel að sneiða
hjá pyttum væmninnar. Myndin
segir á ákaflega trúveröugan og
einlægan hátt frá togstreitu þeirri
sem saksóknarinn og Amis-fólkið
þarf að glíma við á grýttri leið til
réttlætis.
Sjónvarpsstjörnur eru hér í aðal-
hlutverki því Olin er kunnur úr
þáttunum Á fertugsaldri sem Rík-
issjónvarpið er nýhætt að sýna.
Perlman er hins vegar þekktur úr
þáttaröðinni Fríða og dýriö sem
Stöð 2 sýndi. Frammistaöa þeirra
er bærileg en þó er það fyrst og
fremst einlægt handrit og fumlaus
leikstjórn sem lyfta þessari mynd
upp.
-SMJ