Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990.
19
Dans-
staðir
Danshúsiö Glæsibær
Álfheimum, sími 686220
Danshljómsveitin leikur fyrir
dansi föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Danshöllin
Sambandiö sér um fjöriö fram
á rauðanótt. Á þriöju hæð
spilar hljómsveit Stefáns P.
með Ara Jónsson í aðalhlut-
verki.
Casablanka
Danssýning föstudagskvöld,
diskótek laugardagskvöld.
Dans-Barinn
Grensásvegi 7, sími 688311.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Lifandi tónlist um helgar.
Hollywood
Ármúla 5, Reykjavík
Diskótek föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Hótel Borg
Pósthússtræti 10, Reykjavik,
sími 11440
Diskótek föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Skálafell, Hótel Esju,
Suðurlandsbraut 2, Reykja-
vík, sími 82200
Guðmundur Haukur leikur
föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Hljómsveitin Stjórnin leikur
fyrir dansi um helgina.
Hótel Saga
Á laugardagskvöldið verður
sýnd skemmtidagskráin
„Skemmtisigling á þurru
landi" í Súlnasal. Nokkrir af
fremstu skemmtikröftum
landsins hrífa gesti með sér í
bráðhressandi skemmtun.
Hljómsveitin Einsdæmi leik-
ur fyrir dansi.
Risið og Ölkráin,
Borgartúni 22,
Ölkráin opin öll kvöld vik-
unnar.
Tunglið og Bíókjallarinn
Lækjargötu 2, sími 627090
Hópur breskra plötusnúða og
tónlistarmanna ásamt Sykur-
molunum koma fram í Tungl-
inu um helgina.
Ölver
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudags-
kvöld.
íslandsmót í samkvæmisdansi 1990:
Frá siðasta íslandsmóti í samkvæmisdönsum í Laugardalshöllinni.
Þúsund
íslandsmót í samkvæmisdansi
verður haldið um helgina í íþrótta-
miðstöðinni Ásgarði í Garðabæ og
verður keppt bæði laugardag og
sunnudag frá morgni til kvölds því
að um 500 pör eða 1000 manns hafa
skráð sig til keppni í 26 flokkum
barna, unghnga og fullorðinna.
Keppendur koma víðs vegar af
landinu, frá níu dansskólum. Dóm-
arar verða þrír þau Joan Richards
frá Englandi, Marcel De Reyk frá
Hollandi og Jörgen Kristensen frá
Danmörku. Öll eru þau vel þekktir
danskennarar og vel metnir dóm-
arar víða um heim.
Undankeppni í nokkrum af
yngstu barnaflokkunum hefst á
laugardagsmorguninn hl. 9.30 en
setningarathöfnin með innmarsi
verður kl. 14.00. Keppt verður bæði
í standard dönsum og suður-amer-
ískum dönsum í flokkum áhuga-
fólks og atvinnumanna.
Mjólkurdagsnefnd hefur gefið
veglega verðlaunagripi sem verða
farandbikarar en til varðveislu hjá
íslandsmeisturunum í eitt ár. Bú-
ast má við spennandi keppni í öll-
um flokkum því að dansinn á ís-
landi er á uppleið.
Dansráð Islands sér um fram-
kvæmd keppninnar og er þetta
fimmta árið sem íslandsmótið fer
fram og hefur keppendafjöldi
fimmfaldast frá því fyrsta keppnin
var haldin árið 1986.
Miðasala hefst í íþróttamiðstöð-
inni Ásgarði í Garðabæ kl. 9.00 á
laugardagsmorguninn og verða
númer til keppenda afhent frá
sama tíma.
Hundaganga í Kaldársel
Hundaeigendur hafa það fyrir reglu að fara i sameiginlegar göngur með hunda sina,
Eigendur golden retriver hunda
og írskra settera ætla að sameinast
í hundagöngu við Kaldársel á
sunnudaginn. Ætlunin er að hittast
við kirkjugarðinn ofan byggðar-
innar í Hafnarfirði kl. 13.00 og það-
an verður ekið inn í Kaldársel.
Tíminn fram eftir degi verður
notaður til gönguferða um svæðið
og snæddur verður grillmatur.
Þetta er lokapunkturinn á vetrar-
starfi klúbbanna sem eigendur
þessara hunda mynda.
Ekki er tekið hart á því þóhund-
arnir, sem koma til göngunnar,
hafi ekki af finum ættartölum að
státa enda er fyrst og fremst um
skemmtun að ræða.
Sjallinn á Akureyri:
Staðan í hálfleik
í síðasta skipti
Verslunarskóli íslands á morgun:
Norðurlandakeppni í
að stjóma fyrirtæki
A morgun, laugardag, verður
haldin í Verslunarskólanum sam-
norræn stjórnunarkeppni. Þetta
eru úrslit í keppninni og er keppt
um titilinn Noröurlandameistari í
stjómun 1989-90.
Þetta er í þriðja sinn sem keppnin
er haldin á íslandi. Það er A3ESEC,
alþjóðlegt félag viðskipta- og hag-
fræðinema, sem stendur fyrir
skipulagningu keppninnar hér á
landi. Norðurlöndin skiptast á um
að halda úrslitakeppnina og í ár
var röðin komin að Islendingum.
Erlendu gestirnir verða um 70.
Alls komast tíu hð í úrslitin, tvö frá
hverju landi. Fyrir íslands hönd
keppa Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis og Ríkisspítalarnir. Lið
þeirra urðu hlutskörpust í hópi
þeirra 28 hða sem hófu keppni hér.
Áður hafa ekki svo margir þátttak-
endur verið í keppninni hér.
Hin átta liðin eru hvert öðru ólík
en það er sameiginlegt með öllum
liðsmönnum að þeir hafa reynslu
af að stjórna fyrirtækjum og taka
ákvarðanir.
Vorfagnaður
Grikklandsvina
Laugardaginn 28. apríl efnir
Grikklandsvinafélagið Hellas til
vorfagnaðar í Risinu, Borgartúni
32, efstu hæö. Samkoman hefst kl.
20.30 með borðhaldi þar sem á boð-
stólum verður hláðborð með grísk-
um réttum.
Ræðumaður kvöldsins er Sigurð-
ur Steinþórsson jarðfræðingur og
einnig verður flutt atriði úr Þing-
konunum eftir Aristofanes. Leik-
stjóri er Helga Bachmann en leik-
endur eru líklegir til að koma á
óvart á þessu sviöi.
Þá verður grísk tónlist jafnt sung-
in sem leikin fyrir dansi. Þátttaka
tilkynnist í síma 29670 eða 21749
ekki síðar en á fóstudag.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Staðan í hálfleik, sýning sem
spannar feril söngvarans Pálma
Gunnarssonar í 20 ár, hefur fengið
mjög góða aösókn í Sjallanum á
Akureyri síðan frumsýnt var í fe-
brúar.
Uppselt hefur verið á allar 10 sýn-
ingarnar en sú síðasta veröur ann-
að kvöld. í sýningunni eru rifjuð
upp helstu lög Pálma frá löngum
ferli hans sem tónhstarmanns en
Pálma til aðstoðar eru söngkon-
urnar Erna Gunnarsdóttir og EUen
Kristjánsdóttir og 6 manna hljóm-
sveit undir stjórn Atla Örvarsson-
ar.
Kvintett klarinettuleikaranna
Sigurðar Flosasonar og Stefáns S.
Stefánssonar leikur í Heita pottin-
um í Duus húsi á laugardagskvöld-
Pálmi Gunnarsson verður í síð-
asta sinn með Stöðuna í hálfleik
um helgina í Sjallanum.
ið kl. 21.30. Auk þeirra félaganna
eru í kvintettinum þeir Eyþór
Gunnarsson, Tómas R. Tómasson
og Pétur Grétarsson.
Kvintett í Heita pottinum