Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Síða 3
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 1990.
25
• Gæðingafaðirinn Þokki frá Garði með afkvæmi sín. Jón Karlsson í Hala, eigandi hestsins, stendur hjá íbygginn og hugsar til þess er hann keypti Þokka gegnum
síma. Þau kaup hafa gengið upp enda stóð Þokki efstur stóðhesta með 1. verðlaun fyrir afkvæmi. DV-mynd EJ 2
Lítill áhugi á kappreiðunum:
Setti íslandsmet
handleggsbrotinn
- Guðmundur sigraði með höndina í gifsi
Ekki var mikil þátttaka í kappreiðun-
um á landsmótinu. Einungis þrír hestar
kepptu í 250 metra stökkinu, fimm i 350
metra stökkinu og fimm í 800 metra
stökkinu. Þátttaka í skeiðgreinunum var
töluverð, enda skeiðið vinsælt meðal
knapa. Þrátt fyrir frekar lítinn áhuga á
á kappreiðunum var sett eitt íslandsmet
er Neisti frá Hraunbæ brokkaði 300
metrana á 30,34 sek. en hann átti gamla
metið sjálfur. Guðmundur Jónsson, eig-
andi Neista, sat hann sjálfur og verður
að geta þess aö Guðmundur er með
höndina í gifsi því hann handleggsbrotn-
aði nýlega. Annar var Daði Jóns Frið-
rikssonar, sem Björn Fr. Jónsson sat, á
30,34 sek. og þriðji Snær, sem Jóhannes
Kristleifsson á og sat, á 33,02 sek.
Fyrsti sigur Barkar
í150metra skeiði
í 150 metra skeiði sigraði Börkur, sem
Tómas Ragnarsson á og sat, á 14,39 sek.
Þetta er í fyrsta skipti sem Börkur sigrar
150 metra skeið á landsmóti en hann
hefur verið ósigrandi í þessari grein
undanfarin fjögur ár. Annar var Ljós-
vaki, sem Jóhannes Kristleifsson á og
sat, á 14,4 sek. og þriðji Ugla Jóns O.
Ingvarssonar sem Þórður Þorgeirsson
sat á 14,6 sek.
Leistur sigraði
meðglæsibrag
1250 metra skeiði sigraði Leistur Harðar
G. Albertssonar á 22,59 sek en knapi var
Sigurbjörn Bárðarson, annar var Vani,
sem Erlingur Sigurðsson á og sat, á 23,42
sek. og þriðji Kolbakur, sem Gunnar
Arnarson á og sat, á 23,49 sek.
í 250 metra stökki sigraði Nóta Ólafar
Geirsdóttur, sem Magnús Benediktsson
sat, á 18,50 sek„ annar var Garri Margr-
étar Kjartansdóttur, sem Reynir Aðal-
steinsson sat, á 19,19 sek. og þriðji
Hrappur Guðbjargar Þorvaldsdóttur,
sem Sigurlaug A. Auðunsdóttir sat, á
19,65 sek.
í 350 metra stökki sigraði Subaru-
Brúnn Guðna Kristinssonar, sem Magn-
ús Benediktsson sat, á 25,24 sek., annar
var Háfeti Lárusar Þórhallssonar, sem
Anna Dóra Markúsdóttir sat, á 25,33 sek.
og þriðji Elías Guðna Kristinssonar, sem
Sigurður Matthíasson sat, á 25,33 sek.
Hörð keppni í
800 metrunum
í 800 metra stökki var geysilega hörð
keppni. Þar sigraði Nestor, sem Hjördís
B. Amardóttir á og sat, á 62,16 sek., ann-
ar var Ljótur Magnúsar Benediktssonar,
sem Reynir Aðalsteinsson sat, á 62,42
sek. og þriðji Léttir Guðbjargar Þor-
valdsdóttur, sem Sigurlaug Anna Auð-
unsdóttir sat, á 62,46 sek.
-EJ
• Margir stökkhestanna voru
órólegir á ráslínunni.
DV-mynd EJ
• Helgi Sigurðsson dýralæknir
skrifaði grein um pungstærð
stóðhesta og sæðisframleiðsiu
þeirra í síöasta tölublaði Eiöfaxa.
Vepa þeirrar greinar hafa
komíð upp umræöur um þessi
nauðsynlegu hffæri. Hrossarækt-
arráðunautar eru sammála um
að rannsaka þurfi líffræðilega
eiginleika eistna stóðhesta en þaö
veröi ekki gert á stórmótum.
„Við göngum út frá því að stóð-
hestar séu eðlilega skapaðir er
þeir koma í dóm. Eigendurnir
eiga að finna sjálfir ef eitthvaö
er að,“ segir Kristinn Hugason
og Víkingur Gunnarsson bætir
við: „Við munum ekki sýna
spjöld fyrir pungstærð." „En það
er sjálfsagt að rannsaka betur
hvort einhver fylgni sé milli
pungstærðar og sæðismagns,“
segir Kristinn Hugason.
Ás, Tvistur og Þristur
Nöfh hesta eru eins misjöfn og
þeir eru margir, enda sáust ýmis
skondin hestanöfn í sýningar-
skrá landsmótsins. Á landsmót-
inu mátti sjá meðal annar-a:
Durt, Gand, Rífanda Gang, h': <
og Bein, Gúlp Garró, BrúðKHup
Brún, Hallveigu FróöadCttur,
Ljót, Lat, Rabbý, Skandal og
Sjötta september.
í A-flokki kepptu til dæmis: Ás,
Tvistur, Þristur, Gosi og Kóngur.
Hundi att á fófk
Hundar eru oft til vandræða á
hestamótum. Tekið var tii þess
ráðs að baima lausagöngu hunda
á mótssvæðinu og hunda algjör-
lega úr áhorfendabrekkum. Einn
hundur var þó töluvert fyrirferð-
armeiri en aðrir því sagt er að :
eigandl hans hafi att honum á
fólksemþurftiaðfaratiilæknis, . U
___________________________ ‘