Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Page 1
Mosfellsbær: Þrjú þúsund keppendur á 20. landsmóti UMFÍ Landsmót UMFÍ fer fram í Mosfellsbæ um helgina. Þar etja kappi 29 héraðssambönd og aðildarfélög þeirra og er það i fyrsta skipti sem þau mæta öll til leiks. DV-mynd GVA Landsmót UMFI verður um- fangsmesta landsmót sem ung- mennafélögin hafa staðið fyrir. Þegar forskráningu lauk 1. maí sl. höfðu borist 3120 skráningar í greinar sem tilheyra stigakeppni landsmótsins. Þegar tekið er tillit til aukagreina og sýningargreina, sem keppt veröur í samhhða sjálfu landsmótinu, verða skráningar á 5. þúsund. Þannig má gera ráð fyr- ir að heildarfjöldi keppenda verði um þijú þúsund. Til þess að stjórna öllu þessu liði og sjá um að keppni geti farið fram þarf landsmóts- nefnd að hafa um þúsund starfs- menn á sínum snærum. Auk þess verða um 500 hðsstjórar, þjálfarar og fararstjórar sem fylgja hðunum. Reiknað er með að aðrir gestir verði a.m.k. tíu þúsund. Eftir að forskráningu lauk kom í ljós að áætlanir um keppendaíjölda höfðu brugðist í flestum greinum. Þannig reyndist þátttakan í frjáls- um íþróttum einum ætla að verða 70% meiri en hún var á síðasta landsmóti, sem haldið var á Húsa- vík, og er þá ekki tekið tillit til þeirra greina sem bæst hafa við. Einu greinamar, sem ekki verða fjölmennari á landsmótinu í Mos- fehsbæ en á fyrri landsmótum, verða blak karla og handknattleik- ur kvenna. 7 lið eru skráð til keppni í hvorri grein. Afleiðing þessarar sprengingar er sú að landsmóts- nefnd hefur neyðst til að endur- skoða tímaseðihnn í frjálsum íþróttum og færa hluta keppninnar fram á miðvikudagskvöld. Að aflokinni hátíðardagskrá í gær- morgun tóku aðrir íþróttamenn til við iðkun en landsmótinu lýkur á sunnudagskvöld. í Mosfellsbæ verður keppt í 13 keppnisgreinum og alls 75 flokkum sem teljast til stiga í keppni milli héraðssambandanna 29 um aðal- verðlaunagrip mótsins. Auk þess verður keppt í 8 öðrum greinum, alls 31 flokki, í svokölluðum sýn- ingargreinum. Auk þesS verða nokkrar greinar kynntar'sérstak- lega á mótinu, án þess að um beina keppni verði að ræða. Eftirfarandi eru aðalkeppnisgreinar á lands- mótinu: fijálsar íþróttir, sund, júdó, glíma, borðtennis, fimleikar, bridge, skák, starfsíþróttir, blak, handknattleikur, knattspyrna og körfuknattleikur. Sýningargrein- arnar eru golf, siglingar, hesta- íþróttir, karate, þríþraut, íþróttir fatlaðra, UMFÍ-hlaup og götuhlaup. Þær greinar, sem verða kynntar sérstaklega, eru tennis og ruðn- ingsbolti. Á mótinu verður staðið fyrir sérstöku hlaupi unghnga á aldrinum 11 til 14 ára, líkt og gert var á Húsavík. í síðasta hlaupi voru 250 þátttakendur en gera má ráð fyrir að þeir verði töluvert fleiri núna. Ráðgert er að börnin hlaupi 2 kílómetra. Landsmót UMFÍ í Mosfehsbæ er það tuttugasta í röðinni en Akur- eyringar héldu fyrsta mótið árið 1909. Tveimur árum síðar varð Reykjavík fyrir vahnu og aftur 1914. Ekki hggja fyrir tölur um flölda keppenda og gesta á fyrsta mótinu en 1911 voru íþróttamenn- imir 70 talsins og 1914 voru móts- gestimir tvö til þijú þúsund. Nokk- ur bið varð eftir næsta móti en það var haldið í Haukadal árið 1940 og upp frá því hefur landsmótið verið haidið með nokkuð reglulegu milh- bili. Á þeirri hálfu öld sem hðin er frá mótinu í Haukadal hefur lands- mótið veriö haldið víðs vegar um landið og þ.á m. tvisvar á Akur- eyri, árin 1955 og 1981, og er það eini staðurinn til að halda mótið oftar en einu sinni að Reykjavík undanskilinni. Fjöldi keppenda og gesta hefur vaxið gífurlega á þess- um ámm og á síðasta landsmóti á Húsavík mættu sautján þúsund gestir sem er met. HSK er það félag sem hefur borið höfuð og herðar yfir önnur héraðssambönd á þess- um landsmótum og borið sigur úr býtum ahs tólf sinnum. -GRS Einar Vilhjálmsson er á meðal keppenda í spjótkastskeppni sem er haldin í tengslum við landsmótið. Landsmót UMFÍ: Spjótkastskeppni Á sunnudag fer fram spjótkasts- keppni í tengslum við landsmótið. Þar mæta tveir af fremstu spjótköst- umm Svía, þeir Peter Borglund og Dann Wánnlund, og etja kappi við þijá bestu spjótkastara íslendinga, þá Einar Vilhjálmsson, Sigurð Ein- arsson og Sigurð Matthíasson. Þetta er eina tækifærið til að sjá okkar bestu menn samankomna í keppni enda eru þeir að kasta víða erlendis á næstunni til að undirbúa sig undir Evrópumeistaramótið í Júgóslavíu í haust. Af keppendunum fimm á Borglund bestan árangur skráöan. Hann hefur kastað spjótinu 84,76 metra en Einar er skammt und- an með 84,66. Sigurður Einarsson hefur lengst kastað 82,82 metra, Wánnlund 82,68 og Sigurður Matthí- asson 79,56. Af framangreindu er ljóst að búast má við hörkukeppni. Áhorfendum mun gefast kostur á að geta til um úrsht, þ.e. lengsta kast- ið og hlýtur sá getspakasti áritað , spjót sem Einar Vilhjálmsson gefur. Keppnin hefst klukkan 15.00. -GRS Landsmót UMFÍ: Setningarhátíö 20. landsmóts UMFÍ hefst í kvöld ki. 19.45. Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, setur hátíðina og ráðherramir Svavar Gestsson og Guömundur Bjarna- son flytja ávörp. Úr dagskránni má ennfremur nefna fjöldasöng undir stjóm Grét- ars Örvarssonar, Sigríðar Bein- teinsdóttur, Sigrúnar Hjálmtýs- dóttur og fleiri, útgöngu íþrótta- fólks, fimleikasýningu UMSK og sýningarleik í ruðningsbolta á mihi Stjörnunnar og Breiðabhks. Á landsmótið verður boðið upp á sérstakar sætaferðir frá Reykjavík og Kópavogi, bæði vegna íþrótta- viðburða og skemmtana. Úr Reykjavík verða ferðir á Ibstudag á klukkustundar fresti frá Grensás- skiptistöð og um helgina verður farið frá Grensás og BSÍ með tveggja klukkustunda mihibih, Úr Kópavogi verður farið á tveggja klukkustunda fresti. Ennfremur verða sérstakar feröir frá báðum stöðum vegna dansleikja á lands- mótinu. Á fóstudag hefst síðasti íþrótta- viðburöurinn klukkan 17.30. Á laugardag og sunnudag hefst keppni íþróttafólksins klukkan 8.30 og báða dagana er síðasta keppnis- grein á dagskrá kl. 18.00. -GRS N . : m Á setningarhátíð landsmóts UMFI verður m.a. boðlð upp á sýningarleik í ruðníngsbolta en leikmennimir hér á myndinni eru kiæddír þeim út- búnaði er telst nauðsyntegur f þeirr! iþróttagrein.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.