Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990. 23 Fréttir íþróttir helgarinnar: Landsmót IJMFÍ í Mosfellsbæ - keppendur á mótinu verða 2.300 - keppt í 21 íþróttagrein • Einar Vilhjálmsson verður á meðal keppenda I spjótkastkeppninni á landsmótinu í Mosfellsbæ. Á síðasta landsmóti á Húsavik gerði Einar sér lítið fyrir og setti glæsilegt islandsmet. Hvað gerir hann í Mosfellsbæ? Stærsti íþróttaviðburður hér á landi um helgina er landsmót Ung- mennafélaganna í Mosfellsbæ en mótið var sett á miðvikudaginn. Keppendur á landsmótinu verða 2.300 og veröur það fjölmennasta landsmót frá upphaíi. Á landsmót- inu verður keppt í 21 keppnisgrein en þær eru: frjálsar íþróttir, sund, júdó, knattspyrna, glíma, borð- tennis, fimleikar, brids, skák, blak, handknattleikur, körfuknattleikur og starrfsgreinar. Auk þess verða eftirfarandi sýningargreinar: golf, siglingar, hestaíþróttir, íþróttir fatlaðra, karate, þríþraut, UMFÍ hlaup og götuhlaup. A upptalningu þessari er ljóst að alhr ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og nán- ari dagskrá mótsins er á öðrum stað í þessu blaði. Einn af stærstu viðburðum á landsmótinu er spjót- kastkeppnin. Þar keppa Einar Vil- hjálmsson, Sigurður Einarsson og Sigurður Matthíasson. Þá koma tveir Svíar til að keppa á mótinu, þeir Peter Borglund og Dag Wánn- lund, og verður án efa um hörku- spennandi keppni að ræða. Spjótkastkeppnin verður á sunnudaginn kl. 15. Vegna lands- mótsins verður minna um að vera á öðrum vettvangi en hér getur að líta yfir það helsta. Knattspyrna Tveir leikir eru á dagskrá 1. deild- ar á íslandsmótinu í knattspyrnu. Á laugardaginn kl. 14 leika á Ákra- nesi heimamenn gegn efsta liði deildarinnr, liði Vals. Leikir þess- ara hða hafa ávallt verið jafnir og spennandi hver sem svo staða hð- anna í deildinni er. Á sunnudags- kvöld kl. 20 leika svo á Víkings- velli Víkingur og KR og ætti þessi leikur að geta orðið jafn og spenn- andi. í 1. deild kvenna eru tveir leikir í kvöld. KA ogKR leika á Akureyri og Valur og ÍA leika á Valsvelli. Báðir leikimir hefjast kl. 20. Á laugardag kl. 14 leika Þór og KR á Akureyri. Enginn leikur er á dagskrá 3. deildar og aðeins einn í 4. deild. Huginn og Sindri leika á Seyðisfirði kl. 15 á laugardag. Golf Evrópumóti unglinga 18 ára í golfi lýkur um helgina á Grafar- holtsvelli í Reykjavík. Mótið hófst á miðvikudag með keppni í högg- leik en í kvöld hefst riðlakeppnin sem lýkur á sunnudaginn og þá fæst úr því skorið hverjir verða Evrópumeistarar. » * Sýningar Art-Hún Stangarhyl7 Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk, graflk og myndir unnar í kol, pastel og olíu í sýningarsal sínum að Stangarhyl 7. Árbæjarsafn simi 84412 Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 10-18. Kaffihús safnsins, Dillonshús, er opið á sama tíma og safnið. Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74 í safni Ásgrims Jónssonar eru nú sýnd 26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru unnin í ohu og með vatnslitum, eru frá árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá Suðurlandi. Sumarsýningin í safni Ás- grims Jónssonar stendur til ágústloka og er opin alla daga nema mánudaga kl. 13.30 til 16. Djúpið Hafnarstræti Laugardaginn 30. júni opnaði Sigríður Ólafsdóttir fyrstu einkasýningu sína í Djúpinu, Hafnarstræti. Sigríður er fædd 1965 í Reykjavík og útskrifaðist úr Mynd- lista- og handíðaskóla íslands, fiöltækni- deild, vorið 1989. Sýningin stendur til 19. júh og er opin á sama tíma og veitinga- staöurinn Homið. FÍM-salurinn Garðastræti Laugardaginn 14. júh kl. 16 verður opnuð málverkasýning Ingu Þóreyjar Jóhanns- dóttur í FÍM-salnum. Þetta er þriðja einkasýning Ingu en auk þess hefur hún tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á sýningurmi verða ohumálverk og papp- írsmyndir unnar á sl. tveimur ámm. Sýningin er opin frá kl. 14-18 alla daga og stendur til 7. ágúst. Gallerí 8 Austurstræti 8 Þar em sýnd og seld verk eftir um það bil 60 höfunda, ohu-, vatnslita- og grafík- verk, teikningar, keramik, glerverk, silf- urskartgripir, höggmyndir, vefnaður og bækur um íslenska list. Opið aha daga kl. 10-18 nema sunnudaga kl. 14-18. Gallerí Borg Pósthússtræti 9 Sýning á verkum í eigu safnsins. Opið daglega kl. 14-18. Grafík-gallerí Borg Síðumúla 32 Þar er nú blandað upphengi: grafíkmynd- ir eftir um það bh 50 höfunda, htlar vatns- lita- og pastelmyndir og stærri oliumál- verk eftir marga af kunnustu hstamönn- um þjóðarinnar. Gallerí List Skipholti 50 TU sölu verk eftir þekkta íslenska Usta- menn. Opið á afgreiðslutíma verslana. Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar Þann 30. júní sl. var opnuð í Hafnarborg sýning á verkum japanska listamannsins Toshikatsu Endo. Sýningin er opin frá kl. 14 tU 19 aUa daga nema þriðjudaga og stendur til 22. júh. í kaffistofu Hafnar- borgar em sýnd verk eftir búlgarska listamanninn Jordan Sourtchev. A sýn- ingunni em rúmlega 30 pennateikningar. Jordan Sourtchev starfar sem teiknari. Á meðan á sýningunni stendur mun hann vera á staðnum og teikna myndir af fólki ef þess er óskað. Kaffistofa Hafnarborgar er opin daglega frá kl. 11-19. Sýningin stendur tU 22. júh nk. Hlaðvarpinn Vesturgötu 3. Sigríður Elfa Sigurðardóttir sýnir inní- setningu (instaUation) í kjaUara Hlað- varpans í sumar. Á 1. hæð er listmuna- markaður þar sem seldir em skartgripir, keramik, myndhst, textUl o.fl. Opið þriðjud.-fóstud. 12-18, laugardaga 10-14. J. Hinriksson Maritime Museum Súðarvogi 4 Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku- daga, fimmtudaga, föstudaga og laugar- daga. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Laugardaginn 14. júlí 1990 hefst hin ár- lega sumarsýning á verkum JÓhannesar S. Kjarval að Kjarvalsstöðum. Að þessu sinni verða sýnd verk úr eigu safnsins undir yfirskriftinni Land og fólk. í vest- ursal sýnir Nína Gautadóttir málverk. Kjarvalsstaðir em opnir daglega frá kl. 11-18 og er veitingabúðin opin á sama tíma. Listasafn Einars Jónssonar er opið aUa daga kl. 13.30-16 nema mánu- daga. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-17. Listhús að Vesturgötu 17 Þar stendur nú yfir samsýning á verkum eftir 4 Ustmálara. Þeir em Einar Þorláks- son, EUas B. HaUdórsson, Hrólfur Sig- urðsson, Pétur Már Pétursson. Sýningin verður opin frá kl. 14-18 aUa daga fram til 31. júh nk. Mókkakaffi Skólavörðustíg Ásta Ámadóttir sýnir vatnslitamyndir. Sýningin stendur til 20. júh. Mokkakaffi er opið virka daga kl. 10-23.30 og á sunnu- dögum kl. 14-23.30. Katel Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin) TU sölu em verk eftir innlenda og er- lenda Ustamerm, málverk, grafík og leir- munir. Sýning í Odda nýja hugvisindahúsinu er opin daglega kl. 13.30-17. Þar em tU sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðaUega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Að- gangur aö safninu er ókeypis. Listasafn ASÍ v/Grensásveg Þar stendur yfir sýning á grafíkUst frá Frakklandi. Listasafn ASÍ og sendiráð Frakklands standa að þessari sýningu. Á sýningunni em myndir eftir tjölda þekktra myndhstarmanna af ýmsu þjóð- emi. Sýningin er opin virka daga frá kl. 16-19 og um helgar frá kl. 14-19. Lokað á mánudögum. Aðgangur að sýningunni er ókeypis. Listasafn íslands Frikirkjuvegi 7 Nú um helgina er síðasta sýningarhelgi á sýningu á 52 málverkum og teikningum eftir André Masson (1896-1987) sem er einn þekktasti súrreahsti Frakka. Sýn- ingunni lýkur þann 15. júh. Leiðsögnin mynd mánaðarins fer fram í fylgd sér- fræðings á fimmtudögum kl. 13.30-13.45. Listasafn íslands er opið aha daga nema mánudaga kl. 12-18 og er veitingastofa safnsins opin á sama tíma. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 í Listasafni Sigurjóns í Laugamesi er nú tíl sýnis úrval af andlitsmyndum Sigur- jóns frá tímabihnu 1927-1980. Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18, mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 20-22. Nýhöfn Þessa dagana stendur yfir árleg sumar- sýning í Listasalnum Nýhöfn. Á sýning- unni, sem er sölusýning, eru málverk og skiilptúrar eftir nokkra helstu núlifandi Ustamenn þjóðarinnar. í Nýhöfn eru auk þess ávallt til sölu verk eftir látna meist- ara. Meðan á sumarsýningu stendur er Nýhöfn opin ingu frá kl. 10-18 virka daga, lokað um helgar. Sýningunni lýkur 25. ■júlí. Nýlistasafnið Vatnsstíg 3b Laugardaginn 14. júh verða opnaðar 3 nýjar sýningar í Nýhstasafninu. í for- sal/Gryfju er sýning á verkum franska Ustamannsins Bauduin. Á annarri hæð verður einkasýning Nielsar Hafstein og á þriöju hæð verður safnsýning. Þar verða sýnd verk eftir Ásu Olafsdóttur, ívar Valgarðsson, Rúnu Á. Þorkelsdóttur og Þór Vigfússon. Sýningin er opin dag- lega frá kl. 14-18. Henni lýkur 29. júh. Norræna húsið Laugardaginn 30. júní sl. var opnuð sýn- ing á verkum eftir Snorra Arinbjarnar. Á sýningunni eru um 30 málverk sem spanna tímabilið frá lokum þriðja áratug- arins til 1958. Verkin á sýningunni eru öh í eigu einstaklinga, safna og stofnana. Sýningin verður opin daglega kl. 14-19 alla daga vikunnar til 26. ágúst. Reykholt Samsýning borgfiskra Ustamanna stend- ur nú yfir í Reykholti. Þátttakendur í sýningunni eru ahs 19 Ustamenn sem starfa í héraðinu eða tengjast Borgarfirði á einhvern annan hátt. Sýningin stendur til 6. ágúst og verður opin daglega frá kl. 13 til 18. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8 Hafnarfirði sími 52502 Opið alla daga nema mánudaga kl. 14-18 Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11 Opið á suimudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. SPRON Álfabakka 14 í SPRON stendur yfir sýning á verkum eftir Katrínu Ágústsdóttur. Myndefnið sækir Katrín aðahega í húsaþyrpingar, t.d. í Reykjavík, og íslenskt landslag. Á sýningunni er myndefnið nokkuð úr Breiðholtshverfinu og umhverfi þess, svo og nokkrar landslagsmyndir. Sýningin, sem er sölusýning, mun standa yfir til 31. ágúst nk. og er opin frá fostudegi til mánudags frá kl. 9.15-16. *■ Vinnustofa Ríkeyjar Hverfisgötu Þar eru til sýnis og sölu postulínslág- myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-16. Myntsafnið á Akureyri Aðalstræti 58 - sími 24162 Opið er kl. 13.30-17 aUa daga vikunnar. Guðjón Bjarnason * sýnir í Kringlunni Guðjón Bjamason sýnir í boði ÁTVR í forsal verslunarinnar í Kringlunni. Sýn- ingin er hður í þeirri stefnu ÁTVR að efla og styrkja íslenska myndhst og myndlistarmenn. Á sýningunni eru 12 málverk, unnin á tré með ýmsum að- ferðum í Bandaríkjunum og hérlendis á sl. ári. Rjómabúið á Baugstöðum s.98-63369/98-63379/21040. Verður opið í sumar laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-18. Opnið á öðrum tímum fyrir hópa. Rjómabúið var' reist árið 1905 og var í notkun tU ársins 1952. Þar var einnig rekið pöntunarfélag frá 1928 til 1969. Slunkaríki ísafirði í Slunkaríki sýnir franski listamaðurinn Bauduin. Á sýningunni, sem stendur tU sunnudagsins 22. júh, verða teikningar af landslagsverkum og grjótskúlptúrar. Slunkaríki er opið fimmtudaga-sunnu- daga kl. 16-18. >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.