Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Page 6
22
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990.
Bíóhöllin:
Þrír bræður
Nýjasta mynd Toms Cruise ber heitiö Days of Thund-
er. Þar er Cruise í hlutverki metnaðarfulla ökuþórsins
Cole Trickle. Robert Duvall og Randy Quaid koma
ennfremur viö sögu í myndinni. Duvall leikur yfirmann
viögerðarsveitarinnar en Quaid leikur viðskiptajöfur
sem tekist hefur aö draga þann fyrrnefnda út í hring-
iöu kappakstursins á nýjan leik.
Eddie Murphy og Nick Nolte eru nú væntanlegir á
breiðtjaldið í framhaldsmynd um 48 stundir. Félagarn-
ir eru sem fyrr í hlutverkum Reggie Hammond og
Jack Cates. Myndin heitir á frummálinu Another 48
Hours og leikstjóri er Walter Hill.
Þrír bræður fá það hlutverk að aka Cadillac frá Michigan til Flórída.
og bíll
Biohöllin frumsýndi í gær kvik-
myndina Þrír bræður og bíll
(Coupe de Ville). Myndin er byggð
á sannri sögu en ekki bggur fyrir
nafn fjölskyldunnar sem þar átti
hiut að máb.
Þrír bræður og bíll íjallar um
þrjá bræður sem eru kallaðir sam-
an af föður sínum til. að leysa
ákveðið verkefni. Þeim er ætlað að
afhenda móður sinni sérstaka gjöf
í tilefni fimmtugsafmæbs hennar.
Gjöfin er ekki af verri endanum,
Cadillac Coupe de Ville af árgerð-
inni 1954. Hlutverk bræðranna er
að koma glæsivagninum til skila
en það felur í sér að aka bílnum frá
Michigan til Flórída án þess að
drepa hver annan eða skemma bíl-
inn. Klúðri þeir síðamefnda atrið-
inu mun faöir þeirra taka ærlega í
hnakkadrambið á þeim. Bræðumir
eru afar ólíkir en á ferðinni kynn-
ast þeir vel kostum og göllum hver
annars. Sá yngsti, Bobby, hefur
dvalið í heimavistarskóla og grípur
tækifærið fegins hendi þegar bU-
ferðin býðst. Buddy er sá í miðið.
Hann er námsmaður góður og
reynir að stilla tU friðar á milli
bræðra sinna. Marvin er elstur.
Hann er liðþjálfi í hernum og hon-
um er ætlað að hafa auga með
bræömm sínum og jafnframt að
stjórna ferðinni.
Helstu hlutverk leika Patrick
Dempsey, Ayre Gross, Daniel
Stern, Alan Arkin, Annabeth Gish
og Rita Taggart. Leiksfjóri er Joe
Roth.
í myndinni Partý er fjallað um skemmtanamáta ungra blökkumanna.
Laugarásbíó:
Partý
í Partýi (House Party), sem sýnd
er í Laugarásbíói, má sjá hvemig
svartir táningar halda teiti.
Þegar foreldrar Plays (Christoph-
er Martin) fara í helgarferð ákveð-
ur hann að haida partý. Hann ætlar
að láta vinina heyra hvað hann er
fær í að „rappa“. Meðal gesta er
Kid vinur hans (Christopher Reid)
sem telur sig einnig „rappskáld"
gott og viU gjaman kynna gestum
hæfileika sína í þeim efnum. Kid
er hins vegar svo óheppinn að
lenda í slagsmálum í skólanum, við
Stab og fantana vini hans, og er
kaUaður fyrir skólastjórann. Þegar
faðir Kids fréttir þetta setur hann
pUt í bann, hann fer ekkert út að
skemmta sér eftir athæfið í skólan-
um.
Faðir Kids vinnur erfiðisvinnu
og þegar Uður á kvöldið getur hann
ekki haldið sér vakandi. Kid kærir
sig koUóttan um allar afleiðingar
og fer heim tíl Plays. Þar er hið
mesta fjör, eins og gefur að skUja,
og þeir em ófáir í næsta nágrenni
sem kvarta yfir hávaðanum. MáUn
verða þó ekki alvarleg fyrr en faðir
Kids vaknar og heldur rakleiðis á
staöinn tU að skakka leikinn.
r r '
BÍÓBORGIN:
Fullkominn hugur
Framtíðarmynd sem gerist á Mars.
Háspenna frá upphafi til enda.
Schwarzenegger í sinu besta hlut-
verki. Einnig sýnd í BíóhöiUnni.
HK
Vinargreiðinn **
Jodie Foster sýnir afburðaleik í
Utlu en mUtilvægu hlutverki i sjón-
varpslegri mynd.
GE
Stórkostleg stúUta **'/,
Létt og skemmtileg mynd þrátt fyr-
ir ófrumlegt handrit. Julia Roberts
er frábær. Einnig sýnd í BíóhöU-
inni.
HK
BÍÓHÖLUN:
Að duga cða drepast * 'h
Ofbeldið þreytandi til lengdar en
GE
Tango og Cash **‘/2
LöggukUsja út í gegn en kröftug-
lega gerð, sérstakiega tæknilega
séð.
GE
HÁSKÓLABÍÓ:
Leitin að rauða októbcr ★★*
Róleg uppbygging með hörku-
spennandi síðarihluta. Sean Conn-
ery gnæfir yfir aðra leikara í mynd-
inni
HK
Óvenjuáhrifamikil, spennandi og
óvægin. Gere frábært fúlmenni.
GE
Shirley Valentine **
Losnar ekki alveg við leikritakeim-
inn og nær ekki aö hafa full áhrif,
GE
Vinstri fóturinn ****
Ótrúlega goður leikur Daniels Days
Lewis í hlutverki fjöU’atlaðs manns
gleymist engum sem myndina sér.
HK
Paradisarbíóið *** 'h
Það líöur ölluro vel eftir að hafa séö
þessa einlægu og skemmtilegu
mynd. HK
LAUGARÁSBÍÓ:
AUtaf ***‘/t
AUtaf er best svokaUaðra „alvar-
legri“ mynda Spielbergs, kannski
af því að hér stendur eftiið honum
nær.
GE
Losti *★*
A1 Pacino fer á kostum í erótískri
sakamálamynd sem er vel yfir
meðaUagi. HK
REGNBOGINN: ^ ^
SálfræðiþriUer í anda Hitchcocks.
James Spader frábær í hlutverki
bráðarinnar. HK
Föðurarfur **
Persónusköpunin sterk í innan-
tómu handriti, sem veltur úr einu
í annað, oft allharkalega.
GE
Seinheppnir bjargvættir **
„Speisaður“ Cheech í banastuði
bjargar blöndu grins og prédikana
fyrir hom.
GE
Hjóiabrettagengið **
Ágæt saga, frábært brettaflug.
GE
Helgarfrí hjá Bemie **'4
Fyndinn gálgahúmor og almennt
virðingarleysi. Ekki aUra tesopi.
GE
Skiðavaktin 'h
Góð skíðaatriði bjarga ekki fifla-
gangiaulalegrapersóna. GE
Strandalíf og stuð *
ÍVTHónlistin og Kaliforníusólin
giitrar á smurðum skrokkum, Ekk-
ert sem maöur hefur ekki séð þús-
undsinnumáður. GE
Fjölskyldumál **'/
Fjölskyiduvandamál á ameríska
vísu. LeUtumm tekst vel upp í lát-
lausri og heiðarlegri mynd.
HK
Stálblóm **
ÁhrifamikiU leikur, sérstaklega :
hjá Roberts og Fields. Gott drama
en á köflum átakanlega væmið.
PÁ
Pottormur í pabbaleit **
Hin fuilkomna flölskyldumynd
sem er frumleg fyrstu mínúturaar
en verður svo ósköp venjuleg.
HK