Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1990, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1990, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990. Tónleikar Tónleikar í Borgarneskirkju Tónleikar verða haldnir í Borgarnes- kirKju miðvikudaginn 15. ágúst kl. 20.30. Þá munu Sigurður Halldórsson sellóleik- ari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari flytja „Arpeggione", sónötu Schuberts, sónötu í A dúr eftir Beethoven ásamt verkum eftir Fauré, Hindemith, Martinu og Boccherini. Á tónleikum í byrjun árs 1983 hófst áralangt samstarf þeirra Daní- els og Sigurðar á sviði frjálsrar spunatón- listar. Reyndist það hinn ákjósanlegasti jarðvegur er þeir fóru að spila saman sí- gilda tónlist fyrir þremur árum eftir að hafa stundað hefðbundið tónlistamám, hvor í sínu homi frá unga aldri. Daniel lærir nú við Sweelinck tónlistarháskól- Daðrað við gamlan stíl Madonna kemur oft á óvart. Hún er fastagestur og svo til daglegur ges_tur í slúðurdálkum tiestrænna blaða og tímarita. Hun virðist lifa bæði hratt, hátt og villt. Eigi að síður er Madonna prýðilega afkastamikil á tónlistarsviðinu og eftir hana hggur eitt og annað í kvikmyndum. Svo sem engin afrek en alvond er hún alis ekki á hvíta tjaldinu. Tónhstin á nýjustu plötunni, I’m Breathless, kemur á óvart. Poppsöngkonan Madonna leitar nú til fortíðar- innar í stfl. I sumum lögum er árangurinn ánægjuleg- ur, annars staðar dálítið flatur. En í heildina séð hafði ég svolítið gaman af að renna I’m Breathless í gegn. Óneitanlega hvarflaði hugurinn nokkrum sinnum tfl Lindu Ronstadt. Hún tók upp á því óforvarandis að hljóðrita þrjár hljómplötur með Nelson heitnum Riddle og hljómsveit hans. Bandarísk dægurlög, dún- mjúk og líðandi, frá liðnum áratugum. Óvænt framtak hjá söngkonu sem maður hafði ekki nema miðlungi mikið álit á. Engu að síður kláraði Linda sig vel og er það kannski ekki síður Riddle heitnum að þakka en henni. Madonnu hefði sennilega ekki veitt af að hafa ígildi gamla meistarans með sér er hún réðst í gerð I’m Breathless. Og hljómsveitin hans fullmönnuð hefði ekki skaðað. Tölvur eru látnar leysa sveitina af hólmi Plötur dv Ásgeir Tómasson og koma svo sem bærilega út. En eins og þeir segja hjá Kók: „You can’t beat the real thing.“ Bestu kaílarnir í I’m Breathless eru lögin úr Dick Tracy-myndinni, þau sem Stephen Sondheim samdi. Nokkur laga Madonnu eru einnig virkflega áheyrfleg, tfl dæmis Cry Baby og Something to Remember. i tveimur síðustu lögum plötunnar, Now I’m Following You (Pt. II) og Vogue, fer hstakonan hins vegar út af sporinu og allt aðra leið en í fyrri lögunum tíu. Þau stinga því illilega í stúf við heildina þótt sem slík séu þau sæmilegasta popp. Gamlir aðdáendur Madonnu eru kannski ekkert yfir sig hrifnir af hhðarsporum hennar á plötunni I’m Breathless. Mig langar hins vegar að benda þeim á sem hingað tfl hafa ekki þolaö söngkonuna að gefa I’m Breathless tækifæri. Þeir verða ef tfl vih umburðar- lyndari gagnvart henni í framtíðinni. Kannski líka sá semþettaritar. -ÁT Menning Sterk nánd Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson sterkri en þó óútskýranlegri nánd, rétt eins og helgi- gripi eða forna bautasteina. Að því leyti skírskota þau engu síöur til trúarbragða og goðsagna en tfl hstasög- unnar. Umbúðir sálna Því hamra ég á goðsagnalegri/trúarlegri vídd þessara þrívíddarverka, að listakonan virðist gera slíkt hiö sama. Verk hennar, gerð úr fægðum harvið og kross- við, liggja flest endilöng um sali og líkjast engu fremur en stílfærðum líkkistum. Staðsetning tvennunnar „Karon 4“ í myrkum sal og með sterkri ofanlýsingu rennir stoðum undir slíka túlkun. Aukinheldur bera þau öll nafn ferjumannsins Karons, sem samkvæmt grískum goðsögnum ferjaði sáhr manna yfir ána Styx, úr veröld lifenda yfir í veröld dauöra. Um leið myndar sérhver þessara skúlptúreininga, hver „kista”, sjálf- stætt tflbrigði um meginstef. Flái er á þeim flestum, mismundandi þó, sumar hækka til endanna eða nyókka í odd eða egg, minna þá í senn á eggvopn og sarkofaga fornkonunga, hafna þó báðum líkingum. Reykjavík 19. nóvember 1912. For- eldrar hans voru Guðný Magnús- dóttir og Páll Stefánsson. Magnús réðst ungur í vinnu á glerslípunar- verkstæði Ludwig Storr. Þar starfaði hann í um 24 ár þar til hann byrjaði sjálfur með glerslípun á Reykjavík- urflugvelli árið 1949. Að fimm árum hðnum flutti hann reksturinn í Skip- holt 9 og starfrækti þar glerslípun og speglagerð Magnúsar B. Pálsson- ar þar til hann hætti störfum sökum aldurs. Eftirlifandi eiginkona hans er Ragnheiöur Þyrí Nikulásdóttir. Þeim hjónum varð sex barna auðið. Útfór Magnúsar verður gerð frá Há- teigskirkju í dag kl. 15. Jón G. Benediktsson hárgreiðslu- meistari lést 4. ágúst. Hann var fædd- ur 13. september 1952, sonur hjón- anna Benedikts Sigurðssonar og Auðar Eiríksdóttur. Eftirlifandi eig- inkona hans er Heiða Ármannsdótt- ir. Þau hjónin ráku saman hár- greiðslustofuna og snyrtivöruversl- unina Bylgjuna síðan 1976 í Hamra- borg í Kópavogi. Útför Jóns verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Skúlptúrar Sigrúnar Ólafsdóttur í Nýlistasafninu eru skýrari hlutgervingar nýrra viðhorfa í þrívíddar- list en flest annað sem hér hefur verið sýnt á undan- gengnum misserum. Verk hennar eru ekki með inn- byggða togstreitu formanna, né heldur reyna þau að hafa áhrif á það rými sem umlykur þau, eins og mód- ernískum verkum pr títt. Þau eru heldur ekki framn- lenging á kenningasmíði, eins og mörg þrívíddarverk með naumhyggju- eða huglægu yfirbragði. Þau eru umfram allt grundvöhuð á uppsafnaðri dul- úð arftekinna hugmynda eða tákna, sem gæðir þau Sigrún Ólafsdóttir — Karon 4 og 5. DV-mynd Brynjar Gauti Völundarsmíð Listakonan er völundur á tré, en bruðlar þó hvergi með þekkingu sína á tré og tækjum. Viðurinn er mark- visst sniðinn, bæsaður og fágaður, uns sérhver eining er sjálfri sér næg og uppfull af innra lífi. Á sýningu Sigrúnar eru einnig drög að tveimur verk- um (Karon 5 & 6), sem veita innsýn í vinnuaöferðir hennar en draga óneitanlega úr slagkrafti sýningar- heildarinnar. Með þessum fáguðu og margræðu verk- um er sleginn tónn í íslenskri þríviddarlist sem verð- skuldar fuha athygh hérlendra listunnenda. ann í Amsterdam undir leiðsögn Willems Brons en Sigurður lauk námi fyrir nokkru frá „Guildhall School of Music and Drama" í London og sækir enn tíma hjá aðalkennara sínum þar, Raphael Sommer. Tónleikar í Lista- safni Sigurjóns Á þriðjudagstónleikum í Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar í kvöld, 14. ágúst, kl. 20.30 ætla fjórar ungar tónlistarkonur að flytja fjölbreytta dagskrá. Þær eru Signý Sæmundsdóttir söngkona, Hlíf Sigur- jónsdóttir fiðluleikari, Nora Kornblueh sellóleikari og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari sem eru allar þekktar úr tónlistarlífi Reykjavíkur. Að venju munu tónleikamir standa í um það bil klukku- stund og verður kafflsala safnsins opin að þeim lokniun. Danskur kór í heimsókn Kammerkórinn Corda Vocale frá Aarhus mun heimsækja Reykjavík dagana 16. og 17. ágúst. Kórinn var stofnaður árið 1985 af stjómandanum Claus Thorenfeldt og í þessari fyrstu utanlandsferð hans em meðlimir 23 talsins. Áður en kórinn kem- ur til Reykjavíkur hefur hann dvalið þrjá daga í Færeyjum og haldið tónleika á Seyðisfiröi. Kórnum hafa verið veittir styrkir til fararinnar og tónlistarráð danska ríkisins veitti styrk til flutnings tveggja nýrra verka eftir Knut Nysted og Sulo Balonen. Kórinn Corda Vocale mun halda tvenna tónleika í Reykjavík. Fyrri tónleikamir verða í Laugarneskirkju fimmtudaginn 16. ágúst kl. 20.30. Efnis- skráin samanstendur af fjölbreyttu úr- vah kirkjulegrar tónlistar. Seinni tón- leikamir verða í Norræna húsinu föstu- daginn 17. ágúst kl. 20.30. Á efnisskránni verður dönsk veraldleg tónlist frá ýms- um tímum. Píanóundirleik á tónleikun- um annast Annan Dahl Hansen. Sýningar Málverkasýning í Þrastar- lundi Aðalbjörg Jónsdóttir sýnir málverk í Þrastarlundi þessa dagana. Einnig sýnir hún þar 2 stór veggspjöld af handpijón- uðum kjólum úr íslenskri ull. Kattahótelið í Reykjavík minnir fólk á að bólusetja ketti áður en það kemur með þá í gæslu og einnig að panta pláss tímanlega. Sími kattahótels- ins er 641461. Félag eldri borgara Farin verður ferð um Reykjanes 18. ágúst nk. Farið verður kl. 13 frá skrifstofu fé- lagsins. Verð kr. 1.500 með mat. Aðgöngumiðahappdrætti bindindismótsins í Galtalækjarskógi Mótsgestir fjölmennustu útihátíðar verslunarmannahelgarinnar nýaf- stöðnu, Bindindismótsins í Galtalækjar- skógi, fengu óvæntan bónus þegar þeir tóku við aðgöngumiðum sínum. Hver aðgöngumiði gilti nefnilega sem happ- drættismiði. Nú hefur verið dregið í þessu happdrætti og handhafar aögöngu- miðanna með eftirtalin númer hafa hlotið vinninga: 1. útvarpstæki frá Rönning nr. 1096, 2. Coca Cola töskur: nr. 8959, 8405, 5490, 5460, 4825,4826, 9932,6859.3. Mozart konfektkassar: nr. 4827, 2000, 7791, 4836, 4835, 9302, 9228, 2177, 683, 5740. 4. Stórir Coca Cola boltar - merktir HM ’90: nr. 5065, 5064, 4482, 2344, 5757. 5. Mini Coca Cola boltar: nr. 9169, 9469, 8381, 5277, 5278. 6. Sprite vindsængur: nr. 8377,264.7.2 bækur að eigin vali frá bóka- útgáfu Æskunnar: 10169, 2760, 2332, 7586, 6656, 7252, 9627, 859, 9231, 9561. Vinninga skal vitja á skrifstofu Æskunnar í Templ-. arahöllinni, Eiríksgötu 5, Reykjavik. Þangað skal einnig vitja óskilamima frá Bindindismótinu í Galtalækjarskógi. Andlát Björn Viktorsson, Grenigrund 3, Ákranesi, lést í sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 11. ágúst. Kristján Hermannsson, Kársnes- braut 84, Kópavogi, lést á Borgar- spítalanum 11. ágúst. Birna Kristín Finnsdóttir, Holtsgötu 2, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri laugardaginn 11. ágúst. Jóhann Friðrik Kárason, Vallhólma 14, Kópavogi, lést á Landspítalanum laugardaginn 11. ágúst. Hulda Gyða Þórðardóttir, Fomhaga 26, andaðist laugardaginn 11. ágúst. Eiríkur Einarsson, frá Þóroddsstöð- um í Ölfusi, andaðist á Kumbaravogi laugardaginn 11. ágúst. Sigríður Bachmann, fyrrverandi for- stöðukona Landspítalans, andaðist 10. ágúst. Sigurður G. Jóhannsson pípulagn- ingameistari, Hátúni 13, Reykjavík, lést 11. ágúst í Borgarspítalanum. Lárus Á. Ársælsson, Kirkjuvegi 43, Vestmannaeyjum, lést á Landspítal- anum 13. ágúst. Jarðarfarir Fjölirúðlar Útför Mörthu Stefánsdóttur, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 8 þ.m., fer fram frá Fossvogskapellu mið- vikudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Hafsteinn Halldórsson, Meistaravöll- um 23, andaðist í Landspítalanum 1. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Útför Magnúsar Dalmanns Hjartar- sonar, Skúlagötu 72, Reykjavík, fer fram frá Hallgrímskirkju miðviku- daginn 15. ágúst kl. 13.30. Borghildur Jónsdóttir, sem andaðist 7. þ.m., verður jarðsungin frá Akur- eyrarkirkju fimmtudaginn 16. ágúst kl. 13.30. Sigrún Á. Eiríksdóttir, Laufásvegi 34, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Séra Óskar J. Þorláksson fyrrum dómprófastur, Aragötu 15, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16. ágúst kl. 13.30. Þrúður Guðmundsdóttir verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mið- vikudaginn 15. ágúst kl. 15. Magnús Pálsson glerslípunarmeist- ari lést 6. ágúst sl. Hann fæddist í Svo hefur brugðíð viö í sumar að Sjónvarpið heíúr alloft tekið upp á því aö sýna frá hinum og þessum tónleikum. í gærkvöldi tróð allt í einu uppi tónlistarmaðurinn Neil Young, allt öðruvísi en ég hélt hann vera. Sá maöur er vist gjarn á að skipta um stfl í tónlist sinni. Ekki get ég sagt að tónleikar sem þessir í Sjónvarpi lími mig fasta við skjá- inn en ég hef tekiö eftir því aö á mínu heimili eru aðrir sem hvað mest horfa á slíka þætti og láta hrifningu sína óspart íljós. Ekki eyddi ég tima mínum fýrir iraman tónleikana frá Þýskalandi né heldur Englandi sem sýndir voru á miðjum sunnudegi. Hins vegar man ég eftir beinni útsendingu frá ftalíu í byijun júli þar sem þrír heimsfrægir söngvarar tróðu upp. Sá þáttur var í alla staði frábær og bíð ég með eftirvæntingu eftir að sjónvarpið endursýni hann. Mér finnst eins og ég hafi heyrt að þaö muni verða í september. Viðbrögð við þeim þætti á opinberum vett- vangi sýndi að tónleikar geta verið stórfenglegt sjónvarpsefni. Einnig man ég eftir kvöldstund meö norsku söngkonunni Sissel Kyrkjebö, sem sögð er vera kærasta Eddie Skoller, en sá þáttur var einn- íg mjög góður. Þá var sá danski grín- isti einnig á skjánum fyrir stuttu. Segja má að sjón varpið hafi í sum- ar þjónað öllum hópum tónhstar- unnanda og það í stereó því að oft- ast er þáttunum útvarpaö á rás tvö. íslenskum tónhstarmönnum hefur einnig verið sinnt enda man ég ekki betur en aö þáttur sem bar nafniö Sumarsmellir haíi verið á dagskrá ásunnudagskvöld. Tónleikar af þessu tagi eru varla kostnaðarsamir í útsendingu og að aukl oftastágætisafþreying. Hins vegar býst ég við að útsendingartími verði að vera nokkuð í takt viö tón- listarstílinn. Neil Young hefði að ósekju mátt bíða fram yfir ellefu- fréttir í gærkvöldi - þeir vaka sem vilja. Elín Albertsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.