Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Page 1
EllyAmeling með jólatónleika Elly Ameling, ljóðasöngkonan frá Hollandi, og píanóleikarinn Dalton Baldwin munu halda jólatónleika í Háskólabíói á vegum samtakanna Barnaheill sunnudaginn 16. desemb- er kl. 14.00. Einnig mun Kór Öldutúnsskóla, undir stjórn Egils Friðleifssonar, taka þátt í tónleikunum. Lúörasveit Laugarnesskóla, undir stjórn Stefáns Stephensen, mun flytja jólalög á und- an tónleikunum í anddyri bíósins. Á efnisskrá verða vel þekkt lög eft- ir Schubert, Brahms og Hugo Wolf ásamt jólalögum frá ýmsum löndum. Að síðustu munu listamenn og áheyrendur syngja saman Heims um ból. Miðar eru seldir á skrifstofu Sin- fóníuhljómsveitar íslands í Háskóla- bíói og við innganginn.' Eimskip styrkir tónleikana og mun allur ágóði þeirra renna óskiptur til starfa samtakanna Bamaheill. Elly Ameling heldur jólatónleika til styrktar samtökunum Barnaheill. Tónlistarskóli FÍH 10 ára: Jóla- og afmælis- tónleikar Næstkomandi laugardag heldur Tónlistarskóh FÍH upp á tíu ára af- mæli sitt með jóla- og afmælistón- leikum. Tónleikamir verða í nýju húsnæði skólans að Rauðagerði 27 og hefjast þeir klukkan 13.30. Fjölbreytt efnisskrá er á tónleikun- um enda námið margvíslegt og géta nemendur valið um þrjár náms- brautir: sígilda braut, djassbraut og poppbraut og koma fram nemendur og hljómsveitir af öllum þessum tón- listarbrautum. Frá tónleikum Tónlistarskóla FiH í fyrra, Einleikarar og hljóðfæraleikarar i Kammersveit Reykjavíkur sem leikur á jólatónleikum i Askirkju. Kammersveit Reykjavíkur: Jólatónleikar Á sunnudaginn mun Kammersveit Reykjavíkur halda sína árlegu jóla- tónleika í Áskirkju klukkan 17.00. Hjá Kammersveit hefur skapast sú hefð að leika á jólatónleikunum tón- hst frá barokktímanum og að gefa hljófæraleikurum tækifæri til að koma fram sem einleikarar í kon- sertum meistara þess tíma. Að þessu sinni munu koma fram með, Kammersveitinni fimm ungir og efnilegir einleikarar, sem allir hafa nýlega lokið framhaldsnámi er- lendis og eru flestir komnir heim til starfa. Eiríkur Örn Pálsson trompetleik- ari mun hefja tónleikana meö tromp- etkonsert í D-dúr eftir G. Torreh. Næst leikur Guðmundur Krist- mundsson lágfiðluleikari Konsert í G-dúr eftir G.P. Telemann, Bryndís Halla Gylfadóttir leikur þá sellókon- sert í Es-dúr eftir A. Vivaldi, Sigurð- ur Þorbergsson básúnuleikari leikur þá Konsert í B-dúr eftir J.G. Albrechtsberger og að lokum mun Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari flytja Konsert í G-dúr eftir C.P.E. Bach. Með einleikurunum leikur 12 manna strengjasveit undir stjórn Rutar Ingólfsdóttur. Jólabjallan sett upp r r 1 f r r* •• ' a ny - lif og fjor 1 Hlaðvarpaportinu Á morgun, laugardag, verður rifj- aður upp merkur atburður í sögu raflýstra jólaskreytinga utanhúss. Jólabjallan, sem í den var á milli Vesturgötu 2 og Aðalstrætis 1, verður sett upp aftur eftir margra ára hlé. Bjallan hefur verði endurgerð eftir fyrirsögn Gísla J. Sigurössonar í Raforku en bjölluna setti hann upp árið 1943 milli Rafals og Geysis. Bjall- an mun vera ein elsta raflýsta jóla- skreytingin yfir götu í Reykjavík. Davíð Oddsson borgarstjóri mun tendra ljósaskreytinguna og láta bjölluna óma klukkan 16.00 á morg- un. Lúðrasveitin Svanur leikur fyrir og eftir athöfnina til aö gleðja mið- bæinga, Reyndar byija miðbæjarhátíðar- höldin klukkan 10.00 að morgni með útfiskmarkaði á „Stakkstæðinu" í Grófinni, þ.e.a.s. ef bátar hafa róið. Hesturinn Fífinella dregur lysti- kerru og börnin fá að sitja í, Hjálp- ræðisherinn verður með söng og hljóðfæraslátt, Gamanleikhúsið sýn- Jólabjallan i Aöalstræti setti mikinn svip á bæinn og nú hefur hún verið endurgerð. ir, Dómkórinn og Rokkhngarnir syngja og Grýla flengir börnin í Hlað- varpaportinu. Þegar Grýla hefur lok- ið sér af mun Björk Guðmundsdóttir koma fram með Tríó Guðmundar Ingólfssonar. Milli atriða í Hlaðvarpaportinu lesa ung skáld upp úr verkum sínum. Auk þess veröa jólasveinarnir á sveimi í miðbænum allan daginn. Femir jólatónleikar hjá Tónlistarskóla Akureyrar —~— -------- ,---: Á þeim tónleikum koma fram fjór- verða í safnaðarheimili Akureyrar- Gyifi Knst)ánsson, pv, Atcureyn: ar blásarasveitir skóians. Gítartón- kirkju miðvikudaginn 19. des. kl. TónhstarskólinnáAkureyrigengst leikar verða í Lóni á sunnudag kl. 20.30. Aðgangur á alla tónleikana er fyrir fernum jólatónleikum að þessu 20, strengjadeild verður með tónleika ókeypis og allir eru velkomnir. sinni og verða þeir fyrstu í Ákur- í Akureyrarkirkju á mánudagskvöld eyrarkirkju á morgun kl. 17. kl. 20 og jólatónleikar söngdehdar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.