Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Page 3
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990.
23
Dans-
staðir
Bjórhöllin
Gerðubergi 1, sími 74420
Lifandi tónlist öll kvöld vikunn-
ar.
Breiðvangur
i Mjódd
Tónlistar- og kvikmyndaveisla í
kvöld. Hljómsveitin Rikshaw
mun kynna efni af nýútkominni
breiöskífu sinni, Angels and Dev-
ils. Loðin rotta leikur fyrir dansi.
Á laugardagskvöld verður stór-
sýning Ríó tríós, Dýrið gengur
laust. Hljómsveit hússins verður
stórhljómsveit Gunnars Þórðar-
sonar.
Danshöllin
Fjölbreytt skemmtun með fyrir-
taks skemmtikröftum. Rokksveit
Rúnars Júlíussonar leikur á efri
hæðinni.
Casablanca
Diskótek föstudagskvöld. Tísku-
kvöld á laugardagskvöld. í tilefni
af því mun dómnefnd útnefna
best klædda strák og best klæddu
stelpu ársins 1990.
Dans-Barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Diskótek um helgina.
Danshúsið Glæsibæ
Álfheimum, s. 686220
Danshljómsveitin Smellir ásamt
Ragnari Bjarnasyni leikur fyrir
dansi um helgina.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Lifandi tónlist um helgar.
Hótel Borg
Pósthússtræti 10, sími 11440
Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Púlsinn
Vitastíg
Rúnar Þór og- hljómsveit leika
fóstudags- og laugardagskvöld. Á
simnudagskvöld leikur hljóm-
sveit Eddu Borg.
Sportklúbburinn
Borgartúni 32, s. 29670
Opið fostudags- og laugprdags-
kvöld á Stönginni. Aðgangur
ókeypis.
Skálafell, Hótel Esju
Suðurlandsbraut 2, sími 82200
Gúðmundur Haukur leikur
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld og nk. fimmtudags-
kvöld. Opið öll kvöld vikunnar.
Hótel Island
Ármúla 9, sími 687111
Húsið opnað kl. 22 í kvöld. Hljóm-
sveitin Atlantis leikur fyrir
dansi. Hljómsveitin Upplyfting
kynnir nýútkomna plötu sína.
Á laugardagskvöld verður sýn-
ingin „Rokkað á himnum". Síð-
asta sýning fyrir jól. Hljómsveitin
Atlantis leikur fyrir dansi á stóra
sviðinu. Anna Vilhjálms og Flæk-
ingarnir leika í Asbyrgi. Blús-
menn Andreu blúsa í Café ísland
og öll nýjustu lögin verða leikin
í Norðursal. Hljómsveitin Upp-
lyfting kynnir nýju plötuna sína.
Hótel Saga
„Ómladí", skemmtun Ómars
Ragnarssonar, Þórhalls Sigurðs-
sonar, Haralds Sigurðssonar og
fleiri ágætra manna hefst aftur á
laugardagskvöld. Hljómsveitin
Einsdæmi leikur fyrir dansi.
Mímisbar er opinn fóstudags- og
laugardagskvöld.
Keisarlnn
Laugavegi 116
Opiö öll kvöld.
Laguna og Café
Krókódíll
Diskótek um helgina.
Tveir vinir og annar í fríi
í kvöld leika Langi Seli og skug-
gamir fyrir dansi. Á laugardags-
kvöldiö ætlar hin stórsnjalla
meindýra-sveit Loðin rotta aö
troða upp.
Ölver
Álfheimum 74, s. 686220
Karaoke-nýjungar í tónhstar-
flutningi. Opið alla daga.
Veitingahúsið Ártún
Vagnhöfða 11, s. 685090
Nýju og gömlu dansarnir fóstu-
dags- og laugardagskvöld. Hljóm-
sveit Jóns Sigurðssonar leikur
fyrir dansi ásamt söngkonunni
Hjördísi Geirsdóttur.
Kveðja
Sigfúsar
til
Reykjavíkur
Um síðustu helgi opnaði Sigfús
Halldórsson málverkasýningu að
Kjarvalsstöðum og eru allar mynd-
irnar helgaðar Reykjavík.
Um þessa helgi, laugardag og
sunnudag, klukkan 15.00 verða
stuttar uppákomur í tengslum við
sýninguna. Ýmsir tónlistarmenn
og vinir Sigfúsar ætla að troða upp.
Á mánudag verða haldnir sér-
stakir tónleikar til heiðurs Sigfúsi
og hefjast þeir klukkan 20.30 og
verða salir Kjarvalsstaða opnir til
klukkan 22.00 það kvöld. Annars
er sýningin opin daglega frá klukk-
an 11.00 til 18.00 og lýkur henni á
Þorláksmessu.
mm
Vinir Sigfúsar troða upp á sýningu hans um helgina.
Tískukvöld
í Casablanca
Laugardagskvöldið 15. desember
mun Véitingahúsið Casablanca
halda tískukvöld. í því tilefni mun
dómnefnd útnefna best klædda
strákinn og best klæddu stelpuna
árið 1990. I dómnefnd verður fólk
sem liflr og hrærist í tískuheimin-
um í Reykjavík. Ýmsar aðrar uppá-
komur verða svo sem snyrtivöru-
kynning og boðiö verður upp á for-
drykk og konfekt.
Þessar stelpur ættu góða möguleika á tískukvöldinu.
Gluggagægir guðar á glugga i Árbæ.
Jól í Árbæ
Um þessa helgi eru síðustu for-
vöð að sjá hina margrómuðu jóla-
sýningu í Árbæjarsafni. Þarna
kennir margra grasa og má nefna
að í húsi Klepps eru tvær sýningar
en það eru jólahald á stríðsárunum
sem er á efri hæð. í stríðinu jukust
atvinnumöguleikar íslendinga og
tekjur eftir áralangt kreppustand.
Þess bar ekki síst merki á jólum
og eins og sjá má af auglýsingum
verslana frá þessum tíma var ýmis
munaðarvarningur til þótt
skömmtun ríkti. Á neðri hæðinni
er sýningin Jól í Prófessorsbú-
staðnum um 1920 og er það byggt
á minningum Nínu Þórðardóttur.
í Dillonshúsi er hægt að gæða sér
á veitingum, heitu súkkulaði og
jólasmákökum. Á Torginu er jóla-
tré sem dansað er í kringum kl.
14.00 undir harmóníkutónlist og
jólasveinar koma í heimsókn. í
Miðhúsi er prentsmiðjan í gangi og
þar eru prentuð sérstök kort og
einnig eru sýnd jólakort frá fyrri
áratug aldarinnar. Krambúðin
verður opin og hægt að kaupa
ýmisjegt sem tengist jólahaldi.
í Árbæ sjálfum er sýndur jó-
laundirbúningur á baðstofuloftinu
og hvernig laufabrauö er skorið út.
Gestum gefst líka kostur á að hlýða
á aðventumessu kl. 15.30 í kirkj-
unni.
Púlsinn tifar
Á föstudags- og laugardagskvöld
spilar Rúnar Þór í Púlsinum og
kynnir plötu sína Frostaugu, ásamt
því að flytja annað efni. í hljóm-
sveitinni með honum eru þeir Jón
Ólafsson, Jónas Björnsson og Sig-
urgeir Sigmundsson. Þeir félagar
taka fleiri lög en af plötunni og
halda uppi stuði fram á nótt.
Á sunnudaginn verður Hljóm-
sveit Eddu Borg aðalnúmer kvölds-
ins. Með Eddu spila þeir Bjami
Sveinbjörnsson, Friðrik Karlsson,
Pétur Grétarsson og Þórir Baldurs-
son. Heiðursgestir kvöldsins verða
þeir Pálmi Gunnarsson og Sigurð-
ur Karlsson trommari sem ekki
hefur leikið opinberlega síðan 1987.
Meðal þess sem þeir taka með
hljómsveitinni er gamli djassstand-
ardinn Take Five sem Dave
Brubeck gerði óhemju vinsælan á
árum áður.
Sigurður Karlsson kemur i tyrsta
sinn fram í þrjú ár.
Breiðvangur:
Rikshaw og
Loðin rotta
í kvöld, föstudagkvöld, verður
hljómsveitin Rikshaw í skemmti-
og veitingastaðnum Breiðvangi í
Miódd. Hljómsveitin hefur nýverið
sent frá sér breiðskífu sem ber
nafnið Angels and Devils.
Þegar efni plötunnar hefur verið
kynnt mun Loðin Rotta taka völdin
og stjórna dansleik eins og þeim
einum er lagið. Loðin Rotta er nú
reyndar brot úr Rikshaw en að
flestu leyti ööruvísi hljómsveit.
Húsið verður opnað klukkari 22.00
en dagskráin hefst klukkan 23.00.
Dansleikurinn stendur til klukkan
þrjú eftir núðnætti.