Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1991, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 1991 23 DV Heimsmet Barrowmans - í 200 m bringusundi Bandaríski bringusundsmaðurinn Mike Barrowman bætti sitt eigið heimsmet í 200 metrunum á heims- meistaramótinu í Perth í Ástralíu á laugardaginn var. Barrowman synti á 2:11,23 mínútum en gamla metið hans var 2:11,53. Norbert Rosza, Ung- verjalandi, sem setti heimsmet í 100 metrunum á heimsmeistaramótinu, lenti í ööru sæti á 2:12,03 mínútum og Nick Gilhngham, Bretlandi, varð þriðji á 2:13,12. Barrowman setti eldra metið á frið- arleikunum í Seattle í sumar en á ólympíuleikunum í Seoul jafnaði hann í íjórða sæti. Barrowman.sem er 22 ára aldri.hefur sýnt ótrúlegar framfarir á rúmlega tveimur árum og sagði hann í viðtali við fréttamenn eftir sundið að hann ætti eftir að slá þetta met enn frekar á næstunni ef guð og lukkan yrði með honum. Fyrrverandi heims- og ólympíu- meistari, Szabo frá Ungveijaiandi, varð að láta sér lynda fimmta sætið. -JKS Darnyi bestur Engum blööum er um það að fletta að Ungverjinn Tamas Darnyi er sterkasti sundmaður heimsins í dag. Darnyi setti sitt annað heimsmet á heimsmeistaramótinu í Perth í Ástr- alíu í gær, nú í 200 metra fjórsundi, synti á 1:59,36 mínútum. Gamla met- ið átti David Wharton, Bandaríkjun- um, og var það sett í Tokyo í ágúst 1989. Fyrr á mótinu setti Damyi heims- met í 400 metra fjórsundi en auk framangreindra heimsmeta náði hann einnig frábærum árangri í þeim greinum sem hann tók þátt í. Eric Namesnik, Bandaríkjunum, varð annar á 2:01,87 mínútum og Christian Gessner, Þýskalandi, lenti í þriðja sæti á 2:02,36 mínútum. Jan Bidram frá Svíþjóð var fyrstur eftir flugsundið en í næsta sundi sem var baksund tók Damyi forystuna og lét hana ekki af hendi eftir það. Þetta var fimmta heimsmetið sem sett var á heimsmeistaramótinu í Perth. -JKS • Matt Biondi frá Bandaríkjunum sigraði í 200 metra skriðsundi og sést hér með verðlaunapeninginn úr gulli. Símamynd Reuter íþróttir Elstametið féll í Perth Joerg Hoffman frá Þýskalandi sló elsta heimsmetið í sundíþróttinni á heimsmeistaramótinu í Perth í gær. Hoffman setti heimsmetið í 1500 metra skriðsundi, synti á 14:50,36 og bætti gamla metið um rúmiega fjórar sekúndur. Það met átti Vladimir Sainikov og var það sett í Moskvu í febrúar 1983, tími Salnikov þá var 14:54,76 mínútur. * • Joerg Hoffmann hefur sýnt það ■og sannað að hann er allra fremsti skriðsundsmaðurinn í heimunum í dag en á laugardag vann hann gull- verðlaun í 400 metra skriðsundi. Hoffman var nálægt því að slá heims- metið í 1500 metra skriðsundi á friö- arleikunum í Seattle á síðasta sumri og höfðu menn þá á orði að þaö yrði aðeins mánaðaspursmál hvenær metið yrði slegið. Meira að segja sagði Salnikov að met sitt væri í verulegri hættu en hann er nú lands- liðsþjálfari Sovétmanna í skriðsundi. Hoffmann á áhorfendum mikiö að þakka því hann var vel studdur í sundinu en þegar ljóst var að þetta átta ára gamla met var að falla risu » þeir úr sætum og hvöttu hann til dáða. -JKS Glæsilegt met Glæsilegt heimsmet leit dagsins ljós á heimsmeistaramótinu í Perth á laugardaginn í 200 metra flug- sundi. Melvin Stewart frá Bandaríkj- unum bætti þá fjögurra gamalt met Michael Gross, Þýskalandi, um eina _ og hálfa sekúndu. Stewart synti vegalengdina á 1:55,69 mínútu en gamla met.Gross var 1:56,24 mínútur og sett í Hannover í júní 1986. Sundið var einvígi á milli Stewart og Gross og það var á lokakaflanum sem Stewart seig framúr og tryggði sér sigur. Gross, sem varð heims- meistari í greininni 1982 og 1986, , leiddi sundið fyrstu 150 metrana en - varð að láta í minni pokann í lokin. Gross fékk tímann 1:56,78 mínútur. Hinn óviðjafnanlegi Tamas Damiy frá Ungverjalandi varð í þriðja sæti á 1:58,25 mínútu. * Bandaríkjamenn sigursælir - á heimsmeistaramótinu í sundi í Astralíu. Mjög góður árangur náðist á mótinu SMjög góður árangur náð- ist á heimsmeistaramót- inu í sundi og fjölmörg heimsmet féllu. Hér fara á eftir úrslit í einstökum greinum um helgina. • Þjóðverjinn Joerg Hoffmann sigraði í 400 skriðsundi á 3:48,04 mín- útum en landi hans Stefan Pfeiffer varð annar á 3:48,86 mínútum og í þriðja sæti hafnaði Artur Wjodat frá Póllandi á 3:49,67 mínútum. • Kínveijar, sem slógu rækilega í gegn á heimsmeistaramótinu, unnu gullverðlaun í 100 metra flugsundi kvenna. Qian Hong synti sundið frá- bærlega og kom inn á 59,68 sekúnd- um. Landa hennar Wang Xiaohong varð önnur á 59,81 sekúndu og Cat- herine Plewinski frá Frakklandi lenti í þriðja sæti á 59,88 sekúndum. • Allt ætiaði um koll að keyra þeg- ar ástralska stúlkan Linley Frame sigraði í 100 metra bringusundi með nokkrum yfirburöum. Frame synti á 1:08,81 mínútu, Jana Doerries frá Þýskalandi varð önnur á 1:09,35 mín- útu og Yelena Volkova frá Sovétríkj- unum lenti í þriðja sæti á 1:09,66 mínútum. • Sveit Bandaríkjanna sigraði 4x100 metra fjórsundi, sveitin synti vegalengdina á 3:17,15 mínútum. Sveitina skipuðu þeir Tom Jager, Brent Lang, Doug Gjertsen og Matt Biondi. Þjóðveijar lentu í öðru sæti á 3:18,88 mínútum- og Sovétmenn voru þriðju á 3:18,97 mínútum. • Tom Jager frá Bandaríkjunum sigraði í 50 metra skriðsundi á 22,16 sekúndum, Matt Biondi varð annar á 22,26 sekúndum og Gennandi Prigoda frá Sovétríkjunum lenti í þriðja sæti á 22,62 sekúndum. • Bandaríska stúlkan Summer Sanders sigraði með miklum yfir- burðum í 200 metra flugsundi, synti á 2:09,24. Japönsk stúlka að nafni Rie Shito kom nokkuð á óvart með því aö hreppa silfurverðlaun, Shito synti á 2:11,06 mínútum og í þriðja sæti varð Hayley Lewis frá Ástralíu á 2:11,09 mínútum. • Kíriverjar sýndu styrk sinn enn frekar í sundheiminum þegar Zhu- ang Yong sigraði í 50 metra skrið- sundi á 25,47 sekúndum. -JKS • Janet Evans frá Bandaríkjunum fagnar hér sigri i 800 metra skriðsundi á heimsmeistaramótinu í Ástralíu. Evans synti á 8:24,05 minútum og setti nýtt heimsmeistaramótsmet. Símamynd Reuter Skipting verðlauna á HM í sundi í Ástralíu Gull Silfur Brons Bandarlkin 17 11 6 t Kína 8 3 2 Ungverjaland 5 2 2 Þýskaland 4 9 9 Ástralía 3 5 2 | Holland 2 1 1 Sovétríkin 1 3 6 | Kanada 1 3 1 ItaHa 1 2 4 Spánh 1 1 1 Surinam 1 0 0 . Júgóslavía 1 0 0 Japan 0 2 3 Frakkland 0 2 1 Bretland 0 1 1 | Svíþjóð 0 1 0 Danmörk 0 0 2 Pólland 0 0 2 Tékkóslóvakfa 0 0 1 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.