Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1991, Blaðsíða 1
Breiðvangur:
Við eigum samleið
Söng- og skemmtidagskráin Viö
eigum samleið verður frumsýnd
annað kvöld í Breiðvangi. Dagskrá
þessi er byggð á söngferli Vilhjálm
heitins VUhjálmssonar dægurlaga-
söngvara og textahöfundar. Vil-
hjálmur lést í bílslysi í blóma lífsins
á hápunkti söngferils. Hann naut
mikilla vinsælda og hafði sérstakt lag
á að ná til áheyrenda.
Á Breiðvangi er rakinn tólf ára lit-
ríkur söngferill Vilhjálms og ílutt eru
öll vinsælustu lögin hans. Þau sem
fram koma tengdust Vilhjálmi á einn
eða annan hátt og er því ljúft og skylt
að minnast hans. Söngvarar eru Rut
Reginalds, Ellý Vilhjálms, Pálmi
Gunnarsson og Þorvaldur Halldórs-
son. Þá rifjar Omar Ragnarsson upp
skemmtileg samskipti sín við Vil-
hjálm og slær á mjög óvænta strengi.
Hemmi Gunn er sögumaður og stikl-
ar á stóru í lífshlaupi hans. Hljóm-
sveitarstjóm er í höndum Magnúsar
Kjartanssonar, en auk hans eru í
hljómsveitinni Vihjálmur Guðjóns-
son, Ásgeir Óskarsson, Finnbogi
Vinir Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar sem minnast hans með söng- og skemmtidagskrá í Breiðvangi.
Kjartansson og Pétur Hjaltested. Eðvarðssonsemhefursettuppmarg- árum. veislukvöldverð og eftir sýningu
Sjórnandi dagskrárinnar er Egill ar stórsýningar á undanfórnum Boðið verður upp á þríréttaðan verður dansleikur til klukkan 3.
Listasafri Sigurjóns:
Lesið úr þýðingum
Næstkomandi sunnudag, 3. febrú-
ar, verður bókmenntadagskrá í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í
Laugamesi. Lesið verður úr íslensk-
Viðar Eggertsson er einn upplesara
sem koma fram í Listasafni Sigur-
jóns.
um þýðingum á nokkrum öndvegis-
verkum sem gefin voru út fyrir síð-
ustu jóL Að þessu sinni verða kynnt
skáldverk eftir höfunda sem ekki
hafa verið þýddir áður á íslensku.
Árni Bergmann mun lesa út þýð-
ingu sinni á Undirleikaranum eftir
Nínu Berberovu. Viðar Eggertsson
les úr bókinni .Utz eftir Bruce Chat-
win, sem Unnur Jökulsdóttir og Þor-
björn Magnússon hafa þýtt. Ólöf Eld-
járn mun lesa úr eigin þýðingu á
bókinni Heimur feigrar stéttar eftjr
suður-afrísku skáldkonuna Nadine
Gordimer. Margrét Ákadóttir les úr
Blóðbrúðkaupi eftir Yann Queffélac
í þýðingu Guðrúnar Finnbogadóttur,
en saga þessi hefur hlotið hin virtu
Concourt-verðlaun. Að lokum les
Sigurður A. Magnússon úr þýðingu
sinni á skáldsögunni Dreggjar dags-
ins eftir Kazuo Ishiguro, en bókin
hlaut hin eftirsóttu bókmenntaverð-
laun Breta, Booker-verðlaunin, árið
1989 og hefur síðan farið sigurfór um
heiminn.
Dagskráin hefst klukkan 15 og
stendur í um það bil klukkustund.
Akureyri:
f m -| # 1
Vmartonleikar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Páll Pampichler verður hljóm-
sveitarstjóri á Vinartónleikura
Kammerhljómsveitar Akureyrar
sem haldnir verða í íþróttaskem-
munni á sunnudag kl. 17.
Kammerhljómsveit Akureyrar
hélt fyrstu Vínartónleika sína á síð-
asta ári. Þeir tónleikar hlutu frá-
bærar undirtektir fjölmargra
áheyrenda sem leiddi til þess að
ákveðið var aö slíkir tónleikar yrðu
árviss atburður.
Hljómsveitin er skipuð 45 hljóð-
færaleikurum. Einsöngvarar veröa
þau Signý Sæmundsdóttir sópran
og Óskar Pétursson tenór. Á tón-
leikunum verða fluttir fiörugir
Vínarvalsar, auk léttra sígildra
laga úr óperettum og eru Lehar,
Strauss-feðgar og Stolz meðal höf-
unda. Miðasala verður í íþrótta-
skemmunni frá kl. 16.30.
Þau sjá um Næturvaktina á Hótel Sögu. Halli, Laddi, Bessi, Guðmunda og Ingibjörg.
Hótel Saga:
Næturvaktin frumsýnd
Á morgun, laugardag, verður
frumsýnd ný skemmtidagskrá á Hót-
el Sögu. Sýningin heitir Næturvaktin
og er umgjörð hennar næturlífið í
París og Berlín á árunum kringum
1930. Efnið er þó héðan og þaðan, frá
ýmsum tímum og gjarnan sótt í það
mannlíf sem fer á kreik þegar heið-
virðir borgarar sofa.
Aðalleikarar sýningarinnar eru
Þórhallur Sigurðsson, gengur undir
nafninu Laddi, Bessi Bjarnason og
Haraldur Sigurðsson. Þeim til að-
stoðara eru dansmeyjarnar Guð-
munda og Ingibjörg. Ýmsir góðkunn-
ingjar koma í heimsókn eins og til
dæmis Saxi læknir, Skúli rafvirki og
aðrar minna þekktar persónur, alls
tuttugu.
Leikstjóri er Björn G. Björnsson
sem hefur í gegnum tíðina sett upp
sýningar sem reynst hafa vinsælar.
Hljómsveitastjórn er í höndum Arna
Scheving, danshöfundur er Helena
Jónsdóttir en búninga hannar Ragn-
heiður Ólafsdóttir.
Á undan sýningunni er boðið upp
á þríréttaðan kvöldverð og að sýn-
ingunni lokinni spilar hljómsveitin
Einsdæmi fyrir dansi til kl. 3.00. Sér-
stök kjör á gistingu bjóðast í tengsl-
um við sýninguna.