Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1991, Blaðsíða 1
■f !: !■ Y í I
, ! K>//íi;i'f'OjyS
■. WÍSÍSÍ yí~£:ý' ™
;<
Ráðhildur í
Nýlistasafninu
Á morgUn, laugardag, opnar í Ný-
listasafninu sýning á málverkum
Ráðhildar S. Ingadóttur. Opnunin er
klukkan 16.00 en sýningin stendur til
3. mars og verður opin daglega frá
klukkan 14.00 til 18.00.
Ráðhildur er fædd í Reykjavík 4.
aprd 1959. Hún stundaði nám á
myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti. Að því loknu hélt hún til
Englands og nam við skóla í Sussex
og St. Albans.
Þetta er sjötta einkasýning Ráð-
hildar og sú þriðja í Nýlistasafninu.
Hinar hélt hún í Gallery Neuhof-
Bachs í Sviss, Gallerí Gangi og Gall-
erí Birgis Andréssonar í Reykjavík.
Ráðhildur hefur tekið þátt í mörgum
samsýningum hérlendis og má nefna
IBM að Kjarvalsstöðum, Graflksýn-
ing í Gallerí Gangi, Samsýning í
Nýlistasafninu og „Fyrir ofan garð
og neðan“ sem Nýlistasafnið stóð
fyrir í tengslum við Listahátíð 1990.
Ráðhildur sýnir stór málverk í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. DV-mynd GVA
Nýlistasafnió:
Málverk
eftir Kristján
Steingrím
Á morgun, laugardag, klukkan
16.00 opnar Kristján Steingrímur
málverkasýningu í Nýlistasafninu
Kristján Steingrímur við eitt verk-
anna í Nýlistasafninu. DV mynd GVA
við Vatnsstíg.
Kristján Steingrímur er fæddur á
Akureyri 1957. Á árunum 1974 til
1976 nam hann myndlist í kvöldskóla
á Akureyri og ári síðar nam hann
tækniteiknun við Iðnskólann á Ak-
ureyri. Frá 1977-1981 var hann í
Myndlista- og handíöaskóla íslands
og lauk prófi frá nýlistadeild. Frá
1983- 87 var hann við nám við Hochs-
hule Fúr Bildenden Kúnste í Ham-
borg hjá prófessor Bernd Koberling.
Eftir heimkomuna hefur Kristján
Steingrímur kennt við myndlistar-
skóla í Reykjavík og á Akureyri, auk
þesss að vera stjórnarformaður og
framkvæmdastjóri Nýlistasafnsins.
Kristján Steingrímur hefur haldið
einkasýningar á Akureyri og í
Reykjavík. Hann hefur einnig tekið
þátt í nokkrum samsýningum í
Reykjavík, á Akureyri, Kaupmanna-
höfn og Amsterdam.
Nokkur verk eftir Kristján Stein-
grím eru í eigu opinberra aðila eins
og Listasafns íslands, Listasafns Há-
skóla íslands, Listasafns Reykjavík-
urborgar og í eigu Akureyjarbæjar.
Sýning Kristjáns Steingríms stend-
ur til 3. mars og er opin daglega frá
14.00 til 18.00.
Undir Bláa hattinum eru Egill Ólafsson, Asa Hlin Svavarsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson, Edda Heiðrún Back-
man og Jóhann Sigurðarson.
Hótel Borg:
Glæsileiki
gamla tímans
Hótel Borg verður nú opnuö aftur
eftir breytingar sem miða að því
að koma Gyllta salnum og veitinga-
salnum í sitt fyrra horf. Um helgina
verður mikil hátíð af þessu tilefni
með söngskemmtun sem nefnist
Blái hatturinn en síðan mun
Hljómsveit Aage Lorange og Orc-
estra Hótel Borgar leika fyrir
dansi. Öll stemning miðast viö gull-
aldarár Borgarinnar þegar hótelið
var eitt hið glæsilegasta í Evrópu.
Skemmtidagskráin Blái hattur-
inn byggir á vinsælum dægurlög-
um 4. og 5. áratugarins, einkum
breskum og bandarískum. Karl
Ágúst Úlfsson hefur samið bráð-
skemmtilega texta við nokkur lag-
anna en önnur eru flutt á frummál-
inu. Milh laga fara leikararnir með
gamanmál, jafnt í bundnu sem
óbundnu máli og kennir þar
ýmissa grasa. Undir Bláa hattinum
er Egill Ólafsson, Edda Heiðrún
Backman, Ása Hlín Svavarsdóttir,
Jóhann Sigurösson og Jóhann G.
Jóhannsson. Samstarf þeirra hófst
síðastliðið vor þegar Norræna hú-
sið fól þeim að annast dagskrá til
að minnast þess að 50 ár voru hðin
frá hernáminu. Með þá sýningu
hafa fimmmenningarnir gert víð-
reist innanlands og utan. Þau hafa
hvarvetna vakið athygli fyrir góð-
an flutning og vandaða meðferð
gömlu, góðu laganna.
í Hljómsveit Aage Lorange eru
margir þekktir heiðursmenn af
gamla skólanum. Auk Aage eru í
hljómsveitinni Þorvaldur Stein-
grímsson, Paul Bernburg, Jónas
Dagbjartsson, Reynir Jónasson og
Pétur Urbancic. Þeir leika tónlist
stríðsáranna og þar mun hljóma
tangó og aðrir þekktir dansar Borg-
arinnar verða stignir. Þess ber að
geta að um helgina mun Salon Trio
Þorvaldar Steingrímssonar leika
fyrir kaffigesti og geta þeir sótt í
hálfrar aldar gamla stemningu með
síðdegiskafiinu.
Veggir Gyllta salarins hafa verið
lagfæröir og eru nú myndirnar aft-
ur komnar fyrir augu gesta. Til
stendur að lagfæra veggmyndirnar
til frambúðar en þar til verður
tjaldað fyrir veggina með þunnu
tjaldi og lýsing látin endurkasta
myndunum á tjaldið. Þetta er gert
til að koma í veg fyrir meiri
skemmdir en orðið er. Með þessu
er stefnt að því að gera Hótel Borg
að því sem hún var þegar hún
gegndi aðalhlutverki í samkvæmis-
lífi Reykjavíkur.
Veggmyndirnar á Hótel Borg eru nú komnar aftur fyrir sjónir gesta.
DV-mynd GVA