Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Qupperneq 6
22
FÖSTUDA'GUR ÍFM'ARS 1991.
Háskólabíó:
Sýknaður?
Fyrir leik sinn í Sýknaöur (Re-
versal of Fortune) hefur Jeremy
Irons fengið tilnefningu til óskars-
verðlauna. í myndinni leikur hann
danskættaða greifann Claus von
Biilow sem giftist inn í eina auðug-
ustu ættina í Bandaríkjunum.
Hann var síðan ákærður fyrir að
reyna að myrða eiginkonu sína,
Sunny, en hún liggur nú í .
dauðadái. Það voru ættingjar
hennar sem fengu hann ákærðan.
Réttarhöldin vöktu geysimikla at-
hygli fyrir nokkrum árum og fylgd-
ust fjölmiðlar með þeim í smáatrið-
um enda var kafaö í lifnaðarhætti
Claus von Bulow (Jeremy Irons) við sjúkrabeð eiginkonu sinnar, Sunny
(Glenn Close).
„fína fólksins" á miskunnarlausan
hátt. Allt kemur þetta fram í mynd-
inni. Glenn Close leikur milljóna-
prinsessuna Sunny og Ron Silver
lögfræðinginn Alan Dershowitz
sem var verjandi Claus von Búlow.
Handritið að myndinni er byggt á
bók sem Dershowitz skrifaði um
réttarhöldin.
Leikstjórinn Barbet Schroeder er
búinn að vera viðloðandi kvik-
myndabransann í ein tuttugu og
fimm ár. í byrjun gerði hann allt
sem bauðst, var aðstoðarleikstjóri
Jean-Luc Godard við gerð Les
Carabiners, þá lék hann aðalhlut-
verkið í kvikmynd Eric Rohmer’s,
La Boulangere de Monceau, og var
það byrjunin á löngu samstarfi
þessara tveggja listamanna.
Schroeder leikstýrði sinni fyrstu
kvikmynd 1969. Það var bresk
kvikmynd, sem hét More, og var
hún sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Cannes. Eftir það hafði hann bú-
setu í Frakklandi og leikstýrði og
framleiddi jöfnum höndum leikn-
um kvikmyndum og heimildar-
myndum. Hann hefur leikstýrt
einni bandarískri kvikmynd,
Barfly, sem vakti mikla athygli fyr-
ir tveimur árum.
-HK
Bíóborgin:
Á síðasta snúningi
Á síðasta snúningi (Pacific
Heights) er sálfræðiþriller sem
breski leikstjórinn John Schlesin-
ger leikstýrir. Aðalpersónurnar
eru þrjár. Tvær þeirra eru Patty
Palmer og Drake Goodman sem
kaupa saman stórt draumaheimili
í San Francisco. Húsið er stórt og
til að auka tekjurnar auglýsa þau
kjallaraíbúð til leigu.
Þeim líst í fyrstu vel á leigjand-
ann, Carter Hayes. Hann virðist
vera hinn fullkomni leigjandi en
fljótlega eftir að hann flytur inn
kemur í ljós að hann er ekki allur
þar sem hann er séður. Þegar þau
reyna að losa sig viö hann hefur
hann sálfræðilegt stríð á hendur
þeim. Og áður en skötuhjúin vita
hvað um er að vera eru þau komin
í stríð við leigjandann, strið sem
þau mega ekki tapa því það gæti
kostað þau lífið.
Pacific Heights hefur fengið
virkilega góða dóma erlendis og
þykja leikararnir þrír, Matthew
Modine, Melanie Griffith og Mic-
hael Keaton, standa sig öll 'með
prýði, sérstaklega Keaton sem ieik-
ur hinn geösjúka leigjanda.
Myndin er enn ein rós í hnappa-
gat Johns Schlesinger sem á að
baki margar úrvalskvikmyndir.
Hann byrjaði leikstjórnarferil sinn
í heimalandi sínu á þeim tíma sem
breskar kvikmyndir voru í háveg-
um hafðar. Hans þekktustu kvik-
myndir frá þessu tímabili eru A
Kind of Loving, Billy Liar og Darl-
ing sem hlaut nokkur óskarsverð-
laun.
Ekki var amaleg byrjun hans í
Bandaríkjunum. Hans fyrsta mynd
þar var meistaraverkið Midnight
Cowboy sem hiaut öll helstu
óskarsverðlaunin árið sem hún var
frumsýnd. Schlesinger hefur síðan
stanslaust veriö að og þótt honum
hafi verið mislagðar hendur er
ávallt viss gæðastimpill á myndum
hans. Hans þekktustu kvikmyndir
fyrir utan þær sem nefndar hafa
verið eru Sunday, Bloody Sunday,
Day of the Locust, Marathon Man
og The Falcon and the Snowman.
Pacific Hights er sextánda leikna
kvikmyndin sem hann leikstýrir.
-HK
Marlon Brando fékk óskarsverð-
launin fyrir leik sinn í Guðföðurn-
um 1.
Háskólabíó:
Guðfaðirinn l og 2
í tilefni af frumsýningu á Guð-
föðurnum III, föstudaginn 8. mars
mun Háskólabío hefja í dag sýning-
ar á fyrri Guðföðursmyndunum
tveimur og sýna þær í nokkra daga.
Þessi skemmtilega tilhögun er ör-
ugglega vel þeginn af fjölmörgum
aðdáendum Francis Ford Coppola
sem leikstýrt hefur öllum myndun-
um þremur.
Fyrri tvær kvikmyndirnar eru
löngu orðnar klassískar og hjart-
fólgnar mörgum kvikmynda-
áhugamönnum, enda eru báðar
úrvalsmyndir og sú fyrri tíma-
mótaverk í sögu kvikmyndanna.
-HK
Laugarásbíó:
Stella
Stella er endurgerð kvikmyndar-
innar Stella Dallas sem gerð var
1937 og leikstýrð var af King Vidor.
Þar fór Barbara Stanwyck með
hlutverk konu sem fórnar öllu fyr-
ir dóttur sína. í nýju útgáfunni
hefur veriö lífgað upp á dramatísk-
an söguþráðinn og Bette Midler
leikur Stellu sem nú er orðin kjaft-
for barþerna sem vinnur hjá vini
sínum og orðlögðum drykkjusvola,
Ed Munn, sem John Goodman leik-
ur.
Hún kynnist ungum og ríkum
lækni sem leikinn er af Stephen
Collins og leiða þau kynni til þess
að hún verður ófrísk. Læknirinn
vill fóstureyðingu en hún neitar og
ákveður að ala upp barnið ein. Það
gengur erfiðleikalaust þar til stelp-
an er orðinn táningur þá byrjar
vandræðin hjá Stellu fyrir alvöru.
-HK
Bette Midler leikur barstúlkuna
Stellu í samnefndri kvikmynd.
Matthew Modine, Melanie Griffith og Michael Keaton mynda þrihyrning
í Pacific Heights.
Hvað finnst gagnrýnendum DV um myndir í bíóhúsum?
BÍÓBORGIN
Memphis Belle *
Stjómlaus frá flugtaki, flýgur á
tómu, hrapar sem steinn. Máttlaus,
bæði sem persónudrama og
spennumynd.
-GE
Uns sekt er sönnuð **★
Athyglisverðar persónur í flóknum
þriller þar sem gátan er óleyst fram
á síðustu stundu. Harrison Ford er
frábær. -HK
Góðir gæjar ****
Mjög vel leikin og spennandi maf-
íumynd, hrottafengin en um leið
raunsæ. Besta mynd Martins Scor-
sese frá því hann gerði Raging Bull.
-HK
BÍÓHÖLLIN
Passað uppá starfíð **
Ágæt iðnaðarframleiðsla. James
Belushi er góður, Charles Grodin
er enn betri.
-PÁ
Rocky 5 **
Óþarft en vel meint framhald sem
er mun skárra en síðustu þrenn
slagsmál. Stallone er skammlaus.
-GE
Ameríska flugfélagið ★
Langdregnar flugæfingar sem eru
lítið spennandi. Ekki heil brú í
handritinu. -PÁ
Aleinn heima **■/i
Gamanmynd um ráðagóðan strák
sem kann svo sannarlega aö taka
á móti innbrotsþjófum. Mjög fynd-
in í bestu atriöunum. MacCaulay
Culkin er stjarna framtíðarinnar.
EinnigsýndíBíóborginni. -HK
Þrír menn og lítil dama *★ /j
Létt, skemmtileg og hæfilega væm-
in iðnaðarkómedia. Talsvert betri
enforverinn. -GE
HÁSKÓLABÍÓ
Sýknaður?
Samleikur Irons og Close er hreint
ótrúlega vei heppnaður, en myndin
er sögð frá sjónarhorni sem sveltir
áhorfandann. -GE
Allt í besta lagi ***
Giuseppe Tornatore er mikill kvik-
myndageröarmaöur. Þótt Allt í
besta lagi sé ekki eins mikið verk
og Paradísarbíóiö þá er hér um
mjög góða kvikmynd að ræða og
sem fyrr má treysta á Mastroianni.
-HK
Hálendingurinn II *
Misheppnað framhald. Vantar flest
það sem prýtt getur góða kvik-
mynd. -PÁ
Kokkurinn, þjófurinn, konan hans
og elskhugi hennar ***
Áreitið og hrottafengið listaverk
um ást, kynlíf og mat. Ekki við allra
hæfi. -PÁ
Nikita ***
Sterkt myndmál er aðal Lucs Bes-
son nú sem fyrr. Hnökrar í per-
sónusköpun koma ekki i veg fyrir
góða skemmtun. -HK
Skjaldbökurnar *★ 'A
Snílldarlega útbúnar tánings-
skjaldbökur og fjörug saga gera
þetta að hinni bestu skemmtun fyr-
ir breiðan aldurshóp.
-GE
Tryllt ást ***
Lynch gengur of langt í furðuleg-
heitunum en að öðru leyti sterkt
og sérstakt verk. -GE
Paradisarbíóið *★* 'A
Þaö líöur öllum vel eftir að hafa séð
þessa einlægu og frábæru kvik-
mynd. -HK
LAUGARÁSBÍÓ
Leikskólalöggan **
Einfeldningsleg saga, byrjar ágæt-
lega en fer yfir væmnismörk í lok-
in. Schwarzenegger stendur sig
furðuvel.
-GE
Skuggi ** /z
Dúndurkeyrsla og hraði en upp-
bygginguna vantar. Neeson er góð-
ur og stendur af sér gallana í sög-
unni. , -GE
REGNBOGINN
Úlfadans ***
Löng og falleg kvikmynd um nátt-
úruvemd og útrýmingu indíána.
Glæsileg fmmraun Kevins Costn-
ers. Örugguróskar. -PÁ
Litli þjófurinn ***
Grátbrosleg þroskasaga, arfur
meistara Truffauts í vandaðri út-
setningu Claude Millers. Kærkom-
in tilbreyting.
-PÁ
Samskipti **
Christopher Walken á góða spretti
í forvitnilegri kvikmynd sem spyr
margra spurninga en veitir fá svör.
-HK
Aftökuheimild *
Van Damme er ekki vandinn held-
ur einstaklega ófmmiegur og
óspennandi söguþráður. -GE
Ryð ★** 'á
Sterkt drama. Öll vinna mjög vönd-
uö og fagmannleg. -PÁ
Skúrkar ** '4
Háðskt og meinfyndið löggugrín
frá Fransmönnum. -GE
STJÖRNUBÍÓ
Pottormarnir * ’A
Hroövirknislegt framhald þar sem
söguþráður er nánast enginn og
frumleikinn horfinn. Börnin einu
leikararnir sem standa fyrir sínu.
-HK
Flugnahöfðinginn **
Endurgerð klassískrar sögu upp á
nútímann en hún er kraftlaus og
aldrei meira en forvitnileg.
-GE
Á mörkum lífs og dauða **
Góð hugmynd en klúðurslega unn-
in og ekki alltaf sjálfri sér sam-
kvæm. Myndræna hliðin er of-
keyrð í von um að auka áhrifin.
-GE